Morgunblaðið - 13.01.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.01.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANUAR 1977 Frægu liðin víðast LIÐ Ásgeirs Sigurvinssonar, Stand- ard Liege, gerði jafntefli I leik slnum við Lierse I belglsku 1. deildar keppninni I knattspyrnu s.l. sunnudag. 0—0, og má nú segja að Standard standi mjög höllum faati I baráttunni um belglska meistara- titilinn ( ár. Hefur liðið hlotið 1 9 stig ( 1 7 leikjum, eða 7 stigum minna en liðið sem er I forystu. Þo er það mikið eftir af keppninni enn að vissulega gæti Standard blandað sér I baráttuna. Liðið sem Guðgeir Leifsson leikur með, Charleroi, gerði einnig 0—0 jafntefli um helgina og stendur það nú mjög illa að vlgi, aðeins tvö lið eru fyrir neðan Charleroi og þv( mikil fallhætta á ferðum. Það er Club Brúgge sem er I forystu i Belglu og hefur hlotið 26 stig, skorað 36 mörk gegn 15 Moleenbek er I öðru sæti með 25 stig, en síðan koma Beerschot með 22 stig, Cercle Brúgge með 21 stig, Anderlecht með 20 stig, Lierse með 20 stig, Antwerpen með 20 stig og Kortrijk með 1 9 stig Stand- ard Liege er svo I 9 sæti I deildinni með 1 9 stig. Röð annarra liða á deild- inni er sem hér segir: Lokeren 1 6 stig, Winterslag 1 5 stig, Waregem 1 4 stig, Beveren 14 stig, Beringen 13 stig, Mechelen 1 1 stig, Charleroi 1 1 stig, Liege FC 10 stig og Oostende 8 stig HOLLAND í Hollandi hafa öll félögin nema tvö, Feyenoord og Twente, leikið 18 leikí Er sýnt að baráttan um hollenzka meistaratitilinn I ár mun standa milli gömlu stórveldanna Ajax og Feyenoord, en meisturum fyrra árs, PSV Eindhoven, hefur ekki vegnað vel I vetur og er liðið nú I fimmta sæti I deildinni Ajax hefur hlotið 29 steg eftir 18 leiki, Feyenoord 28 stig eftir 17 leiki og I þriðja sæti er svo FC Utrecht með 23 stig eftir 1 8 leiki. ITALÍA Torino og Juventus berjast mjög jafnri baráttu á toppnum i Itölsku 1. deildar keppninne Bæði hafa þessi lið hlotið 21 stig eftir 12 leiki, en marka- hlutfall Torinos er nokkru betra eða 24 mörk gegn 6, en 18 mörk gegn 7 hjá Juventus Inter Milan er svo i þriðja sæti með 16 stig, en Fiorentina og Napoli hafa hlotið 14 stig. SKÍÐAMAÐUR FÚRST Ungur sænskur skíðamaður, Steve Hedström að nafni, beið bana er hann fékk slæma byltu í svigkeppni sem fram fór í Malá í Svíþjóð um síðustu helgi. Var Hedström komin nálægt markinu er hann varð fyrir því óhappi að lenda á stórum steini sem var rétt við brautina og fékk hann við það slæma byltu og annar skiðastafur hans gekk upp i kviðarholið. Var Hedström þegar fluttur á sjúkra- hús, en var látinn er þangað kom. Álitið er að Steve Hedström sé einhvert mesta efni sem fram hef- ur komið f skiðaíþróttinni í Svi- þjóð fyrr og síðar, og var hann nær ósigrandi i unglingaflokki hvar sem hann keppti i fyrra. Var hann jafnan kallaður „hinn nýi Stenmark" og miklar vonir bundnar við hann. Hedström var nýlega orðinn 16 ára er hann lézt. Leikmenn Wimbledon og Middlesbrough f harðri baráttu I leiknum I fyrrakvöld. VAFASÖM VITASPYRNA BJARGAÐIMIDDLESBROIIGH EINS og skýrt var frá I Morgun- blaðinu I gær, tókst ensku meisturunum Liverpool að bera sigurorð að 3. deildar liðinu Crystal Palaee I ensku bikar- keppninni f knattspyrnu I fyrra- kvöld. Naumari gat þó sigur meistaranna