Morgunblaðið - 21.01.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.01.1977, Blaðsíða 14
14 Nýting hraunhitans í Vestmannaeyjum: ÍÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANUAR 1977 Sveinbjörn Björnsson eðlisfræöingur við rannsðknir í nýja hrauninu f Eyjum. Eldfellið er f f jarska. eftir GUÐLAUG GÍSLASON alþingismann Við rannsóknir f haust á dýpt storknaðs hrauns og þykkt óstorknaðs hrauns o.fl. o.fl. þurfti að nota dynamít, en rannsóknirnar eru gerðar vegna framhalds virkjunar- framkvæmda á hita þar. Grasið barna er ársgamalt. Seinagangur í fram- kvæmdum veldur V estmannaey ingum fjárhagstjóni í Alþýðublaðinu 6..þ.m. er við- tal við Magnús H. Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóra, um mál- efni Vestmannaeyjakaupstaðar, meðal annars um fyrirhugaða hraunhitaveitu. Segir i viðtalinu orðrétt: „Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar og þar rákum VIÐ okkur á verulegt vandamál, sem var tær- ing." Sannleikurinn er sá, að reynslan hefur sýnt að tæring hefur aldrei verið og er ekkert óviðráðanlegt vandamál í þessu sambandi og hefur aldrei verið til neinna trafala í þeim tilrauna- framkvæmdum, sem átt hafa sér stað. Staðreynd er, að meðan M.H.M. var bæjarstjóri í Eyjum og núverandi bæjarstjóri Páll Zophaniasson var tæknifræðing- ur bæjarins höfðu bæjaryfirvöld aldrei neitt fumkvæði um til- raunir til nýtingar hraunhitans, en lögðust jafnvel gegn þeim. Má benda á að P.Z. gaf um það yfir- lýsingu í Dagblaðinu Visi í viðtali 9. júlí 1975, að t.d. sjúkrahúsið nýja yrði aldrei notað til tilrauna í þessu sambandi. Það var ekki fyrr én meirihlutaskipti urðu í bæjarstjórn Vestmannaeyja síðari hluta árs 1975 og Sigfinnur Sigurðsson hafði verið ráðinn bæjarstjóri, að bæjarstjórn ákvað að ráðast i framkvæmdir við tilraunahitaveitu i samræmi til tillögur Raunvísindadeildar Háskólans til iðnaðar- ráuneytisins. Verkið gekk mjög vel til að byrja með, en eftir að enn urðu meirihlutaskipti í bæjarstjórn og M.H.M. og félagar hans komust til valda á ný, var hreinlega dregið úr framkvæmdahraðanum og þeir sem fyrir verkinu stóðu gerðir verkefnalausir svo dögum og vikum skipti vegna efnisvöntunar og verkið loks alveg stöðvað á miðju súmri 1976 af mjög annar- legum ástæðum, en þá hafði þó tekist að tengja sjúkrahúsið nýja við kerfið og kom það í alla staði vel út og mun það hafa ráðið úrslitum um, að aftur var hafist handa um áframhald verksins og hafa nú allmörg hús í hinu til- greinda tilraunahverfi verið tengd inn á kerfið frá þeim hita- skiptara sem Sigmund Jóhanns- son i Eyjum hannaði og byggist á gufuuppstreymi í nýja hrauninu. Hefur þessi tilraun, þó henni sé alls ekki lokið og hún þurfi nokk- urra endurbóta við, sýnt og sann- að að nýting hraunhitans er möguleg á mjög einfaldan og ódýran hátt og hefur þetta orðið til þess að aðeins virðist vera farið að rofa til í þyrnirósarsvefni bæjaryfirvalda í þessu máli, þar sem nú er, þó hægt fari, byrjað að vinna að undirbúningi að leiðslu til að tengja við hina nýju byggð vestur í gamla hrauninu, sem allir eru að sjálfsögðu sammála um