Morgunblaðið - 26.02.1977, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.02.1977, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAL'ííARDACíUR 26. FEBRUAR 1977 — Málið leyst. . Framhald af bls. 40 vfk þegar þeir lokuðu f gær- kvöldi. „Allar undirskriftir eru nú í lagi vegna þessa máls“, sagði Bragi, „og voru samþykktar af æðstu stjórnendum landsins. Ástæðan fyrir þessari töf, sem hefur orðið á því að Lagarfoss gæti lagt úr höfn frá íslandi, ér sú að upp kom flækja í skreiðar- málum Nígerfumanna sjálfra og allt fór í strand þegar ákveðin könnun fór fram hjá þeim vegna skreiðarmálanna. Okkar mál lenti inni í þessu, en það var Ieyst á sérstakan hátt þegar það var bor- ið undir forseta landsins, Olusegun Obasanjo hershöfðingja. Þá má geta þess að öll skip, sem flytja matvæli til Nígeríu á veg- um ríkisstjórnarinnar, fá losun strax. Ástand í höfnum landsins er yfirleitt gott, en þó bíða 86 skip löndunar í Lagos. Meðalbiðtími til losunar er 5—8 dagar fyrir önnur skip en þau sem flytja matvæli til stjórnarinnar. Öll skreiðin í Lagarfossi var strax á markað í landinu, því það vantar skreið þar. Þegar eru tryggð leyfi hafnaryfirvalda i Níeríu fyrir tveimur skipum og leyfi fyrir öðr- um þremur skipum í viðbót hafa verið samþykkt, en þessi skip munu fara frá íslandi á næstu vikum samkvæmt samningi skreiðarframleiðenda við inn- kaupastofnun rfkisins f Nfgeríu, en hér er alls um að ræða 2700 tonn af skreið". Þeir menn, sem fóru út til þess að vinna að lausn málsins, voru auk Braga: Bjarni V. Magnússon fyrir íslenzku umboðssölunna, Magnús Friðgeirsson fyrir Sam- band íslenzkra samvinnufélaga og ennfremur Stefán Gunnlaugsson, deildarstjori í Viðskiptaráðuneyt- inu, sem fylgdist með framvindu mála síðustu viku f Lagos. — Lágmarkslaun Framhald af hls. 40 kostnaðar með aukinni hag- ræðingu og betri stjórn. • ASÍ telur, að taka verði fjár- festingarmál til rækilegrar at- hugunar til þess að koma í veg fyrir, að óæskileg og beinlínis röng fjárfesting hamli gegn launahækkunum. í því sam- bandi bendir ráðstefnan á, að undanfarin ár hafi fjárfesting hér numið um þriðjungi af þjóðarframleiðslu samanborið við um 20% í nálægum löndum. 0 ASÍ leggur til, að skattheimta ríkisins verði lækkuð um 7.2 milljarða króna óg telur, að á þann hátt megi lækka verðlag og útgjöld heimila um sem nemur 4%. Þetta á að gerast með eftirtöldum hætti: Niður falli 2 söluskattsstig, sem áður runnu til Viðlagasjóðs, samtals 3,4 milljarðar. Niður falli 1% HÓTEL BORG Okkar vinsæla kalda borð í hádeginu í daíí. sjúkragjald á útsvarsstofn, samtals 1,2 milljarðar. Niður falli helmingur tímabundins vörugjalds, samtals 2,6 milljarðar. 0 Tekjutapi ríkissjóðs af þessum sökum verði mætt með því að fresta áætlaðri lækkun á 2 milljarða skuldagreiðslu til Seðlabankans og með sparnaði í rekstrargjöldum rfkissjóðs. Skattaeftirlit verði bætt og skattalögum breytt þannig að þau tryggi að atvinnurekendur taki eðlilegan þátt í skatt- greiðslum. 9 Þá telur ASÍ, að takmarka beri hækkun á opinberri vöru og þjónustu við brýnustu rekstrarþörf opinberra fyrir- tækja og tryggt verði að hún fari ekki fram úr áætlun, sem samningsaðilum verði kynnt fyrir samninga. # Væntanleg hækkun búvöru á samningatíma verði kynnt og ríkisstjórnin skuldbindi sig til þess að frekari hækkanir komi ekki fram. — Eldsvoði. . . Framhald af bls. 40 reyks. Slökkviliðið kom fljótlega á vettvang og þvf tókst að slökkva eldinn, en skemmdir eru tals- verðar. Loftbitar brunnu og þakið seig ð hluta vegna hita, raflfnur og aðrar lagnir f þessum sal skemmdust mikið og reykur komst um mikinn hluta hússins. Vinna féll niður f húsinu fram eftir degi, þvf hreinsa varð vinnslusal og eitthvað mun hafa skemmmzt