Morgunblaðið - 21.01.1977, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1977
13
vera undir forystu Wadia
Haddad. ísraelsku heimildirnar
segja að hann hafi staðið á bak við
flugránið sem lauk með árásinni á
Entebbe.
Hin samtökin munu vera Svarti
júní sem eru undir forystu Abu
Nidhal. Hann er andvígur Frelsis-
samtökum Palestínu (PLO), leið-
toga þeirra, Yasser Arafat, og
berst gegn samningum um lausn
deilumálanna í Miðausturlönd-
um.
ísraelsku heimildirnar segja að
búast megi við að árásirnar bein-
ist bæði gegn „evrópskum og isra-
elskum skotmörkum" og flugrán
séu möguleiki. Sunday Times seg-
ir að yfirvöld í Vestur-Þýzkalandi,
Bretlandi og Frakklandi taki við-
vörunina alvarlega.
Móðir fagnar dóttur sinni sem var
gfsl flugvélaræningja á Entebbe-
flugvelli.
MANNRÁN eru orðin
arðvænleg atvinnu-
grein á ltalfu. Fjöl-
skylda bankastjórans
Lucia Fabbrocini í
Napolí mun hafa
greitt 620.000 pund
(um 200 millj. fsl. kr.)
f laustnargjald þegar
hann var látinn laus
um jólin. Alls var
framið 61 mannrán
1975. Talið er að 41
milljón punda (rúmir
13 milljarðar fsl. kr.)
hafi verið greidd f
lausnargjald. Tfð
mannrán hafa vakið
skelfingu rfkra manna
I iðnaðarborgum ...
Nnrður ttalfu ckulH Mannrán eru aðeins hluti mikillar ofbeldis-
S hefur að mikÍ öldu„sem heíur *Hr *«f« f nokkur
leyti verið skellt á ar Her Srætur niaður yfir liki félaga síns
Maffuna sem belð 11)303 ’ sprengjutilræði í Brescia.
Fjórum var rænt í sfðustu viku: skipaeigandanum Piero Costa í
Genua. Marinu Boldron f Padua, iðnrekandanum og kvikmyndafram-
leiðandanum Nicola de Nera f Milano og nfu ára syni svissneska
iðnrekandans Gigetto Nespoli f Como. Sumum fórnarlömbunum er
sleppt fljótt ef fjölskyldur þeirra greiða hátt lausnargjald. Aðrir hafa
verið f haldi vikum saman, þar á meðal kvikmyndaframieiðandinn
Maleno Malenotti frá Róm. Sumir sæta góðri meðferð, aðrir fá slæma
meðferð, þar á meðal byggingaverktakinn Vittorio Colombo sem var
sveltur f tvo mánuði.
Að minnsta kosti 51 mannrán var framið f fyrra og talið er að 8.8
milljónir punda (um 2,2 milljarðar fsl. kr.) hafi verið greiddar f
lausnargjald. Mannránin hafa þó ekki vakið almenna reiði þótt þau
hafi staðið f nokkur ár, meðal annars vegna þess að öll fórnarlömbin
hafa verið ríkt fólk. Lftið hefur verið um meiriháttar handtökur.
1 máli sem Maffan var viðriðin f nóvember voru 11 fangelsaðir, þar á
meðal meintur maffuforingi, Luciano Liggio. En 21 var sleppt, þar á
meðal nokkrum sem sækjendur f málinu töldu „heilana" á hak við
mannrán Maffunnar.
Milanó hefur verið einn helzti vettvangur mannránanna, enda búa
þar margir auðkýfingar. Ein aðfcrðin f baráttunni gegn mannránun-
um er að frysta innstæður fjölskyldna fórnarlambanna til að koma í
veg fyrir greiðslu lausnargjalds, en yfirleitt hefur lausnargjald verið
greitt. Nú er 10 manns á valdi mannræningja þar á meðal 4 ára gömul
stúlka, Sara Domini, sem krafizt er 1.2 milljóna punda fyrir í lausnar-
gjald.
alveg
er hann
þorramaturinn í NAUSTINU
MEÐ PLASTUNDIRLAGI FRÁ MÖLNLYCKE
ER SÉRLEGA HENTUG.
SPARIÐ BLEYJUÞVOTTINN OG KAUPIÐ
PAKKA
Fæst í öllum apótekum og
flestum stærri matvöruverzlunum.
Robert
Kennedy
sætir
ásökunum
ROBERT Kennedy
fyrrverandi dóms-
málaráðherra var
viðriðinn eitt af
mörgum smá-
hveykslum, sem
hafa komið fram í
dagsljósið í kjölfar'j
Watergate-málsins
að sögn tímaritsins
Commentary þar
sem allt bendir til
þess, að hann hafi
staðið fyrir
hefndaráðgerðum
gegn nánum stam-
starfsmönnum
Joseph McCarthys.
Tímaritið segir, að Kennedy hafi notað vald sitt sem dómsmálaráð-
herra til að ná taki á Roy Cohn, einum helzta aðstoðarmanni MeCarthys
í baráttu hans gegn stuðningsmönnum kommúnista á árunum eftir
1950.
Fyrrverandi ríkissaksóknari, Irving Younger, sagði í blaðinu að
hann hefði setið fund þar sem Robert Morgenthau, ríkissaksóknari í
New York, hefði skipað honum að finna höggstað á Cohn. Hann segir
að Kennedy hafi verið á fundinum og skipað Morgenthau að skipu-
leggja aðgerðir gegn Cohn. Sjálfur hefur Cohn haldið þvi fram árum
saman að Kennedy hafi lagt sig i einelti og telur grein Youngers
staðfesta staðhæfingar sínar.
Younger kveðst strax hafa hafið víðtæka rannsókn, en ekkert fundið
á Cohn þótt rannsóknin hafi náð til tveggja heimsálfa og hann hafi
meðal annars beitt símahlerunum. Younger segir ástæðuna fyrir
aðgerðunum gegn Cohn þá að hann og McCarthy hafi á sínum tima
rannsakað feril föður Morgenthaus, Henry Morgenthaus, fjármálaráð-
herra í stjórn Roosevelts forseta.
Morgenthau hefur hafnað
ásökun Youngers í Commentary.
Hann segir að enginn fundur með
þátttöku hans, Youngers og Kenn-
edys hafi farið fram. Hann segir
að annar og reyndari maður en
Younger hefði verið valinn ef ætl-
unin hefði verið að sverta Cohn
og Younger hafi ekki verið hátt-
settur í dómsmálaráðuneytinu.
Fleiri kunnir lögfræðingar hafa
mótmælt grein Youngers, sem tel-
ur sig hafa gegnt svipuðu hlut-
verki og metnaðargjarnir lög-
fræðingar í starfsliði Nixons for-
seta í Watergate-málinu.
Robert Kennedy
Til sölu
raftækjaverzlun
á besta stað. Vörulager lítill en nýr. Leigukjör
góð.
Þeir sem hafa áhuga sendi tilboð til Mbl. fyrir
miðvikudaginn 26. janúar merkt: Raftækja-
verzlun — 4708.
Mannránvinsæl
grein á Ítalíu
Skóverzlun Kópavogs auglýsir
Verzlunin opnar í nýjum húsakynnum laugardaginn 22. janúar að Hamraborg 3 (í næsta húsi). Viðskiptavinir ath.:
Allt sem eftir verður seljum við með miklum afslætti næstu viku. Skóverzlun Kópavogs,
Hamraborg 5,
sími 41 754.