Morgunblaðið - 26.02.1977, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 26.02.1977, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR 1977 Spjall við maestro Feöini Blm: Og þá er komið að gerð handritsins? Fellini: Já. Og fyrir hana lið ég, því orð eru tælandi og varpa skugga á myndræna tilfinningu kvikmyndarinnar. Blm: Hvað CASANOVA viðkemur vannstu mikið eftir handriti? Fellini: Að vissu leyti. En ég notaði ekki það upphaflega, eftir Gore Vidal. Það sem Vidal gerði gekk algjörlega í berhögg við anda myndarinnar. Hann rembdist við að vera sniðugur, líkt og hér væri á ferðinni Woody Allen mynd, og samdi einhver ósköp af bröndurum. Ég sé Casanova fyrir mér sem kvenna- bósa, hana, klunnalegan, sláandi um sig. Lyktandi af svita og andlitspúðri, með drembilæti kirkjunnar og herbúðanna, — náunga sem alltaf verður að hafa á réttu að standa. Og að því er virðist, þá er því þannig farið, því hann kann á flestu skil. Hann segir svo sjálfur frá, að hann geti elskað átta sinnum í striklotu; hann túlkar latinu yfir á grísku; er gnægtabrunnur sígilds kveðskapar; rök- ræðir stærðfræðikenningar; talar lýta- Iausa frönsku; er heimilisvinur Loðvíks XV og Madame de Pompadour. Hvernig getur nokkur staðist slíkan djöflamerg? Blm:Hefur þú ekki látið svo ummælt að Casanova sé fyrirrennari fasista- manngerðarinnar? Fellini: Það er það sem hann hefði orðið, ef hann hefði verið á lífi, — einn af innstu koppum i búri Mussolini. Þegar allt kemur til alls, þá var hann einnig njósnari. Hann hélt skýrslur yfir kynferðisafbrot, vændiskonur, kynyillinga. Allt þetta fær mig þó ekki til að fá óbeit á manninum; hann hegð- aði sér rétt eins og ítali. Hann hefði fallið inní hina sameiginlegu, ópersóriu- legu tilveru fasismans. En við skulum tala varlega um fasismann. Uppá síðkastið sér fólk hann alls staðar En er það ekki einnig fasismi að kalla allt fasisma? Blm: V'erður myndin erótísk? Fellini: Það er eins konar spenna f henni. sem virkar eins og erótískur lykill að leyndardómsfullri veröld. Myndin er ekki nógu berrössuð til að teljast klám. Blm: Var Casanova nauðgari? Fellini: Ef það er nokkuð sem bjargar honum frá þvi að vera um of andstyggi- legur, þá er það að hvergi kemur fram i minningum hans ein einasta frásögn eða lýsing á ofbeldi. Hann leit ætíð á kven- fólk með viðkvæmni og líkamlegum áhuga. Hann sýndi kvenmanni ofbeldi á frábrugðinn hátt: Hann hóf hana upp til skýjanna, fór með hana eins ög djásn og þegar áhuginn var þorrinn þá kastaði hann henni frá sér eða kom henni uppá einhvern félaga sinna. Nauðgun, á hinn bóginn, er tákn veikleikans, framkvæmd til að skapa yfirburði. Nauðgarar nútimans eru uppdópaðir, ekki aðeins af eiturlyfjum, heldur einnig af afskræmdri kvikmyndagerð sem af miklum mætti vekur það illa. Ég álít að það eigi að útrýma henni þvi hún er einstaklega hættuleg. Blm: Áttu við klámkvikmyndir? Fellini: Sei, sei, nei. Það er heilsusam- legt fyrir vanþróaða þjóð eins og okkar að fá að sjá fáeinar berar brjóstvarnir og skutfleti ánnað slagið. En þessar myndir um ofbeldi, blóðböð og slátranir, þær eru nánast ótrúlegar, og það eru fram- leiðendur, leikstjórar og dreifingar- aðilar þessara mynda sem eru hinir seku. Myndir þessar eru 30 til 40 prósent ábyrgar fyrir hinni miklu sefjun sem leysir úr læðingi þetta brjálæði, þessa grimmd. Blm: En er ekki ofbeldið einnig sök frjálsræðis okkar tíma? Fellini: Við lifum á tíma, a.m.k. hér á Italíu, blinds, brjálaðs, niðurlægjandi og niðurlægðs kynferðisfrelsis, sem er allt annað en frelsi. Reyndar staðfestir það þá kúgun sem ítalir hafa mátt þola með tilliti til kynlifs: hræðslu ogfáfræði. Allt þetta