Morgunblaðið - 21.01.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.01.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1977 Vararfkissaksóknari: Mál oft rannsökuð frekar á ákærustigi MORGUNBLAÐIÐ ræddi í gær vid Hallvarð Einvarðsson vara- ríkissaksóknara vegna morðs Guðmundar Einarssonar og skyldra mála, en eins og kom fram í Mbl. í gær, eru viðbólar- rannsóknir hafnar í málinu að krófu dómaranna, sem hafa málið til dómsmeðferðar. Hallvarður sagði, að það hefði verið mat ríkissaksóknaraem- bættisins að skilyrði hefðu verið til útgáfu ákæru í málinu. Akær- an hefði verið gefin út í desember s. l. og send sakadómi Reykjavíkur til dómsmeðferðar, en þess jafn- framt krafizt að lokið yrði við rannsókn málsins. Sagði Hallvarð- ur að það væri algengt að rann- sóknir færu fram í viðamiklum málum eins og þessum þótt þau væru komin á ákærustig. Bærist t. d. oft ósk um slíkt frá sækjendum og verjendum og einnig kæmi það fyrir að dómend- ur óskuðu rannsóknar á vissum hlutum. Iðnaðardeild SÍS býður Loðskinni 75 þus. gærur Gengur langt í samkomulagsátt, segir framkvæmdastjóri Loðskinns IÐNAÐARDEILI) Sambands fs- lenskra samvinnufélaga hefur nú lagt fram sáttatilboð f deilu SlS og Sútunarverksmiðjunnar Loð- skinns h.f. á Sauðárkróki og býðst hún f tilboði sinu til að selja Loðskinni 75 þúsund gærur og jafnframt er því lýst yfir f tilboð- inu að Iðnaðardeildin ætli á næstu þremur árum að takmarka hráefniskaup sín frá Búvörudeild SÍS við 550 þúsund gærur. Hefur tilboð þetta verið til umræðu á fundum. sem forráðamenn fyrir- tækjanna hafa setið. Eins og áður hefur komið fram hafði SÍS áður samþykkt að selja Loðskinni 35 þúsund gærur og falla þær inn í fyrrnefnd tilboð, þannig að til- boðið gerir ráð fyrir að Loðskinn fái til viðbótar 40 þúsund gærur. Jón Asbergsson, framkvæmda- stjóri Loðskinns, h.f., sagði í sam- tali við blaðið í gær, að þetta tilboð gengi langt í samkomulags- átt en forráðamenn Loðskinns litu ekki á þetta sem endanlegt samkomulag. — Þessar 75 þúsund gærur nægja okkur ekki til að halda verksmiðjunni gangandi fram að næstu sláturtíð og miðað við að við fáum ekki fleiri gærur, þurfum við að loka verk- smiðjunni í 3 mánuði. Ef við ætt- um að geta haldið henni gangandi allan tímann þyrftum við að fá að lágmarki 120 þúsund gærur i heild frá SÍS eða 45 þúsund til viðbótar, sagði Jón. 1 samtali við blaðið sagði Jón, að forráðamenn Loðskinns hefðu lagt á það áherslu i samningavið-1' ræðum sínum við Sambandið, að tryggt væri að verksmiðjan fengi hráefni í framtíðinni. Sagði Jón, að þetta tilboð SÍS gengi langt í þá átt að mæta þörfum Loðskinns svo fremi sem hráar gærur yrðu ekki fluttar út. Loðskinn fengi sambærilegt magn af gærum og undanfarin ár frá öðrum slátur- leyfishöfum en aðildarfélögum SÍS, s.s. Sláturfélagi Suðurlands, og að slátrun sauðfjár yrði áþekk og hún hefði verið í haust og fyrrahaust. Hjörtur Eiríksson. fram- kvæmdastjóri Iðnaðardeildar SIS, sagði í gær, að hann teldi að búiö va>ri að ná samkomulagi um grundvallaratriði í deilum Loð- skinns og Sambandsins en deilu- aðilar ætluðu þó að ræða áfram saman um atriði, sem enn hefði ekki fengist lausn á. Loðnuaflinn var orðinn 65 þúsund lestir í gær Fituinnihaldið yfir 13% LOÐNUAFLINN frá áramótum var orðinn 65 þúsund