Morgunblaðið - 21.01.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.01.1977, Blaðsíða 5
5 KVOLDIO 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 1 Hvttárstðu minning- anna. Guðrún Guðlaugsdóttir talar við Benjamfn Jóhannesson bónda á Hall- kelsstöðum. 20.00 „Goyescas“ eftir Enrique Granados Mario Miranda leikur á pfanó. 20.45 Myndlistarþáttur I um- sjá Þóru Kristjánsdóttur. 21.15 Einsöngur: Joan Suther- land syngur. Nýja ffl- harmonfuhljómsveitin leik- ur með; Richard Bonynge stj. 21.30 CJtvarpssagan: „Lausn- in“ eftir Árna Jónsson. Gunnar Stefánsson les (8). 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Ljóðaþáttur. Lmsjónarmaður: Njörður P. Njarðvfk. 22.40 Áfangar. Tónlistarþáttur f umsjá Ás- mundar Jónssonar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. Kreppan og hvíta tjald- ið kl 22.00 Á dagskrá sjónvarpsins I kvöld er brezk kvikmynd frá árinu 1974, sem hefur á íslenzku hlotið heitið Kreppan og hvita tjaldið en nafnið á frummálinu er „Brother can you spare a dime". Leikstjóri myndar þessarar er Philippe Mora og hefur Stefán Jökulsson þýtt hana yfir á íslenzku. Að sögn Stefáns er þetta mjög nýstárleg mynd, fagmannlega gerð og unnin, til dæmis hvernig hún er klippt. Myndin á að lýsa bandarísku þjóðlífi frá árunum 1930—1942 eða frá því að kreppan skellur á, með verðbréfahruninu i Wall Street, og þar til árásin er gerð á Pearl Harbour. Þetta er ekki biómynd Í eiginlegum skilningi heldur sam- tvinningur fréttamynda og Holly- wood kvikmynda frá þessum tíma, að þvi er þýðandi myndarinnar sagði. Fréttamyndirnar koma frá mörgum sjónvarpsstöðvum og eru þar m.a. viðtöl við almenning i Banda- rikjunum frá þessum tima. Mjög mikið er fjallað um Franklin D. Roosewelt, sem var kosinn forseti árið 1932 og baráttu hans við kreppu og efnahagsástand, og m.a. sýnt hvernig hann vildi fara nýjar leiðir og nota rikisvaldið til að koma þeim breytingum áleiðis. James Cagney er svo notaður til að túlka andstæðu kreppu og bágborins efna- hags, þ.e. sem fulltrúi hinnar glæstu Hollywood. Er með þessari mynd reynt að skyra mörkin milli þjóð- félagslegra hræringa i Banda rikjunum á þessum tima og svo upp- gangs kvikmynda i Hollywood, sem voru í allmikilli mótsögn við raun- verulegt ástánd mála. í mynd þessari kemur fram fjöldi stórstjarna Hollywood þessa tima, svo sem G: ry Cooper, Gary Grant, og margir fleiri en mest munu sjón- varpsáhorfendur þó fá að sjá af James Cagney. í myndinni er dægurlagatónlist frá þessum tima mikið spiluð og sagði Stefán Jökulsson þýðandi að textar þeirra túlkuðu á áhrifamikinn hátt hið eiginlega myndmál. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1977 ---- ... Aldrei fleiri sem vilja gerast flugfreyjur FLl'GFREYJL'STARFIÐ virðist sífcllt njóta mikilla vinsælda og er Loftleiðir auglýstu eftir 40 flugfreyjum eða flugþjónum fyr- ir síðustu jól bðrust hvorki meira né minna en á sjötta hundrað umsóknir. Hafa ekki áður horizt svo margar umsóknir um flug- freyjustörf hér. V'oru stúlkur í niiklum meirihluta, eða um 500, en piltar voru hins vegar um 60. Þegar hafa um 200 umsækjenda fengið afboð vegna þess að þeir hafa ekki