Morgunblaðið - 26.02.1977, Síða 4
4
MOKGUNBLAÐIÐ, LAU(iAKDACiUR 26. FKBRUAK 1977
LOFTLEIDIR
s&»BÍLALEIGA
C 2 1190 2 11 88
(g
BÍLALEIGAN
5IEYSIR
LAUGAVEGI 66
CAR RENTAL
24460
• 28810
Spónasugur
og
Rykhreinsarar
Fyrirliggjandi
Iðnvélar h.f.,
Hjallahrauni 7,
sími 52224.
Afburða afli hjá
Gissuri hvíta
Hornafirði, 23. febrúar —
VÉLSKIPIÐ Gissur hviti hefur
aflað mjög vel frá áramótum og
fengið samtals um 290 tonn. í dag
kom báturinn inn með 13 tonn,
sem fengust á línu. Hefur bátur-
inn frá áramótum ekki farið niður
fyrir 6 tonn í róðri. Mestallur afl-
inn er ýsa, mjög góður fiskur.
Gullfaxi landaði hér i dag eftir
tvo sólarhringa 28,3 tonnum' af
fiski, mestmegnis ýsu. Þá fékk
Þinganes 12 tonn og Lyngey 8
tonn. Héðan eru gerðir út 3 troll-
bátar og 7 netabátar og hefur afli
hjá þeim verið mjög tregur eða
innan við 7 tonn í róðri yfirleitt.
Hér hafa nú borizt á land 10.600
tonn af loðnu og er bræðslan i
gangi nótt sem nýtan dag. Einnig
er mikil vinna í frystihúsinu við
loðnufrystingu og er yfirleitt unn-
ið fram á kvöld. Hér hefur undan-
farna tvo daga verið sólskin og
bliðviðri. —Jens.
Sjálfkjörid
í stjórn
Múrarafélags
Reykjavíkur
RUNNINN er út frestur til að
skila framboðslistum við stjórnar-
kjör í Múrarafélagi Reykjavíkur.
Einn listi þarst og var það listi
stjórnar- og trúnaðarmannaráðs
og því var sjálfkjörið í stjórn
félagsins. Eftirtaldir menn skipa
stjórn þess næsta ár: Helgi
Steinar Karlsson form., Óli Kr.
Jónsson varaform., Þórarinn
Hrólfsson ritari, Árni Þorvalds-
son gjaldk. sjúkrasj., og Trausti
L. Jónsson. gjaldk. félagssj.
utvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
26. febrúar
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
8.50.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Guðni Kolbeinsson les
söguna af „Briggskipinu Blá-
lilju“ eftir Olle Matson (16).
Tilkynningar kl. 9.00. Létt
lög milli atriða.
Óskalög sjúklinga kl. 9.15:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
Svipast um i tsrael kl. 11.00:
Stjórnandi: Sigrún Björns-
dóttir.
Ester Elíasdóttir les erindi
um fsrael eftir Elías Davlðs-
son. Sigurður Skúlason
leikari lcs smásögu og flutt
verður tónlist.
12.00 Dagskiáin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
A seyði.
Einar Örn Stefánsson stjórn-
ar þættinum.
15.00 f tónsmiðjunni.
Atli Ifeimir Sveinsson sér
um þáttinn (16).
16.00 Fréttir. Veðurfregnir.
16.10 B-hluti heimsmeistara-
keppninnar f handknattleik:
fsland-Portúgal/ Útvarp frá
Klagenfurt I Austurrfki. Jón
Ásgeirsson lýsir sfðari hálf-
leik.
LAUGARDAGUR
26. febrúar
17.00 Holl er hreyfing
Norskur myndaflokkur um
léttar Ifkamsæfingar
einkum ætlaðar fólki. sem
komið er af léttasta skeiði.
Þýðandi og þulur Sigrún
Stefánsdóttir. (Nordvision
— Norska sjónvarpið)
17.15 fþrottir
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.35 Emil f Kattholti
Sænskur myndaflokkur.
Krahbaveiðar og aðrar
ánægjustundir
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Sögumaður Ragn-
heiður Steindórsdóttir.
19.00 fþróttir
Hlé
20.00 Féttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Ifótel Tindastóll
Breskur gamanmynda-
flokkur.
2. þáttur.
Þýðandi Stefán Jökuisson.
16.45 fslenzkt mál.
Dr. Jakob Benediktsson tal-
ar.
17.05 Létt tónlist.
17.30 Framhaldsleikrit barna
og unglinga:
„Kötturinn Kolfinnur" eftir
20.55 Fllafjölskyldan
Sfðari hluti breskrar
heimildamyndar um
hátterni ffla í þjóðgarðinum
við Manyara-vatn (
Tansanfu.
Þýðandi og þulur Gylfi Páls-
son.
21.20 Ameríkumaður f Parfs
(An American in Paris)
Bandarfsk dans- og söngva-
mynd frá árinu 1951
Leikstjóri Vincente Minelli.
Tónlist George Gershwin.
Aðalhlutverk Gene Kclly og
Leslie taron.
Jerry Mulligan er banda-
rískur listmálari, sem býr f
Parfs, hann verður ást-
fanginn af ungri stúlku, en
hún er trúlofuð. Jerry
kvnnist auðugri konu, sem
styður við bakið á efnilegum
listamönnum, og kemur hún
honum á framfæri.
