Morgunblaðið - 03.03.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977
5
Leikrit vikunnar kl. 20.20:
Tengdamamma
eftir Kristínu
Sigfúsdóttur
Útvarpsleikrit vikunnar er að
þessu sinni, Tengdamamma
eftir Kristínu Sigfúsdóttur.
Leikstjóri er Baldvin Halldórs-
eon, en með hlutverkin fara
þau Guðrún Þ. Stephensen,
Hákon Waage, Jónína H. Jóns-
eóttir, Svanhildur Jóhannes-
dóttir, Valur Gíslason, Anna
Guðmundsdóttir, Valdimar
Helgason, Jón Gunnarsson og
Sunna Borg.
Leikritið er flutt i tilefni af
aldarafmæli höfundar á síðast-
liðnu ári. Vilhjálmur Þ. Gíslason
fyrrverandi útvarpsstjóri flytur
formálsorð.
Tónlist í leiknum er eftir
Sigursvein D. Kristinsson.
Leikurinn gerist snemma á
þessari öld, á bæ fram til dala.
Þar býr efnuð ekkja ásamt ráðs-
manni sínum og vinnufólki.
Sonur hennar, Ari, er í burtu
við nám, en langar að koma
aftur heim í sveitina og setjast
þar að. Ari er kvæntur stúlku úr
kaupstað og er hikandi um að
hún muni kunna við sig í sveit-
inni, eða hvernig móður hans
muni falla við stúlkuna eða
kunna ráðhagnum. Það verður
þó úr, að ungu hjónin koma og
margt breytist á bænum, enda
má segja, að þarna mætist
gamli og nýi tíminn.
Kristin Sigfúsdóttir er fædd
árið 1876 á Helgastöðum,
Kristtn Sigfusdóttir
Baldvin Halldórsson
Saurbæjarhreppi, í Eyjafirði.
Hún lést árið 1953. Kristín
naut engrar skólagöngu, en las
þær bækur, sem hún náði i. Á
unglingsaldri fór hún að semja
smáleikrit og lék þau í heima-
húsum ásamt öðrum börnum.
Árið 1901 giftist hún Pálma
Jóhannessyni og bjuggu þau í
Kálfagerði, átthögum húsfreyj-
unnar frá árinu 1 908 — 1 930
og við þann bæ hefur Kristín
oftast verið kennd. Síðustu árin
bjó hún á Akureyri.
l-4^VB
ERf™ hqI HEVRH
Margt af þvi, sem Kristín
Sigfúsdóttir ritaði, birtist fyrsta
sinni á prenti í Ritum
1—111,1949—1951, þar á
meðal Ijóð hennar og bernsku-
minningar. Skáldsögur eftir
hana eru: Gestir, 1925, Gömul
saga I—II, 1929 6 1928.
Smásögur eru: Sögur úr sveit-
inni, 1924. Leikrit: Tengda-
mamma, 1923, Óskastundin
1926, og Árstíðirnar, 1929.
Óprentuð leikrit hennar eru: í
bæ og sveit (frumsýnt á Akur-
eyri 1941) og Meikorka flutt I
útvarpinu árið 1 954.
Leikritið Tengdamamma var
fyrst sýnt I Saurbæ árið 1923,
síðar bæði á Akureyri og í
Reykjavík.
Athugasemdir íslenzku útflutningsmiðstöðvarinnar:
Að gera vel við
erienda kaupendur
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
athugasemd frá tslenzku út-
flutningsmiðstöðinni vegna um-
mæla nokkurra útflytjenda grá-
sleppuhrogna I Morgunblaðinu I
gær út af staðhæfingu forsvars-
manna tsienzku útflutningsmið-
stöðvarinnar að núgildandi lág-
marksútflutningsverð grásleppu-
hrogna sé of lágt ákvarðað með
tilliti til markaðsaðstæðna.
Ummæli nokkurra „hinna
stóru“ í grásleppuhrognaútflutn-
ingi i Morgunblaðinu í gær gefa
íslenzku útflutningsmiðstöðinni
.h/f tilefni til nokkurra athuga-
semda.
Útreikningarnir
Þeir útreikningar, sem birtir
voru i þessum viðtölum eru hrein-
lega rangir. Hér skulu birtir okj<-
ar útreikningar auk forsendna.
Forsendur útreiknings: a) Kaup-
gengi 1/1 1976 $ 170,60; DM
6498,35; B.fr. 433,40 og d.kr.
2765,85. Verð á tunnu $ 230. b)
Kaupgengi 1/1 1977 $ 189,50; DM
8033,00; B.fr. 529,95 og d.kr.
3281,50. Verð á tunnu $ 250.
