Morgunblaðið - 26.02.1977, Síða 23

Morgunblaðið - 26.02.1977, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR 19í7 23 S j ávar ú tvegsr áðherr a: Islendingar skrefi á und- an í fiskverndarmálum Samstarf um fisksölumál æskilegt en þar eru ljón á vegi Frá umræðum á Alþingi um samstarf við grannþjóðir um fiskveiði og fisksölumál Framkvæmd þingsályktunar Stef&n Jónsson (Abl) bar ný- verið fram fyrispurn á Alþingi til sjávarútvegsráðherra um það hvað liði framkvæmd þingsálykt- unar frá árinu 1973 um samstarf íslendinga við Norðmenn og Fær- eyinga um fiskveiði- og fisksölu- mál. Ályktunin kvað á um við- ræður milli þessara þjóða um „skynsamlega hagnýtingu fiski- miðanna á Norðaustur- Atlantshafi, vernun fiskistofna og fisksölumál". Sagði Stefán að rúmlega 70% af fiskafla á þessu hafsvæði kæmi af fiskimiðum þessara þriggja þjóða og sam- ræming fiskveiða þeirra að þoli fiskstofna og samstarf í fisksölu- málum væri þeim öllum jafn mikilvægt. Vitnaði Stefán til greinar dr. Gunnars G. Schram í Morgunblaðinu um sama efni og taldi hann vera „að taka upp mál“, sem Alþýðubandalagið hefði áður gert að sínu. Þá gagn- rýndi hann að tillögu Alþýðu- bandalagsins um þetta efni hefði ekki verið getið í sjónvarpsþætti um málið og taldi að fiskimála- stjóri hefði þar átt hlut að máli. Svar sjávar- útvegsráðherra Matthfas Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, sagði íslendinga aðila að norrænni samstarfsnefnd um sjávarútvegsmái, sem héldi fundi tvisvar á ári, og hefði það markmið að efla samstarf Norður- landa í fiskveiði- og fisksölumál- um. íslendingar hefðu og boðið til norrænnar fiskimálaráðstefnu i Reykjavík í ágúst 1976, þar sem umræður hefðu snúizt um þessi mál, og sótt hefði verið af 200 fulltrúum frá flestum greinum sjávarútvegs á öllum Norðurlönd- um. A þessum vettvangi, sem og í samstarfi á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, hefði verið stuðlað að samvinnu um þetta efni. Á þeirri ráðstefnu hefði ver- ið starfandi samstarfsnefnd Norðurlanda til að samræma sjón- armið þeirra. íslendingar hefðu að vísu alltaf verið skrefi á undan öðrum Norðurlandaþjóðum um, fiskvernd og útfærslu fiskveiði- lögsögu, en í raun væri aðeins mánuður siðan þessar þjóðir hefðu tekið sér 200 mflna fisk- veiðilögsögu, sem væri forsenda raunhæfrar samvinnu um þessi mál. Hann minnti og á nýgerðan samning við Færeyinga um veiði- mál o.fl. og hliðstæðan samning við Norðmenn. Hann gat einnig samvinnu þessara þriggja landa um loðnuveiðar við Nýfundna- land i fyrra og hitteðfyrra, um samveiði í bræðsluskipið Nor- global, og samstarfs þessara þjóða i Norðaustur- Atlantshafsnefndinni, aðallega um síldveiðikvóta i Norðursjó, og samstarf í alþjóðahvalveiðiráð- inu. Samstarf á sviði fisksölumála hefði einkum verið á vettvangi útflutningsaðila í löndunum, sem hið opinbera hefði þó átt beina aðild að í stöku tilfellum. Sem dæmi nefndi hann upplýsinga- skipti við skreiðarútflutningsráð Normanna, og samskipti við Norð- menn, Dani, Færeyinga, Græn- lendinga og Kanadamenn um upplýsingar um freðfiskmarkaði. Skoðanaskipti hefðu farið fram um rækju- og hrognasölu. Sam- skipti fiskútflytjenda í þessum löndum færi og vaxandi um sölu saltfisks, freðfisks og mjöls. Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna seldi mikið af freðfiski fyrir Fær- eyinga í Bandaríkjunum og Fél. ísl. fiskmjölsframleiðenda hefði samstarf við samsvarandi félags- skap i Noregi. Það sem einkum háir samstarfi við Norðmenn er styrkjastefna þeirra gagnvart útfluttum sjávar- lentu í árekstri. Aðeins orðróm- urinn um hugsanlega eitrun væri hættulegur. Friðlýsa ætti þetta hafsvæði fyrir umferð herflota hvers konar. Jón sagði Norðmenn erfiður Ijár í þúfu. Ármann Héðinsson Norðmenn löngum (A) hafa verið okkur erfiðan ljá í þúfu í fisksölumálum. Svo væri' enn. Norðmenn og íslendingar gætu haft ávinning af því að starfa heiðarlega saman í fisksölu- málum. En Norðmenn færu þar út fyrir eðlilegar samkeppnis- ' Minnti hann á styrki Norð- manna til að komast inn á islenzk- an saltfiskmarkað í Portúgal, en til þessara styrkja væri varið hundruðum milljóna króna. Þá hefðu Norðmenn gefið Portúgöl- um hafrannsóknaskip. Einnig beittu Norðmenn fyrirgreiðslu- boðum í Nigeriu. „Við höfum ekki mætt heiðarlegri samkeppni af afurðum, sem getur haft skaðleg áhrif á samkeppnisaðstöðu okkar á erlendum mörkuðum. Um þetta hefðu farið fram ítarlegar umræður, en styrkjastefna Norð- manna byggðist m.a. á byggða- vandamálum hjá þeim. Nauðsyn vaxandi samstarfs á þessum vett- vangi væri vissulega fyrir hendi og að þvi yrði áfram unnið. Herskipahættur Jónas Arnason (Abl) vék að þvi að flotaæfingar Atlantshafs- bandalagsins og Varsjárbanda- lagsins á Norðaustur-Atlantshafi kynnu að vera hættulegar fisk- stofnum okkar, ef kjarnorkuskip Framleidslusamvinnufélög: Umframréttur almenn- ingsvagna í umf erð Sagt frá nýjum þingmálum UMFRAMRÉTTUR ALMENNINGSVAGNA Albert Guðmundsson (S) flytur frumvarp til breytingar á umferðarlögum, þ.e. að við 40. gr. laganna bætist 5. málsgrein- in svohljóðandi: „Þegar ökumaður auðkennds almenningsvagns i þéttbýli gef- ur merki um akstur frá auð- kenndri biðstöð, skal stjórnend- um annarra ökutækja skylt að draga úr hraða eða nema stað- ar, til þess að hinn auðkenndi almenningsvagn eigi greiða leið út í umferðina. Ákvæði þetta leysir þó eigi ökumann almenn- ingsvagns undan öðrum ákvæð- um þessara laga né þvi að sýna itrustu varúð við akstur frá bið- stöð.“ í greinargerð kemur fram, að frumvarpið er flutt samkvæmt ósk borgarstjórnar og með með- mælum umferðarnefndar. Ákvæði svipuð þessu hafa þeg- ar verið lögfest í Svíþjóð, Dan- mörku og Noregi. HLlFÐARHJÁLMUR VIÐ BIFHJÓLAAKSTUR Fjórir þingmenn (Stefán Jónsson, Oddur Ölafsson, Jón Á. Héðinsson og Yngvi Tryggvason) flytja frumvarp til laga um breytingu á um- ferðarlögum, svohljóðandi: „Aftan við 59. gr. laganna komi ný málsgrein: Skylt er öku- manni og farþega bifhjóls að nota hlifðarhjálm við akstur." FRAMLEIÐSLU- SAMVINNUFÉLÖG Sigurður Magnússon (Abl) og Gunnlaugur Finnsson (F) flytja frumvarp til laga um breytingu á samvinnulögum (um framleiðslusamvinnu- félög). Frumvarpið gerir ráð fyrir því að fólki i ákveðinni starfsgrein sé heimilt að stofna framleiðslusamvinnufélög, sem hafi að markmiði að annast at- vinnustarfsemi innan starfs- greinarinnar, og má þá setja það skilyrði, að félagið sé að- eins opið fólki úr viðkomandi starfsgrein. — Framleiðslusam- vinnufélög greiða laun til starfsmanna eftir vinnufram- lagi hvers og eins, þó aldrei lakari en greinir í samningum verkalýðsfélags i viðkomandi starfsgrein. ATHUGUN A URBÓTUM í FLUGSAMGÖNGUM VIÐ VESTFIRÐI Karvel Pálmason (SFV) hef- ur flutt eftirfarandi tillögu til þingsályktunar: „Alþingi ályktar að' skora á samgönguráðherra að láta at- huga nú þegar með hvaða hætti bezt verði tryggðar sem örugg- astar flugsamgöngur við Vest- firði. Athugun þessi skal fyrst og fremst beinast að eftirfar- andi: 1. Lýsingu og öryggistækjum vegna aðflugs og lendingar á ísafjarðarflugvelli. 2. Endurbótum og lengingu á flugbrautinni við Holt í önundarfirði og flugbrautinni í Bolungarvik með það i huga að þær gegni þvi hlutverki að vera varavellir fyrir isafjarðarflug. 3. Lýsingu vegna aðfiugs og lendingar á Patreksfjarðarflug- velli. Athugunum þessum skal hraðað svo sem frekast er kost- ur með það fyrir augum að niðurstöður geti legið fyrir hið allra fyrsta og i siðasta lagi haustið 1977.