Morgunblaðið - 26.02.1977, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR 1977
19
Sprenging
Honolulu, 25. febrúar. Reuter.
SPRENGING varð f bifuðu olfu-
skipi frá Lfberfu 330 mílur vestur
af Hawaii á Kyrrahafi f gær-
kvöldi, eldur kom upp f skipinu,
en öllum skipverjum nema ein-
um var bjargað.
Flutningaskipið Philippine
Bataan bjargaði þeim 38 skipverj-
um sem komust lífs af úr olfuskip-
inu sem hét Hawaiian Patriot og
var 51.000 lestir. Eini skipverjinn
sem fórst beið bana
Olfuskipið var á leið frá
Indónesiu til Honululu og talið er
að úr þvi hafi lekið 17.500 lestir af
olfu þegar 30 metra langt gat kom
á skipið.
Soares fær mikilvægan
stuðning við EBE-aðild
l issabon. 25, febrúar. Reuter.
Mario Soares forsætisráð-
herra hefur tryggt stuðning
Bretlands, trlands, Danmerkur
og ttalfu við aðild Portúgals að
Efnahagsbandalaginu og er
vongóður um stuðning hinna
aðildarlanda bandalagsins þeg-
ar hann heimsækir þau f næsta
mánuði.
Barátta Soares fyrir þvf að
sannfæra aðildarlönd EBE um
að Portúgal eigi skilið að fá að
ganga f bandalagið hefur borið
góðan árangur og er mikill per-
sónulegur sigur fyrir hann.
Stjórnarblaðið Diario de
Noticias segir að þetta hefði
enginn annar Portúgali getað
gert og þakkar það kænsku
hans og þrautseigju og þess
álits sem hann njóti fyrir bar-
áttu gegn fasisma og kommún-
isma.
Tveir helztu andstöðuflokkar
stjórnarinnar, sósíaldemókrata-
flokkurinn PSD og hægri-
flokkurinn CDS hafa einnig
hælt Soares og það' er einn
mesti styrkur Soaresar að f
þessu máli nýtur hann stuðn-
ings allar helztu flokkanna
nema kommúnista.
iða daga f vændum og yrðu að
taka á sig miklar fórnir áður en
þeir gætu keppt við þær þjóðir
sem nú eiga aðilda að EBE.
Vestur-Þjóðverjar eru ásamt
Bretum taldir einhverjir öfl-
ugustu stuðningsmenn aðildar
Portúgala að EBE, en af ýmsum
ástæðum eru Frakkar og Bene-
lux-löndin talin fjandsamlegri.
Dr. Soares lætur það ekki á
sig fá og vonast til að geta
tryggt sér nógu mikinn stuðn-
ing til þess að hann geti lagt
fram formlega umsókn um
aðild Portúgala í seinni hluta
marz. Hann vill að 'EBE taki
pólitíska ákvörðun um umsókn-
ina á næsta ári og að Portúgal
verði fullgildur aðili fyrir 1985.
Hingað til hefur verið talið að
Portúgal gæti ekki fengið aðild
fyrr eftir að minnsta kosti 10
ár. Það hefur aukið bjartsýni
Soeresar að Roy Jenkins, for-
seti framkvæmdastjórnar EBE,
hefur látið f ljós von um að
bandalagið verði stækkað með
aðild Portúgals og Spánar.
Soares vill lika aðild Spánar, en
vill greinilega að Portúgalir
verði fyrri til að sækja um
aðild.
Plymouth, 25. febrúar AP
TVEIR danskir togaraskipstjórar
sem voru staðnir að ólöglegum
veiðum innan 12 mflna land-
helginnar við Bretland f gær voru
f dag dæmdir til að greiða 22.000
pund (7.150 millj. fsl. kr.) f sekt.
Annar skipstjórinn sagði að hann
yrði að selja skip sitt til að greiða
sektina.
Reyndi
Hess
sjálfs-
morð?
Afli Dananna var gerður
upptækur og verðmæti hans
nemur um 12.000 punda (um 3.9
millj. ísl. kr.). Danirnir sögðu að
þeir mundu áfrýja.
Skipstjórarnir héldu því fram
að þeir hefðu ekki vitað að 12
mflna landhelgin miðaðist við
Edystone Rock, sem strangt til
tekið er eyja, 16 km undan strönd
Devon.