að hlaut að verða næsti áfangi, þar sem leiðslur eru þar fyrir hendi í sambandi við sameiginlega olíu- kyndingu þessa hverfis auk þess sem leiðslurnar ná til íþrótta- hússins nýja og sundhallarinnar. Það atriði annað i umræddu við- tali við M.H.M. sem athygli hlýtur að vekja, eru þær upplýsingar, sem fram koma frá verkfræðingi Fjarhitunar h.f., en þar segir m.a., þegar hann er spurður um hvað áætlað sé að það kosti sem gera skal í ár. „Við höfum reiknað með um 160 milljónum í þessum áfanga. Þar í er innifalin bygging fjarhitastöðvar með tilheyrandi olíukyndingarkötlum og dælu- stöðvum, dreifikerfi í nýju hverf- in í Vesturbænum og hluta af Hásteinshverfinu." Hugmyndin um sameiginlega upphitun byggðarinnar í Eyjum frá olíukyndingar — eða raf- skautskötlum, var að sjálfsögðu allra góðra gjalda verð, áður en nýting hraunhitans kom til sög- unnar. En að ætla sér samtfmis nýtingu hraunhitans að Ieggja í tugmilljóna kostnað vegna kaupa á olíukyndingarkötlum, hlýtur að vekja nokkra furðu að minnsta kosti Vestmannaeyinga, sem eiga að borga brúsann. Vitað er að hver einasta sveitar- stjórn á iandinu sem telur sig hafa nokkurn möguleika á jarð- varma víla ekki fyrir sér að leggja í verulegan stofnkostnað til að virkja hann til upphitunar húsa til að losna við olíukaup jafnvel þó að jarðvarminn sé í tugkíló- metra fjarlægð. Vestmannaeyingar eru betur settir en flest ef ekki öll önnur sveitarfélög á landinu hvað þetta áhrærir, þar sem jarðvarminn þar er innandyra hjá þeim og hægt að virkja hann á mun ódýrari hátt en nokkurs staðar annarsstaðar. Stofnkostnaðurinn við hita- skiptara á hrauninu er jafn.ýel ekki nema lítill hluti þess, sfem meðal borhola kostar. Þó virðast þeir, sem ferðinni ráða í bæjar- málum Eyjanna vera mjög svo hikandi í málinu og munu einu sveitastjórnarmennirnír á land- inu, sem eru með hugmyndir um olíukyndingarstöðvar jafnhliða áætlunum um hitaveitu byggðri á jarðvar.ma. Tilraunír hraunhitaveitunnar í Eyjum virðist hafa vakið mun meiri athygli á meðal vísinda- manna, bæði innanlands og er- lendis, en ráðamanna byggðar- lagsins og má í því sambandi meðal annars vísa til greinar í brezka vísindaritinu New Scient- ist frá 5. ágúst s.l. þar sem málinu eru gerð all ítarleg skil og endar greinin á viðtali við bæjar- stjórann í Vestmannaeyjum, Pál Zophanfasson, en hann segir þar orðrétt: „Eins og stendur hitar þetta kerfi sjúkrahúsið og 30 hús að auki. Næstu þrjú árin, ef efna- hagurinn leyfir, mun það sam- tengjast um bæinn. Kostnaðurinn við hitunina er helmingur af olíu- kostnaði." Og viðtalið heldur áfram: „Zophaníiusson áætlar að það ætti að vera hægt að anna hita- þörf Heimaeyjar þangað til á fyrsta tug næstu aldar." Þessi yfirlýsing P.Z., sem mun vera i samræmi við álit annarra, sem um þetta mál hafa fjallað, slær föstu tveimur mikilvægum atriðum. í fyrsta lagi að nýtanlegur jarð- varmi mun verða í nýja hrauninu að minnsta kosti næstu 30 árin, sem er meira en nægjanlegur tími til að afskrifa allan stofnkostnað bæði við hitaskiptara á hrauninu og allar nauðsynlegar hitaveitu- lagnir um bæinn. í