Morgunblaðið - 26.02.1977, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.02.1977, Qupperneq 2
2 MOKGUNBLAÐIÐ. LAL'GAKDAGL’K 26. KKBKLAR 1977 Ný búgrein? Söjfnun á merarhlandi til lyfja- framleiðslu MEÐAL þeirra nýjunga í búvöru- framleiðslunni, sem nefndar voru f starfshópnum, var söfnun á merarhlandi, en það mætti selja til lyfjaframleiðslu. Við skulum gera okkur grein fyrir þvf, að þetta er ekki algjör fjarstæða, af þvf þegar hópur fslenzkra bænda var á ferð í Kanada sumarið 1975, komu þeir á bæ, þar sem bóndinn var með nokkrar hryssur á húsi til að safna merarhlandi, sem hann seldi til lyfjaframleiðslu. Afraksturinn eftir hverja hryssu á ári svaraði til um 90.000 fslenzkra króna. Þetta kom fram í greinargerð starfshóps, sem ræddi um nýjar búgreinar og nýjungar í búvöru- framleiðslu á ráðstefnu Rann- sóknarráðs ríkisins um þróun landbúnaðar i gær. Það var Agnar Guðnason, blaðafulltrúi, sem hafði orð fyrir starfshópnum. Fram kom, að starfshópurinn taldi möguleika á að auka gras- kögglaframleiðslu í landinu og nota til þess innlenda orku i formi rafmagns og jarðhita. Þá kom fram, að kanna þyrfti möguleika á að nýtagraskögglaverksmiðjurnar yfir vetrarmánuðina, s.s. til kögglunar á heyi frá bændum, og mætti blanda i heyið ýmsum fóðurefnum, t.d. kjötmjöli og tólg til að auka fóðurgildið. Drepíð var auk þess á ónotaða möguleika í skógrækt og fiskirækt. Séu nefndar nokkrar þær nýjungar, sem Agnar sagði að komið hefðu fram i starfshópn- um, má nefna kanínurækt vegna skinnaframleiðslu. Fram kom sú hugmynd að setja á stofn stórt bú meö geitum og framleiða dýra osta úr geitamjólk, og það sama mætti gera með sauðkindum. Þá var bent á, að unnt væri að rækta sérstakt pelsfé, enda færi verð á skinnum hækkandi. Nefnt var að nota mætti hrossatað til sveppa- ræktar og ræktunar á ána- möðkum. Auka mætti kornrækt og var í þvi sambandi nefnt að heppilegt væri að hafa stóra korn- akra í A.-Skaftafellssýslu. Bryggjan hífð upp á bryggjuna FLOTBRYGGJAN, sem bílum er ekið eftir um borð f Akra- borgina f Reykjavfkurhöfn, bilaði f vikunni og þurfi þvf að gera við hana. Átti fyrst að reyna að styrkja lamirnar þar sem hún lá f sjónum, en það tókst ekki og varð þvf að hffa hana upp á Grófarbryggju. Var reiknað með að viðgerð á bryggjunni lyki f gær og yrði þvf hægt að aka bflum um borð f skipið um helgina. Á meðan unnið var að viðgerð á flot- bryggjunni hér f Reykjavík notuðu Ákurnesingar tæki- færið og dyttuðu að bryggjunni hjá sér. (Ljósm. Mbl. Kristján.) Nemendaráð Hagaskóla; Óskar ógildingar á ensku- og stærðfræði- prófi vegna mismunar Morgunblaðinu barst f gær fréttatilkynning frá nemendaráði Hagaskóla: „Við nemendur í Hagaskóla berum hér fram formlega kvörtun vegna framkvæmda á prófum i ensku og stærðfræði. Er fyrst að nefna að í hlust- unarprófi i ensku sem tekið var i Hólabrekkuskóla var prófþátturinn tekinn og spilað- ur öðru sinni hægar fyrir nem- endur. Einnig var veitt 15 min. framlenging á prófi i stærð- fræði í Valhúsaskóla. Viljum við nemendur Hagaskóla fara fram á að annaðhvort verði munnlegur þáttur enskuprófs gerður ógildur eða prófið tekið upp öðru sinni, því að við telj- um þetta rýra mjög möguleika okkar í einkunnargjöf. Þessi vitneskja um segulböndin er vottfest af nemendum Hóla- brekkuskóla. Einnig kæmi til álita að ógilda stærðfræðiprófið af áðurnefndum orsökum." Morgunblaðið hafði samband við Ólaf Proppé hjá prófanefnd og spurði hann um málið. Ólafur sagði, að á þessu stigi málsins væri erfitt að segja nokkuð um málið, þvf prófanefnd hefði ekki haft samband við trúnaðarmenn skólanna í tilefni af þessum um- mælum um mismunun í prófum. Sumir munu einnig hafa notað spólur, sagði Ólafur, en hins veg- ar er það ljóst að ekki er unnt að taka prófin upp aftur. Hins vegar munum við reyna að taka tillit til þessara ástæðna í einkunnagjöf ef þær reynast réttar. Það er ekki ljóst hvernig málið verður leyst, en i framkvæmd prófanna höfum við rekið okkur á ýmis vandamál, sem þarf að bæta úr og leysa. Landleiðir endur- nýjuðu sérleyfið FORRÁÐAMENN Landleiða hafa endurnýjað sérleyfi sitt til að halda uppi áætlunarferðum til Hafnarfjaðrar en frestur til end- urnýjunar rann út f gær. Land- leiðir sóttu um endurnýjun leyf- isins