Morgunblaðið - 21.01.1977, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.01.1977, Blaðsíða 40
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 jAUrounbfabib AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JR»r0unltlabib FÖSTUDAGUR 21. JANUAR 1977 Nýtt fíkniefna- mál í rannsókn 2 menn í gæzluvarðhaldi FlKNIEFNADÓMSTÓLLINN er nú að rannsaka nýtt ffkniefna- mál, sem upp kom f vikunni. Að sögn Ásgeirs Friðjónssonar, fíkniefnadómara, hafa tveir menn verið úrskurðaðir í gæzlu- varðhald vegna rannsóknar máls- ins. Sagði Ásgeir að verið væri að rannsaka meintar nýjar og gaml- ar sakir á mennina, en mennirnir hafa orðið uppvísir að því að smygla inn töluverðu magni af fíkniefnum nú nýlega. Asgeir sagði að rannsóknin væri á frumstigi, og því væri ekk- ert hægt að segja um máiið um- fram það, sem að framan greinir. Kannsókn verður haldið áfram af fullum krafti og starfa velflestir starfsmenn Fíkniefnadómstólsins og fíkniefnadeildar lögreglunnar að henni. Nokkrir starfsmenn við Kröflu bíða í Hótel Reynihlíð eftir að komast á ný upp að Kröflu til að ná í pjönkur sínar, myndina tók Sigurður Harðarson í gærmorgun. Myndir af strokufanganum Skjálftar við Kröflu í rénun en virkni mikil í Gjástykki Starfsfólk spilaði á spil, er viðvör- unarsírenurnar gullu í fyrrinótt I GÆRKVELDI, er Morgunblaðið hafði sfðast samband við skjálfta- vaktina á Kröflu, voru skjálftar á Slóð strokufangans endar 1 Grindavík LEIT stendur enn yfir að banda- ríska strokufanganum, sem slapp úr haldi úr fangelsinu á Kefla- víkurflugvelli f gærkvöldi. Bíll sá, sem fanginn stal á Keflavíkur- flugvelli, fannst við Hraunssand f Grindavík f gærdag. Var fenginn sporhundur á staðinn til að reyna að rekja slóð fangans. Virtist hundurinn rekja slóð niður að sjó, en síðan ekki lengra. Að sögn Howards Matsons, blaðafulltrúa á Keflavíkurflug- velli, í gærkvöldi voru stöðugar yfirheyrslur þar i allan gærdag og meðal þeirra, sem yfirheyrðir voru, var bandaríski fangavörður- inn, sem strokufanginn læsti inni í klefa sínum. Kom ekkert fram við yfirheyrslurnar, sem varpað getur Ijósi á ferðir fangans. Sagði Matson, að ekkert væri vitað um ferðir fangans eftir að hann slapp úr haldi, en þó væru uppi raddir um að flóttinn hafi verið skipu- lagður og hann hafi skipt um bíl í Grindavík. Strokufanginn heitir Cristopher Korky Smith og hafa Framhald á bls 22. virkjunarsvæðinu enn f rénun, en í Gjástykki, þangað sem hraun- kvikan streymdi, var enn talsvert mikil skjálftavirkni og um það bil 3 skjálftar á mfnútu að meðal- tali. Hins vegar höfðu ekki komið fram á mælum nema 150 smá- skjálftar og fáir stórir f grennd við Reynihlfð. Harðasti kippur- inn og sá síðasti, sem þá var vitað um, kom klukkan 19,46. Starfsmenn við Kröflu voru í gær að tínast á brott og héldu þeir ýmist til Akureyrar, Húsavíkur eða suður til Reykjavíkur. Yfir- verkfræðingurinn á staðnum hafði þá ákveðið að helgarfrí skyldi verða á svæðinu um næstu helgi, en Orkustofnun hafði þá gefið fyrirskipun um að vinna skyldi hætt fram á laugardag. Starfsmenn fengu í gær klukku- stundar dvalarleyfi á svæðinu til þess að ná í eigur sínar og ganga frá Kröflubúðum. Alls voru 170 manns á svæðinu í fyrrinótt, er viðvörunarmerki var gefið um umbrot á svæðinu. Þrátt fyrir þetta virtist jarðskjálftavirkni í rénun seint í gær og goslíkur minnkuðu eftir því sem á leið, svo Framhald á bls 22. Friðrik á mót með Karpov í sumar? SÍÐLSTU FRÉTTIR: Er Morgunblaðið hafði samband við skjálftavaktina í Reynihlíð laust eftir miðnætti virtist sem