Morgunblaðið - 26.02.1977, Blaðsíða 40
U <;IASIN<; \SI.\1JNN KR:
22480
Bl«rj}imWní>it>
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1977
VINNA féll niður f fiskvinnsluhúsunum Sjólastöðinni, Norðurstjörnunni og I.anf'eyri í Hafnarfirði f
f'ærkvöldi eftir að Hlíf hafði stöðvað næturvinnu vegna deilu við vinnuveitendur um vinnufyrirkomu-
lag. Fiskvinnsluhúsin þrjú hafa tekið upp vaktavinnu, sem verkalýðsfélagið telur framkvæmda án
samráðs við sig. Næturvinna hefur þvf verið stöðvuð á meðan ekki semst. Ljósmyndina tók
Ijósmyndari Mhl. RAX í Norðurstjörnunni f llafnarfirði í gærkvöldi eftir að starfsfólk var farið heim,
en nokkrir starfsmenn löguðu til og gengu frá óunnu hráefni í geymslu.
Eldsvoði á Höfn:
Milljónatjón í
frystihúsinu
Höfn Hornafirði 25. febrúar
ELDUR kom upp f sal inn af
móttökusal hins nýja frystihúss á
Höfn f Hornafirði f morgun um
kl. 10. Verið var að setja gas á
lyftara þegar kviknaði f. Starfs-
menn réðu ekki við eldinn, og
flúði starfsfólk hússins út vegna
Framhald á bls. 22
Kjaramálaráðstefna ASÍ:
Lágmarkslaun—verðlags-
bætur—innflutningshöft
KRÖFI R þær sem kjaramálaráðstefna Alþýðusambands Islands er
lauk í fyrrinótt fól samninganefnd að fylgja fram f kjarasamningum
þeim, sem f hönd fara, eru f megindráttum þessar:
100 þúsund króna lágmarks-
laun ásamt hækkun vegna
hækkunar framfærsluvisitölu
frá 1. nóvember 1976 — 1.
april 1977.
Fullar verðlagsbætur á laun.
Endurskoðun og framlenging
bráðabirgðasamkomulags um
lífeyrissjóðamál frá febrúar
1976.
Breytt efnahagsstefna og
stjórnvaldaaðgerðir.
Væntanlega verða teknar upp
einhverjar sérkröfur sem sam-
eiginlegar kröfur og byggist
það á mati samninganefndar
Bætur almannatrygg-
inga hækka um 8%
og baknefndar, þegar sér-
kröfur liggja fyrir.
Til viðbótar þessari kröfugerð,
sendi kjaramálaráðstefna ASÍ frá
sér sérstaka greinargerð þar sem
settar eru fram hugmyndir um
það hvernig ná megi þvi
markmiði að tryggja kjarabætur
og fulla atvinnu án þess að það
leiði til verðbólgu. Greinargerð
þessi er birt í heild á bls 17 i
Morgunblaðinu i dag ásamt
ályktun kjaramálaráðstefnunnar,
en helztu atriði { greinargerðinni
eru þessi:
0 Kjaramálaráðstefnan leggur
til að um eins árs skeið verði
sett á sérstök innflutningshöft
á ákveðnar vörutegundir, sem
eru skilgreindar þannig, að
þær teljist ekki til brýnna
nauðsynja eða sannanlega
megi framleiða innanlands á
hagstæðara eða jafnhagstæðu
verði og því sem er á hiið-
stæðum innlendum varningi.
Staða atvinnuveganna til þess
að mæta kauphækkunum á að
batna með því að Iækka vexti
söluskatt og tolla, raforkuverð
og ennfremur launaskatt um
l‘/i% auk lækkunar alnienns
Framhald á bls 22.
„Múlafoss
orðinn
þéttur
og réttur”
„Múlafoss er bæði orðinn
þéttur og réttur“, sagði Viggó
Maack skipaverkfræðingur frá
Eimskip f samtali við Morgun-
blaðið f gær. „Það lekur ekki
meira inn f skipið og búið er
að dæla sjónum úr lestum.
Skipið heldur frá Halmstad til
Kaupmannahafnar um hádegi
á laugardag, en sjópróf munu
fara fram f Kaupmannahöfn.
Skemmdin á skipinu er
staðbundin eins og komið
hefur fram i Morgunblaðinu á
Framhald á bls 22.
Krafízt björgunar-
launa fyrir norska
skipið sem
sigldi á Múlafoss
Skreiðin til Nígeríu:
Málið leyst
99
Samið um losun fímm skipa
„Skreiðarútflutningsmálin
standa vel, málið er leyst og f gær
eða f dag átti að senda leiðrétt-
ingu á bankaábyrgðum, sem
skeiðarútflytjendur hafa“, sagði
Bragi Eiríksson framkvæmda-
stjóri Samlags skreiðarframleið-
enda f samtali við Morgunhlaðið f
gærkvöldi, en hann ásamt þremur
öðrum Íslendingum fóru til
Nfgerfu til að vinna að lausn
málsins. Komu þeir heim f gær-
kvöldi og sagðist Bragi vona að
I.agarfoss gæti lagt af stað strax
og leiðréttingarskeytið kæmi frá
Lagos, en leiðréttingarnar voru
ekki komnar f bankana f Reykja-
Framhald á bls 22.
