Morgunblaðið - 26.02.1977, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.02.1977, Blaðsíða 30
30 MORCUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRL'AR 1977 Rauðsokkuhreyfingin: 1 öö4'’fií'^í.ví í- ■ v, ."j■ Hver maður sé sjálfstæð- ur skattþegn MBL. hefur borizt eftirfarandi greinargerð um skattamál frá Rauðsokkahreyfingunni: Starfshópur Rauðsokka um skattamál hefur kynnt sér frum- varp til laga um tekjuskatt og eignarskatt, sem nú liggur fyrir alþingi, og ákvað að einskorða sig við þá þætti frumvarpsins, sem fjalla um jafnrétti kynja. Rauðsokkahreyfingin hefur frá upphafi barist fyrir sérsköttun hjóna, þ.e. að hver fulltíða maður sé sjálfstæður skattþegn og greiði skatta af eignum sfnum og tekj- um án tillits til hjúskaparstéttar og njóti jafnframt þess réttar, sem þeirri skyldu fvlgir. Hér á eftir fara hugmyndir Rauðsokkahreyfingarinnar um skattlagningu launamanna ásamt greinargerð um helstu þætti frumvarpsins, sem snerta hana. I. IIVER IMAÐUR SÉ SJÁLFSTÆÐUR SKATTÞEGN. Lög um réttindi og skyldur hjóna frá 1923 kveða um jafnræði með hjónum. íslensk skattalög hafa hins vegar aldrei gert það. Við giftingu glatar konan vissum borgaralegum réttindum, rétt- inum að vera sjálfstæður skatt- þegn. Um frumvarp það til laga um tekju- og eignarskatt, sem nú ligg- ur fyrir alþingi, var sagt, að það ætti að leiðrétta þetta misrétti með sérsköttun hjóna. Við nánari athugun er þó ljóst, að svo er ekki. 5. gr. frumvarpsins hljóðar svo: „Hjónum skal reikna tekju- og eignarskatt hvoru í sínu lagi.“ Hún samrýmist því jafnréttiskröf- um okkar. 59., 87. og 97. gr. gera það hins vegar ekki. 1 59. gr. er gert ráð fyrir svo- kallaðri helmingaskiptareglu þ.e. að hjón leggi saman tekjur sínar og eignir, síðan er deilt með tveimur og hjónin greiða skatt af sínum helmingnum hvort. Við erum mótfallin þessu ákvæði og krefjumst þess, að hjón verði tveir sjálfstæðir skattgreiðendur og greiði hvort hjóna um sig skatta af tekjum sinum og eign- um. Sé annað hjóna tekjulaust eða hafi litlar tekjur, skal milli- færa ónýttan persónuafslátt. Með þessari einföldun fellur burt ákvæði um skattlagningu hjóna, sem eru í sambúð hluta af árinu svo og hin furðulegu ákvæði um álagningu skatta á hjón, sem skattskyld eru hvort í sínu land- inu, sbr. 3. málsgr. 59. gr. t 87. gr. kemur fram, að höfund- ar frumvarpsins telja hjón áfram einn skattgreiðanda en ekki tvo. Þar segir, að framtalsskylda hvíli á hverjum einstaklingi en sam- eiginlega á hjónum. Frumvarpið felur því eingöngu f sér nýja að- ferð við álagningu skatta á hjón, en ekki ákvæði um sérsköttun hjóna, sem við teljum vera aðal- atriðið varðandi jafnrétti kynja. t 97. gr. er kveðið á um, að álagða skatta skuli birta í einu lagi í skattskrá og tilkynningar skattyfirvalda nægi að senda öðru hjóna. Þetta ákvæði samrýmist ekki jafnréttiskröfu okkar. Við viljum, að hjón telji fram hvort í sínu lagi, álögð gjöld verði birt hjá hvoru hjóna um sig í skatt- skrá og tilkynningar skattstjóra verði sendar því hjóna, sem við á hverju sinni. Rök okkar fyrir sérsköttun hjóna eru þessi. 