ekki verið, 3—2 og mátti Liverpool reyndar þakka fyrir að fá ekki á sig mark á sfðustu mfnútu leiksins, er Crystal Palace komst í gott færi. Það var Steve Heighway sem var hetja Liverpool-liðsins f leik þess- um. Sjálfur skoraði hann tvö mörk og lagði þriðja markið upp, en þá var það Kevin Keegan sem skoraði. Sennilega var leikur 1. deildar liðsins Middlesbrough og utan deilda liðsins Wimbledon sögu- legasti leikurinn í fyrrakvöld. Átti 1. deildar liðið oft mjög í vök að verjast í leik þessum, þar sem Wimbledon-leikmennirnir voru greinilega ákveðnir í að vinna sig- ur og báru enga virðingu fyrir hinum frægu andstæðingum sín- um. Svo fór þó að lokum að Middlesbrough sigraði 1—0 og gerði liðið mark sitt úr vítaspyrnu sem var, að sögn ensku blaðanna, hrein gjöf frá dómaranum. Urðu mikil læti meðal áhangenda Wimbledon-liðsins á áhorfenda- pöllunum þegar vitaspyrnan var dæmd, leikmenn liðsins voru gráti nær af gremju en gátu þó stillt sig þannig að enginn fékk áminningu. Fulham, lið George Best og Rodney Marsh, var leikið sundur og saman í fyrrakvöld af Swindon Town. 5-0 urðu úrslit leiksins. 1 tveimur leikjum fengust svo ekki úrslit þrátt fyrir framlengingu og verða því liðin, sem eru Bristol Rovers — Notthingham Forest og Orient og Darlington, að reyna með sér i þriðja sinn. í forystu VESTUR ÞÝZKALAND Vetrarhlé stendur nú yfir i vestur- þýzku 1. deildarkeppninní i knatt- spyrnu og er það notað til þess að leika i undankeppni bikarkeppninnar Staðan i deildinni eftir 1 7 leiki er sú að Borussia Mönchengladbach hefur for- ystu með 27 stig Eintracht Braunschweig er i öðru sæti með 23 stig og Bayern Múnchen er i þriðja sæti með 22 stig Þessi þrjú félög munu væntanlega berjast um vestur- þýzka meistaratitilinn i ár, þótt önnur félög geti vissulega blandað sér i þá baráttu eins og t.d. Hertha Berlin sem er með 21 stig og Köln og Schalke 04 sem eru með 20 stig Bikarmeistarar Vestur-Þýzkalands, Hamburger SV, sem kepptu við Keflvíkinga í Evrópu- bikarkeppni bikarhafa, eru nú í 13 sæti í 1. deildar keppnanni. SPÁNN Johan Cruyff og félagar hans i FC Barcelona hafa nú tekið forystu I spænsku 1 deildar keppninni og hefur liðið hlotið 25 stig úr 17 leikjum sínum Baráttan um meistratitilinn á Spáni verður greinilega mjög hörð i vetur, og að sögn þeirra sem fylgzt hafa með knattspyrnunni þar, hafa leikir I. deildarinnar sjaldan verið jafn- ari og betri en nú. Atletico Madrid er i öðru sæti í deildinni með 23 stig, en siðan koma Real Sociedad og Valencia með 21 stig Hið þekkta félag Real Madrid er svo í fimmta sæti með 1 9 stig Byrjaði liðið keppnistímabilið fremur illa en hefur verið að sækja i sig veðrið að undanförnu Bikarleikur í kvöld 1 kvöld, fimmtudaginn 13. janú- ar, fer fram einn leikur í bikar- keppni Handknattleikssambands Islands. Leika þá 1. deildarlið Gróttu og ÍR í Iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Hefst leikurinn kl. 21.30. Klaus Heidegger, sem mjög hefur verið I sviðsljósinu að undan- förnu. AUSTURRlSKA stúlkan Anne Marie Pröll Moser (fyrir miðju) hefur nú tekið örugga forystu I heimsbikarkeppninni. Með henni á myndinni eru Maria Theresa Nadig (t.v.) og Bernadette Zurbriggen (t.h.), en þær urðu í öðru og þriðja sæti f keppninni I