Morgunblaðið - 21.01.1977, Side 19

Morgunblaðið - 21.01.1977, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANUAR 1977 19 Carter faðmar að sér dóttur sfna Amy eftir innsetning- una. — Carter varar við of háum vonum Vance einbeitir sér að Miðausturlöndum Washington. 20. janúar. NTB. FORSETATtÐ Jimmy Carters hefst með miklum ferðalögum diplómata og fundarhöldum og samstafsmenn hans munu eink- um einbeita sér að vandamálum Miðausturlanda og Kýpurmálinu samkvæmt áreiðanlegum heimildum f Washington. Fatahengin gleymdust! Washíngton. 20. jan. — Reuter. SNAGAR, eða öllu heldur snagaleysi, komu f veg fyrir að hátíðahöldin vegna embættis- töku 39. forseta Bandaríkja Norður-Amerfku yrðu að öllu leyti fullkomin. Sérstakur áhorfendapallur var reistur í túni Hvíta húss- ins, ætlaður svo sérstöku heldra fólki, að aðeins 61 var ætlað þar sæti. Áhorfendapall- urinn kostaði 170.000 dollara eða rúmar 32. milljónir ísl. króna, að vísu gerður úr venju- legu plasti og tré en hitaður með sólarorku. 1 allri dýrðinni gleymdist þó alveg að koma fyrir fatahengjunum eða snög- um fyrir yfirhafnir. Þegar hinn nýi forseti mætti til að horfa á skrúðgönguna fara hjá — en það tók alls 3 klukku- stundir — vissi hann því alls ekki hvað gera skyldi við frakkann. En forsetinn reynd- ist ráðagóður á raunastund og vöðlaði frakkanum saman í kúlu, sem hann síðan stakk undir stól. og ef til vill Hafez Assad Sýr- landsforseta. Sýrlendingar muni að minnsta kosti senda utanríkis- ráðherra sinni, Adul Khaddam. Hussein Jórdaníukonungur og Khalid konungur S:udi-Arabíu koma sennilega til Washington í apríl eða maí samkvæmt heimild- unum í Washington. Sveitung- arnir fylktu liði Washington. 20. jan. — Reuter SVEITUNGAR Jimmy Carters létu ekki sinn hlut eftir liggja f dag, heldur fylktu liði f höf- uðborginni til að verða vitni að embættistökunni. Carter er enda fyrsti forseti Banda- rfkjanna f meira en heila öld, sem er sannur Suðurrfkjamað- ur, og þótti þvf ástæða til ferðalagsins. Samborgarar Carters frá Plains leigðu sérstaka hrað- lest, The Peanut Special, til fararinnar, sém tók þá um 19 klukkustundir. Og aðrir Georgíubúar fylltu hótel og mótel höfuðstaðarins í ríkari mæli en landar þeirra úr öðr- um fylkjum. I allt var gert ráð fyrir að um 500.000 manns myndu koma til Washington í tilefni dagsins, en ískuldi og sjókoma kunna að hafa dregið nokkuð úr þeim fjölda. Cyrus Vance. Cyrus Vance, hinn nýi utan- rfkisráðherra, mun skipa sérstak- an samningamann f Kýpurmálinu samkvæmt heimildunum. Vance miðlaði sjálfur málum f deilum Grikkja og Tyrkja um Kýpur í valdatfð Lyndon Johnsons for- seta. Gert er ráð fyrir því að Vance utanríkisráðherra fari til Mið- austurlanda í lok febrúar. Sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum mun hann heimsækja Israel, Jórdaníu, Egyptaland, Sýrland og Saudi Arabfu. Egypzka fréttastofan segir að Vance muni reyna að koma af stað nýjum friðarviðræðum Araba og Israelsmanna í ferðinni. Búizt er við að margir þjóðarleið- togar frá Miðausturlöndum komi til Washington á næstunni. Forsætisráðherra Israels, Yitzhak Rabin, er væntanlegur til Washington í marz. Síðan er von á Anwar Sadat Egyptalandsforseta Jimmy Carter kyssir Rosalynn konu sfna eftir innsetningu sfna f embætti. Framhald af bls. 1. leyniþjónustunnar CIA þegar hann sagði: „Víð munum ekki koma þannig fram e/lendis að við brjótum þaií siÁalþgmál og þær reglur sem við höfifm í heiðri heima fyrir.