Morgunblaðið - 21.01.1977, Side 11
menn. Eftir Hort niuna færri
en hann tefldi hér á 5. alþjóða-
skákmótinu sem haldið var í
Glæsib’æ í byrjun árs 1972.
Viastimir Hort er fæddur
12.janúar 1944 og því nýlega
orðinn 33 ára. (Til gamans má
geta þess að Spassky verður 40
ára 30. jan. n.k.) Hann lærði
mannganginn af foreldrum
sínum sjö ára gamall og varð
unglingameistari Tékka árin
1960 og 1962. Hann teíldi á 4.
borði fyrir Tékka á Ölympíu-
mótinu í Leipzig 1960, aðeins 16
ára gamall. Hann varð alþjóð-
legur skákmeistari árið 1962 og
stórmeistari 1965. Arið 1967 er
hann korninn i fremstu röð
Skák
eftir GUNNAR
GUNNARSSON
landa sinna, á undan hinum
þekkta Fachmann sVo og öðrum
sterkum skákmönnum eins og
Filip, Kavalek og Smejkal. A
undanförnum 10 árum hefur
hann undantekningalítið hafn-
að í allra fremstu sætum i þeirn
mótum sem hann hefur tekið
þátt i og síðasta afrek hans var i
hinu öfluga millisvæðamóti í
Manila í Filipseyjum þar sem
hann hafnaði í 2. sæti á eítir
Mecking. Hort hefur öruggan
og traustan skákstíl og enda
árangursríkan, en hann getur
líka teflt bæði djarft og frum-
lega. Hort er hagfræðingur að
mennt og aðaláhugamál hans
auk skákarinnar er leiklist.
Hið fyrrnefnda Reykjavíkur-
mót, sem haldið var hér 1972
var eitt hið öflugasta sem hald-
ið hefur verið hérlendis. í 6.
umferð áttust þeir við Friðrik
og Hort. Upp kom svokallað
Dreka-afbrigði í Sikileyjarvörn,
sem er ákaflega tvíeggjuð
byrjun, en Friðrik slakar á
spennunni og fer í drottningar-
kaup, en fær gott og þægilegt
tafl.
Eins og venjulega saxast á
umhugsunartímann og meira
hjá Hort. L’pphefst æðisgengin
hraðskák hjá báðum
keppendum: Friðrik fórnar
skiptamun til að flækja taflið,
en Hort verst vel og fær unnið
tafl. En án þess að vita að tima-
hrakinu er lokið, leikur Hort af
sér hrók í 44. leik. Við skulum
líta á þessa skák hér á eftir, en
úrslit mótsins urðu þau að þrtr
urðu jafnir og efstir með 11
vinn., Friðrik, Hort og
Gheorgiu frá Rúmeníu. 1 3. og
4. sæ>ti urðu Stein frá Sov'ét-
ríkjunum (hann, er látinn
núna) og L'lf Andersen, með
’l0* 1 j vinn.. en hann tryggði sér
stórmeistaratitil með þeim
árangri. Síðan komu þeir
na>stir Tukmakov, Timman,
Keene og Guðmundur Sigur-
jónsson. í
Hvítt: Friðrik Olafsson
Svart: V. Ilort
Sikileyjarvörn (Dreka
afbrigðið)
1. Rf3 g6 2. e4 c5 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. rc3 d6 6. Be3 Bg7 7.
13 Rc6 8. Dd2 0-0 9. Be4 Bd7 10.
0-0-0 Da5 11, h4 Re5 12. Bb3
Hfc8 13. h5 Rxh5 14. Rd5 Dxd2
15. Hxd2 K1’8 16. g4 Rf6 17.
Hdh2 Rxd5 18. Bxd5 Hc7 19.
Bh6 Bxh6 20. Hxh6 e6 21. Bh3
a5 22. Hxh7 Hac8 23. a3 b5 24.
g5 Rd3 25. Kbl Rc5 26. Ba2 b4
27. axb4 axb4 28. Hlh4 Be8 29.
Bc4 Ha8 30. 1)3 Ke7 31. Hh8 e5
32. Bb5 Ha6 33. Hxe8? Kxe8 34.
Rb5 Hd7 35. Hh8 Ke7 36. Hc8
Re6 37. Hc4 Rxg5 38. Hxl)4 Rxf3
39. Kb2 Hb6 40. c4 g5 41. Ha4 g4
42. Ha8 Rd4 43. Ra7 Hxb3 44.
Ka2 Hb6?? (Eftir 44. — KÍ6 er
svartur með gjörunnið tat'l) 45.
Rc8 Kt6 46. Rxb6 Hc7 47. Hg8
Gefið.
MORGLNBLAÐIÐ, FÖSTLDAGLR 21. JANLAR 1977
Askorendaein-
vígi í Reykjavík
Picasso
Tvö fá mest af
arfi Picassos
(irasse, 18. janúar. KouU-r.
