Morgunblaðið - 13.01.1977, Síða 16

Morgunblaðið - 13.01.1977, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 1977 trgwriM&íjíiifo Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulitrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6. simi 22480. Áskriftargjald 1 100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60.00 kr. eintakið. Adhaldsstefna í ríkisfjármálum Íleiðara Morgunblaðsins I gær er frá þvi greint að á árinu 1976 hafi orðið, f fyrsta sinn um árabil, jákvæður greiðslu- jöfnuður hjá rfkissjóði og hagstæður rekstrarjöfnuður. Greiðslu- jöfnuður rfkissjóðs varð hagstæður um 1100 milljónir króna, en var neikvæður um 6.400 milljónir árið 1975 og 3700 milljónir árið 1974. Ekki liggja fyrir endanlegar tölur um rekstrarjöfnuð, en þó er sýnt, að hann hefur reynst hagstæður. Rekstrarhalli rfkissjóðs árið 1975 nam hins vegar 7500 milljónum króna og árið 1974 3300 milljónum króna. Ekki er að efa að þær ströngu aðhaldsaðgerðir, sem upp hafa verið teknar f rfkisfjármálum f tfð núverandi fjármálaráðherra, eiga hér verulegan hlut að máli. Nú hefur fjármálaráðherra, Matthfas A. Mathiesen, og ráðuneytisst jórinn f f jármálaráðuneytinu, Jón Sigurðsson, ritað öllum ráðuneytum og rfkisstofnunum bréf, þar sem gerð er grein fyrir nýjum aðhaldsreglum á árinu 1977; og hvern veg verði náið fylgzt með útgjöldum einstakra rfkisstofnana f samráði við rfkisendurskoðun. Þá er forstöðumönnum rfkisstofnana gert að semja greiðsluáætlun viðkomandi stofnana fyrir yfirstandandi fjárlagaár. Er f þvf sambandi sérstaklega tekið fram, að ekki sé hægt að hefja útgreiðslu samkvæmt fjárlögum 1977, fyrr en greiðsluáætlanir stofnana hafi borizt ráðuneytinu, að undanskildum greiðslum vegna launa. t fyrrgreindu bréfi fjármálaráðherra er m.a. tekið fram, að séu framkvæmdir fjármagnaðar með lánsfé, skuli taka tillit til þess kostnaðar, sem af lántöku leiðir. Óheimilt er að framkvæma fyrir hærri fjárhæðir en nemur lánsfjárhæðinni að frádregnum lántöku- kostnaði. Þá er óheimilt að gera verksamning fyrir hærri fjárhæð en sem nemur 90% af þeirri fjárveitingu, sem ætluð er til viðkomandi verks. Ilalda skal eftir 10% til að mæta ófyrirséðum kostnaði. Við skiptingu annarra rekstrargjalda er stofnunum gert að halda eftir sem svarar 5% af heildarfjárveitingu þessa rekstrarliðar, til að mæta ófyrirséðum útgjöldum á sfðasta mánuði ársins. Þær ríkisstofnanir, sem fjármagnaðar eru að einhverju eða öllu leyti með mörkuðum tekjustofnum, skulu, ef f Ijós kemur að hinir mörkuðu tekjustofnar ná ekki áætlun fjárlaga, endurskoða framkvæmda- og greiðsluáætlanir sfnar, þann veg, að starfað sé innan þess ramma, sem rauntekjur setja. Þá er f bréfinu greint frá samstarfsreglum fjármálaráðuneytis og rfkisstofnana varðandi aðhaldsaðgerðir. Sýnt er að fjármálaráðherra hyggst fylgja fast eftir þeim aðhalds- aðgelðum og árangri sem þegar hefur náðst f rfkisfjármálum. Þær hafa fyrst og fremst leitt til hallalauss rfkisbúskapar, sem er einkenni traustrar stjórnunar rfkisfjármála. En aðhald f rfkisfjármálum er ekki sfður óhjákvæmilegt til hömlunar verðbólgu og viðskiptahalla og hefur reynst liður f þeim árangri, sem náðist á þeim vettvangi á sl. ári. Sfðast en ekki sfzt eru slfkar aðhaldsaðgerðir nauðsynlegar til að Iryggja það meginmarkmið, að rfkisútgjöld fari ekki yfir ákveðið hlutfall og hættumörk f heildarverðmætasköpun þjóðarinnar. Þvf meira af þjóðartekjum sem rfkið tekur til sfn hverju sinni, þvf minna verður eftir f ráðstöfunartekjur heimila og einstaklinga f landinu. Þess er þvf að vænta að hin nýja aðhaldsstefna f rfkisfjármálim eigi hljómgrunn hjá þegnum þjóðfélagsins. Efling útflutningsiðnaðar Erlendar skuldir þjóðarbúsins hafa aukizt gffurlega á undanförnum