Morgunblaðið - 13.01.1977, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 1977
Hörð gagnrýni á
frönsku stjórnina
Framhald af bls. 1.
lausan „tíkarson". Ekkja
skylmingamannsins Andre
Spitzers bar spjald, þar sem á var
letrað: „Látið hann fara heim til
Frakklands, hann á heima þar f
hópi svikara og hugleysingja."
Var úldnum eggjum og ávöxtum
kastað að sendiráðinu.
Daoud hélt í dag fund með
fréttamönnum i Alsir, þar sem
hann sagði að Palestínumenn
myndu gera allt sem i þeirra valdi
stæði til að auka og bæta sam-
skipti sín við Frakka. Hann sagði
að handtaka sin hefði verið hrein
pólitísk aðgerð, þar sem vissir
aðilar innan frönsku lögreglunn-
ar störfuðu í þágu zionista.
Franskir ráðherrar vörðu í dag
ákvörðun sina og sögðu að V-
Þjóðverjar hefðu ekki verið búnir
að staðfesta framsalsbeiðni sína
innan þeirra tímamarka sem
kveðið er á um í framsals-
samningi landanna, sem undir-
ritaður var 1951. Þá hefði enginn
lagalegur grundvöllur verið fyrir
því að framselja Daoud til ísraels.
Dagblöð í Frakklandi gagnrýna
sem eitt mjög harðlega aðgerðir
franskra yfirvalda í þessu máli og
segir Le Monde t.d. í dag: „Það er
hörmulegt þegar menn búa við
lögreglulið, sem hlýðir ekki skip-
unum, en lagakerfi sem gerir það,
og ríkisstjórn, sem tekur pólitisk-
ar hagkvæmnisákvarðanir í blóra
við almenningsálitið heima fyrir
og úti í heimi."
til ^firheyrslu aftur í morgun, en
síðan verið sendur heim án þess
að hann væri yfirheyrður. Aðrir
andófsmenn, þ.á m. leikritaskáld-
ið Pavel Kouhut, voru yfirheyrðir
í dag og margir voru einnig í
löngum yfirheyrslum í gær.
Aðstandendur samtakanna
„Mannréttindi 77" hafa birt tvö
opin bréf, þar sem þeir krefjast
þess, að borgaraleg réttindi verði
endurreíst í Tékkóslóvakiu, en
þau hafi ekki verið i gildi frá því
á dögum Dubeceks, sem steypt
var af stóli með sovézkri innrás
fyrir 8 árum. Talsmenn þeirra
segja, að þvi fari fjarri að hér sé
um1 stjórnmálaleg andstöðusam-
tök að ræða, aðeins hóp manna
sem vilji leiðrétta mistök og galia,
sem stofni sósialismanum í hættu.
1 leiðara Rude Pravo segir, að
ekki nokkur vafi geti leikið á um,
Framhald af bls. 32.
fyrir um greiðsluafkomu A-
hluta ríkissjóðs, gefa til kynna
að fjárhagur ríkisins á siðast-
liðnu ári hafi styrkzt til muna
og að tekizt hafi að eyða þeim
mikla halla, sem verið hefur á
ríkisbúskapnum á undan-
förnum árum. Þannig hefur
tekizt að koma í veg fyrir að
útgjöld ríkisins í hlutfaiii við
þjóðartekjur haldi áfram að
hækka.“
„Er þá ekki um einhverja
dökka punkta í þessari mynd að
ræða?
„Það tókst ekki að grynnka á
skuldum ríkissjóðs við Seðla-
bankann eins og áætlað var, en
skuldaaukning við Seðlabank-
ann nam 1,5 milljörðum króna.
Á móti lækkuðu hins vegar
lausaskuldir gagnvart öðrum
aðilum um 1,6 milljarða króna.
