Morgunblaðið - 26.02.1977, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR
45. tbl. 64. árg.
FÖSTUDAGUR 26. FEBRUAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hótel Rossiya.
Stórbruni í
Rossiyahótel-
inu í Moskvu
Moskvu 25. febr. Reuter.
Að minnsta kosti sex manns
biðu bana og 12 særðust alvar-
lega f stórbruna, sem varð f
hinu risastóra Rossiyahóteli í
Moskvu f kvöld, að þvf er
björgunarliðar skýrðu vestræn-
um fréttamönnum frá. Hótel
Rossiya, sem er 11 hæðir með
3500 herbergjum, sem geta
hýst 6000 gesti, er helzti dvalar-
staður útlendinga, sem koma
til Moskvu. Skv. frásögnum
sjónarvotta virtist eldurinn
einkum á efstu hæðum hótels-
ins og að eldtungur hefðu stað-
ið út úr gluggum 100 — 200
herbergja.
Mikill floti sjúkrabifreiða og
slökkvibifreiða var á staðnum
og að sögn erlendra fréttaritara
er óttast að miklu meira mann-
tjón hafi orðið i eldsvoðanum.
Ekki var vitað hverjir hinir
látnu og særðu gestir voru, né'
Framhald á bls 22.
Amin ætlar að heiðra
Bandaríkjamennina
Kampala. Cienf og W ashington 25. febrúar Reuter.
TALSMAÐUR Idi Amins Ugandaforseta sagði í kvöld, ad
Bandaríkjamenn í Uganda þyrftu ekki að hafa áhyggjur
af boði Amins um að þeir hittu hann að máli á mánudag,
hann ætlaði aðeins að þakka þeim fyrir vel unnin störf í
þágu Uganda á tímum efnahagserfiðleika og heiðra
suma þeirra. Talsmaðurinn fjallaði ekki um skipun
Amins um að ioka landamærunum fyrir 240 Bandaríkja-
mönnum svo þeir kæmust ekki úr landi fyrir mánudag.
Hann skipaði þeim einnig að koma með lista um allar
eigur þeirra í landinu.
Talsmaður Amins sagði, að for-
setinn hefði átt slika fundi með
fólki af öðrum þjóðerni og því
þyrftu Bandarikjamennirnir eng-
ar áhyggjur að hafa. Þeir sem
vildu gætu farið úr landi, en þeir
sem vildu vera áfram væru vel-
komnir.
Ákvörðun Amins olli nokkrum
áhyggjum í Washington og Jody
Powell blaðafulltrúi forsetans
sagði við fréttamenn i dag, að það
væri með vissu hægt að ganga út
frá því að Carter forseti mundi
gera það sem nauðsynlegt og rétt
væri til að tryggja öryggi Banda-
ríkjamannanna f Úganda. Powell
sagði einnig að bandaríska utan-
rikisráðuneytið hefði komið á
laggirnar starfshóp til að fylgjast
náið með öllum atriðum málsins.
Aðspurður um hvort hernaðar-
aðgerðir hefðu verið ræddar sagð-
ist hann ekkert geta látið hafa
eftir sér um það. Powell sagði að
Cyrus Vance utanríkisráðherra
hefði beðið sendiráð V-
Þýzkalands i Kampala að fylgjast
með og gera það sem hægt væri til
að tryggja öryggi Bandaríkja-
mannanna, en V-Þjóðverjar hafa
séð um bandarísk málefni i
Úganda frá því að bandaríska
Framhald á bls 22.
Danmörk:
Myndun meirihluta-
stjómar ekki tímabær
Sagði Anker Jörgensen
Kaupmannahöfn 25. febrúar frá Ciunnari Rytgaard.
Anker Jörgensen, forsætisráóherra Danmerkur, sagði f dag, er hann
hafði lagt fram nýjan ráðherralista minnihlutastjórnar Jafnaðar-
mannaflokksins, að mikilla breytinga hefði ekki verið þörf, þar sem
gamla ríkisstjórnin hefði starfað vel. Nauðsynlegt hefði hins vegar
verið að skipta sjávarútvegs- og landhúnaðarráðuneytinu, þar sem um
hefði verið að ræða tvo mjög stóra málaflokka. 4 nýir ráðherrar eru f
stjórninni, Lise Östergaard, aðstoðarutanrfkisráðherra, Kjeld Olsen,
samgöngumálaráðherra, (hann gegndi eitt sinn embætti varnarmála-
ráðherra, en hefur frá því 1973 verið varaformaður Jafnaðarmanna-
flokksins og einn af leiðtogum hans utan rfkisstjórnar), Jens
Kampmann, skattamálaráðherra, sonur Viggo Kampmanns, fyrrum
forsætisráðherra, og Ove Hove, húsnæðismálaráðherra. Svcnd Jakob-
sen, sem tekur við embætti sjávarútvegsráðherra, var skattamálaráð-
herra í síðustu rfkisstjórn. Paul Dalsager verður áfram landbúnaðar-
ráðherra.
ingarmálaráðherra, Eva Gredahl
félagsmálaráðherra, Erling
Framhald á bls 22.