á sfðasta degi og voru fram að þvf uppi vangaveltur hvort Landleiðir hyggðust hætta rekstri þessarar leiðar. Að sögn Ágústar Hafberg, fram- Björn Jónsson, forseti ASÍ: 99 Erum tilbúnir til vid- ræðna við vinnu veit- endur í næstu viku” „ÉG TEL að samninganefnd okkar verði fullskipuð upp úr helginni og þá er okkur ekkert að vanbúnaði, að hefja viðræður við atvinnurekendur og ríkisstjórn um málin eins og þau liggja nú fyrir,“ sagði Björn Jónsson forseti ASl í samtali við Morgun- blaðið að lokinni kjaramálaráðstefnu sambandsins, sem lauk f fyrrinótt. Björn sagði hins vegar: „Öll kurl eru enn ekki komin til grafar, þvf að sérkröfur einstakra sambanda og félaga eru enn ekki komnar fram.“ Kjaramálaráðstefnan kaus 21 mann í aðalsamninganefnd, en fullskipuð verður nefndin með 36 mönnum. Landssamböndin eiga eftir að tilnefna einn mann hvert og svæðasamböndin einn. Er Björn var spurður að þvi, hvort hér væri ekki um of fjöl- menna nefnd að ræða og hvort ekki væri líklegt að þessi nefnd þyrfti að kjósa minni nefnd eða eins konar kjarna. Björn kvað samninganefndina myndu ákveða þetta eftir að hún hefur verið fullskipuð og vildi hann engu spá um framkvæmd að þessu tilliti. Aldrei áður hefur samninganefnd ASí verið svo fjölmenn sem nú. Áður hafa flestir verið um 30 i nefndinni. Björn Jónsson sagði að algjör Framhald á bls 22. Björn Jónsson. kvæmdastjóra Landleiða, stóð það þó aldrei til að fyrirtækið hyggð- ist hætta áætlunarferðum á þess- ari leið fyrirvaralaust en hins vegar hvað hann þann drátt sem orðið hefði á því að fyrirtækið endurnýjaði leyfi sitt, stafa af því að forráðamenn fyrirtækisins hefðu viljað skoða ýmiss fjárhags- mál fyrirtækisins nánar áður en tekin yrði sú ákvörðun um að sækja um þessa leið fyrir næstu 5 ár, en þessi sérleyfi spönnuðu jafnan það tímabil. Ágúst kvað það ekkert launungarmál að rekstur Landleiða hefði verið mjög erfiður sl. þrjú ár og um umtalsverðan hallarekstur að ræða. Forráðamenn Landleiða hafa átt viðræður við forsvarsmenn bæjarfélaganna sem Landleiðir sinna, bæði Garðabæjar og Hafn- arfjarðar en að sögn Ágústar var þar ekki rætt um neinn fjárhags- stuðning bæjarfélaganna við rekstur fyrirtækisins, þar eð af hálfu Landleiða hafi aldrei verið farið fram á slíka styrki, heldur fremur um hugsanlega breytingu á leiðakerfi Landleiða í þessum bæjarfélögum f því skyni að sinna betur nýjum byggðakjörnum. 99 „Eins og peð milli hróka — segir útgefandi Hort—Spassky skákbók- arinnar, sem tekin hefur verið úr sölu SKÁKBÓKIN Hort — Spassky, sem kom á markað í fyrradag frá Bókaútgáfunni Fjölva, var köliuð aftur til útgáfunnar f gær og verður ekki seld að sögn útgefandas, Þorsteins O. Thorarensens. „Ástæðan til þess að ég dreg bókina til baka“, sagði Þorsteinn, „er sú, að ég geri ekkert í trássi við Skáksamband íslands. Það kom til tals að ég breytti bókinni og tæki út hluta úr henni, én það get ég ekki látið bjóða mér. Mér finnst þetta satt að segja vera eins og framhald af þeirri taugaveiklun, sem kom upp hér eigvígisárið. Ég rifjaði upp andrúmsloftið þá í þessari bók, og það virðist víst ekki mega minnast á þaö. Útgáfu- kostnaðurinn við þessa bók er um 1 millj. kr., og skellurinn kemur á mig. Mér finnst eins og ég hafi verið peð einhvers staðar í þessu dæmi, þar sem hrókarnir æða fram og aftur og ráða stööunni." Lýst eftir tjónvöldum í árekstrum Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi frá slysarann- sóknardeild lögreglunnar í Reykjavfk, þar sem lýst er eft- ir tjónvöldum f bifreiða- árekstrum: Miðvikud. 16. feb. Ekið á bifreiðina Y-4320, Scout-Jeppa, árg. 1974, ljós- bláa að lit, þar sem hún stóð á bifreiðastæði við Laugarásbíó ki. 20:45 — 22:45. Skemmd: Dæld á vinstra afturaurbretti. Fimmtud. 17. feb. Ekið á bifreiðina R-16618, Datsun fólksbifr., rauð að lit, þar sem hún stóð á bifreiða- stæði við Álftahóla 8. Bifreið- inni var lagt þarna kl. 23:00 kvöldið áður. Talið að tjón- valdur sé sendiferðabifreið af Mercedes-Benz gerð, blá og hvft að lit af einni af sendi- bifreiðastöðvum borgarinnar, en þeirri bifreið hafði verið lagt þarna. Hvft málning var í skemmdinni á R-16618, sem var dæld og rispur á vinstri afturhurð. Framhald á bls 22.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.