árum. Talið er að greiðslubyrði erlendra skulda, þ.e. vextir og ifborganir af föstum erlendum lánum, hafi nálgast 20% af átflutningstekjum þjóðarinnar á sl. ári. Að hluta til eru þessar skuldir til orðnar vegna framkvæmda, sem eiga eftir að hafa vfðtæk gjaldeyrissparandi áhrif, s.s. á sviði orkumála og framleiðsluiðnaðar. Að hluta til eru þær umframeyðsla þjóðarinnar, fram yfir þá eyðslu- möguleika, sem þjóðartekjur hafa skapað. Af þessum sökum hefur verið lögð áherzla á minnkum þjóðareyðslu, norkkurn framkvæmda- .amdrátt én sfðast en ekki sfzt aukningu verðmætasköpunar til út- flutnings. Illutur iðnaðar f útfluningsverðmætum þjóðarinnar hefur vaxið úr 13% árið 1971 f 18% árið 1975. Stærstur er hlutur álsins f iðnaðar- ítflutningi, eða tæp 60% á árinu 1975. Þar næst koma ullarvörur með 16%, skinnaframleiðsla með 7.8%, kfsilgúr með 6.7% og aðrar grcinar neð lægra hiutfall. Illutur sjávarútvegs f heildarútflutningi er lang- ttærstur, 77% árið 1975, en hann hefur ekki vaxið hlutfallslega á .fðustu árum. Miðað við núverandi ástand fiskstofna gerir hann það íaumast á næstu árum. Hins vegar er þess að vænta að útflutnings- /erðmæti f iðnaði geti vaxið verulega. Forsenda slfks er þó hvort- veggja, að fram verði haldið þeirri uppbyggingu f orkuverum, sem lúverandi rfkisstjórn hetur beitt sér fyrir, og að iðnaðinum verði köpuð jafnkeppnisaðstaða við erlenda keppinauta. Stórt spor var tigið f þá átt með setningu nýrra tollalaga fyrir áramótin. En betur ná ef duga skal á þeim vettvangi. Birgir Isl. Gunnarsson borgarstjóri flytur ávarp sitt. Miklir annatímar framundan og engin þreytumörk sjáanleg Ávarp Birgis ísl. Gunnarssonar borgarstjóra á 80 ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur Hr. forseti Islands, virðulega forsetafrú, ágæta leikfélags- fólk, aðrir gestir. Ég stíg hér fram á sviðið í lok þessarar hátfðarsýningar til að flytja Leikfélagi Reykjavíkur beztu kveðjur og árnaðaróskir í tilefni 80 ára afmælisins. Á ís- lenzkan mælikvarða eru 80 ár hár aldur fyrir menningar- stofnun, en það er vissulega enginn öldungsbragur á félag- inu. Það höfum við séð hér í kvöld, þar sem okkur leikhús- gestum hefur verið flutt eitt af höfuðverkum heimsleikbók- menntana, og burðarásinn í sýningunni hefur verið ungt fólk, ný kynslóð leikfélagsfólks, sem hefur sýnt okkur, að það kann að taka við þeim arfi, sem eldri kynslóð leikfélagsmanna hefur látið þeim f té. Ég þakka fyrir þessa ánægju- stund f leikhúsinu hér f kvöld og reyndar oft áður. Þegar Leikfélag Reykjavíkur var stofnað árið 1897 var margt öðru vfsi hér f Reykjavik en nú er. Reykjavík var þá smábær með um 4.500 fbúum, sem tjölg- aði þó nokkuð ört, en undravert er, hve leikhúsgestir hjá leik- félaginu urðu fljótt margir. Það sýnir, að leikhúsið varð strax almenningseign. Þangað sótti fólk úr öllum þjóðfélagshópum. Leikfélagið varð enginn heldrí manna klúbbur, eins og tiðkað- ist sums staðar annars staðar og e.t.v. hafði bryddað á hér áður, ef marka má umrhli Þjóðólfs um leiksýningu, sem Jón Guðmundsson ritstjóri beitti sér fyrir árið 1854, þar sem sýnt var leikritið „Pakk" eftir danskan höfund. Blaðið segir, að leikurinn hafi vakið mikla hrifningu, svo að „flestir heldri menn staðarins fóru tvisvar eða þrisvar á leikinn og sumir oft- ar.“ Áhuginn á starfi leikfélags- ins varð strax mikill og almenn- ur og fljótt myndaðist samband miili bæjarstjórnarinnar og leikfélagsins í þvf formi, að bæjarsjóður hóf að styrkja starfsemina með fjárframlög- um þegar árið 1899, og reyndar benda gamlar fundargerðir til þess, að verkleg aðstoð hafi ver- ið látin í té einnig, því að 1899 er bókað í bæjarstjórn, að vega- nefndinni sé „falið að fylla vilpu norðan við Iðnaðar- mannahúsið f Vonarstræti svo fljótt sem hægt er.