Ljóst er því.að sá árangur, sem
náðst hefur í fjármálum ríkis-
ins á árinu 1976, er mjög í ætt
við þau meginmarkmið, sem
ríkisstjórnin setti sér á árinu
1976 “
„Hverjar eru helztu forsend-
ur fyrir þessum bata?“
„Tvímælalaust má rekja
þann bata, sem fram kemur hjá
ríkissjóði á árínu 1976, til þess
Það var áfrýjunarréttur í Paris,
sem kvað upp úrskurðinn um aó
Daoud skyldi sleppt, þar sem V-
Þjóðverjar hefðu ekki krafizt
framsals hans í tæka tíð og Israel-
ar hefðu ekki rétt á að krejast
framsals. Guichard, dómsmála-
ráðherra Frakklands, sagði i út-
varpsviðtali i gær, að málinu
hefði lokið með dómsúrskurðin-
um. Er ráðherrann var spurður að
því hvort dómstóllinn hefði ekki
hraðað störfum sínum í þessu
máli óvenjulega mikið, þar sem
málið hefði verið tekið fyrir 6
dögum fyrr en ákveðið hafði ver-
ið, en hann svaraði, að það væri
eðlilegt að málinu hefði verið lok-
ið á fremur stuttum tima.
Blöð i lsrael og viðar hafa sakað
Frakka um að hafa beygt sig fyrir
þrýstingi frá Aröbum, þar sem
Frakkar séu mjög háðir kaupum á
olíu frá Aröbum og svo hafi flug-
vélasölusamningurinn haft sitt að
segja.
Talsmaður v-þýzka dómsmála-
ráðuneytisins sagði töluverða
erfiðleika á að túlka fyrrnefndan
framsalssamning, en bætti engu
frekar við yfirlýsingu stjórnar-
innar frá því í gær, þar sem hún
harmaði ákvörðun frönsku stjórn-
arinnar.
Henry Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, sagði að
Bandaríkjastjórn væri furðu lost-
in yfir ákvörðun Frakka, en vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um mál-
ið.
að aðgerðum andófsmannanna sé
stjórnað erlendis frá.
Blaðið heldur því fram, að þeir
Havel, Ludvik Vaculik, Jiri
Hajek, fyrrum utanrikisráðherra,
og Frantisek Kriegel, fyrrum
meðlimur æðsta ráðs tékkóslóvak-
íska kommúnistaflokksins, séu út-
sendarar hægrisinnaðra endur-
skoðunarsinna og að hægt sé að
draga þá í dilk með svörtustu end-
urskoðunarsinnum i hóp and-
kommúnista. Þeir hafi aðeins eitt
í huga, að sá fræjum gagnbylting-
ar og varpa þjóðinni út í öngþveiti
og öryggisleysi. Segir blaðið, að
bréfin séu andvíg ríkinu, sósial-
isma, þjóðinni og hreint slúður,
sem baktali hið sósíalíska lýðveldi
Tékkóslóvakíu. Að lokum segir,
að saga andkommúnismans geymi
önnur opin bréf, sem voru ennþá
meira afturhaldssinnuð, en blaðr-
an hafi sprungið fljótt.
að tekizt hefur að sporna gegn
auknum útgjöldum rikissjóðs.
Sú nýskipan, sem upp var tekin
I byrjun ársins 1976 með gerð
áætlana um greiðsluþarfir
ríkisstofnana innan fjárhags-
ársins ásamt vikulegum saman-
burði við greiðslur úr ríkis-
sjóði, hefur leitt til virkari
heildarstjórnar ríkisfjármál-
anna. Þær útgjaldaáætlanir,
sem byggðar voru á greiðslu-
áætlunum ríkisstofnana, hafa
staðizt og flestum rikisstofn-
unum tókst að starfa innan
ramma fjárlaga heimilda, þótt
misbrestur hafi nokkur orðið
þar á, en í slíkum tilfellum voru
gerðar sérstakar ráðstafanir til
að tryggja að slikt endurtæki
sig ekki.“
„Nú hafa enn með bréfi til
ríkisstofnana verið settar
strangar skorður við útgjöldum
þeirra. Hvað viltu segja um
þær?“
„Sá árangur, sem náðist i
stjórn rikisfjármálanna á
siðastliðnu ári, á að verða hvati
til þess að vinna enn gegn þess-
ari miklu verðbólgu, sem ríkir
hér á landi. Við gerð fjárlaga-
frumvarpsins fyrir árið 1977 og
við afgreiðslu fjárlaga þessa
árs, var á útgjaldahlið lögð
megináherzla á að umsvif í al-
mennri opinberri starfsemi ykj-
ust alls ekki meira en sem
næmi líklegri aukningu þjóðar-
framleiðslu á þessu ári, og að
nokkuð yrði dregið úr opinber-
um framkvæmdum í heild.
