Morgunblaðið - 26.02.1977, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR 1977
27
V axandi umsvif
hjá Cargolux
ákaflega mikilvægt sálrænt atr-
iði,“ sagði Þorsteinn. „Jafnframt
gerði ég mér það strax ljóst að það
væri ekki nóg að selja og auglýsa
vélar, heldur yrðu bændur að
finna að okkur væri alvara i að
sýna þeim fulla samvinnu varð-
andi varahluti og þjónustu."
Þorsteinn sagði að eitt af þeim
atriðum, sem hefði valdið honum
heilabrotum í upphafi hafi verið
það orð, sem ýmis austur-evrópsk
framleiðsla hefði haft á sér á ís-
landi.
„Það var þó aðallega tvennt,
sem gerði það, að ég lét slag
standa," sagði hann. „í fyrsta lagi
hafði tékkneski Zetoerinn reynst
ágætlega en það er svipuð vél og
Ursus. í öðru lagi, að þó að austur-
evrópskir bilar séu oft gróft smíð-
aðir þá horfir öðru vfsi til með
dráttarvélar og gerir ekkert til
þótt þær skorti ytri fágun.“
Aðspurður um samkeppnisað-
stöðu einkafyrirtækis við Sam-
bandið sagði Þorsteinn að hún
hefði ekki valdið Vélaborg nein-
um erfiðleikum. Hins vegar væri
það vitað mál að söluaðstaða SlS,
sem selur International Harvest-
er og dótturfyrirtækis S:mbands-
ins, Dráttarvéla, væri allt önnur
en einkafyrirtækjanna, vegna
góðs aðgangs að kaupfélögunum
úti á landi.
Ursus-verksmiðjurnar eru ein-
ar elztu dráttarvélaverksmiðjur i
Evrópu og hafa starfað óslitið síð-
an 1917. Ársframleiðsla verk-
smiðjanna er f dag um 60.00Ö vél-
ar. Nú er verið að reisa nýja
dráttarvélaverksmiðju í Póllandi,
en Ursus byggir hana í samstarfi
við brezka Massey-Ferguson fyrir-
tækið. Stefnir Vélaborg að þvi að
geta boðið hér á landi nýja gerð
dráttarvéla, sem smiðaðar eru i
samstarfi þessara tveggja fyrir-
tækja.
MIKIL aukning varð á um-
svifum fragtflugfélagsins
Cargolux, sem hefur aðal-
stöðvar I Lúxemborg á
síðasta ári. Heildartekjur
fyrirtækisins urðu 2.119
milljónir franka (rúmlega
11 milljarðar kr.) sem er
43% aukning miðað við
1975 Tekjur af vöru-
flutningum urðu 1.770
milljónir franka (9.2
milljarðar kr.), tekjur af
viðhaldi 280 milljónir
franka (145.6 milljónir
kr.) og ýmsar aðrar tekjur
urðu 69. milljónir franka
(359 milljónir kr.)
Aukning á flutninga-
tekjum stafaði aðallega af
aukinni flutningsgetu, sér-
staklega til Austurlanda,
mið, nær og f jær, og
Vestur-Afríku. Viðhalds-
tekjur jukust verulega
vegna aukins viðhalds á
DC-8 og CL-44 flugvélum
erlendra eigenda. Cargo-
lux flaug 160 milljónir
tonnmílna 1976, sem er það
mesta í sögu félagsins og
16% aukning frá 1975.
Samtals voru 36.835 tonn
flutt með þrem DC-8-63 og
þrem Canadair CL-44 flug-
vélum, sem er 23%
aukning frá 1975. Meðal
nýrra staða, sem Cargolux
flaug til á síðasta ári voru
öll lönd við Arabaflóa,
Víetnam og Kína.