fyrradag. PRÖLL í ESSINU SlNU HIN 23 ára Anne Marie Pröll Moser frá Austurríki virðist ætla að slá i gegn í heimsbikarkeppn- inni á skíðum f ár. i fyrradag vann Pröll öruggan sigur í brun- keppni sem fram fór i Garmisch Partenkirchen og hefur hún nú náð 32 stiga forystu f keppninni um heimsbikarinn. Sem kunnugt er var Pröll ósigrandi á sfnum tíma, en ákvað haustið 1975 að leggja skfðín á hilluna og keppti aðeins á minni háttar mótum í heimalandi sinu i fyrravetur. Þótti mikið skarð fyrir skildi á Ólympíuleikunum í Innsbruck þegar Pröll var þar ekki meðal keppenda. Þeir leikar urðu hins vegar tíl þess að kveikja i Pröll að nýju og hóf hún þá æfingar fljót- lega. Töldu margir að Pröll hefði misst það mikið úr að hún myndi ekki eiga möguleika í heimsbikar- keppninni f ár, en hún virðist ætla að afsanna það rækilega. í brunkeppninni i fyrradag fór Pröll brautina á 1:51,00 min. Þótti sá tima allgóður miðað við hversu erfið brautin var, en Pröll fór mjög varlega f erfiðasta kafla hcnnar. Önnur í keppninni varð Zurbriggen frá Sviss og i 'þriðja sæti várð Maria Theresa Nadig frá Sviss — brunsigurvegarinn frá Olympíuleikunum í Sapporo 1972. Eftir sigurinn í fyrrakvöld hef- ur Pröll hlotið samtals 142 stig í heimsbikarkeppninni. 19. desember s.l. var hið árlega jólamót TBR i unglingaflokkum haldið í nýja TBR-húsinu við Gnoðarvog. Þátttaka í mótinu hef- ur aldrei verið meiri en í ár, en keppendur voru samtals 106. Munaði þar mestu hversu mikil þátttaka var í yngsta aldurs- flokknum sem í voru piltar á aldrinum 8—12 ára, en þar voru keppendur hvorki fleiri né færri en 47. Hófst mótið kl. 14.00 en þvf lauk ekki fyrr en um kl. 21.00. Helztu úrslit urðu þessi: Hnokkaflokkur 8—12 ára: Þorsteinn Hængsson, TBR, vann Hauk Birgisson í úrslitaleik 11—4 og 11—3. Stelpuflokkur 8—12 ára: Þórunn Óskarsdóttir, KR, vann Ingunni Viðarsdóttur, ÍA, í úr- Habersatter frá Austurríki er i öðru sæti með 110 stig, og í þriðja sæti er Morerod frá Sviss með 95 stig, en margir spáðu henni sigri í heimsbikarkeppninni í ár. slitaleik 11—0 og 11—0. Sveinaflokkur 12—14 ára: Gunnar Jónatansson, Val, sigraði Þorgeir Jóhannsson, TBR, i úr- slitaleik 11—3 og 12—10. Meyjaflokkur 12—14 ára: Kristin Magnúsdóttir, TBR, sigr- aði Örnu Steinsen, KR, 11—3, 11—2 og 12—10. Drengjaflokkur 14—16 ára: Reynir Kristjánsson, KR, sigraði Guðmund Adolfsson, TBR, f úr- slitaleik 11 —3 og 11 —4. Piltaflokkur 16—18 ára: Jóhann Kjartansson sigraði Jóhann Möller í úrslitaleik 15—6 og 16—7. Stúlknaflokkur 16—18 ára: Kristín Berglind vann Bjarnheiði Ívarsdóttur í úrslitaleik 11—5 og 11—3. MIKIL ÞATTTAKA I UNGLINGAMÓTITBR Norðmenn burstuðu Norðmenn burstuðu Pólverja í landsleik f handknattleik sem fram fór f hinni svokölluðu Kaltic-bikarkeppni f Austur- Þýzkalandi f gærkvöldi. Skoruðu Norðmenn 27 mörk gegn 22 mörk- um Pólverja í leiknum. Byrjuðu Norðmenn leikinn illa og náðu Pólverjar fljótlega 3 marka for- ystu, sem þeir sfðan juku f 5 marka forystu um miðjan fyrri hálfleik og héldu henni hálfleik- Pólveija inn út, en f hléi var staðan 17—13 fyrir Pólland. I seinni hálfleik var blaðinu algjörlega snúið við. Norðmenn höfðu leikinn ( hendi sér og skoruðu 14 mörk gegn 5 f hálfleiknum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.