Þessu til áréttingar hef ég ritað
öllum stofnunum ríkisins bréf,
þar sem lögð er áherzla á , að
stofnanir starfi innan ramma
fjárlaga og mun ráðuneytið
ásamt ríkisendurskoðun fylgj-
ast náið með að svo verði. Þá er
einnig mælt svo fyrir, að verði
framkvæmdir fjármagnaðar
með lánsfé, er óheimilt að fram-
kvæma fyrir hærri fjárhæð en
nemur lánsfjárhæðinni að frá-
dregnum lántökukostnaði. Þeg-
ar verksamningar eru gerðir,
skal halda eftir 10% af fjárveit-
ingunni, en þann hluta skal
nota til þess að mæta ófyrir-
sjáanlegum útgjöldum. Við
skiptingu annarra rekstrar-
gjalda er lögð áherzla á að til
ráðstöfunar I desember sé eigi
lægri fjárhæð en 5% umfram
útgjöld mánaðarins af heildar-
fjárhæðinni, sem ætlað er að
mæta óvæntum rekstrargjöld-
um. Þá ber ennfremur þeim
ríkisstofnunum, sem fjármagn-
aðar eru af einhverju eða öllu
leyti með mörkuðum tekju-
stofnum, að haga framkvæmd-
um sínum þannig að starfað sé
innan þess fjármagns, sem
mörkuðu tekjustofnarnir
leyfa."
Að lokum sagði Matthías Á.
Mathiesen fjármálaráðherra:
„Þótt það virðist horfa betur
nú i upphafi þessa árs i efna-
hagsmálum þjóðarinnar, er
brýn nauðsyn á að treysta enn
frekar fjárhag rikisins, þar sem
viðskiptakjör erlendis hafa nú
snúizt okkur i hag og er því
mikilvægt að nota þetta tæki-
færi til þess að styrkja stöðu
þjóðarbúsins út á við, en ekki
eingöngu til þess að auka
þjóðarútgjöld."
— Viðræður
Framhald af bls. 1.
að ákveðið hefði verið að hefja
viðræður milli fulltrúa EBE og
norsku sendinefndarinnar á
föstudag til að reyna að ganga frá
samkomulagi hið bráðasta þannig
að hann og Evensen gætu ræðzt
við að nýju innan 1—2 vikna, ef
sérfræðinganefndirnar hefðu
komið sér saman um tillögu-
grundvöll. Evensen sagði, að
Gundelach hefði þegið boð norsku
stjórnarinnar um að koma til
Lofoten f vetur og fylgjast með
vertíðinni þar.
— Jákvæðar
Framhald af bls. 1.
hópi sósialista, kristilegra demó-
krata, frjálslyndra og þjóðernis-
sinna Baska, lýstu ánægju sinni
með viðræðurnar í gærkvöldi.
Virðist Suarez hafa tekizt að sann-
færa þá um réttmæti aðferða
sinna við að leiða Spán frá ein-
ræðisstjórnskipulagi F’rancos sl.
40 ár til lýðræðis.
— Sakadómur
Framhald af bls. 2
Sagði borgarstjóri að margar
fyrirspurnir hefðu komið til hans
um mann þennan og hvort hann
væri búinn að fá lóðina. 1 Ijós
hefði komið að svo var ekki, held-
ur hafói maðurinn einungis lagt
inn umsókn fyrir lóð. Sagði
borgarstjóri að hann hefði talið
rétt að sakadómur kannaði mál
þetta nánar, en auk þess hefði
einn þeirra aðila, sem ætlaði að
taka þátt í byggingunni, óskað í
gær eftir sams konar rannsókn.
Birgir Isleifur sagði að lokum,
að hann vissi ekki til að umrædd-
ur maður hefði áður staðið fyrir
byggingum í Reykjavík.
r
— Ibúðaspá
Framhald af bls. 2
háð þvi að haldið verði áfram að
laga kerfi húsnæðismála að sér-
stökum þörfum einstakra hópa,
svo sem ekkla, ekkna, öryrkja,
lágtekjufólks o.s.frv. Ibúðar-
ástand I landinu hefur batnað á
undanförnum árum og kemur það
einna skýrast fram í hlutfalli ein-
hleypra yfir 20 ára með Ibúð til
eigin afnota. Töldust 10% þeirra
búa við þau skilyrði árið 1950.
Það tók 14 ár, frá 1950 til 1964, að
hlutfall þetta yrði 20%. Helmingi
skemmri tima tók að ná úr 20% í
29.4% árið 1970. Enn skemmri
tíma eða 5—6 ár tók að ná næstu
10% aukingu eða 40% árið 1976
og er gert ráð fyrir að breyting
um tug til viðbótar taki 4—5 ár.