MATTHÍAS Bjarnason, heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra, gaf í gær úr reglugerð um
8% hækkun á almennum bótum
almannatrygginga og tekur hækk-
unin gildi frá og með 1. marz
næstkomandi. Samkvæmt þessu
hækkar elli- og örorkulffeyrir f
23.919 krónur.
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu,
þar sem skýrt er frá þessari reglu-
gerð. Samkvæmt fréttatil-
kynningunni hækkar tekjutrygg-
ing í 20.992 krónur á mánuði,
barnalífeyrir í 12.239, mæðralaun
í 2.098 krónur (eitt barn), 11.390
krónur (tvö börn), 22.778 krónur
(þrjú börn), ekkjubætur, 6 mán-
aða og 8 ára slysabætur í 29.970
krónur og ekkjubætur, 12 mánaóa
í 22.473 krónur.
Bankastjóri Utvegsbankans:
Reksturinn þolir ekki
gildandi lánaskilmála
Geirfinnsmálið
til saksóknara
Öll málskjöl og gögn spanna um 3000 bls.
Vextir af viðbótarlánum sjávarútvegs
11%, en lægstu sparisjóðsvextir 13%
ÚTVEGSBANKINN hefur lilkynnt þeim aðilum, sem starfa f frysti-
iðnaði og sjávar útvegi, að þeir geti ekki búizt við svokölluðum
viðbótarlánum, sem gert hafði verið ráð fyrir að þeir fengju á þeim
kjörum er rætt hafði verið um. Þetta er gert vegna reksturs hankans,
þar sem lánakjör hafa verið þau að lántakendur þessara lána greiða
11%. Á sama tfma verður hankinn að greiða t.d. 16% af ársbókum og
sé um vaxtaaukainnlán að ræða, verður bankinn aðgreiða f vexti 22%.
Lægstu innlánsvextir sparisjóðsbóka eru 13%.
SAKADOMUR Reykjavíkur
afhenti f gær saksóknaraembætt-
inu málskjöl Geirfinnsmálsins
svonefnda til frekari ákvörðunar.
Að því er Örn Höskuldsson,
sakadómsfulltrúi, tjáði Morgun-
blaðinu í gær lætur nærri að sjálf
málskjölin séu að vöxtum milli
1700 og 1800 blaðsíður en auk
þess er um að ræða ýmis vinnu-
skjöl, hann kvað þannig eitt ein-
tak af málinu i heild vera um 3
þúsund blaðsiður.
Hins vegar hefur verið leitast
við að leggja málið fyrir saksókn-
ara með sem aðgengilegustum
ha&ttí, þannig að örn taldi að ekki
þyrfti að taka mjög langan tíma
fyrir saksóknara að kynna sér öll
atriði málsins, enda þótt það væri
svo vióamikið.
Jónas Rafnar bankastjóri kvað
þessa lánaskilmála ákaflega óhag-
stæða bankanum, ekki sizt þegar
tekið væri tillit til þess að útlán
bankans væru þannig, að sjávar-
útvegur hefði þar 60%. Þetta
hlutfall hefur sífellt verið að auk-
ast og fyrir 10 árum var það að-
eins 36%. „Rekstrarlega séð
hreinlega þolir bankinn ekki að
fá svo lága vexti af þessum lán-
um. Hins vegar fara lánsupphæð-
ir af svonefndum reksturslánum
út í báta eftir þvi, hve bátarnir
eru stórir. Þar eru heldur ekki
nema 11% vextir, gegn veði í
afla.“ í reglum Seðlabankans er
þetta þannig, að lán gegn öðrum
veðrétti í útflutningsafurðum lán-
ar Seðlabankinn 58% af áætluðu
skilaverói. Greiða menn fyrir þau
lán um 8% vexti. Utvegsbankinn
greiðir fyrir þessi lán Seðlabank-
anum 7%% í vexti. Jónas sagði, að
þetta væru vissulega mjög hag-
stæð lán til frystjhúsamanna.
Ofan á þetta lánar bankinn siðan
28 til 29% og eru það þessi við-
bótarlán. Samkvæmt reglu Seðla-
bankans hefur Útvegsbankinn
fengið af þeim hiuta 11% vexti.
Bankástjórn og bankaráð
Útvegsbankans telur.að bankinn
hafi ekki lengur efni á að lána
með þessum kjörum, sagði Jónas
Rafnar. „Þetta þýðir þó alls ekki
að við séum hættir að veita þessi
lán. Við verðum að fá heimild til
Framhald á bls 22.