Verðbréf
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RÍKISSJÓÐS UPPLÝSINGATAFLA
FLOKKUR HAMARKSLANS ÚTDRÁTT VINN- ÁRLEGUR VÍSITALA VERÐ PR. KR. MEOALTALS
TÍMI = INN LEYSANLEGí SEÐLABANKA FRÁ OG MEÐ') ARDAGUR INGS % ”) FJOLDI VINNINGA 01 02.1977. 682 STIG. HÆKKUN í %. 100 MIÐAÐ VIO VÍSITÖLU 01.02.1977 ***) VEXTIR F. TEKJUSKATT FRÁ ÚTG. D
1972-A 15.03.1982 15.06 7 255 334.39 434.39 35.2%
1973 B 01.04.1983 30.06 7 344 272.68 372.68 41.3%
1973 C 01.10.1983 20.12 7 273 224.76 324.76 42.0%
1974-D 20.03.1984 12.07 9 965 181.82 281.82 43.6%
1974-E 01.12.1984 27.12 10 373 99.42 199.42 35.6%
1974 F 01.12.1984 27.12 10 646 99.42 199 42 37.0%
1975 G 01.12.1985 23.01 10 942 38 90 138 90 31.0%
1975 H 30.03.1986 20.05 10 942 34.52 134.52 42.8%
1976-1 30.11.1986 10.02 10 598 5.74 105.74 39.7%
*) Happdrættisskuldabréfin eru ekki innleysanleg, fyrr en hámarkslánstfma er náð. **) Heildarupphæð vinninga ( hvert sinn, miðast
við ákveðna % af heildarnafnverði hvers útboðs. Vinningarnir eru þvf óverðtryggðir. ***) Verð happdrættisskuldabréfa miðað við
framfærsluvfsitölu 01.02.1977 reiknast þannig: Happdrættisskuldabréf, flokkur 1974-D að nafnverði kr. 2.000.-, hefur verð pr. kr. 100.- = kr.
281.82. Verð happdrættisbréfsins er því 2.000 x 281.82/100 = kr. 5.636.- miðað við framfærsluvfsitöluna 01.02.1977. ****) Meðaltalsvextir
p.a. fyrir tekjuskatt frá útgáfudegi, sýna upphæð þeirra vaxta, sem rfkissjóður hefur skuldbundið sig að greiða fram að þessu.
Meðaltalsvextir segja hins vegar ekkert um vexti þá, sem bréfin koma til með að bera frá 1.11.1976. Þeir segja heldur ekkert um ágæti
einstakra flokka, þannig að flokkur 1974-F er t.d. alls ekki lakari en flokkur 1974-D. Auk þessa greiðir rfkissjóður út ár hvert vinninga f
ákveðinni % af heildarnafnverði flokkanna.
VEROTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR | HÁMABKS- LÁNSTÍMI TIL * INNLEUSANLEG ÍSEOLA8ANKA FRÁ OG MEO RAUN VEXTIR FYRSTU 4—5 ÁRIN % - MEOALTALS RAUNVEXTIR % BYGGINGAR VÍSITALA 01 01 10??. 126(2510) STIG ! HÆKKUN1 % VERÐ RR. KR 100 MfÐAO VIO VEXTI OG VISITÓLU 1.1 1977. MEÐALTALS VEXTIR f TSK FRA UTGÁFUDEGI ****
1965 10.09.77 10 09 88 5 6 959 07 2025 47 30 5
1965 2 20.01 78 20 01 69 5 6 840 07 1755.16 29 9
1966 1 20.09.78 20 09 69 5 6 793 24 1593.29 30 9
1966 2 15.01.79 15.01.70 5 6 756 68 1494.27 31 2
1967 1 15.09.79 15 09 70 5 6 742 28 1405 73 32 9
1967 2 20.10 79 20 10 70 6 6 742 28 1396.48 33 2
1968 1 25.01 81 25 01 72 5 6 699 36 1221 91 37 1
1968 2 25.02 81 25 02 72 5 6 656 02 1149 87 36 5