Þannig að árið 1985 muni um
63% einhleypra hafa sérstaka
ibúð til afnota.
Þá segir í formálanum að íbúða-
spánni, að almennari mælikvarði
sé að skoða hlutfallið milli fjölda
íbúða og íbúða í heild. Árið
1950—1955 töldust vera um 4,8
íbúar á hverja Ibúð. Upp frá því
fór hlutfallið hægt lækkandi, var
4.5 árið 1960, 4,0 árið 1969 og mun
hafa verið árið 1976 um 3,5 íbúar
á íbúð. Samkvæmt íbúðaspánni
má svo vænta þess að hlutfallið
komist í 3,0 Ibúa á íbúð árið 1985.
Sennilegt má telja að hlutfallið
2.5 ibúar á íbúð muni fela i sér
mettun þarfarinnar um fyrir-
sjáanlega framtíð.
— Gert við
Framhald af bls. 2
einum stað i sjó og er reiknað
með að verkið taki tvo sólar-
hringa og verði lokið i janúar.
Verður strengurinn tekinn á
land á Skansinum og um leið
verður felld niður loftlínan frá
heimakletti og í Skansinn, en
fyrir einum 15 árum var leiðsl-
an leidd yfir Heimaklett og
tekin niður með loftlínu aftur.
Kári sagði að það hefði tekið
langan tíma að kanna skemmd-
irnar til hlítar, en Guðmundur
Guðjónsson kafari vann þar
erfitt verk á um 50 m dýpi og
víða var strengurinn á kafi I
hraungjalli á botninum og
varð þvi að grafa hann upp þar
á kafla. Könnun lauk ekki til
fulls fyrr en s.l. haust og var
þá afráðið að gera strax við
strenginn þegar ljóst var hve
skemmdur hann var, því öll
raforka frá landi, um 4 MW á
dag, fer um þennan eina
streng til Eyja.
Aðspurður kvað Kári vanta
upp á nægilegt varaafl raforku
fyrir Eyjar, „og það má líka
segja að það sé lítið öryggi að
hafa aóeins einn streng til
Eyja“, bætti hann við.
I samtali við Garðar Sigur-
jónsson, rafveitustjóra i
Eyjum, sagði hann, að óeðli-
lega tíðar bilanir hefðu orðið
að undanförnu á raflínunni til
Eyja og kvað hann ástæðuna
hafa aðallega verið þá, að
einangrun á staurum uppi á
landi hefði ekki dugað. Kvað
hann nokkuð hafa verið unnið
að því að setja sterkari ein-
angrun á staurana, sérstakleg
nærri sjónum þar sem seltan
sezt mest á þá, og hefði það
gefizt vel.
Garðar kvað mesta afl raf-
orku á dag I Eyjum hafa kom-
izt upp í 5,3 MW a s.l. ári, en
Rafveita Vestmannaeyja á nú
6 vélar, 660 kw hverja, sem
geta framleitt 70—80%> af raf-
orkuþörf Eyjamanna ef þörf
krefur. Kvað hann unnið að
því að koma þessum vélum i
nýtt rafveituhús, en mannvirki
Rafveitunnar fóru sem kunn-
ugt er undir hraun í eldgosinu.
Var Rafveita Vestmannaeyja
þá mjög vel búin vélum og í
góðu húsnæði. Kvað Garðar
líklegt að húsnæði fyrir Raf-
veituna yrði keypt á næstunni.
r
— Avísanamál
Framhald af bls. 2
rannsókninni yrði beint í
þrengri farveg en verið hefði.
Greip þá saksóknari inn í og
botnaði setninguna þannig:
„heldur að fella málið niður.
Var það ekki það raunverulega
sem hann ætlaðist til? Að málið
væri sent til þess að málið yrði
fellt niður. En það er stefna
sem ég ætla ekki að taka. Ég er
að vinna i málinu til að semja
ákæru í því en ekki til að fella
það niður."
„Rannsóknartregða
hjá Hrafni“
Þórður Björnsson sagði að
lokum, að einhver rannsóknar-
tregða virtist vera hjá Hrafni
Bragasyni í sambandi við þetta
mál. „Það lítur út fyrir að hann
vilji takmarka málið en ég er
ekki til viðtals um það,“ sagði
Þórður Björnsson að lokum.