Indland:
Naryanyan veikur
Nýju Delhf 25. febrúar. Reuter.
STJÓRNARANDSTÖÐUFLOKK
ARNIR f Indlandi urðu f dag fyr-
ir miklu áfalli f kosningabarátt-
unni, er helzti talsmaður þeirra
Jayaprakash Narayan, var fluttur
f sjúkrahús með nýrnakast og
verður hann frá fram til kosning-
anna 16. marz. Narayan, sem er 74
ára að aldri, gamall samstarfs-
maður Mahatma Gandhis, friðar-
sinni og helzti andstæðingur
Indiru Gandhis, hefur verið
helzta lyfíistöng stjórnarand-
stöðuflokkanna og gffurlegur
mannfjöldi hefur komið á kosn-
ingafundi, sem hann hefur hald-
ið.
Narayan var fimm mánuði i
fangelsi eftir að Indira Gandhi
lýsti yfir neyðarástandi í landinu
1975, en hann hafði þá barizt
harkalega gegn henni um langt
skeið. í yfirlýsingu, sem Narayan
sendi frá sjúkrabeði sínu i
Bombay sagðist hann vona að fólk
skildi hve hjálparvana hann væri
og að hann gæti ekki lengur hald-
ið ferðaáætlun sína.
Læknar sögðu, að Narayan
þyrfti að fara í meðferð i nýrnar-
vél og auk þess væri hann
örmagna af þreytu. Hann var lát-
inn laus úr fangelsi af heilsufars-
ástæðum á sínum tíma. Stjórn-
málafréttaritarar segja, að veik-
indi Narayans séu mikið áfall fyr-
ir stjórnarandstöðuna og dragi
mjög úr möguleikum þess, að hún
geti veitt Kongressflokknum ein-
hverja keppni i kosningunum.
K.B. Andersen, sem er áfram
utanríkisráðherra, tekur einnig
við málum er varða samskipti
Norðurlandanna, en fær Lisu
Östergaard sem aðstoðarráðherra.
Ivar Nörgaard, sem var markaðs-
málaráðherra og fór með Norður-
landamálin, verður viðskiptaráð-
herra, en hann er heilsutæpur og
sagði Jörgensen að Nörgaard
hefði ekki beint óskað eftir að
skipta um ráðuneyti, en sann-
gjarnt væri að hann fengi eftir
margra ára dugnaðarstarf ráðu-
neyti, sem krefðist ekki eins mik-
illa ferðalaga. Jörgensen minntist
ekkert á heilsu Nörgaards í þessu
sambandi.
Aðrir ráðherrar sitja áfram:
Knud Heinesen fjármálaráð-
herra, Per Hækkerup efnahags-
málaráðherra, Egon Jensen
innanríkisráðherra, Niels
Matthiasson umhverfis- og menn-
Bandarískir þingmenn
skrifa Brezhnev bréf
Washington 25. febrúar. Reuter.
50 bandarfskir þingmenn sendu f
dag Leonid Brezhnev, aðalritara
sovézka kommúnistaflokksins,
bréf, þar sem þeir mótmæltu
handtökum andófsmanna I Sovét-
rfkjunum að undanförnu. Var
bréfið afhent Anatoly Dobrynin
sendiherra f Washington, sem sá
um að koma því áleiðis. I bréfinu
var lögð áherzla á að Bandarfkja-
þing styddi eindregið mannrétt-
indaákvæðið f Helsinkisáttmálan-
um 1975. Einnig sagði, að þing-
mennirnir litu á kúgunina á and-
ófsmönnum f Sovétrfkjunum sem
prófstein sovétstjórnarinnar á
staðfestu hinnar nýju rfkisstjórn-
ar Carters forseta og yfirlýsingar
hennar um að gera mannréttinda-
mál að ófrávfkjanlegu forgangs-
verkefni.
Kolsvartur reykjamökkur stfgur upp af Líberfuolíuskipinu Hawaiian Patriot f gær, skömmu áður en
skipið sökk eftir sprengingu um 320 mflur vestur af Honolulu í gær. 70 þúsund lestir af hráolfu voru f
skipinu. 1 maður fórst, en 38 komust af.