SEX ERFINGJAR Pablo Picasso
hafa samþykkt að skipta milli sín
arfi hans sem er metinn á 142
milljónir punda og að tvö barna-
börn hans fái helminginn.
Rarnabörnin, Marina 26 ára og
Bernard 17 ára, eru börn Paolo,
sem Picasso átti með fyrstu konu
sinni, rússnesku danskonunni
Olga Kalkova, og lézt 1975.
Hálfbróðir þeirra, Pablito, lézt
24 ára gamall. Móðir hans Emili-
enne sagði að honum hefði sárnað
að honum var ekki leyft að ganga
fram hjá kistu Picassos sem lézt
91 árs að aldri f aprfl 1973.
Pablito mun hafa tekið inn eitur.
Picasso lét meðal annars eftir
sig. 1885 málverk, 7.000 teikn-
ingar, 1.200 höggmyndir, 30.000
grafikmyndir, 3.222 keramikverk
og fasteignir í Frakklandi.
Ekkja Picassos, Jacqueline, fær
um 28 milljón pund auk húseigna
hans nálægt Aix-en-Provence og á
Cote d'Azur.
Hinir erfingjarnir eru Claude
og Paloma, börn Picassos og
Francoise Giilot, og Maya, dóttir
Picassos og Marie-Therese
Walter. Þau munu fá um 12
milljón pund hvert.
Heimsmeistara-
einvígið 1972
Heimsmeistaraeinvígi þeirra
Fischers og Spasskys í Reykja-
vík sumarið 1972 olli slíkum
straumhvörfum í skák-
heiminum að jaðraði við bylt-
ingu. Frá því að Spassky steig
hér á land 2. júni 1972 og allt til
loka einvígisins 1. sept. var ein-
vígið og allur gauragangurinn
sem því fylgdi aðalumræðuefni
fólks um allan heim. Iðnaðar-
menn í Englandi í verksmiðju
nokkurri fylgdust með af svo
miklum ákafa að oft skarst í
odda svo lá við áílogum;
skoðanir manna á keppendum
voru deiluatriði; ýmsar stöður
sem upp komu í skákunum;
hvort „eitraða peðið" væri í
rauninni eitrað og siðast en
ekki síst skoðanir manna á
hinum endalausu kröfum
Fischers sem öllum eru i fersku
minni. Fólk kom að fylgjast
með í Laugardalshöllinni sem
aldrei hafði séð skákkeppni
áður, allir fylgdust með af
spenningi og einkennilegri
sefjun. Lm öll Bandarikin voru
skákirnar sýndar og skýrðar og
vangaveltur skákskýrendanna
fléttuðust inn i á meðan beðið
var eftir leikjunum. Sömu sögu
er hægt að segja frá öllum
heimsálfum.
Einvígið hafði geysimikil
áhrif á útbreiðslu skáklistar-
innar í heiminum. Ahugi fólks
jókst um allan helming, skák-
klúbbar spruttu upp og þátt-
taka i skákmótum jókst gífur-
lega. Margar skákbækur voru
skrifaðar um einvígið og um
Fischer sérstaklega. Þessari
öldu heíur nú að mestu skolað í
land, en skákáhugamönnum
fjölgaði og æ fleiri tefla sér til
gagns og gamans, ungir sem
aldnir, og síðast en ekki sízt tók
kvenfólkið við hér og teflir nú
æ rneira.
íslendingar áttu um þetta
leyti fyrir höndum hatramma
deilu við Englendinga vegna
stækkunar landhelginnar, en
það fór ekki framhjá neinum
skákíréttamanni, sem kynnti
oft málstað fslendinga um leið
og hann sagði fréttir frá
íslandi. Þetta einvígi varö' því
til þess að miklu fleiri en ella
kynntust málstað íslendinga í
þessari deilu og þeir fengu
samúð og fylgi þúsunda manna
sem annars hefði aldrei orðið.
Spassky og
Hort á íslandi
Þessir atburðir eru nú
rifjaðir upp vegna hinnar gleði-
legu fréttar um að eitt af áskor-
endaeinvígjunum verði haldið
hér á landi, nánar tiltekið 27.
febrúar n.k., á milli þeirra
Spasskys og Horts. Fischer, sem
átti rétt á einvíginu við Hort
sem fyrrverandi heimsmeistari,
gaf ekki kost á sér írekar en
fyrri daginn og lét ekkert i sér
heyra. Spassky var fyrsti vara-
rnaður og tekur sæti Fischers.
Báðir þessir skákmenn verða
hér miklir aufúsugestir, enda
hafa báðir verið hér áður og
aílað sér vinsælda bæði sem
skákmenn og sannir heiðurs-
Hort.