skjálftavirknin væri að færast enn norðar. Á tólfta tímanum mældist m.a. einn skjálfti, sem var 3.4 stig á Richter og virtust upptök hans vera í Kelduhveri að sögn Hjartar Tryggvasonar á skjálftavaktinni í Reynihlíð. FRIÐRIK Ólafssyni stórmeistara hefur verið boðið að taka þátt í mjög sterku skákmóti í Júgóslavíu f júnf næstkomandi. Meðal annarra skákmanna, sem einnig hafa fengið boð um þetta mót, má nefna heimsmeistarann f skák, Anatoly Karpov. Friðrik frétti af þessu boði f gær og hefur þvf eðlilega ekki tekið afstöðu til þess hvort hann verður meðal þátttakenda. Mót það sem hér um ræðir er í 12. styrkleikaflokki, en þess má geta að mótið, sem Friðrik teflir á í Hollandi þessa dagana, er í 11. styrkleikaflokki. Alls verða veitt 10 verðlaun á mótinu í Júgóslavíu og munu fyrstu verðlaun nema tæplega 600 þúsund íslenzkum krónum. Mótið fer fram á tveimur stöðum í Júgóslavíu, fyrstu 7 umferðirnar í Ljubljana og seinni 8 í Porto Rose. Er skýrt tekið fram í boðsfréfinu til Friðriks að Framhald á bls 22. Eysteinn Tryggvason, jarðeðlisfræðingur: Jakob Björnsson, orkumálastjóri: Goshættan virðist liðin hjá að sinni „ALLT bendir til þess að þetta óróieikaástand hér við Kröflu sé að ganga yfir,“ sagði Eysteinn Tryggvason jarðeðlis- fræðingur í samtali við Morgunblaðið um miðaftansbil í gær. Mesta óróleikatímabilið hafði þá verið á milli klukkan 03 og 05 f fyrrinótt, en síðan tók skjálftavirknin að minnka. Um miðjan dag í gær komu fram á mælum um 3 skjálftar á mín- útu, en um klukkan 18 voru tæplega 2 skjálftar á mínútu. Virtist því sem tíðni skjálft- anna rénaði. Hraunkvika neð- anjarðar mun hafa þrýstst norður í Gjástykki og þar mynduðust miklar sprungur í svæðið sunnanvert hjá Éthól- um, sem svo eru nefndir. Þar mældust allt að 40 sm sprung- ur, en gliðnun landsins var þar frá 50 sm og upp f einn metra. Eftir hádegi í gær voru að- eins fáir skjálftar, sem mæld- ust 3 stig á Richter-kvarða. Um leið og óróleikinn hófst um mið- nætti í fyrrinótt var stöðvarhús Kröfluvirkjunar mælt og kom þá strax í ljós að það var tekið að síga. Norðurendi þess seig miðað við suðurendann. Eftir hádegi var sigið orðið hægar en það var um nóttina, seig um fjórðung úr mm á klukkustund og um miðjan dag í gær var Framhald á bls 22. Ö Viðvörunarsfrena á þaki mötu- neytisins við Kröflu. Vonast til að vinna hef jist eftir helgi VIÐ erum að vonast til að fram- kvæmdir geti hafizt að nýju við Kröfluvirkjun eftir helgina, þó að ekkert sé unnt að fullyrða um það á þessu stigi — sagði Jakob Björnsson, orkumála- stjóri, f viðtali við Morgun- blaðið fgær. Hann sagði jafn- framt, að ef þróunin á svæðinu yrði hin sama og um mánaða- mótin október-nóvember, myndi þeirri spennu sem öneitanlega hafði verið á Kröflusvæðinu meðal starfs- fólks, létt f bili. Sigi landið aðeins og tæki svo að rfsa á ný, er okkur léttara f bili — sagði Jakob Björnsson. Morgunblaðinu barst í gær fréttatilkynning frá iðnaðar- ráðuneytinu, þar sem segir að í fyrrakvöld hafi því borizt bréf frá Orkustofnun, þar sem lagt hafi verið til að vegna yfirvof- andi umbrota á Kröflusvæðinu væri talin ástæða til ráðstafana umfram þær sem þegar hefðu verið gerðar vegna öryggis starfsmanna. 1 fyrsta lagi var lagt til að starfsmenn gistu ekki á svæðinu i Kröflubúðum og í öðru lagi að daglegur vinnutími á virkjunarsvæðinu yrði styttur - frá því sem hann hefði verið. Ráðuneytið samþykkti ráð- stafanirnar þegar í fyrrakvöld. Segir siðan í tilkynningu ráðu- Framhald á bls 22.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.