uppfyllt einhver skil- yrði. A sunnudaginn gangast hin rúmlega 300 undir almennt próf þar sem könnuð verður almenn þekking og tungumálakunnátta. Þau 40 sem standa sig bezt verða síðan á 3—4 vikna námskeiðum í febrúarmánuði. Reyndar standa yfir námskeið á vegum Flugleiða rneira og minna allan veturinn að sögn Sveins Sæmundssonar. Er þar um aukna þekkingu að ræða. viðhald og endurnýjun á þessum námskeiðum, sem er fyrir hinar ýmsu deildir fyrirtækisins. Mannaskipti hjá Innflutn- ingsdeild SÍS HANS Kristján Arnason hefur frá og með 15. marz n.k. verið ráðinn aðstoðarframkvæmda- stjóri hjá Innflutningsdeild Sam- bands ísl. samvinnufélaga. Tekur Hans við starfi Gfsla Theodórs- sonar, sem ráðinn hefur verið i starf framkvæmdastjóra Lundúnaskrifstofu SIS, en Hans hefur frá júlíbyrjun 1975 starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri Iðnaðardeildar SÍS. Hans lauk kandidatsprófi í viðskiptafræðum frá Háskóla Islands 1973 og stundaði framhaldsnám í rekstrarhagfræði í 2 ár við London Business School. Engar fréttir af „fljúgandi furðuhlutum” síðustu daga STARFSMENN í Flugturnin- um á Reykjavíkurflugvelli fengu til skamms tíma upp- hringingar á hverjum degi frá fólki, sem var sannfært um að það hefði séð fljúgandi furðu- hluti. A sunnudagskvöldið var rætt unt þessi mál i þætti í sjónvarpinu og vísaði Þor- steinn Sæmundsson stjarn- fræðingur þar heini til föður- húsanna flestum fréttum unt þessa hluti. Eftir þennan sjón- varpsþátt hefur brugðið svo við að engar hringingar hafa verið i Flugturninn frá fólki. sem séð hefur slíka hluti. Reyndar hafa flugumsjónar- menn þótzt geta útskýrt frétt- irnar um furðuhlutina á ein- faldan hátt og bent á flugvélar og skip, sem verið hafa á ferð á sömu slóðum og furðuhlutirn- ir. eða þá að stjörnur eða bless- aðtunglið hafi villt fólki sýn. 80 ára í dag ATTRÆÐl R er í dag Karl Olafs- son bóndi, Ilala i Djúpárhreppi. Rangárvallasýslu. Ályktun Heimdallar Morgunblaðinu hefur horizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Heimdalli SI S: Heimdallur SUS vekur athygli á því óvissu- ög upplausnar- ástandi, sem rikt hefur í dóms- málum að undanförmu. Félagið telur, að stjórnvöld hafi ekki beitt sér fyrir nauðsynlegum umbótum á þessu sviði fyrir utan skipulagsbreytingar á málefnum rannsóknarlögreglu. Félagið átelur mjög harðlega afskipti utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra af afplánunar- málum sakamanns. Afskipti utan- ríkisráðherra af máli þessu sam- rýmast ekki stöðu hans og ákvörð- un dómsmálaráðherra er brot á lögum. Mál þessi sýna fram á, að ekki er fyrir hendi raunhæfur vilji af stjórnvalda hálfu til þess að hefja óhjákvæmilegt siðferðilegt end- urreisnarstarf í dómsmálasýsl- unni. Fyrir þá sök lýsir Heimdall- ur SUS vantrausti á nefnda ráð- herra og telur rétt að þeim verði veitt lausn þegar í stað, að öðrum kosti verði stjórnarsamstarfinu slitið. (Samþykkt samhljóða á stjórnar- fundi 19. jan. 1977) * Við veitum 10% afslátt af öllum vörum verzlana okkar til næstu mánaðamóta. L TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS KARNABÆR AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.