Morgunblaðið - 26.02.1977, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 26.02.1977, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR 1977 31 Bandalag kvenna í Reykjavík: BANDALAG kvenna f Reykja- vfk hélt aðalfund sinn dagana 20. og 21. febr. á Hótel Sögu. Aðildarfélögin eru 31 talsins með um 11 þúsund félaga. Gest- ir fundarins voru Sonja Back- mann borgarstjórafrú, Sigríður Thorlacius, formaður Kven- félagasambands Islands, og skólastjóri Húsmæðraskóla Reykjavfkur, Jakobfna Guð- mundsdóttir. Á fundinum flutti Guðlaugur Hannesson gerlafræðingur, for- stöðumaður matvælarannsókna rfkisins, fróðlegt erindi um hreinlæti og geymslu matvæla. Þá buðu Birgir lsl. Gunnarsson borgarstjóri og frú Sonja Bachman öllum fundarkonum, 130 að tölu, til kaffidrykkju að Höfða f fegursta veðri og nutu konurnar stundarinnar af heil- um hug f þessu fagra húsi með útsýni til fjallahringsins, er skartaði sfnu fegursta. Aðalfundurinn fjallaði um 11 málaflokka og voru margar ályktanir gerðar. Meðal þeirra voru eftirfarandi ályktanir: Aðalfundurinn lýsir undr- un sinni á framkomnu frum- varpi Jóns G. Sólnes alþingis- manns, um framleiðslu og sölu áfengs öls á íslandi, mótmælir öllum framkvæmdum í þá átt og skorar á háttvirt Alþingi, að visa þessu frumvarpi frá.“ „Aðalfundurinn fagnar þvi, að Kvennadeild Landspitalans hefur verið tekin formlega í notkun, en harmar jafnframt ástand gömlu Fæðingardeildar Landsspítalans, sem enn er í notkun, en verður að teljast ónothæf eins og hún er. Aðalfundurinn leyfir sér því hérmeð að skora á háttvirt Alþingi, að hækka verulega fjárframlagið á fjárlögum 1977, sem veitt er til endurnýjunar á deildinni, svo að unnt verði að hraða þessu aðkallandi verk- efni.“ Aðalfundur Bandalags kvenna i Reykjavík, haldinn dagana 20. og 21. febrúar 1977, beinir þeirri eindregnu ósk til menntamálaráðuneytisins og borgaryfirvalda, að Húsmæðra- skóli Reykjavikur fái að starfa áfram með svipuðu sniði og verið hefur síðustu tvö árin. Eins og er getur skólinn ekki annað eftirspurn eftir skóla- vist. Fundurinn felur stjórn bandalagsins að vinna að þvi við yfirvöld skólamála að tryggja skólanum öruggan starfsgrundvöll sem allra fyrst. Aðalfundur Bandalags kvenna i Reykjavík haldinn 20.—21. febrúar 1977 fagnar þeirri þróun sem átt hefur sér stað í landhelgismálum íslend- inga á undanförnum árum, sú þróun er hvort tveggja i senn studd brýnustu hagsmunum okkar fyrir viðhaldi fiskstofn- anna og verndun á lífsbjörg annarra þjóða. Þessi friðunarstefna er i fyllsta samræmi við stöðu okkar íslendinga sem vopn- lausrar þjóðar, sem á allt undir friði og friðsamlegum störfum í eigin þágu og annarra. Sú hætta sem steðjað hefur 130 fulltrúar sátu aðalfund Bandalags kvenna í Reykjavfk, 20. og 21. febr. en f bandalaginu er 31 aðildarfélag með um 11 þúsund félaga. að okkur varðandi eyðingu fisk- stofnanna vegna rányrkju er engan veginn sú eina sem yfir vofir. Sifellt færist nær sá voði sem mengun eiturefna i sjó, lofti og jörð er þegar orðinn og ógnar gróðri, lifi manna og dýra i mörgum þjóðlöndum. Það er álit fundarins að íslenskri þjóð beri nú, og ekki Frá aðalfundi Bandalags kvenna. 1 ræðustóli er Halldóra Eggertsdóttir, varaformaður og ritari. Heiðursgestur fundarins frú Sonja Bachman, borgarstjórafrú situr fyrir miðju, en hjá henni stendur formaður bandalagsins, Unnur Ágústdóttir, og við borðið sitja aðrar stjórnarkonur. siðar, að gera sér ljóst hvílík lifsnauðsyn það er að vernda hreinleik landsins: lofts, vatns og gróðurs. Án þess mun sú matvælaframleiðsla úr sjó og jörð, sem er undirstaða islenskra atvinnuvega, ekki fá staðist. Án þess fáum við heldur ekki notið fegurðar landsins og heilsulinda þess. Því ber að vera vel á verði gegn allri stóriðju, sem valdið getur mengun á jörðu, i lofti og sjó. Innan bandalagsins starfa allt árið eftirfarandi nefndir: Áfengismálanefnd, barna- gæslunefnd, ellimálanefnd, heilbrigðismálanefnd, kirkju- málanefnd, mæðraheimilis- nefnd, orlofsnefnd, skattamála- nefnd, tryggingarmálanefnd, uppeldis- og skólamálánefnd og verðlags- og verzlunarmála- nefnd. Stjórn Bandalagsins skipa: Unnur Ágústsdóttir formaður, Halldóra Eggertsdóttir vai afor- maður og ritari, Margrét Þórðardóttir féhirðir og vara- menn Sigriður Ingimarsdóttir, Sigþrúður Guðjónsdóttir og Guðrún S. Jónsdóttir. Bjórfrumvarpinu verði vísad f rá Málfríður Ólafsdóttir: Félag starfef ólks í veitingahúsum Á þriðjudag og miðvikudag n.k. fer fram stjórnarkosning í Félagi starfsfólks i veitingahúsum. Tveir listar bárust kjörstjórn, A-listi stjórnar og trúnaðar.annaráðs og B-listi borinn fram af Kristni Hrólfssyni o.fl. Vissir aðilar á B- listanum hafa að undanförnu, bæói í blöðum og á fundi, sem haldinn var í Glæsibæ s.l. mið- vikudag, borið á núverandi for- mann Indriða Halldórsson mjög mikla gagnrýni sem er bæði ómakleg og ósönn. Ég undirrituð get ekki lengur setið aðgerðar- laus, án þess að svarað sé þessum árásum. Á fundinum I Glæsibæ fengu B-lista menn Guðmund J. Guðmundsson formann Verka- mannasambands íslands, til að flytja ræðu, sagði hann m.a. að enginn frá F.S.V. hefði setið i baknefnd A.S.Í. i síðustu samn- ingum. Hið sanna er að formaður F.S.V. Indriði Halldórsson var í nefndinni og sat alla fundi henn- ar. Þá gerði Guðmundur á um- ræddum fundi að umræðuefni einhvern ágreining sem hefði orð- ið á milli Einingar á Akureyri og samninganefndar F.S.V. og hefði þurft að bera sáttarorð þar á milli. Ekki kannast ég við þetta og býst ekki við að Jón Helgason, formaður Einingar, muni stað- festa slikt. Þá er formanni F.S.V. borið á brýn að hafa ekki sinnt félaginu, bæði hvað varðar fjárhag þess og félagsleg samskipti meðlimanna. Sannleikurinn er sá, að siðan Ind- riði Halldórsson tók við félaginu hefur hann drifið félagið upp og gert stór átak i fjármálum þess. þessu framboði aðallega birst I Þjóðviljanum? Að gefnu tilefni skal það upp- lýst að Kristrún Guðmundsdóttir ein af aðal málsvörum B-listans hefur verið í F.S.V. í 1 ár, en ekki um árabil eins og hún vill láta alla halda og hafi þess vegna svo mik- ið vit á innri málum félagsins. Kosningar um stjórn og trúnað- armannaráð i verkalýðsfélögum eiga fyllilega rétt á sér en ég get ekki sætt mig við að afhenda fél- agið mönnum sem í 1. lagi eru Það má alltaf deila um það hvort nægjanlega sé að unnið, en eitt er víst að Indriði heur ætið hugsað fyrst og fremst um hag félagsins og meðlimi þess og eru þessar árásir á hann mjög ömaklegar. Eitt af þvi, sem B-lista menn telja rós í þeirra hnappagati, að listi þeirra sé ópólitiskur. Samt sem áður finnst mér einhver póli- tísk lykt af listanum. Af hverju var Guðmundur J. fenginn til að flytja, á fyrrnefndum fundi, alls konar ósannindi á formann fél- agsins? Af hverju var Baldur Ösk- arsson fenginn til að vera tækni- ,legur ráðunautur vegna fram- boðsins? Af hverju hafa fréttir af LEIKHUS KjnunRinn Gosar leika fyrir dansi til ki. 2. Borðapantanir frá kl. 15.00 isima 19636. Kvöldverður framreiddur frá kl. 18. Spariklæðnaður áskilinn. nýkomnir i félagið og þekkja þar af leiðandi litið til þess og í 2. lagi, að menn sem bjóða sig fram til trúnaðarstarfa hafi að aðalstarfi allt annað starf, heldur en félag okkar stendur að, t.d. er for- mannsefni B-listans múraranemi og hefur múrverk að aðalstarfi. Ég læt félagsménn vega og meta hvort þetta sé rétt stefna í okkar félagsmálum. Að lokum óska ég félagi okkar allra heilla og að það bíði ekki tjón af þessum kosningum. Að þessu framan- sögðu skora ég á félagsmenn í F.S.V. að stuðla að sigri A-listans, sem er listi stjórnar- og trúnaðar- mannaráðs. LEIKFÉLAG KÓPAV0GS GLATAÐIR SNILLINGAR Eftir William Heinesen og Caspar Koch. Sýning sunnudag kl. 20.30. Aðgöngumiðasala hjá Lárusi Blöndal. Skólavörðustíg og í Félagsheimili Kópavogs opin frá kl. 1 7. Sími 4-19-85. Siðasta sinn I Útsýnarkvöld I í fíöst Hellissandi S § / kvöíd 6 Ferðakynning: Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar Myndasýning frá Spáni og Ítalíu Skemmtiatriði: Jörundur Guðmundsson Ferðabingó: Vinningar 2 sólarlandaferðir að verðmæti kr. 120.000 Fegurðarsamkeppni: Ungfrú Útsýn 197 7 forkeppni Dans til kl. 2 e.m. 5S Ferðaskrifstofan 12 ^wmuTSYN/immfSBs'

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.