Morgunblaðið - 21.01.1977, Page 15

Morgunblaðið - 21.01.1977, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1977 15 Gudbjartur Gunnarsson stýrimadur: L fölZ irumarkaðurinn hf. irmúla 1A S: 8611 2. Nokkrar staðreyndir um kjör íslenzkra bátasjómanna 0 I1 Okkar salur er ekki dýrari... en hann er einn sá gkesilegasíi! Næst þegar þér þurfíð á húsnæði að halda fyrir veislur eða hverskonar mannfagnað, skuluð þér athuga hvort Þingholt hentar ekki þörfum yðar. Leitið upplýsinga. Sími 21050. Nú, þegar loðnuvertíðin er hafin með tilheyrandi umtali og fréttaflutningi í öllum tiltækum fjölmiðlum, langar mig til að vekja athygli almennings í land- inu á nokkrum staðreyndum, sem varða íslenska fiskimenn, kaup þeirra, kjör og ýmsan aðbúnað. Þegar loðna er farin að veiðast, blasa við manni allskonar fréttir um hlut sjómanna úr þessari eða hinni veiðiferðinni. T.d. er í Dagbl. 17. þessa mán. svohljóð- andi fyrirsögn á forsiðu: Nær hálf milljón í skipstjórahlut eftir eina veiðiferð. Ekki ætla ég mér að ræða það hvort þarna sé rétt farið með tölur eða ekki. Ég hef rekið mig á það að í svona fréttum geta tölurnar verið á báða bóga, ýmist of eða van. En það verður að hafa hugfast, þegar maður les svona fréttir, að þó svo að tölurnar séu réttar er sagan aðeins hálfsögð. Þetta vita þeir, sem til þekkja, en vegna þeirra mörgu, sem vita ekki hvernig kjarasamningum sjómanna er háttað vil ég leitast við að skýra þetta nánar. Allt frá þvi að farið var að róa til fiskjar á Islandi hafa fiskimenn verið ráðnir upp á hlut, með fáum undartekningum þó er menn réðu sig upp á fast kaup fyrir vertíð- ina. Enn þann dag í dag er sjó- maðurinn ráðinn upp á hlut úr afla en þó með þeim fyrirvara að honum eru tryggð ákveðin lág- markslaun, sem i dag eru kr. 100.295,- á mánuði hjá háseta. Árinu er skipt niður i 3 trygg- ingartímabil og eru þau frá 1. jan. til 15. maí, 16. mai til 15. sept. og 16. sept. til 31. des. Hvert trygg- ingartímabil er ein heild á sama hátt og 1 mánuður hjá þeim sem eru á mánaðarkaupi. Þetta gerir það að verkum að ef t.d. fiskast illa í janúar og febrúar en afli glæðist þegar kemur fram í mars þarf að byrja á því að fiska upp i tryggingu sem greidd hefur verið umfram hlut í jan. og febr. og þá fyrst, þegar því er náð er hægt að fara að tala um hlut, en þó því aðeins að aflaleysi i apríl og maí dragi ekki niður hlutinn, þannig að þegar tryggingartímabili er lokið verði staðið upp með trygg- ingu eftir úthaldið. Hægt er að lfta öðruvísi á þetta. Ef við tökum sem dæmi loðnubát eða netabát, hann fiskar vel i janúar. Eftir það fer að ganga illa og afli verður sáralítill það sem eftir er vertíðar. Við getum tekið sem dæmi að hlutur i janúar hafi verið kr. 300.000.-, aflinn, það sem eftir er vertíðar er það lítill að hlutur úr þeim afla er einungis kr. 100.000.- þá þýðir það að hásetinn stendur uppi með tryggingu eftir út- haldið, það er að segja fyrir tíma- bilið 1. jan. til 15. maí hefur hann i kaup kr. 100.295,- á mán. eða alls kr. 451.327.-. Ef maður lítur á þetta frá sjónarhóli fréttamanna mundi vera hægt að segja að maðurinn hefði haft i kaup í janúar kr. 300.000.- en kr. 100.000 fyrir næstu 3 og hálfan mánuði eða ef maður lítur á trygginguna á timabilinu kr. 151.327,- (Þess ber að geta að í kaupsamningi sjómanna er ákvæði, sem getur í vissum tilvikum hækkað kaup- tryggingu um 12—13% og er ekki reiknað með þvi í þessu dæmi.) Ef maður hefur þessar stað- reyndir i huga sést að allt tal um að þessi eða hin veiðiferðin gefi svo og svo mikið í hlut er algjör- lega út í bláinn. Ef það á að flytja fréttir af tekjum sjómanna á báta- flotanum á annað borð, verður að taka þær tekjur sem eru raun- verulegar, þ.e.a.s. hvað kemur út úr öllu tryggingartímabilinu eða, og þó öllu heldur, hverjar árstekj- urnar hafa verið, því það mega menn muna, að fiskveiðar eru happdrætti og þó vel gangi á ver- tíðinni getur sumarið og haustið verið lélegt. Einnig er það stað- reynd, að sennilega býr engin stétt við eins lítið atvinnuöryggi og bátasjómennirnir. Það er hægt ljósápeninni? „BLACKLIGHT PERUR NÝKOMNAR RAI:VCRIJR Laugarnesvegur 52 Sími 86411 HILLUVEGGIR, LÖKKUÐ FURA EÐA BRÚNBÆSUÐ. HAGSTÆÐ VERÐ. SKRIFBORÐ, LÖKKUÐ EÐA BRÚNBÆSUÐ. KOMMÓÐUR, HÁAR 6 SKÚFFU, LJÓSAR EÐA BRÚNBÆSAÐAR. og hefur margsinnis verið gert sérstaklega þegar fer að hausta, að bátarnir eru fyrirvaralaust látnir hætta og áhöfnin send heim. Þar með er mannskapurinn atvinnulaus og verður að leita sér að annarri vinnu eða fara á at- vinnuleysisstyrk því ekki er víst að alltaf sé gott að fá skiprúm á þeim tíma árs, sem svona fyrir- varalausar stöðvanir eiga sér helst stað. Auk þess að yfirmenn- irnir, sem hafa þriggja mánaða uppságnarfrest eru ekki lausir, nema þeim hafi verið sagt upp með tilskildum fyrirvara. Þeir verða að koma, þegar útgerðinni þóknast að kalla, jafnvel þótt þeir hafi ekki tekið laun hjá útgerð- inni og haft eftirlit með bátnum eða vinnu við hann. Einnig má líta á það að fiski- menn eru sennilega eina stéttin í landinu, sem verður að láta sér lynda að fá endanlegt launaupp- gjör þrisvar á ári. Ég hef iðulega orðið þess var að þeir, sem ekki þekkja til, halda að allir fiski- menn séu hátekjumenn. Það stal'ar eingöngu af fréttaflutningi lfkum þeim, sem ég nefndi áður. Fjölmiðlar keppast við að reikna fyrir okkur hlutinn úr þessari eða hinni veiðiferðinni, ef hún hefur gengið vel, en maður sér aldrei minnst á þá báta, sem lakar hefur gengið. Gaman væri nú ef eitt- hvert dagblaðanna t.d. tæki fyrir eina verstöð og safnaði þar og birti nákvæma skýrslu um afla- brögð og iaun sjómanna á hinum ýmsu bátum, t.d. fyrir allt síðast- liðið ár. Hætt er við að þá færi mesti glansinn af þeim hug- myndum sem svo margir gera sér um tekjur sjómannsins. Sérstak- Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.