“ „Við vitum að það tfaust sem -þjóð okkar ávinnur sgL er fors- enda máttar he/natv“'sagði hann. Hann héT^þrautseigiu og vizku til að takmarka vígbújað heims- íns við það sem"hverrþ þjóð er nauðsynlegt til várnar öryggi sínu“ en nefndi þó Sovétrikin ekki með nafni i því sambandi. Carter forseti hafði sagt aó ræða sín mundi einkennast af „hóflegri bjartsýni", einkum i heimsmálum. Þó virtist hann spá þvi að fljótlega mundi nást sam- komulag við Rússa um nýjan samning um takmörkun kjarn- orkuvígbúnaðar því hann sagði: „Við munum færast á þessu ári í Rússar óska góðs samstarfs Moskvu. 20. janúar. Reuter. NIKOLAI Podgorny, forseti Sovétrfkjanna, sendi Carter forseta heillaóskir f tilefni innsetningar hans f embætti í dag og kvaðst þess fullviss að stjórnin f Moskvu gæti átt gott samstarf við hina nýju stjórn Carters. Podgorny sagði f boðskap sínum til Carters að samstarf þjóða Sovétrfkjanna og Bandarfkjanna gæti treyst friðinn f heimin- um og stuðlað að þvf að endi yrði hundinn á vígbúnaðarkapphlaupið. Frétttaskýrandi fréttastofunnar Tass, Suri Kornilov, sagði í tilefni innsetningar Carters að þótt stjórn hans stæði frammi fyrir mörgum innanlandsvandamálum eins og atvinnuleysi og kynþáttavandamálum mundi bandaríska þjóðin dæpia Carter á grundvelli hæfni hans til að varðveita frið í heiminum. Kornilov kvað mestu máli skipta að vinna að gerð samninga sem gæti leitt eins fljótt og unnt væri til raunverulegrar afvopn- unar. Rússar hafa gefið í skyn að nýr samn- ingur um takmörkun kjarnorkuvígbúnaðar muni hafa forgang í samskiptum þeirra við stjórn Carters. Helmut Schmidt, kanzlari Vestur- Þýzkalands, sendi einnig Carter heillaóskir og lagði áherzlu á nauðsyn þess að Atlants- hafsbandalagið yrði eflt og að aðildarrfkin hefðu náið samband sín í milli. Walter Scheel sagði í öðru heillaóska- skeyti: „Ég er viss um að sá ágæti skilning- ur sem ríkir milli Bandaríkjanna og Vestur- Þýzkalands muni enn eflast á komandi árum." Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels, þakkaði Ford fráfarandi forseta fyrir aðstoð hans og vináttu við ísrael i bréfi sem var birt í kvöld. „Ég tel að framlag yðar hafi verið sögulegt þar sem þér hafið veitt okkar veglynda aðstoð með þeim ráðum sem eru lífsnauðsynleg landvörnum okkar," sagði Rabin, sem einnig kvað hann hafa stuðlað að friði í Miðausturlöndum. átt að lokatakmarK! okkar — ut- rýming allra kjarnorkuvopna á jörðinni." Hann sagði hips vegar, að Bandarikjamenn og heimurinn mættu ekki gera sér of háar vonir um hverju Bandaríkin gætu feng-' ið áorkað, en hann bætti því við, að Bandaríkjamenn mundu „heyja strið sín gegn fátækt, fá- ’frSeðii&g ranglæti.V Þrátt fyrir svalt veður var Cart- er hattlaus'við athöfriTfia. Aður en hann sór embættiseið sinn sem forseti vsnn Walter Mondále emSættiseið’sirin sem varaforseti. Áður' er. athöfnin hófst ræddi Carter við Ford og fór vel á með þeim. Nýi forsetninn er guðhræddur baptisti og fjölskyldubiblían stóð opin þar sem haft er eftir Mika spámanni: „Hann hefir sagt þér, maður, hvað gott sé: Og hvað heimtar Drottinn annað af þér en að gjöra rétt, ástunda kærleika og fram ganga í lítillæti fyrir Guði bfnum?" Innsetningaruagurinn hófst hjá Carter með því að hann horfði á sjónvarpsendingu frá helgistund sem systir hans Ruth, bapista- prestur frá Plains og séra Martin Luther King eldri stjórnuðu og fór fram við minnismerkið um Lincoln. Skömmu síðar sóttu Carter og kona han^ guðsþjónustu í kirkju bapista og fóru þvi næst til Hvíta hússins þar sem þau drukku kaffi með Ford og konu hans. Nýi forsetinn sagði blaðamönn- um eftir eiðtökuna að hann væri rólegur og auðmjúkur á fyrstu andartökunum i embætti forseta Bandarikjanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.