1. Yfir 60% giftra kvenna hefur sjálfstæðar tekjur. Eðlilegt er að lög miðist við aðstæður meirihlut- ans. Þar af leiðandi er ekkert eðlilegra, en að hvort hjóna standi skil á sköttum af sínum tekjum. 2. Hafi hjón mismunandi tekjur og skattar eru teknir beint af launum einstaklinga eins og nú er, þýðir helmingaskiptareglan, að það hjóna, sem hefur minni tekjur, á það á hættu að vera i sffelldri skuld við gjaldheimtuna. Hætta er einnig á þvi, að gengið verði á séreign þess hjóna, sem minni tekjur hefur, og það verði enn háðara hinu fjárhagslega en nú er. 3. Réttur húsnæðra er á engan hátt meiri þótt þær séu skattlagð- ar fyrir helmingi launa eigin- mannsins. Það tryggir ekki, að þær fái þau laun til umráða, held- ur er hér verið að leggja á þær kvöð, sm þær eru ekki í aðstöðu til að standa við á eigin spýtur. Sjálfsagt er, að þeir, sem vinna heimilisstörf séu sjálfstæðir skattborgarar þótt þeir hafi ekki beinar launatekjur. Til þess að tryggja, að persónuafsláttur þeirra ónýtist ekki, skal millifæra hann, sem greiðslu á sköttum hins, ef einhverjir eru. II. PERSÓNUAFSLÁTTUR VERÐI HINN SAMI FYRIR ALLA. Persónuafsláttur skal vera hinn sami fyrir alla einstaklinga hvort heldur þeir búa í hjúskap eða ekki. Frumvarpið gerir ráð fyrir minni persónuafslætti fyrir hjón en tvo einstaklinga, sbr. 63. gr. Við teljum óeðlilegt, að skatt- byrði fólks aukist gangi það í hjúskap. Benda má á, að útgjöld hjóna eru yfirleitt tvöföld. Þau greiða bæði i lífeyrissjóð, stéttar- félagsgjöld, þau bera hvort um sig kostnað við að komast til vinnu og njóta ekki fyrirgreiðslu hins opin- bera varðandi barnagæslu. Hafi minni persónuafsláttur einhvern tíma átt rétt á sér hjá hjónum en 2 einstaklingum, á hann það ekki lengur. Fráleitt er að fella burt ákvæði um 50% frádrátt af launa- tekjum kvenna í hjúskap, nema fullur persónuafsláttur komi ( staðinn. Með þvi er jafnrétti borg- ara vegna skattlagningar best tryggt. III. ÓNYTTAN persónuaf- slátt hjóna og sambYlis- FÓLKS SKAL MILLIFÆRA. Eina undantekningin frá al- gjörri sérsköttun í hugmyndum okkar er ákvæði um millifærslu persónuafsláttar. Eðlilegt er, að annað hjóna geti unnið inni á heimilinu án þess að glata per- sónuafslætti sínum. Mun þar einkum vera um að ræða fólk með ung börn á framfæri og aldrað fólk. IV. BARNABÆTUR (persónuaf- sláttur barna) VERÐI RAUN- HÆFAR OG SAMA UPPHÆÐ FYRIR ÖLL BÖRN OG SKIPT- IST ÞÆR JAFNT MILLI HJÓNA OG SAMBYLISFÓLKS. Sama ákvæði gildi um millifærslu barnabóta og um per- sónuafslátt sbr. lið III. V. FRAMFÆRENDUR, SEM VINNA UTAN HEIMILIS, FÁI AFSLÁTT vegna barna. LAGMARKSVIÐMIÐUN sé GJALD A OPINBERUM DAG- VISTARSTOFNUNUM. EINNIG VERÐI HEIMILT AÐ VEITA AFSLÁTT, EF A HEIMILI ER FÓLK, SEM SAKIR SJUKLEIKA EÐA ELLI, ÞARFNAST SÉR- STAKRAR UMÖNNUNAR. 1 64 gr. er fjallað m.a. um heimilisafslátt. Við teljum ekki rétt, að barnlaus hjón fái sér- stakan afslátt vegna útivinnu beggja fremur en tveir einstakl- ingar. Hins vegar álítum við að allir, sem hafa börn á sínu fram- færi og vinna utan heimilis, eigi að fá verulegan afslátt vegna kostnaðar við gæslu barna. VI. SKATTFRJÁSL EIGN HJÓNA VERÐI HIN SAMA OG TVEGGJA EINSTAKLINGA. 