Vegna ummæla saksóknarara
hér að framan, spurði Mbl.
Hrafn Bragason að því hvort
hann hefði sent málið til rikis-
saksóknara til þess að það yrði
fellt niður. Hrafn svaraði því til
að hann væri aðeins rann-
sóknaraðili en ákvörðunarvald-
ið væri í höndum saksóknara.
Hann hefði því sent málið til
saksóknara i þeim eina tilgangi
að fá ákvörðun um framhald
þess, og hefði hann búizt við
því að framhaldsrannsóknar
yrði óskað.
Þegar Morgunblaðið innti
Hrafn eftir áliti hans á öðrum
ummælum rikissaksóknara og
þeirri stefnu, sem ávisanamálið
hefur tekið á allra síðustu
dögum, svaraði hann:
„Óskum um samstarf
ekkiveltekið“
— Ég vísa til þeirra fréttatil-
kynninga sem áður hafa birzt
frá mér. Að öðru leyti vil ég
aðeins segja þetta. Ég er sam-
mála Þórði Björnssyni um að
málið sé ekki komið á ákæru-
hæfan grundvöll og eigi, ef
áfram á að halda, langt i land
með það. Eins og margsinnis
hefur komið fram í fjölmiðlum,
var málið einmitt sent ríkissak-
sóknara svo hann gæti tjáð um
framhald málsins og takmörk
þess við raunhæf úrlausnar-
efni. Óskum mínum um sam-
starf í þessu skyni hefur hins
vegar einhverra hluta vegna
ekki verið vel tekið og ber að
harma það, sérstaklega vegna
mikils umfangs málsins. Að
öðru leyti vil ég ekki tjá mig
um orð Þórðar, deilur um þetta
mál eru ekki við hæfi og eru
einungis til þess fallnar að
skaða framhald rann-
sóknarinnar.
— Afli
Framhald af bls. 2
ar, sagði Jens Mikaelsson, frétta-
ritari Mbl. þar. Kvað hann 4 bát-
anna vera byrjaða á trolli, en afli
þeirra væri mjög tregur. Einn
bátur, Gissur hvíti, reri með línu
og fiskaði dável eða 7 til 10 tonn i
róðri.
í morgun var Skinney væntan-
leg með 80 tonn til Hafnar. Þá er
vinnsla hafin í hinu nýja frysti-
húsi á Höfn, sem er mjög glæsi-
legt, en frystihúsið verður form-
lega vígt þann 29. janúar n.k.
Daniel Halldórsson, vigtarmað-
ur í Grindavik, sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann, að
undirbúningur undir vertið væri
þar I fullum gangi. Þegar væru 7
bátar byrjaðir róðra með línu og
14 hefðu hafið róðra með net, auk
þess sem 6 Grindavikurbátar
væru á loðnuveiðum.
Að sögn Daniels, þá hefur afli
línubátanna verið tregur eða 2 til
6.5 lestir í róðri. Afli netabátanna
hefur hins vegar verið betri og
kom t.d. einn að með 31 lest af
tveggja nátta ufsa þann 7. jan. og
Fjölnir fékk 20 lestir af ufsa I
róðri.
Gert er ráð fyrir að 80 til 90
bátar rói frá Grindavik I vetur
þegar þeir verða flestir.
— Bílaskip
Framhald af bls. 2
bílaskip, þvi auk þess að vera
hugsað til bílaflutninga, þá er
einnig hugmyndin að flytja út
fisk með því, og aðrar vöruteg-
undir, eins og t.d. grænmeti, er
auðvelt að flytja með sliku skipi,
sem er mjög nútímalegt að allri
gerð.
— Krafla
Framhald af bls. 31
á næsta fundi Samstafsnefndar
um öryggismál við Kröflu.
— Fyrir hendi er önnur áætlun
um nokkurs konar varnargarð ef
gos verður, sagði Guðjón Peter-
sen. — Byggist sú áætlun á þvi að
ýta jarðvegi upp að mannvirkj-
unum og myndi jarðvegurinn
verja húsin og styrkja þau. Ættu
tæki ekki að skemmast vegna hita
frá hrauni með þessari einangr-
un, en hins vegar er hæpið að
hægt verði að verja kæliturninn á
þennan hátt. sagði Guðjón Peter-
sen að lokum.
— Harkaleg árás
Framhald af bls. 1.
— Matthías Á
Matthiesen