af hráefni. Hitinn í salnum var það mikill, að einangrun á rörum í loftinu bráðnaði niður og sæti á öðrum lyftaranum, sem var þarna inni, bráðnaði einnig. Báðir lyftararnir, sem voru í salnum, skemmdust mikið, sérstaklega annar þeirra, en eldurinn mun hafa orðið laus er gas frá kút sem var verið að losa á lyftara, sogaðist inn á vél annars lyftara, sem var í gangi. Maður á honum slapp naumlega þvf mikill eldur gaus upp í húsinu. Mestar skemmdir eru á þakinu, en 30 stór rafljós í lofti hreinlega bráðnuðu niður. Eitt tonn af flökum í pökkunarsal eyðilagðist og um- búðir allar en vinna féll niður f flökuninni f 4 klst og 2 klst f loðnunni. Elfsas. — Reksturinn Framhald af bls. 40 þess að setja aðra lánaskilmála. Annað þolir rekstur bankans ekki.“ Þá benti Jónas á að ekki yrði lengur unnt að fá lánin, nema veittar yrðu tryggingar á móti, þar sem bankinn gæti ekki tekið afurðaveð. Jónas Rafnar sagði að málið væri eflaust til athugunar í Seðla- bankanum. Hann kvað engin lög i landinu, sem skylduðu Útvegs- bankann til þess að veita lánin og engar reglugerðir. Jónas kvað menn, sem settu sig inn í málin skilja vandamál bankans mæta vel — að ekki væri unnt að taka 11% vexti af útlánum á sama tíma og lægstu sparisjóðsvextir væru 13%. Samkvæmt áætlun, sem Útvegsbankinn hefur reiknað út, hefði hann þurft að greiða ekki minna en 70 milljónir króna með þessum lánum, ef lánskjörum hefði verið haldið óbreyttum. — Erum tilbúnir Framhaid af bls. 2 samstaða hafi verið á kjara- málaráðstefnunni um öll þau mál, sem máli skiptu. í ályktun ráðstefnunnar er m.a. mælt með þvf að innflutningshöft yrðu sett á um eins árs skeið til þess að beina eftirspurn að inn- lendri framleiðsluvöru. Björn sagði að um þetta atriði hefðu menn ekki verið á einu máli. Guðmundur H. Garðarsson, for- maður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og Björn Þórhalls- son formaður Landssambands verzlunarmanna lýstu báðir eindreginni andstöðu sinni við þetta atriði, en fluttu ekki breytingartillögu. Alþýðusamband íslands set- ur aðildarfélögum sinum frest til 15. marz að hafa skilað sér- kröfum, en það er hálfum öðr- um mánuði fyrir þann tfma að samningar falla úr gildi. Þegar sérkröfurnar hafa borizt — sagði Björn Jónsson verða þær skoðaðar og mun þá samninga- nefndin ákveða hvernig með þær verður farið og hvort ástæða verður til að taka þær upp sem sérkröfur ASl. Kjaramálaráðstefnu ASÍ sóttu tæplega 100 fulltrúar og stóó hún frá klukkan 14 í fyrra- dag til klukkan 00,30 f fyrri- nótt. Eins og áður segir ákvað ráðstefnan skipan samninga- nefndar og kaus í hana 21 mann, en fullskipuð verður hún 26 manna nefnd. — Amin Framhald af bls. 1. sendiráðinu þar var lokað 1973 í mótmælaskyni eftir ítrekuð brot stjórnar Amins á mannréttindum í landinu. Sendiherra Bandarfkjanna þá var dr. Thomas Melady, nú forseti Sacred Hearts-háskólans f Connecticut. Hann skoraði f dag á Carter forseta að reka sendiráðs- starfsmenn Úganda úr landi í mótmælaskyni við morðin á þús- undum saklausra Úgandamanna. Melady sagði, að megnasti fnykur væri af öllum aðgerðum Amins. Hann sagðist hafa átt marga fundi með honum 1971 — 73 og sagt í skýrslum til bandaríska utanríkisráðuneytisins, að Amin væri einræðisherra, ruddi, sem ekki væri hægt að treysta, og morðingi. — Danmörk . . . Framhald af bls. 1. Jensen atvinnumálaráðherra, Orla Möller varna- og dómsmála- ráðherra, Ritt Bjerregaard kennslumálaráðherra og Jörgen Peder Hansen Grænlandsmála- ráðherra og kirkjumálaráðherra. Jörgensen sagði að lokum á fréttamannafundinum í dag, að hann hefði ekki gefið upp alla von um myndun meirihlutastjórn- ar, en menn yrðu að horfast í augu við þá staðreynd, að slfk stjórnarmyndun — væri ekki