Morgunblaðið - 26.02.1977, Síða 8

Morgunblaðið - 26.02.1977, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUOARDACíUR 26. FEBRUAR 1977 ____ HA WAII-ROS (Hibiscus rosa siensis L.) Um langt árabil hefur Hawaiirós verið mikil uppá- halds stofuplanta hér á landi Máske er það ofur eðlilegt þegar þess er gætt að jafn- framt því að vera hið glæsi- legasta blóm þá er hún auð- veld i ræktun og meðferð allri sé rétt á málum haldið Hún er blómsæl að eðlisfari, að visu standa blómin ekki lengi, aðeins 1—2 daga en plöntur í góðri rækt geta borið blóm svo að segja dag- lega sumarlangt. Eins og fyrirsögn ber með sér er það ekkert smáræðis fræðínafn sem jurtin ber og rétt að líta aðeins nánar á það Hibiscus er komið úr grisku og er gamalt ættar- lita skó og á Indlandi kvað safinn einnig vera notaður i hár- og matarlit. Villitegundir Hawaii- rósarinnar ber rauð blóm en með vixlfrjóvgunum hafa komið fram öll möguleg lit- brigði, allt frá dökkrauðu upp i hvitt og gult, — bæði fyllt og einföld. Meðferðin á Hawaii-rós sem stofublómi á ekki að þurfa að valda tiltakanlegum erfiðleikum eins og fyrr var á minnst. Að vetrinum er ákjósanlegast að hún sé i 12— 1 5° hita og fái þá mjög takmarkaða vökvun. í janúar- lok eða febrúar þarf að klippa hana rækilega og skipta þá um mold ef mögulegt er. Moldin þarf að vera heiti jurtarinnar — rosa sinensis myndi útleggjast Kína-rós og bendir til þess að þangað eigi hún ættir að rekja þó hún sé kennd við Hawaii. En þar og á fleiri Suðurhafseyjum vaxa aðrar hibiscus tegundir, nota stúlk- ur þar um slóðir blómin til þess að skreyta sig með og ku gera það á táknrænan máta: Hibiscusblóm á bak við vinstra eyra merkir: MIG VANTAR ELSKHUGA — á bak við hægra eyra: ÉG Á MÉR ELSKHUGA, en á bak við bæði eyru: Á EINN ELSKHUGA EN ER TIL í AÐ FÁ MÉR ANNAN, — en ekki er þetta dýrar selt en keypt var. Til þess nú að Ijúka riafnskýringunni þá táknar L- ið sem rekur lestina, að Línné hinn sænski grasafræðingur allra tíma hafi gefið plöntunni nafn. Ekki eru þó öll kurl komin til grafar hvað nafnið snertir. í allmörgum löndum bæði í Austur-Asiu og Suður- ameriku er Hawaii-rósin nefnd SKÓBLÓM og á það nafn rætur að rekja til þess að í þeim löndum er safi úr blóminu notaður til þess að næringarrik t.d % hl. gras- rótarmold og '/3 hl. gamall húsdýraáburður. Til þess :ð komast hjá að nota mjög stóra potta á að vera óhætt að skerða ræturnar talsvert, en gætni skal þá við höfð yfir vaxtartimann skal gefa áburðarupplausn vikulega og vökva riflega. í híbýlum þar sem loft er mjög þurrt er til bóta að setja plöntuna i steypibað annað slagið eða úða á hana vatni. Verði vöxtur hennar mjög ör án þess að hún blómstri bendir það til þess að jafn- væginu milli birtu og næring- ar sé áfátt (sbr grein nr 88.) Er þá reynandi að setja plöntuna á bjartasta og sól- rikasta stað sem kostur er á og draga úr áburðargjöf. Venjulega er Hawaii- rósinni haldið í „glugga- stærð" en ef rými er nóg getur verið skemmtilegt að láta hana standa á gólfi og klippa þannig að hún geti myndað svolítið tré með þétta laufkrónu. Að lokum má geta þess að í hitabeltis- löndunum er Hawaii-rós oft notuð sem limgerðisplanta! Umsjm. Mitsubishi Colt Lancer 1400GL Þetta er mælaborðið f Lancer 1400 GL Stjórntækjum er flestum vel fyrir komið. Ljósatakkinn er þó óþarflega langt I burtu. Mælarnir eru kringlóttir og felldir djúpt inn i mælaborðið, greinilega að nokkurra ára gamalli bandariskri fyrirmynd. Framsætin eru góð en aftur í er þröngt eins og við er að búast í litlum bíl. Árgerð 1977 er nokkuð breytt frá ’76 árgerðinni. Meðfylgj- andi myndir sýna m.a. mæla- borðið í Lancer 1400 GL og er það fremur sportlegt. Miðstöðin er þriggja hraða og heyrist litið i henni. Nokkrar útlitsbreyting- ar hafa verið gerðar á bílnum. Lancerinn er 399, 5 sm langur, 153, 5 sm breiður og 136 sm hár. Hæð undir lægsta punkt er 16,5 sm. Hámarkshraðinn er nærri 160 km/klst. Bensineyðslan er áætluð um 8—12 lítrar/100 km. MITSUBISHI er þungaiðnaðar framleiðslufyrirtæki f Japan, sem m.a. framleiðir fólksbfla. Sá bfll, sem mest hefur verið flutt af hingað til lands frá Mitsubishi, nefnist Colt Lancer. Hann er fáanlegur með 1200 eða 1400 rúmsm vél. Lancer- bflarnir hafa náð umtalsverð- um árangri í alþjóða rally- keppnum og eru sigrar þeirra f Austur-Afrfsku Safari keppn- inni frægastir. Mitsubishi Lancer er fremur lítill bfll en með 1400 vélinni er hann kraftgóður. Bíllinn er mjög auðveldur í akstri. Öll pedalaástig eru létt. Stýrishæð- in er stillanleg (og um leið stýrishallinn). Vinnslan er ágæt. Vélin, sem drffur aftur- hjólin, er 1439 rúmsm., 85 hest- öfl (SAE brúttó) við 6000 snún./mín. og þjöppunarhlut- fallið er 9:1. Vélin verður fljótt allhávær án þess að mjög hratt sé keyrt í gírunum. Billinn veg- ur óhlaðinn um 860 kg. Demparar eru allstffir og bíll- inn þvf nokkuð hastur. Brems- urnar eru með vökvaaðstoð og eru góðar. Mjög gott pláss er f vélarrúminu. Btiar umsjón BRYNJÓLF- UR HELGASON Verðið á Lancer 2ja dyra 1200 er um 1.515 þúsund krónur en 4ra dyra GL 1400 gerðin kostar um kr. 1.800 þúsund. Þar á milli er sfðan 1400 EL á 1.615 þúsund krónur. Umboðið hefur Egill Vilhjálmsson hf, Laugavegi 118. Þessi mynd er frá heims- meistarakeppni framleið- enda í rallyakstri. Ónnur umferðin var í Svíþjóð (Swedish rally) 11.— 1 3. febrúar s.l. Mikill snjór og hálka voru á sérleið- um (special stages) og mörgum urðu á einhver mistök eins og þessum Saab-ökumanni, er plægir hér upp snjóskafl. Sigurvegari í keppn- inni varð Svíinn Stig Blomquist og var þetta fjórði sigur hans í þessari keppni á sex árum. Hann ók Saab 99 EMS bíl. Skandinavar fylltu efstu sætin í keppninni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.