1 79. gr. er gert ráð fyrir, að skattlaus eign hjóna verði 9 millj., en tveggja einstaklinga 12 millj. Varðandi álagningu eignarskatts hjá hjónum greiði hvort hjóna eignarskatt af sínum eignum. LOKAORÐ. Við höfum áður tekið fram, að við höfum einskorðað okkur við þau atriði frumvarpsins, sem snerta jafnrétti kynja. Við getum þó ekki látið hjá liða að benda á eftirtalin atriði. 1. Lágmarkslífeyrir verði skatt- laus. Lágmarkslifeyrir einstaklinga er umdeildanlegur. Þó hlýtur hverju sinni að vera hægt að finna þá upphæð sem einstakling- ur þarf sér til lífsviðurværis í nútimaþjóðfélagi. Einnig væri æskilegt að taka tillit til þess, hversu margar vinnustundir liggja að baki launatekjum ein- staklings, áður en þær eru skatt- lagðar. 2. Ákvæði um 2% launaafslátt af starfstengdum tekjum manna, sbr. 64. gr., 2. tl., kemur svo ójafnt niður, að upptaka hans í stað allra þeirra frádráttarliða, sem gilda skv. núgildandi lögum og bent er á í athugasemdum við frumvarp- ið, bls 44, er ekki réttlætanleg. 3. Fráleitt er að skattleggja feng- ið meðlag, sbr. 7. gr. 2. tl. Meðlag er ekki tekjur, heldur mótframleg þess foreldris, sem ekki hefur barn hjá sér, til þess, sem annast uppeldi barnsins. 4. I sambandi við 25% vaxtaaf- slátt af greiddum vöxtum er rétt, að tekið sé tillit til þess í hvaða framkvæmdum fólk stendur (64. gr. 3,tl.). F.h. Rauðsokkahreyfingarinnar Kristín Ingvarsdóttir, Helga Sigurjónsdóttir, Herdfs Helgadóttir. Fyrirhuguð ryðvarnarstöð Eimskipafélagsins er óþörf BLAÐINU hefur borizt eftirfar- andi athugasemd frá Bflaryðvörn h.f.: Að undanförnu hefur Eim- skipafélag íslands sent dagblöð- unum ,,fréttatilkynningar“ um byggingu fyrirhugaðrar ryðvarn- arstöðvar félagsins, þar sem fram koma ýmsar villandi og í sumum tilfellum beinlínis rangar fullyrð- ingar, og er það ef til vill skiljan- legt, því að erfitt mun að finna rök fyrir eitt til tvö hundruð milljón króna fjárfestingu Eim- skipafélagsins á þessu sviði, því að fyrir eru í landinu mjög góðar ryðvarnarstöðvar, örugglega þær beztu á Norðurlöndum. „Farið þið til íslands, ef þið viljið sjá fullkomna ryðvörn“ Þessi ummæli eru ein af mörg- um, sem erlendir sérfræðingar hafa látið falla, þegar rætt hefur verið um ryðvarnarstöðvar á þing- um erlendra bílasérfræðinga. Sérfræðingar, bæði frá Norður- löndum og Bretlandi, sem hingað hafa komið og kynnt sér bílaryð- vörn chér, hafa lokið upp einum munni um, að lengrá sé ekki hægt að komast í viðleitni til þess að ryðverja vel og veita þá beztu þjónustu, sem hugsanleg sé. Skýt- ur þetta skökku við fullyrðingar Eimskipafélagsins um „stórbætta þjónustu við bifreiðaeigendur“ og „eina fullkomnustu ryðvarnar- stöð á Norðurlöndum", en þetta eru fyrirsagnirnar á „fréttatil- kynningum“ Eimskipafélagsins um hina nýju ryðvarnarstöð fé- lagsins. Það er nefnilega ekki nóg að stilla upp dýrum færiböndum og segja: „sjá, svona er þetta nú full- komið“. Færibönd geta aldrei leyst af hendi þá ítarlegu ryðvörn, sem er fóigin