Morgunblaðið - 03.03.1977, Page 10

Morgunblaðið - 03.03.1977, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977 / hlíöum „Skíða- fjalls ” við Ak- ureyri Það er ekki amalegt fyrir Akureyringa að hafa í or- skotshelgi fullkomnustu skfðaaðstöðu á landinu. Þar er fullkomnasta skfða- lyfta á landinu, viðurkennt þægindahótel, snjótroðari er gerir skfðabrautirnar eins og bezt verður á kosið og þannig mætti áfram telja. Reyndar eru það fleiri en Akureyringar sem nota sér þessa aðstöðu, en forráðamönnum skfða- mála á Akureyri fannst þó af undarlegum toga spunn- ið nöldrið í reykvískum skfðaunnendum f sfðasta mánuði, meðan þeir höfðu engan snjóinn sunnan- lands. Það tekur nefnilega ekki nema stutta stund að ferðast til Akureyrar og kostnaðurinn er f rauninni ekki mikill við ferðir til Akureyrar og gistingu þar þegar allt kemur til alls. Sextán manns _starfa í Hliðarfjalli, á hótelinu, á troðaranum við stólalyft- una og hinar lyfturnar tvær, en önnur þeirra er fyrir byrjendur, hin fyrir keppnisfólkið. Fleiri störf vinnur þetta fólk og þessi 16 manna hópur á það m.a. sameiginlegt að það er ráðið til að gera skíðafólki dvölina í „fjallinu“ sem ánægjulegasta. Frá ára- mótum og þar til um miðj- Ljósm. Friðþjófur Heigason Skíði, skfðafólk og Skfðahótelið f Hlfðarfjalli « | pl% m msMmtlLM lt W 'fWÍé .wm 1 Hi*tJil! | /iii Þá er lyftan komin upp og skemmtileg ferð niður brekkurnar bfður skfðagarpanna an febrúar var tiltölulega rólegt hjá þessu fólki og í rauninni lítil nýting á hótelinu. Var allgóður skíðasnjór þó þetta tímabil í Hlíðarfjalli, en aðeins vöskustu Akureyringar nýttu sér færið. Stólalyftan í Fjallinu var reist árið 1967 og er þús- und metra löng og flytur hún 580 farþega á klukku- stund. Á góðviðrisdögum dugar það þó skammt og eru oft langar biðraðir við lyftuna. Koma þá hinar lyfturnar í góðar þarfir, en samtals eru lyfturnar í „Fjallinu" 2240 metrar á lengd. Akureyri var árið 1967 útnefnd vetrar- íþróttamiðstöð fyrir landið, en ÍSl hefur þó aldrei veitt fé til uppbyggingar þar. Vetraríþróttamiðstöðin hefur aldrei verið rekin sem gróðavænlegt fyrir- tæki og hefur verið hallar- rekstur á henni og er hann greiddur af bæjarsjóði Akureyrar. Nam tapið 7.4 milljónum á síðasta ári. í Hlíðarfjalli er rekin skíðaskóli, og er hann mikið sóttur, en þó aðal- lega af þeim yngri. Fer það reyndar ekki á milli mála að unga fólkið á Akureyri kann ýmislegt fyrir sér í íþróttinni og er stórkost- legt að sjá ungviðið bruna niður brekkurnar í beygj- um eða bruni eftir því hvað hverjum finnst skemmti- legast. Eiga Akureyringar margt snjallasta skíðafólk landsins og hefur margt gert garðinn frægan heima sem erlendis á liðnum árum. —áij. FASTEIGN ER FRAMTÍO 2-88-88 Hraunbær Nýstandsett einstaklingsibúð á 1. hæð móti suðri. Laus strax. Laugarnes Parhús Tvær ibúðir og bilskúr. 7. herb. ibúð á tveimur hæðum, að auki glæsilegt baðstofuloft. I kjallara er rúmgóð 2ja herb. ibúð. Full- frágenginn. bilskúr. Góð lóð. Eign i sérflokki. Karfavogur 3ja herb. rúmgóð risibúð, litið undir súð. Hvassaleiti 3ja herb. ibúð, bilskúr. Hvassaleiti 3ja herb ibúð, bilskúr. Safamýri 4ra herb. ibúð, bilskúr. Fellsmúli 4ra—5 herb. endaibúð, bil- skúrsréttur. Kríuhólar Glæsileg endaibúð i háhýsi, mik- ið útsýni, góð sameign. Stór bil- skúr. Mjög hagstæð útb. Skipti möguleg á 2ja herb. íbúð. AOALFASTEIGNASALAN VESTURGÖTU 1 7, 3. h»8 Birgir Ásgeirsson lögm. Hafsteinn Vilhjálmsson sölum. HEIMASfMI 82219

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.