Gustav Loth, skiptstjóri á Bente
Loth, og Jörgen Andersen, skip-
stjóri á Singo, viðurkenndu báðir
að hafa verið að ólöglegum
veiðum. Loth var einnig dæmdur
fyrir ólöglegar veiðar 1971. Nú
var hann dæmdur til að greiða
12.000 punda sekt (3.9 millj. kr.)
Hann sagði að sektin væri
nokkuð há þar sem hann lifði á
fiskveiðum og að hann yrði að
selja skipið. Andersen var
dæmdur í 10.000 punda sekt (um
3.25 millj. kr.).
Landbúnaðarráðuneytið hafði
krafizt þess að Danirnir yrðu
dæmdir í hámarkssekt sem er
50.000 pund og að afli og veiðar-
færi yrðu gerð upptæk.
Þessar 80 hnúta freigátur eru ætlaðar til notkunar á næsta áratug,
og frá þeim segir f sfðasta hefti „Jane’s Surface Skimmers". Efri
myndin er af 3.000 lesta loftpúðaskipi, sem er verið að smfða fyrir
bandarfska flotann. Neðri myndin er af svipuðu en stærra skipi,
sem verið er að smfða fyrir franska flotann.
Callaghan missir
þingmeirihlutann
London, 25, febrúar. Reuter.
Verkamannaflokkurinn hefur
tapað meirihluta sfnum f Neðri
málstofunni vegna sigurs íhalds-
flokksins f aukakosningum.
thaldsflokkurinn héit þingsæti
sfnu f Westminster-kjördæmi f
London og jók meirihluta sinn,
en kjörsókn var aðeins 39,6%
miðað við 53,2% f kosningunum
1974.
Tvennar aukakosningar fara
fram á næstunni, f kjördæmi Roy
Jenkins f Birmingham og
Anthony Croslands f Grimsby.
Hvort tveggja eru örugg Verka-
mannaflokkskjördæmi en stjórn
James Callaghans forsætisráð-
herra verður að sýna meiri gætni
Verkamannaflokkurinn er enn
stærsti flokkurinn með 310 þing-
sæti og getur yfirleitt reitt sig á
stuðning tveggja irskra og tveggja
skozkra þingmanna þannig að alls
hefur hann á bak við sig 314 þing-
menn. En andstæðingar stjórnar-
innar hafa alls 315 þingsæti.
Hins vegar eru andstæðingar
stjórnarinnar sjaldan sammála og
í þeim hópi eru skozkir og velskir
þjóðernissinnar auk íhaldsmanna
og frjálslyndra.
Þrýstingur stjórnarandstæð-
inga hefur þó aukizt þar sem frú
Margaret Thatcher, leiðtogi
íhaldsflokksins, er staðráðin f að
fella stjórnina með hörðum
árásum og skozkum og velskum
þingmönnum er heitt í hamsi
vegna þess að áætlanir um tak-
markaða heimastjórn Skotlands
og Wales hafa siglt í strand.
Næsta stórmál sem kemur fyrir
þingið eru beinar kosningar til
Evrópuþingsins og í þvi máli nýt-
ur stjórnin stuðnings íhalds-
flokksins, en Verkamanna-
flokkurinn er klofinn f málinu.
Aukakosningin i gær var haldin
vegna þess að Christopher
Tugendhat tók sæti i fram-
kvæmdastjorn Efnahagsbanda-
lagsins. Nýi þingmaðurinn er
kaupsýslumaðurinn Peter
Brooke, 42 ára sonur fyrrverandi
innanríkisráðherra íhaldsflokks-
ins.
Amalrik ræðst
á V estur veldin
Parfs, 25. febrúar Reufer
SOVEZKI andófsmaðurinn
Andrei Amalrik sakaði f dag vest-
rænar rfkisstjórnir um að snúa
baki við mannréttindum og „ein-
blfna á peningaveski Leonid
Brezhnevs."
Með þessu virtist Amalrik eiga
við það að vestræn rfki hefðu
meiri áhuga á viðskiptum við
Sovétrfkin en baráttu fyrir því að
mannréttindaákvæðum Helsinki-
samningsins yrði framfylgt.
Ásökun Amalriks kemur fram í
viðtali við vinstrablaðið Liber-
ation og fylgir í kjölfar hungur-
verkfalls hans fyrir utan Elysee-
höll vegna þess að Valery Ciscard
d’Estaing forseti neitaði að ræða
við hann um mannréttindi.