1969 1 20.02 82 20.02.73 5 6 600 48 859 49 38 8
1970 1 15 09 82 15.09 73 5 6 471 75 791 02 38 9
1970 2 06.02 84 05.02.76 3 5.5 379 01 582.85 34.8
1971 1 15.09 85 15 09 76 3 5 369 16 552 16 38 1
1972 1 25.01.86 25.01 77 3 5 31625 481.85 37.6
1972 2 16.09 86 15.09 77 3 5 267 60 417.32 39.5
1973-1A 15 09 87 15.09 78 3 5 194 26 324.36 43.0
1973-2 25 01 88 25.01 79 3 5 174 92 299.80 45.4
1974-1 15 09 88 15.09 79 3 5 94.57 208.23 37.7
1975-1 10.01.93 10.01.80 3 4 60 59 170.23 31.0
1976-2 25.01 94 25.01.81 3 4 26.38 129 91 32.5
1976-1 10.03.94 10.03 81 3 4 20.00 122 90 29.2
1976-2 25 01.97 26.01.82 3 3 5 0.00 100 00 —
X) Efttr bám»rkslin»tlni» njita sparisktrteinin ekki Irngur vaxta n* vrrðtrygglngar. XX) Rauavrattr tina tikna vrvtt (nrtti) umfrara
vrriharkkanir rins att ktrr rru marldar lamkvtrmt byggingarvlitittllunni. XXX) Vrró spariskfrtrína mióaó vi« vrxtl og visitdlu 01. 01. 1077
rrtknasl þannfg: Sparisklrtrini flokkur 1872 2 »« nafnvrrdi kr. 50.006 brfur verd pr. kr. 100 * kr. 117.12. HrilOarvrrð sparisklrtrinisins rr
þvl 50.000 X «17.32/100 m kr. 208.060.- mlOaO vl» vrxtl og vlsltólu 01. 01. 1977. XXXX) Mréaltalsvrstlr (brtttó) p.a. fyrlr trkluskatt fri
ólgifudrgl, sjai nppluró þeirra vaxta. srtn rtkissjóóur hrfur skuldbundið slg aó grrióa frara að þessu. Mróaltalsvrstir srgja hins vrgar
rkkrrt um vrstl þi. srra bréfin koraa til mró aó brra frt 01.01.1977. Þeir srgja hrldur rkkrrt um igmti elnatakra flokka pannig aó flokkur
1965 rr t.d. alls rkkl lakari rn ftokkur 1972-2.
Þcssar upplýsíngatoflur eru unnar af Verðbréfamarkaði Fjárfestingafélags tslands.
Eastern:
r
Ovinsælasta flugfé-
lagið í Bandaríkjunum
EASTERN Airlines er óvinsælasta flugfélag Banda-
ríkjanna, eða svo vilja neytendasamtök flugfarþega í
Bandarfkjunum, Airline Passanger Association, meina
að séu niðurstöður síðustu skoðanakönnunar sinnar. en
hún er framkvæmd tvisvar á ári.
Samtökin scm eiga sér varnarþing í Texas byggja niðurstöður sínar á
svörum, sem þau fengu frá 3.865 bandarískum og 375 erlendum
flugneytendum sem flestir eru kaupsýslumenn. Af þeim sögðu 820 eða
38,1% að þeir forðist Eastern Airlines meira en nokkurt ann-að
bandarískt flugfélag, aðallega vegna þjónustu (303), skorts á kurteisi
starfsfólks (99), seinkana og aflýsingar fluga (64) og óáreiðanleika
(60).
Það flugfélag sem komst Eastern næst að óvinsældum var Allegheny,
sem fékk 393 stig. Aóallega var fundið aö þjónustu (130), seinkunum
og aflýsingum (74) og óáreiðanleik (41) hjá því flugfélagi.