“ Fyrsti styrkurinn mun hafa verið 150 kr. Nokkur óvissa virðist hafa verið um það, hvernig skyldi bókfæra styrkinn, en hann er færður undir „óviss og óvænt útgjöld" og meðal annarra þátt undir þessum lið má nefna styrk til gufubátsferða um Faxaflóa. Margt í gögnum bæjarstjórn- ar frá þessum tfma bendir til þess, að forverar okkar, sem nú förum með borgarmál, hafi ver- ið mjög fastheldnir á fé, og því er það athyglisvert, hversu greiðan aðgang leikfélagið átti strax :ð hjörtum þeirra. Þeir hafa greinilega verið mun opn- ari fyrir leiklistinni heldur en sveitarstjórnarmenn í Énglandi á þessum tíma, en þá barðist einn frægur leikhúsmaður fyr- ir því, að sveitarstjórnirnar tækju leiklistina upp á arma sína og lét svo ummælt, að sveitarstjórnarmenn ættu að sjá svo um, að leiklistin fengi jafn greiðan aðgang að almenn- ingi eins og gas og vatn og að leikhúsin væru engu þýðingar- minni en bókasöfnin. Hér f Reykjavík var leiklistin bæði á undan gasinu og vatninu, þvi að hvorugt var veitt til fólksins fyrr en löngu seinna. Hér var þessu því öfugt farið miðað við England, því að fyrsta hug- myndin um vatnsveitu í Reykjavík kom frá leikhús- manni, þ.e. Sigurði Guðmunds- syni, málara, sem því miður náði þvi ekki að sjá Leikfélag Reykjavíkur stíga sfn fyrstu spor. En hvers vegna leikhús? Hvað er það, sem dregur fólk á stað eins og þennan? Hvers vegna hefur leikhúsið öldum saman dregið fólk að sér eins og segull, en það vitum við m.a. af því, að margt af þvi veglegasta, sem varðveitzt hefur úr bygg- ingarlist fornra menningar- þjóða, er einmitt leikhúsin. Þau voru jafn ómissnadi og mursterin eða stjórnarmið- stöðvarnar. Sennilega er skýr- ingarinnar að leita í því, sem höfundur þess Ieikrits, sem hér var flutt í kvöld, á að hafa sagt, að öll veröldin væri leiksvið og allir menn og konur aðeins leik- endur. Leikhúsið á að vera spegilmynd þjóðfélagsins, og við áhorfendur sjáum okkur oft sjálf á leiksviðinu og skynjum, að veröldin þar er mynd af þvf, sem við sjálf þekkjum. Jafnvel þótt aldir skilji að höfund og áhorfendur, eins og hér i kvöld, skynjum við i túlkuninni ákveðna drætti úr því lifi, sem við þekkjum og erum þátttak- endur f. En leikhús, sem ekki setur markið hátt í listrænu tilliti, er ekki liklegt til langlffis. Það hefur verið gæfa Leikfélags Reykjavíkur frá upphafi, að það hefur sett sér strangar kröfur. Forystumenn félagsins, leikarar og annað starfsfólk hefur með kröfuhörku sinni við sjálft sig gert leikfélagið að einni virkustu menningarstofn- un borgarinnar um sina daga. Leikfélag Reykjavíkur hefur lagt grundvöllinn að því leik- listarlífi, sem við f dag þekkjum i borginni. Stuðningur borgaryfirvalda hefur því fyrst og fremst verið viðurkenning á gildi þess starfs, sem leikhúsfólkið sjálft hefur lagt af mörkum; — það er hugur borgarbúa til félags- ins, sem speglast hefur í við- horfi borgarstjórnar. Og nú er samstarf Reykja- víkurborgar og Leikfélags Reykjavíkur að taka á sig nýtt form. Borgarleikhús er f sjón- máli. Stofnskrá hefur verið sett og framkvæmdir eru hafnar. Borgin og leikfélagið byggja leikhúsið í sameiningu, en starfsemi hússins verður i höndum leikfélagsins, sem mun ráða hinni listrænu stefnu hússins, enda hefur félagið með verkum sinum sýnt það, að það verðskuldar fyllilega slfkt traust. Það eru því miklir anna- tímar framundan hjá leikfélag- inu og engin þreytumörk sjáan- leg, þrátt fyrir áttatfu árin. Ég ítreka árnaðaróskir mínar til Leikfélags Reykjavikur. Ég þakka gott samstarf félagsins við borgaryfirvöld og fyrir hönd Reykvíkinga þakka ég ómetanlegan þátt félagsins f menningarlifi bogarinnar og ót- aldar ánægjustundir fyrr og síðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.