öðru lagi, að kostnaðurinn við upphitun húsa frá hraunhita- veitunni mun aðeins verða helm- ingur kostnaðar miðað við oiíu- kyndingu. Nú vita ráðamenn bæjarins jafnt og aðrir að kostnaður við olíukyndingu húsa í Eyjum mun nema árlega 200 til 250 millj. kr. Beinn sparnaður fyrir neytendur yrði því á þessum lið 100 til 125 millj. á ári, en hinn helmingurinn færi til greiðslu stofnkostnaðar, sem yrði sameiginleg eign bæjar- búa. Þegar þessa er gætt, verður sök ráðamanna byggðarlagsins, alveg sérstaklega fyrrverandi bæjarstjóra M.H.M. og núverandi bæjarstjóra P.Z., enn stærri, og er aðgerðaleysi þeirra sláandi dæmi um hvernig ábyrgðarlausir sveitarstjórnarmenn geta féflett íbúa eins byggðarlags með sinnu- leysi og þvermóðsku, án þess að þurfa að svara til saka fyrir dóm- stólum. Það er óvefengjanleg staðreynd, að þegar í ársbyrjun 1974 sannaði Sveinbjörn Jónsson í Ofnasmiðjunni með beinni til- raun að hraunhitann var hægt að virkja á mjög ódýran og einfaldan hátt. Ef þá þegar hefði verið brugðið hart við og hafist handa um framkvæmdir, væru senni- lega flest ef ekki öll hús í bænum hituð upp í dag með varma frá hraunhitaveitunni í stað olíu eins og nú er. En því var ekki að heilsa. Ógæfa Vestmannaeyinga er, að þáverandi ráðamenn byggðar- Iagsins blésu á þessa hugmynd og vildu aldrei snúa frá villu síns vegar fyrr en nú hina síðustu mánuði að almenningsálitið í Eyjum hefur knúið þá til nokk- urra framkvæmda, þó allt of hæg- fara sé. Bæjarbúar verða daglega að horfa á það að nýtanleg hita- orka, sem er að verðmæti 4 til 5 millj. kr. á viku hverri, gufar hindrunarlaust upp af hrauninu rétt við nefið á ráðamönnum byggðarlagsins. Það sem fyrst þarf áð gera er að einangra þann hluta hraunsíns, sem virkja á, sem er mjög útláta- lítið fyrir bæinn, þar sem vinna má þetta verk með þeim tækjum, sem fyrir eru i hans eigu. Í annan stað þarf að sjálfsögðu að láta hanna og smíða hitaskipt- ara sem koma þarf fyrir á hraun- inu, því leiðslur og lagnir um bæinn koma að sjálfsöðgðu ekki að notum fyrr en orkan á hraun- inu hefur verið virkjuð. Bæjarstjórinn segir í umræddu samtali sínu við hið brezka blað, að næstu þrjú árin muni bærinn, ef efnahagurinn leyfi, tengjast hraunhitaveitunni. Ég segi alveg hiklaust. Vestmannaeyingar hafa engin efni á né ástæðu til að bíða önnur þrjú ár eftir nýtingu hraunhitans. Nú þegar á að hefj- ast handa um framkvæmdir og ekkert að hika fyrr en þeim er að fullu lokið. Annarsvegar er um að ræða að heita ma ókeypis hita- orku frá jarðvarma í hrauninu og hins vegar um olíukaup fyrir 200 til 250 millj. kr. á ári. Vil ég í þessu sambandi benda á, að hita- veituframkvæmdir hafa hjá stjórnvöldum forgang um fyrir- greiðslu og útvegun fjármagns. Það er því ekki undir neinum kringumstæðum nema um einn valkost að ræða hjá ráðamönnum byggðarlagsins og það er að hefj- ast handa nú þegar af fullum krafti, en hætta að haga sér eins og höktandi gamli Ford í hálf biiuðum fyrsta gír, þegar um jafn mikið nauðsynjamál er að tefla og hér um ræðir. Guðlaugur Glslason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.