Viðskiptavinirnir voru spurðir með hvaða flugfélagi þeir kysu helzt
að fljúga innanlands í Bandaríkjunum og völdu flestir, eða 893
(26,7%) American Airlines 856 (25,5%) völdu United Airlines, 506
(15,1%) völdu Delta og 479 (14,3%) völdu Trans World Airlines.
Þess ber þó aó geta að þrátt fyrir óvinsældir sínar, kváðust fleiri
helzt vilja fljúga með Eastern heldur en með mörgum öðrum innan-
landsflugfélögum í Bandaríkjunum, eða 131 (3,9%).
Bandarísk flugfélög
sýna meiri framleiðni
FRAMLEIÐNI bandarískra flugfélaga er meiri en evrópskra á öllum
meiriháttar sviðum, sérstaklega farþegaafgreiðslu, viðhaldi, sölu og
farmiðaútgáfu. Þetta er ein af niðurstöðum nýlegrar athugunar á
framleiðni flugfélaga, sem gerð var af alþjóðlega stjórnunarráðgjafar-
fyrirtækinu McKinsey. Athugunin var gerð hjá tíu stórum flugfélög-
um. þar á meðal United, Trans World, Eastern, KLM, Swissair og
Qantas. Athugunin leiddi f Ijós að launakostnaður evrópskra flug-
félaga er enn lægri en bandarískra en minni framleiðsla gerir meira
en að vega þar upp á móti. Bent er á að á tímum vaxandi eldsneytis-
kostnaðar, efnahagssamdráttar og minnkandi tekjuaukningar þá hafi
ráðdeild með launakostnað orðið meiriháttar áhugamál flugfélaga,
sem vilja halda samkeppnisgetu sinni. Launakostnaður er einatt meir
en þriðjungur af rekstrarkostnaði, segir McKinsey, og þvf ætti athug-
unin að gefa stjórnendum flugfélaga betri grundvöll til að átta sig á
hæfilegum starfsmannafjölda, tækifærum til sparnaðar og tekju-
bætandi verkefnum, scm veita ber forgang. Meðal niðurstaðna at-
hugunarinnar er að meðal evrópskra flugfélaga eru tiltölulega fleiri
starfsmenn í yfirmannastöðum og fleira starfsfólk f nær öllutn þáttum
rekstrarins.
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS:
1966 1. flokkur Kaupgengi pr. kr. 100 — 1641 63
1966 2. flokkur 1539 72
1967 1. flokkur 1448.37
1967 2. flokkur 1438.84
1968 1. flokkur 1258 97
1968 2. flokkur 1184.75
1969 1. flokkur 885.56
1970 1. flokkur 815 02
1970 2. flokkur 600.53
1971 1. flokkur 568 91
1972 1. flokkur 496 47
1972 2. flokkur 496 47
1973 1. flokkur A 334.20
1973 2. flokkur 308 90
1974 1. flokkur 214 55
1975 1. flokkur 175 41
1975 2. flokkur 133.85
1976 1. flokkur 126 63
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF RIKISSJÓÐS:
1972 A Kaupgengi pr. kr. 100.— 390.95 (10% afföll)
1 974 E 1 79 48 (10% afföll)
1 974 F 1 79 48 (10% afföll)
1975 G 125 01 (10% afföll)
VEÐSKULDABRÉF:
1—5 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxtum
(20% — 45% afföll)
8 ára fasteignatryggð veðskuldabréf með lágum vöxtum. Sölutilboð
óskast
HLUTABRÉF:
Flugleiðir HF Sölutilboð óskast
Slippfélagið HF Sölutilboð óskast
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
HLUTABRÉF:
Almennar Tryggingar HF Kauptilboð óskast.
FJÁRFESTinCARFÉIRG ÍJlAflDS Hft
VEROBREFAM ARKAÐUR
Lækjargötu 1 2 - R (iðnaðarbankahúsinu)
Simi20580.
Opið frá kl. 13.00 til 1 6.00 alla virka daga.