lestir í gær- morgun, en sama dag f fyrra var aflinn aðeins 7980 lestir, og er aflinn því orðinn 57 þúsund lest- um meiri en á sama tíma f fyrra. Góð veiði var hjá loðnubátunum f fyrrakvöld og frá kl. 20 í fyrra- kvöld þar til um hádegi f gær tilkynntu 23 skip um afla samtals 9200 lestir. Flest fóru skipin til Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Fá- skrúðsfjarðar, en nokkur fóru til Raufarhafnar og eitt skip, Sigurð- ur RE, fór til Siglufjarðar með 1100 lestir. Að sögn Emilíu Martinsdóttur efnafræðings hjá Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins, hefur loðnan aðeins misst fitu síðustu daga og sýni frá Raufarhöfn frá 16. janúar sýna að þá var loðnan 12,8 til 13% feit. Þurrefnisinni- hald sömu sýna var 15,3 til 16,3%. Þróarrými er nú orðið af skornum skammti á Austfjörðum, og var búist við að þrær á Eskifirði og Reyðarfirði myndu fyllast í dag. Þá fóru a.m.k. tvö skip til Fá- skrúðsfjarðar í gær með loðnu og ef veiði verður í nótt, má jafnvel búast við að einhver skip fari til Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur. Síðustu daga hefur loðnan hald- ið áfram að síga suður með land- grunnskantinum út af Norðaust- urlandi og í fyrrinótt voru skipin að veiðum um 50 mílur NNA af Langanesi. Eftirtalin skip tilkynntu um meira en 300 tonna afla til Loðnu- nefndar í fyrrakvöld og fyrrinótt: Huginn VE 550 lestir, Svanur RE 300, Helga 2. RE 350, Fífill GK 500, Bjarni Ólafsson AK 500, Guð- mundur RE 750, Hrafn GK 400, Örn KE 500, Jón Finnsson GK 520, Hákon ÞH 440, Sigurður RE 1100, Súlan EA 650, Albert GK 420, Gisli Árni RE 530 og Öskar Halldórsson RE 400 lestir. Þrengt að togurum á Strandagrunni: Gripið til skyndilokunar vegna mikils smáfisks Undirbúningur skákeinvígisins: Fischer kom því í gegn að allt yrði 1. flokks UNDIRBÚNINGUR að einvígi þeirra Spasskýs og Horts er hafinn af fullum krafti, að sögn Einars S. Einarssonar, forseta Skáksambands tslands, en einvígið hefst sem kunnugt er 27. febrúar á Hótel Loftleiðum. Búið er að skipa ýmsar nefndir, sem síðan sjá um ákveðna þætti undirbúningsins. Að mörgu þarf að hyggja, því síðan einvigið um heimsmeistaratitilínn var haldið hér ai Reykjavík 1972 hefur það verið sett í reglur um slík einvigi að aðstaða öll og aðbúnaður kepp- »nda skuli vera 1. flokks. Flest atriðin knúði Bobby Fischer fram á sínum tíma, og hafa Skáksam- bandsmenn í höndun-um lista með tugum skilyrða, sem þarf að upp- fylla áður ein einvígið getur haf- izt. GRIPIÐ var til skyndilokunar á svæði á Strandagrunni úti af Kögri í fyrrakvöld, þar sem smá- fiskur var mjög mikill í afla tog- ara þar. Var hlutfall fisks, sem er undir 55 sm að stærð og af stofn- inum frá 1973, frá tæplega 50% og jafnvel yfir 60% af afla sumra togaranna á svæðinu. Gildir þessi skyndilokun í þrjá daga, en að þeim tíma liðnum er það í valdi sjávarútvegsráðuneytisins að ákveða hvort lokunin gildir áfram eða svæðið verður opnað á ný. Svæðið, sem lokað var, er á milli lóranlína 62400 til 62500, austur eftir að lóranlínu 47100. Voru það eftirlitsmenn um borð í togurum og menn um borð í Haf- rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni, sem töldu að hlut- fall smáfisksins væri of mikið. Voru suðurmörk svæðisins færð í '62505, c lóran-línu. Að sögn Hjálmars