í því, að allar klæðningar eru fjarlægðar úr bifreiðunum til þess að sem bezt megi komast að öllum lokuðum rúmum í þeim. Það er einmitt þessi nákvæmni, sem vakið hefur athygli erlendra sérfræðinga, sem skoðað hafa Bflaryðvörn, enda eru svona ítar- Ieg vinnubrögð hvergi viðhöfð í nágrannalöndunum. „Treystu sér ekki“ til þjónustunnar Látum þetta nægja um þá fjar- stæðu, að ryðvarnarstöð Eim- skipafélagsins muni stórbæta þjónustuna við bifreiðaeigendur, en víkjum að fullyrðingum félags- ins um umhyggju þess fyrir bfla- eigendum og viðleitni til þess að bæta þessa þjónustu. Eimskipafélagið tiltekur tvö atriði, máli sfnu til stuðnings, annars vegar, að samtök bifreiða- innflytjenda hafi óskað eftir því, að félagið reisti ryðvarnarstöð, og hins vegar, að án slíkrar stöðvar sé ekki hægt að ryðverja bíla, strax, þegar þeir koma til lands- ins. Fyrra atriðinu er fljótsvarað: Samtök bílainnflytjenda hafa aldrei óskað eftir þvi, að sett yrði upp slík stöð, og getur formaður Bílgreinasambandsins staðfest það, ef þess er óskaó. Um sfðara atriðið er hins vegar það að segja, að fyrir um það bil þremur árum tíðkaðist það, að bflainnflytjendur fengu svonefnd ryðvarnarleyfi, þ.e.a.s. leyfi til þess að fá bilana lánaða úr vöru- geymslu til þess að færa þá til ryðvarnar í ryðvarnarstöðvunum, og var þeim síðan skilað aftur eða innleystar. Þessi sjálfsagða þjónusta var hins vegar afnumin, og bar Eim- skipafélagið það fyrir sig, „að þeir treystu sér ekki til að af- henda bifreiðarnar úr sinni vörzlu til ryðvarnar“, eins og það er orðað í fréttatilkynningu þess. Lengra náði nú umhyggja fé- lagsins og viðleitni til að bæta þjónustu nú ekki, þrátt fyrir boð ryðvarnarstöðva og einstakra inn- flytjenda um að taka á sig alla ábyrgð og útvega þær tryggingar, sem til þurfti. Viljinn var ekki fyrir hendi, þótt hér væri eingöngu um skipu- lagsatriði að ræða. Fé almennings á giæ kastað 1 fréttatilkynmngu Eimskipafé- lagsins segir m.a.: „Félagið er almenningseign og trútt sfnum upphaflegu markmið- um.“ Það er fé almennings og eignir hans, sem ráðamenn Eimskipafé- lagsins eru að ráðstafa, þegar þeir kasta eitt til tvöhundruð milljón- um í algerlega óþarfa fjárfest- ingu. Hér f borg eru nú starfandi fimm ryðvarnarstöðvar, og má þar nefna Bilaryðvörn h.f., Skeif- unni 17, og Ryðvörn s.f., Grensás- vegi 18, auk þess, sem þrjú bíla- umboð annast ryðvörn á sinum bflum. Þessir aðilar hafa hingað til annað allri eftirspurn á ryðvörn á nýjum og notuðum bílum, og heil- brigð samkeppni milli þeirra hef- ur skapað fslenzkum bflaeigend- um völ á beztu þjónustu, sem þekkist. 1 skjóli fjármagns og opinberr- ar fyrirgreiðslu er Eimskipafélag- ið komið langt áleiðis með að ná einokunarstöðu á flutningi bfla til landsins, og nú virðist eiga að nota þessa aðstöðu til þess að ná einnig einokunarstöðu í atvinnu- rekstri, sem er algerlega utan verksviðs skipafélaga. Er erfitt að sjá, hvernig slfkt samræmist upphaflegum mark- miðum „óskabarns þjóðarinnar”. Athugasemd frá Bílarydvörn h.f.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.