galopna frjálsræði — möguleikinn á því að sannfæra konu sina um að sænga með öðrum manni eða konu, jafn- vel tækifærið til að fara í bíó og sjá kvenfólk á Evuklæðum einum saman, þessar margbreytilegu sýningar i Cinemascope á kynsvalli, gaurlifi og hór- dómi getur naumast kallast sigur. Blm: Hvernig stóð á vali þinu á Donald Sutherland í hlutverk Casanova? Fellini: Andrea Rizzoli stakk uppá Jack Nocholson, en ég, einhverra hluta vegna, minntist á Donald Sutherland. Blm: Hefurðu séð hanri í kvikmynd? Fellini: Nei, en við hittumst fyrir nokkrum árum, er við báðir komum fram i myndinni ALEX IN WONDER- LAND. Ég fór með mjög erfitt hlutverk: lék Federico Fellini. Og þegar kvik- myndagerðin færðist í hendur Alberto Grimaldi, stakk ég samstundis upp á Sutherland. Hann hefur óákveðið and- litsfall sem erfitt er að leggja á minnið. Það var einmitt það sem ég var að leita að til persónusköpunar Casanova — sæðislegum glampa i augum sjálfs- fróarans, eitthvað sem var fjarri hinni almennu ímynd Casanova í augum almennings — einhverjum óákveðnum, þokukenndum persónuleika. Ekki af því að Sutherland líkist ítala, heldur á hvern hátt ég hef gjörbreytt útliti hans, því andlitsfall hans hefur gjörbreyst (sjá meðf. mynd). Blm: Hverja telur þú vera hliðstæður Casanova í nútímanum? Fellini: Þá er víða að finna. Því fyrir hvað stendur Casanova? Hégómagirnd, manngerð sem þekkir valdastéttina, þarf ekki að.standa í brauðstritinu, sigrar í veðmálum því hann er stálheppinn, kemst yfir kvenfólk að vild sinni. Þetta er hugmynd sem hrifur unglinga, og þar ESSŒ Síðari hluti sem að ítalir eru unglingar upp til hópa, þökk sé kirkjunni, að venju, hann er frummynd sem hrifur eftiraparana. Hann er mjög tælandi sem ímynd. Hver vill ekki ferðast um ókeypis, vera haldið uppi af rikri stútungskerlingu, vera hár og glæsilega vaxinn og gera það átta sinnum á dag? Hver mundi hafna sliku? Blm: Hefur þig nokkurntima langað til að standa augliti til auglitis við Casa- nova? Fellini: Já og ég tala við hann á hverjum morgni og spyr hann ráða. I sannjeika átti ég reyndar eitt viðtal við hann, i gegnum miðilinn Gustavo Rool i Turin. Samtalið átti sér stað í gegnum ósjálfráða rithönd, sem við samanburð reyndist svo vera sama rithönd og á vissum, ófölsuðum handritum. Ég byrjaði samræðurnar með því að segja: „Taktu nú eftir, Casanova, ég verð að gera mynd um þig, en ég hef ekki mikla tilfinningu fyrir henni.“ Og hann svaraði um hæl: „Ég bið þig, herra minn, ávarpaðu mig ekki í annarri persónu, kumpánlega.“ Ég fékk það hugboð að hér væri Casanova áreiðanlega á ferðinni, dramb hans var óvefengjan- legt. „Virtu mig, eins og ég virði þig, minn kæri signor Goldoni." Að sjálf- sögðu hafði hann enga hugmynd um hvað kvikmynd væri, sá hana fyrir sér sem Ieikhúsverk með nýjum aðferðum. Svo hann kallaði mig Goldoni, það er rithöfundur, leikstjóri, framleiðandi, allt í sömu skál. Hann gaf mér einnig ráðleggingar varðandi ástalífið: „Aldrei eftir málsverði, aldrei standandi, aldrei að halda aftur af þér.“ Coitus interruptus, no! Blm: Ég veit að þér er ekki að skapi að vera sagður siðferðisprédikari, en mér virðist af lýsingu þinni á handritinu, að nú sé svo farið? Fellini: Þetta er framandi, kvíðafull mynd, sögð undir rós. Staðreyndin er sú, að ég geri mér ekki grein fyrir hvernig hún kemur til með að líta út. Ég get tæpast beðið eftir þvíað sjá hana, síðan læt ég þig vita. Þá er þessum útdrætti úr viðtalinu við Fellini lokið, (birtist i OUI magazine í jan. ’77). Ég vonast til að það hafi gefið einhverjum smáinnsýn í vinnubrögð og nýjasta verk meistarans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.