Morgunblaðið - 03.03.1977, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MA.RZ 1977
Námsflokkar Reykjavíkur:
Fullorðnir sœkjast nú eftir
markvissara og lengra námi
NÁMSFLOKKAR Reykjavíkur
sem um langt árabil hafa
annast fullorðinsfræðslu I
borginni, eru mjög sveigjanleg
stofnun.
Þar er haldið uppi
þeirri fræðslu, sem fólk hefur
áhuga á og mvndaðir náms-
flokkar um hvað eina, sem
nægilega margir vilja læra. Þar
koma þvf fljótt fram ýmsar
hræringar og breytingar í þjóð-
félaginu. Og þar er það einmitt
áberandi I vetur, að fullorðið
fólk stundar þar nú mark-
nemendur i einu. Þetta er ákaf-
lega gagnleg deild, sem Guðrún
sagði að ætti áreiðanlega fram-
tíð fyrir sér. Hana sækir bæði
fólk, sem vill gera sig hæfara í
sínu starfi og konur, sem ætla
að fara í ný störf. Sagðist
Guðrún ekki vita annað en að
þetta hefði reynst mjög vel.
Ætlast er til þess að þeir sem
hefja þetta nám hafi gagn-
fræðapróf.
Stærsti hópurinn, sem nú er í
námi, er að ljúka undirbúnings-
námi fyrir sjúkraliðaskóla.
Þar búa 7 5 sig
undir sjúkra-
liðanám og 40
undir iðnnám
Hluti af hópnum sem er
að búa sig undir sjúkra-
liðanám ( Námsflokkun-
um. Nemarnir voru að
mæta kl. 7.20, að aflokn-
um störfum dagsins, til
að setjast I tfma f heilsu-
fræði, sálarfræði og fleiri
fögum, enda prófið farið
að nálgast.
Fyrir þær var sett upp önnur
deild I haust, sem 25 sækja og
ætla sér að leggja tvö ár i undir-
búninginn til að komast í
skólann. Fyrri veturinn taka
þær grunnskólafögin og í vor
verður útbúið fyrir þær ígildi
grunnskólaprófs i islenzku,
reikningi, dönsku og ensku.
Þessi hópur er í skólanum þrjú
kvöld i viku fram á vor. Mest
eru þetta konur sem eru búnar
að ala upp sin börn og vilja taka
til starfa við annað.
Sem við stóðum þarna við i
Miðbæjarskólanum, var að
koma fólk og innrita sig á nám-
skeið um fæðuval, sem standa
mun i 11 vikur. 15 nemendur
komast að. Þeir hafa áhuga á að
fræðast um hollan og
grennandi mat, matarhætti og
uppskriftir. Þar i hópnum eru
margar húsmæður sem vilja
bæta þekkingu sína og taka upp
hollara mataræði — og
grennandi fyrir þær sjálfar eða
bóndann. í þeim flokkum, sem
hér voru nefndir sem búa sig
undir skrifstofustörf og sjúkra-
liðastarf eru konur i miklum
meirihluta, en svo er ekki alls-
staðar.
Fjörutiu manna hópur er í
námi hliðstæðu 9. bekk grunn-
skóla og er að búa sig undir
gagnfræðapróf í vor. En þetta
er sfðasti hópurinn í gagn-
I námsflokknum, sem er
að búa sig undir að taka
gagnfræðapróf f vor, eru
mest karlmenn, margir
þeirra tóku ekki þetta
próf á sfnum tfma og
þurfa þess nú, til að fara
f iðnskóla. Og þá er hægt
að taka hliðstæðu 9.
bekkjar f grunnskóla hjá
Námsflokkum Reykja-
vfkur.
vissara nám og umfangsmeira
en áður.
Þetta kom fram í spjalli við
Guðrúnu Halldórsdóttur, skóla-
stjóra Námsflokkanna. I haust
fluttu Námsflokkarnir inn i
gamla Miðbæjarskólann, sem I
framtíðinni á að verða miðstöð
fræðslu fyrir fullorðna i
borginni og þar er skólinn nú
að koma sér fyrir í vetur i sam-
býli við Leiklistarskóla ríkisins
og fleiri.
í samræmi við það sem sagt
er hér að ofan, hefur stunda-
fjöldi aukist mjög frá því í
fyrra, þótt aðsóknin sé svipuð
eða um 1500 námsmenn yfir
veturinn. Nú kemur fólk mun
meira til að búa sig undir
ákveðið starf eða ákveðið nám
og eru í þeim hópi margar
konur, sem eru að koma aftur
út á vinnumarkaðinn eftir að
hafa sinnt heimíli um hríð.
Þar kemur að góðu gagni
verzlunar- og skrifstofudeildin,
þar sem kennd er bókfærsla,
tollútreikningur, véla-
reikningur, vezlunarenska,
vélritun o.fl. og lokið með prófi.
Þó þetta sé tfmafrekt nám, taki
fjögur kvöld í viku í minnst 4
tíma á kvöldi, þá er aðsókn
meiri en hægt er að sinna, því
tækjaeign skólans miðast við 12
Ymiss konar handavinna
er mjög vinsæl. Hér er
einn nemandinn að mála
á postulín
Fimmtíu hafa verið í alla
vetur og mætt feikilega vel, e)
voru mun fleiri í upphafi. Mæt
þarf fimm kvöld í viku,
kennslustundir á kvöldi og pró
tekið í lok febrúar. Guðrúi
sagði að stór hluti þessa fólk
mundi fara í sjúkraliðaskólam
og kvaðst hún viss um a<
sjúkrahúsin yrðu ekki svikin a:
þessu fólki. í hópnum er eint
karlmaður. Kennslunni hefui
verið haldið uppi í samráði vii
sjúkralíðaskólann og reynt ac
fylgja námskrá fyrsta bekkjai
fjölbrautaskólans.
í vetur var gerð þessi fyrsta
Nemarnir f verzlunar- og skrifstofudeildinni æfa sig af kappi.
Guðrún Sæmundsdóttir fremst til hægri hefur nýtt vel námið,
sem er á boðstólum hjá Námsflokkunum. Fyrsta veturinn bjó
hún sig undir miðskólapróf og tók það, eftir næsta vetur tók hún
gagnfræðapróf og nú í vor tekur hún próf úr verzlunar- og
skrifstofudeild. Ljósm. Kr. ÖI.
tilraun með undirbúning fyrir
sjúkraliðanám, og gengur
svona vel. í kjölfarið birtist
annar stór hópur. Það eru
konurnar, sem aldrei luku
gagnfræðaprófi á sinum tima,
en vilja gerast sjúkraliðar.
fræðaprófi, sem verður lagt
niður, sem kunnut er. Þarna
eru piltar í meirihluta en
nokkrar konur. Margir þeirra
hafa hætt i skóla af einhverjum
ástæðum, en ætla nú í iðnskóla
Framhald á bls. 31
Þessi hópur ætlar að taka tvö ár f undirbúning undir sjúkraliða-
nám, taka ígildi grunnskólaprófs í vor og sfðan sérfög fyrir
sjúkraliðaskólann næsta vetur. Guðrún Halldórsdóttir skólastjóri
stendur fyrir aftan eina karlmanninn f hópnum.
. i ' i i 'i i' *; r i ri i i » t
TT