“ LOÐNUBRÆÐSLUR I SIGLUFIRÐI — FYRIRSPURN Eyjólfur Konráð Jónsson (S) og Pálmi Jónsson (S) hafa bor- ið fram eftirfarandi spurningar til sjávarútvegsráðherra: ,,1) Hvað miðar framkvæmd- um við endurnýjun Síldarverk- smiðja rikisins i Siglufirði og hve víðtækar verða þær? Er hugmyndin að taka SRN eða SR-30 í notkun? 2) Eru uppi áform um endur- nýjun verksmiðju Sildarverk- smiðja rikisins á Skagaströnd?" hálfu Norðmanna," sagði þing- maðurinn, „það sagði ég hér á Alþíngi fyrir þremur árum og ég staðhæfi það enn.“ Ég vænti þess að Alþingi verði gefin heildar- skýrsla um niðurstöður viðræðna um þessi mál, m.a. við Norðmenn. Ráðstefnan í Reykjavík. Stefán Jónsson (Abl) gagn- rýndi, hvern veg hefði verið boð- að til hinnar norrænu fiskimála- ráðstefnu. Nauðsynlegt væri að niðurstöður yrðu betur kynntar. Hann sagði svör ráðherra sýna að litt hefði verið unnið að fram- kvæmd umspurðrar þingsálykt- unar. Viðræður við Norðmenn Matthfas Bjarnason, sjávar- útvegsráðherra, sagði að oft hefði verið komið á framfæri við Norð- menn kvörtunum yfir styrkveit- ingum þeirra til útflutnings- greina í sjávarútvegi. Norðmenn hefðu gefið fulltrúum okkar kost á að kynna sér ítarlega uppbótar- kerfi sitt og engu þar leynt. Til- gangur þess væri að tryggja sjó- mönnum þar i landi sambærileg laun og öðrum starfsstéttum. Þeir túlka styrkina sem lið í lausn byggðavandamála (í Norður- Noregi) en ekki sem „óheiðarlega samkeppni" við önnur lönd i fisk- sölumálum. Ráðherra sagði lítt aðfinnslu- vert þótt Norðmenn gæfu fisk- rannsóknaskip til Portúgals. Hitt væri alvarlegra, ef þeir undir- byðu samningamenn okkar á portúgölskum mörkuðum. Um það væri ekkert hægt að fullyrða á þessu stigi málsins. En fyrr en það kæmi i’ ljós, getum við ekki ásakað norsk stjórnvöld. Hitt er annað mál, sagði ráð- herra, að viðskipti okkar við Portúgal eru þeim óhagstæð, vegna þess, hve lítið við kaupum af þeim. Hér er um fátæka þjóð að ræða og við þyrftum að beina kaupum okkar til hennar í ríkara mæli en nú væri gert. Varðandi norrænu fiskimála- ráðstefnuna i Reykjavík sagði ráðherra, að hún hefði verið öllum opin, og auglýst sem slik, en hlutfallslega færri íslenzkir þingmenn hefðu sótt hana en erlendir, þó hinir siðarnefndu hefðu þurft um lengri veg að fara. Ráðherrann ítrekaði að áhugi væri fyrir hendi hjá íslenzku rikisstjórninni á að stuðla að frek- ara samstarfi við aðrar þjóðir i þessu efni, í fullu samráði við hagsmunaaðila í vinnslu og sölu islenzkra sjávarafurða. Fyrri tillögur um samstarf. Eyjólfur Konráð Jónsson (S) rakti hugmundir um samstarf við Norðurlandaþjóðir, ekki sizt Fær- eyinga, sem fram hefðu komið á Alþingi. Það væri rangt hjá Stefáni Jónssyni að Gunnar G. Schram hefði tekið nokkra hug- mynd „frá“ Alþýðubandalags- mönnum í Morgunblaðsgrein sinni. Slikar hugmyndir væru af miklu eldri toga spunnar. Hann minnti m.a. á tillögu sem hann, Eysteinn Jónsson. Hannibal Valdimarsson, Benedikt Gröndal og Magnús Kjartansson hefðu flutt fyrir 7 árum um þetta efni. Hann minnti og á hugm.vnd sína um hugsanlega „sameiginlega Iandhelgi“ með Færeyingum og Grænlendingum. Ef til verður svo um það er lýkur, þó ekki sé tíma- bært eins og er. Astæðan til þess að samvinna við Norðmenn hafi verið siðbúin væri sú, að þeir hefðu verið ótrú- lega seinir og afturhaldssamir í útfærslu sinni. Þá mótmælti Eyjólfur framkomnum dylgjum Stefáns Jónssonar í garð fiski- málsstjóra, að honum fjar- stöddum, sem væri hinn hæfast embættismaður og heiðursmaður i hvivetna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.