Innanríkisráðherrann, Michel
Framhald á bls22.
Pólverjum
lítt ágengt
í Bríissel
Brtissel, 25. febrúar. Reuter.
LOKIÐ er fyrsta áfanga viðræðna
Pólverja og Efnahagsbandalags-
ins um langtfma-
fiskveiðisamning, en litlar horfur
eru á þvf að Pólverjar fái leyfi til
að veiða meira á miðum Efna-
hagsbandalagsins en þegar hefur
verið ákveðið.
Hins vegar sagði f lokayfirlýs-
ingu að annar fundur yrði hald-
inn 16. marz og að „nokkurt sam-
komulag í grundvallaratriðum”
hefði náðst á fundinum sem stóð
tvo daga.
Pólverjum er aðeins leyft að
veiða f mesta lagi á fimm fiski-
skipum i 200 mílna fiskveiðilög-
sögu bandalagsins til marzloka og
aflamagnið er takmarkað við
3.000 lestir á þremur fyrstu mán-
uðum þessa árs.
Rússi rek-
inn úr landi
Ottawa, 25. febrúar. Rcuter.
KANADAMENN hafa vfsað úr
landi sovézkum eðlisfræðingi og
sakað hann um að reyna að kaupa
leyndarmál af öðrum vísinda-
manni.
Eðlisfræðingurinn, Lev
Griforeyvich Khvostantsev,
dvaldist sem gestur i Kanada.
Honum var komið um borð i far-
þegaþotu sovézka flugfélagsins
Aeroflot i Montreal i gær.
Hann var handtekinn í fyrra-
kvöld þegar hinr. vfsindamaður-
inn sagði lögreglunni að hann
hefði fengið tilboð um peninga í
staðinn fyrir leyniskjöl.
Don Jamieson utanrfkisráð-
herra sagði blaðamönnum að
sovézka sendiráðinu hefðu verið
send mótmæli með viðvörun þess
efnis að slikir atburðir gætu haft
áhrif á sambúð landanna.
Einn helzti sigur Soaresar á
fyrsta áfanga ferðar hans um
Vestur-Evrópu var að tryggja
stuðning ítalskra kommúnista
og leiðtoga þeirra, Enrico
Berlinguers við baráttu sfna.
Þar með hefur Soares unnið
mikinn áróðurssigur gagnvart
kommúnistaleiðtoganum
Alvaro Cunhal sem er fráhverf-
ur svokölluðum evro-
kommnúnisma.
Þótt Soares sé vongóður eftir
fyrsta hluta ferðarinnar varaði
hann Portúgali við því við
heimkomuna að þeir ættu erf-
Vestur-Berlfn, 25. febrúar. Reuter
Nasistaleiðtoginn Rudoif Hess
reyndi að svipta sig Iffi f
Spandau-fangelsi f Austur-
Berlfn fyrr f vikunni sam-
kvæmt áreiðanlegum heimild-
um f dag.
Talsmaður hernámsveld-
anna sagði f dag að Hess væri
við viðunandi heilsu og neitaði
að staðfesta hvort hann hefði
reynt að fyrirfara sér.
Franska sjónvarpið sagði
fyrst frá fréttinni í dag. Það
sagði að sovézkir verðir hefðu
komið að honum fimm minút-
um eftir að hann hefði skorið
sig á úlnliðinn.
Hess
Sonur Hess, Wolf-Rlidiger
Hess, fór f heimsókn til hans í
dag, en kona hans segir að
aðeins hafi verið um venjulega
heimsókn að ræða og hann
hefði ekki heimsótt föður sinn
vegna þess að eitthvað hefði
komið fyrir hann.
Heilbrigðisyfirvöld segja að
Hess hafi ekki verið fluttur frá
Spandau í sjúkrahús til
meðferðar.
Franska sjónvarpið hefur
eftir geðlækni sem hitti Hess f
gær að hann þjáðist af alvar-
legu þunglyndi. Sjónvarpið
segir að læknir hafi verið
kvaddur á vettvang eftir sjálfs-
morðstilraunina og að hann
væri úr lífshættu.
Hess verður 83 ára f apríl og
er einn eftir f Spandau af
nasistaleiðtogunum sem voru
dæmdir í réttarhöldunum i
Nurnberg. Rússar hafa
þráfaldlega neitað að Verða við
óskum Vesturveldanna um að
hann verði látinn laus.
Bretar dæma í
þungar sektir
Amalrik