Vilhjámsson- ar leiðangursstjóra um borð í Bjarna Sæmundssyni mun áfram verða fylgzt með magni fjögurra ára fisksins næstu daga. Þykir það hlutfall, sem var á fyrr- nefndu svæði af þessum aldurs- flokki, of mikið og nýtingin það KENNARAR í flestum gagn- fræðaskólum í Reykjavfk gegndu ekki gæzlu f frfmfnútum f gær, vegna ágreinings, sem risin er á milli þeirra og yfirvalda um hvort slfk gæzla sé f verkahring kennara eða ekki. Að sögn Baldurs Sveinssonar, formanns félags gagnfræðaskólakennara f Reykjavfk, vilja kennarar fá það á hreint f eitt skipti fyrir öll hvort þetta starf er f þeirra verkahring. Sagði Baldur að þetta mál hefði verið leiðindamál f mörg ár og þeir vildu fá úr þessu skorið, en Ber væri engan veginn um launa- legt atriði að ræða. Að sögn Sigurðar Helgasonar i slæm að ekki sé verjandi að leyfa veiðar á honum. Bjarni Sæmundssson hefur ver- ið við loðnuleit og rannsóknir að undanförnu. Hefur verið erfitt um vik vegna íss úti af Vestfjörð- um, en undanfarið hefur ísinn rekið frá. Hefur orðið vart við nokkurt magn af loðnu norður af Vestfjörðum við landgrunnskant- inn og er þar hrygningarloðna. Hins vegar er ekki vitað hvort hún er á leiðinni suður með land- inu eða austur. menntamálaráðuneytinu sendi fræðslustjórinn f Reykjavík mál þetta menntamálaráðuneytinu til afgreiðslu. Sendi ráðuneytið mál- ið síðan áfram til samninganefnd- ar og er úrskurður ekki kominn þaðan. í erindisbréfi kennara er gæzla í frfmínútum eða umsjón talin í þeirra verkahring að sögn Sigurðar Helgasonar, en kennar- ar munu álíta að þeir eigi að undirbúa sig fyrir næstu kennslu- stund f frfmínútum eða vinnuhlé- um. Er þvf fier um hreint túlkunaratriði á kjarasamningum að ræða og er ekki ólíklegt að mál þetta fari fyrir kjaranefnd, að sögn þeirra Sigurðar Helgasonar og Baldurs Sveinssonar. Jafntefli hjá íslenzku stórmeisturunum: Athyglin beindist öll að skák Timmans og Kurajica BAÐIR íslenzku stórmeistar- arnir gerðu jafntefli í skákum sfnum á mótinu f Hollandi í gærkvöldi. Friðrik og Ligterink frá Hollandi sömdu eftir 18 leiki og Guðmundur og Barczay sömuleiðis eftir 21 leik. Islend- ingarnir höfðu báðir svart f gær. Friðrik er nú f 3.—5. sæti ásamt Geller og Miles, allir með 3.5 vinninga. Guðmundur er f 8.—10. sæti með 2.5 vinn- inga ásamt Timman og Nikolac. Efstur á mótinu er Sosonko með 4.5 vinninga og Kurajica er annar með 4 vinninga. Skákum sjöttu umferðarinn- ar í gærkvöldi lauk öllum með jafntefli, nema hvað Nikolac vann Böhm. Það var skák þeirra Timmans og Bojan Kura- jica, sem átti alla athygli áhorf- enda í gær. Fyrstu leikirnir voru þessir, Timman hafði hvítt: 1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bc4 __ Bc5, 4. b4... Byrjun þessi mun vera kölluð „Evans- gambfturinn" og fyrst notuð af brezkum skipstjóra árið 1824. Fyrir 80 árum var þessi byrjuni mjög vinsæl, en skákfræðingar fundu leið til að gera sóknar- möguleika hvíts að engu og sást þessi byrjun því ekki lengi. Fyrir hálfri öld eða svo notuðu tveir stórmeistarar þessa byrj- un svo aftur í mikilvægrl skák. Það var svo ekki fyrr en í skák Timmans og Kurajica i gær að þessi byrjun sást aftur Framhald á bls 22. Gæzla felld niður í frímínútum í gagn- fræðaskólum í Rvík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.