tímabær eins og á stæði. — Múlafoss . . . Framhald af bls. 40 3x5 metra bili. Fjórir aðilar af þeim sem við höfum sent skeyti, hafa svarað að þeir séu tilbúnir að gera tilboð í viðgerðina." Múlafoss er tryggður fyrir 300 millj. fsl. kr. Viggó tjáði Mbl. að norska skipafélagið sem á Lys Point, er sigldi á Múlafoss, hefði nú lagt fram kröfur um björgunarlaun, en skipið dró Múlafoss til hafnar eftir að hafa siglt á það. „Þessi ásigling Lys Point virðist vera gróft brot á siglingareglum" sagði Viggó, „þvf bæði er að það var ekki mjög dimmt yfir þegar ásíglingin varð og auk þess beygði norska skipið að Múla- fossi þegar hættan vofði yfir. í fyrstu var haldið að Lys Point hefði verið á siglingu þvert á leið Múlafoss, en norska skipið mun hins vegar hafa komið á móti Múlafossi og þegar skip- verjar á Múlafossi beygðu í stjór til þess að forðast árekstur, beygðu skipverjar á Lys Point f bak í stað þess að beygja einnig í stjór. í stað þess að vikja frá, beygja þeir að skipinu. í reglum um björgunarlaun segir að sá sem veldur tjóni eigi ekki rétt á bótum nema eftir mati og skal þá miðað við það hvernig tjónið kemur til og hvor er í rétti og það er Múlafoss sem er í rétti." — Lýst eftir . . . Framhald af bls. 2 Laugad. 19. feb. Ekið á bifreiðina R-1600, Austin-Alegro fólksbifr. blá að lit árg. 1976, þar sem hún stóð á bifreiðastæði við húsið nr. 33—35 við Rjúpufell um nótt- ina. Skemmdir: Vinstra aftur- hornbretti, kistulok og högg- vari dældað og skemmt, senni- lega eftir höggvara á tjónvaldi. Mánud. 21. feb. Ekið á bifreiðina R-10519, Datsun fólksbifr. árg. 1973 rauða að lit, þar sem hún var á bifreiðastæði við Austurver á tfmabilinu kl. 17:10 — 17:30. Skemmd á vinstra afturljósa- ramma. Gulbrúnn litur í sári og á höggvarahorni. Mánud. 21. feb. Ekið á bifreiðina R-10107, Ford-Bronco, gul að lit, þar sem hún stóð á móts við hús nr. 41 við Hvassaleiti, en að- keyrsla er þar að húsunum nr. 39 — 49. Skemmdir: Vinstra framaurbretti, vinstra þoku- ljós, vinstra framhorn og högg- vari. Á staðnum voru brot úr afturljóskerfi úr Ford Cortinu líklega blárri að lit, sem mun þá líklega vera tjónvaldur. R- 10107 stóð þarna frá þvf dag- inn áður kl. 12:00 — til kl. 11:00 21. feb. að eigandinn tók eftir þessu. Þriðjud. 22. feb. Ekið á bifreiðina R-33292, Fíat fólksbifr. árg. 1971, gul- brúna að lit, þar sem hún stóð á bifreiðastæðinu norðan við Sundlaug Vesturbæjar. Vinstra afturaurbretti skemmt. — Heilsugæzlu- stöðvar . . . Framhald af bls. 17 fræðsla verðið starfrækt í stöð- inni og verið vel sótt, en nú verður um fast starf að ræða. — Hvað framtfðin mun ann- ars bera í skauti sér í heilbrigð- ismálum mun grundvallast á því, hvað þjóðfélagið er tilbúið að borga í þennan þátt. Um marga valkosti er að ræða f heilbrigðismálum, og í framtíð- inni munu menn áreiðanlega spyrja meir og meir hvernig hagkvæmast er að koma þess- um málum fyrir, án þess að rýra þjónustuna. Reykvíkingar munu í framtíðinni verða að- njótandi betri heilbrigðisþjón- ustu. Hvað leggja beri mesta áherslu á verður að endurskoða miðað við þarfir hvers tfma, en vandamálin eru margvísleg og úrlausnir sennilega jafnmargar en fjármagnið snfður fram- .kvæmdum stakk, sagði Páll Gislason að lokum. — Stórbruni Framhald af bls. 1. af hvaða þjóðerni. Að sögn sjónarvotta var mikill fjöldi fólks innilokaður í hótelinu. Hótel Rossiya er nýtízkuleg bygging, skammt frá Kreml og Rauða torginu og eins og fyrr segir helzti dvalarstaður út- lendinga í Moskvu. Fréttamenn náðu tali af Jim Hackett, brezk- um verzlunarmanni, skömmu eftir að hann komst út úr hótelinu. Hann sagðist hafa búið á 5. hæð hótelsins og sér hefði virzt, sem eldurinn hefði blossað mjög skyndilega upp. Hann sagðist hafa heyrt neyðaróp fólks, en ekki vitað hvaðan þau komu. Sér hefði tekist að komast út með því að skríða á maganum eftir gang- inum og komast að stigagangi, en þykkur reykur hefði þá ver- ið allstaðar fyrir ofan. — Messur Framhald af bls. 7 fundur verður haldinn að lok- inni messu. Sóknarprestur. ÚTSKÁLAKIRKJA. Barna- guðsþjónusta kl. 1.30 síðd. Sóknarprestur. EYRARBAKKAKIRKJA. Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Altarisganga. Sóknarprestur. FÍLADELFlA — Selfossi. Al- menn guðsþjónusta kl. 4.30 sfðd. Ræðumaður Daníel Jónas- son söngkennari. AKRANESKIRKJA. Barna samkoma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2 sfðd. Séra Björn Jónsson. — Amalrik Framhald af bls. 19 Ponitaowski setti í dag ofan í við Amalrik og sagði: „Krafa hans um að hitta forsetann þegar honum þóknast er óaðgengileg með öllu.“ Amalrik segir i viðtalinu: „Vesturveldin veðjuðu á mála- miðlun í Helsinki... Mesta dóm- greindarleysi þeirra var að halda að þau gætu gert fjárkúgara skaðlausan með tilslökunum.“ Hann hefur rætt við þingmenn Miðflokksins og einn helzti ráðherra þeirra, Jean Lecanuet, sagði: „Ef hann knýr dyra hjá mér tek ég á móti honum.“ Kommúnistaleiðtoginn Georges Marchais gagnrýndi Amalrik fyrir að kalla sig stalfnista f sauðargæru „evró-kommúnisma“. „Það er hálfgerður dónaskapur að hitta okkur og stinga okkur svo í bakið,“ sagði Marchais. — Rauðsokkar kynna . . . Framhald af bls. 3 tónlist, sem hann hefur samið við fjögur ljóð eftir Ástu. Þess má geta að Menningar- nefnd Neskaupstaðar og Félags- heimilið Egilsbúð hafa sýnt þess- ari fyrirhuguðu dagskrá mikinn áhuga og boðið aðstandendum hennar að koma og flytja hana og sýna myndir í Egilsbúð að kvöldi sunnudagsins 6. marz. Ásta Sigurðardóttir er fædd 1. apríl árið 1930 á Litla Hrauni, Kolbeinsstaðahreppi í Hnappa- dalssýslu. Hún dó í lok árs 1971, aðeins rúmlega fertug. Hún tók kennarapróf árið 1950. Birti nokkrar af sögum sfnum í tímarit- um og myndskreytti sjálf. Hún lagði stund á leirkerasmíði auk þess, sem hún málaði, teiknaði, orti ljóð og skrifaði smásögur. — Kjaramála- ráðstefna ASÍ Framhald af bls. 17 taxta láglaunafólks f væntanlegum kjarasamningum. Sérstaklega þarf a8 bæta kjör þeirra einstaklinga, sem ekki hafa ur öðru að spila en tekjutryggingu almannatrygginga. Lffeyrisréttindi eru I dag ófull- nægjandi og úrbætur verSa a8 fást hið bráðasta. Þvf verSur a8 hraða endurskoðun Iffeyriskerfisins f sam- ræmi vi8 samkomulagiS um Iffeyris- mál frá febr. 1976. en bráSabirgSa- samkomulag frá sama tfma verSi endurskoSaS og me8 þvi tryggðar nauBsynlegar breytingar á hag Iffeyr- isþega eigi síSar en frá miSju ári 1977. sbr. sérstakar tillögur um það efni. Góð húsnæ8isa8staða er grund- vallaratri8i fyrr afkomu alls launa fólks. Þvi verður að krefjast þess. að félagslegar ibúðabyggingar verði auknar og nauSsynlegar breytingar gerðar á gildandi lóggjóf um þær. Svo og á framkvæmdum til þess að efndir verði á yfirlýsingum rikis- stjórna frá 1974 og 1976. Verka- lýðssamtökunum verði tryggð aðild að stjórn framkvæmda, allt sbr. sér- stakar tillögur ASÍ um húsnæðismál. Mörgu er ábótavant varðandi vinnuvernd og óhjákvæmilegt er að bæta til muna framkvæmd og eftirlit á þessu sviði. Þá verður að tryggja framgang nýrrar vinnuverndarlög- gjafar ! samræmi við sérstakar álykt- anir sfðasta ASÍ-þings um það efni. Dagvistunaraðstöðu verður að bæta, þannig að öllum, sem þess óska. sé tryggð aðstaða til starfa utan heimilis. Hið opinbera verður að auka fjárveitingar sfnar til bygg- ingar og reksturs dagvistunarheim- ila Súper- Sveitaball að Hlégarði í kvöld COBRA sér um fjörið. Kynnt verður hljómsveitin Sonic. Nefndin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.