Raunveruleg verðbreyting fyrir
kaupendur grásleppuhrogna í
Evrópu er þannig frá 1976—1977,
enda þótt verðið hækki úr $ 230 i
$250.
Þýzkaland, lækkun 2.38% í DM,
Danmörk, hækkun 1,77% i d.kr.,
Belgía, lækkun 1.28% í b.fr.
Þá á eftir að taka tillit til verð-
bólgu og almennra verðhækkana i
þessum löndum á sl. ári, sem var I
Þýzkaiandi 6,2% og í Danmörku
9,2% skv. upplýsingum Sigurðar
Markússonar, framkvæmdastjóra
sjávarafurðadeildar SÍS i Timan-
sum sl. sunnudag, 27/2.
Dæmi nú hver framleiðandi fyr-
ir sig, hvort „hinir stóru“ ætli sér
ekki að gera sæmilega við erlenda
viðskiptavini sína i ár.
Verðhrunið 1965
Þetta 12 ára gamla dæmi er
enginn mælikvarði á markaðs-
ástand 1977. Sjálfsagt kemur
lægð i þessa grein sjávarútvegs
sem aðrar, en þvi fremur er nauð-
synlegt að nýta toppana til að
standast lægðirnar á milli. 1 raun-
inni er hægt að svara tali um
verðhrunið 1965 sem grúndvelli
lágmarksverðsins ($250) árið
1977 með þessari spurningu: Er
minni hætta á verðhruni í ár með
lágmarksverðinu $250, heldur en
t.d. með lágmarksverðinu $275?
Markaðsástandið f ár
Ef litið er til sl. 4 ára hefur
verið vaxandi eftirspurn eftir
söltuðum grásleppuhrognum, og
verð hækkað jafnt og þétt. Sl. 2 ár
hefur hver tunna verið rifin út úr
höndum framleiðenda strax að
söltun lokinni. Við vitum um eng-
an framleiðanda, sem hefur átt i
erfiðleikum með sölu 1975 eða
1976 eða getur ekki fyrirfram selt
alla sina framleiðslu 1977 á $250
hverja tunnu. Þetta bendir sist til
hættu á verðhruni, heldur fyrst
og fremst til að verð sé of lágt
ákvarðað.
„Frjáls samkeppni“
1 orði kveðnu rikir hún á þessu
sviði. En i raun hefur hið opin
bera lágmarksútflutningsverð til
hneigingu til að gilda sem fast
verð gagnvart erlendum kaupend-
um, samkvæmt reynslu siðustu
ára. Erlendir kaupendur biða eft-
ir þessu opinbera lágmarksverði.
og gera siðan kauptilboð nákvæm
lega á þvi verði — enda vitað, að
það er ákveðið skv. tillögum
„hinna stóru“ i útflutningnum
eins og viðskiptaráðuneytið stað-
festi með tilkynningu sinni í gær.
Hér ríkir þvi einmitt ekki frjáls
samkeppni, heldur verðákvörðun
örfárra stórra útflutningsaðila.
Samstaða framleiðenda
Þar sem hinir helztu stóru út-
flytjendur grásleppuhrogna virð-
ast ætla að halda sér við lægsta
hugsanlegt útflutningsverð í ár
mun íslenzka útflutningsmiðstöð-
in h/f á næstunni gera tiiraun tii
að efna til samstöðu meðal fram
leiðenda um sanngjarna hækkur
söluverðs frá 1976, sem t.d. gæti
fengizt fram með endurskoður
lágmarksútflutningsverðsins eða
með samstöðu verulegs hluta
framleiðenda að magni til um
hæfilegt söluverð á þessari vertíð
tslenzka
útflutningsmiðstöðin h/f
Saumavélin sem gerir alla saumavinnu einfalda er
NECCHILYDIA 3 er fullkomin sjálfvirk saumavél meðfríum armi.
NECCHIL YDIA 3 er sérlega auðveld ínotkun. Með aðeins einum takka má velja um 17 mismunandi
1 I
-
V'
sporgerðir.
NECCHILYDIA 3 mánotaviðaðsauma, falda, þrceða, festa á tölur, gerahnappagötogskrautsaum
auk sauma sem henta öllum nýtízku teygjuefnum.
NECCHI LYDIA 3 vegur aðeins um 11 kg með tösku og fylgihlutum, og er því einkar meðfcerileg í
geymslu og flutningi.
NECCHI LYDIA 3 fylgir fullkominn íslenzkur leiðarvisir. 40 ára reynsla NECCHI á íslenzkum
markaði tryggir góða varahluta- og viðgerðaþjónustu. Góð greiðslukjör -
Fást einnig víða um land. NECCHIL YDIA 3 kostar aðeins kr. 55.875, -
Fálkinn
póstsendir
allar nánari
upplýsingar,
sé þess óskað.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670