Þýðandi Dóra llafsteins-
dóttir.
23.10 Dagskrárlok
Barböru Sleigh (Áður útv.
1957 — 58) Þýðandi: Hulda
Valtýsdóttir. Leikstjóri:
Hulda Valtýsdóttir. Leikend-
ur f fjórða þætti: Helgi
Skúlason, Kristfn Anna Þór-
arinsdóttir, Steindór Hjör-
leifsson, Guðrún Stephensen,
Edda Kvaran og Jóhann Páls-
son.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Gerningar.
Hannes Gissurarson sér um
þáttinn.
20.10 Sinfónfa nr. 2 f C-dúr op.
61 eftir Schumann. Suisse
Romande hljómsveitin leik-
ur; Wolfgang Sawallisch stj.
Frá útvarpinu I Bern.
20.45 „Afmælisdagurinn",
smásaga eftir Finn Söeborg.
Þýðandinn, Halldór Stefáns-
son, les.
21.10 Hljómskálamúsik frá
útvarpinu f Köln. Guðmund-
ur Gilsson kynnir.
21.40 Allt í grænum sjó.
Stolíð, stælt og skrumskælt
af Hrafni Pálssyni og Jör-
undi Guðmundssyni. Gestur
þáttarins ókunnur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Lestur Passfusálma (18)
22.25 Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Klukkan 21,20:
Ameríkumaður í París
Bandarísk dans- og söngvamynd frá 1951
Á dagskrá sjónvarpsins f kvöld
KLUKKAN 21.20 er bandarfsk
dans- og söngvamynd, sem heitir
AMERfKUMAÐUR f PARÍS,
(An American in Paris), gerð
árið 1951. Leikstjóri er Vincente
Minelli og tónlistin f myndinni er
eftir George Gershwin. 1 aðalhlut-
verkum eru Gene Kelly og Leslie
Caron.
Myndina þýddi Dóra Hafsteins-
dóttir.
Fjallar myndin um bandarískan
listmálara, Jerry Muligan, sem
býr í París. Hann verður ást-
fanginn af ungri stúlku, en svo
óheppilega vill til að hún er trú-
lofuð öðrum. Jerry kynnist auð-
ugri konu, sem styður við bakið á
ungum efnilegum listamönnum,
og kemur hún honum á framfæri.
Leikstjórinn Vincente Minelli
er fæddur árið 1913 í Chicago,
Bandaríkjunum. Fjölskylda hans
hafði unnið mikið við leikhúsið og
þannig fékk hann ungur áhuga á
öllu því, sem snerti sviðið og
byrjaði sem leikmyndateiknari.
Hann vann við fjölda uppsetninga
og einnig leikstjórn á Broadway,
áður en hann hóf nám í kvik-
myndagerð hjá MGM-
kvikmyndafyrirtækinu. Vincente
Minelli hefur einbeitt sér að kvik-
myndum á þremur megin sviðum,
það eru söngva- og dansmyndir,
eins og við sjáum i kvöld, gaman-
myndir og myndir alvarlegs efnis.
Ásamt ieikurum eins og Gene
Kelly, Donen og Walters átti hann
þátt I að endurvekja söngvamynd-
ir með nýjum glæsibrag upp úr
1940, auðvitað með dyggri aðstoó
tæknimanna, söngvara og dansara
fyrirtækisins MGM og stjarna
eins og Judy Garland, Gene Kelly
og Fred Astaire. Af myndum
þessarar tegundar má nefna:
„Meet me in St. Louis“ (1944),
„Ziegfeld girl“ (1945), „Yolande
and the thief“ (1946) og „An
American in Paris“ (1950). Af
myndum hans, alvarlegs efnis má
nefna: „The bad and the
Beautiful“, (1952). Ein hans nýj-
asta mynd er „On a clair day you
can see forever" (1969) en þar
lék Barbra Streisand aðalhiut-
verkið.
Vincente Minelli var á sínum
tíma kvæntur ieik- og söngkon-
unni Judy Garland og er ein dótt-
ir þeirra nú ein skærasta stjarnan
í kvikmynda heiminum, Liza Min-
elli.
Gene Kelly er fæddur árið 1913
í Pittsburgh í Bandaríkjunum.
Hann þykir fjölhæfur, því hann
er bæði góður dansari, söngvari,
leikari og leikstjóri. Þegar hann
kom til Hollywood ísíðari heims-
styrjöldinni var hann þegar orð-
inn þekktur dansari á Broadway.
í myndinni, sem við sjáum í
kvöld, vakti hann á sinum tíma
mikla athygli fyrir dansinn, sem
þótti mjög nútímalegur og ólikur
dansatriðum fyrri mynda af sömu
gerð.
Leslie Caron er fædd i París
árið 1931. Áður en hún hóf leik-
feril sinn var hún ballettdansmær
með „Champs Elysées dans-
flokknum og dansaði bæði í París
og London. Hennar fyrsta kvik-
myndahlutverk af veigameiri
gerðinni var í myndinni,
Amerikumaður í París. Eftir það
hlutverk hefur hún leikið bæði
austan hafs og vestan og m.a. með
„Royal Shakespeare Company" i
London. Frægust er hún líklega
fyrir myndina „Gigi“.