Morgunblaðið - 03.03.1977, Side 15
15
NÍtfRGUNktAEIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977
Skíðalyfta í Siglufirði
26. febrúar s.I. var tekin f notkun á Siglufirði ný skfðalyfta sem
mun gjörbreyta til batnaðar allri aðstöðu siglfirsks skfðafólks.
Hefur það þegar sýnt sig að lyftan kemur að góðum notum, og dag
hvern hefur fjöldi Siglfirðinga, ungir jafnt sem aldnir, orðið til
þess að notfæra sér lyftuna. Meðfylgjandi myndir tók Stein-
grfmur Kristinsson, Ijósmyndari Morgunblaðsins á Siglufirði, er
lyftan var vfgð. Á efri myndinni sést séra Vigfús Þór Árnason
halda vfglsuræðu en neðri myndin sýnir fyrsta skfðamanninn f
lyftunni eftir vfgsluna. Var það ungur maður, Öðinn Freyr
Rögnvaldsson að nafni.
Margir Siglfirðingar lögðu fram mikla sjálfboðavinnu við
uppsetningu lyftunnar.
Amin veilti Bandaríkja-
mönnunum ferðafrelsi
Nairobi — 1. marz — Reuter.
BÁNDÁRlKJÁMENN f (Jganda
fara nú frjálsir ferða sinna og
geta yfirgefið landið hvenær sem
þeir vilja, tilkynnti útvarpið f
Kampala skömmu eftir að Idi
Ámin forseti hafði tilkynnt
frestun fyrirhugaðs fundar sfns
með þeim rúmlega 200 Banda-
rfkjamönnum, sem dveljast f
landinu. Fundurinn átti að vera f
dag, en hefur nú verið frestað um
„óákveðinn tfrna".
Ekki er vitað með vissu hvað
orðið hefur til þess að breyta
ákvörðun Amins, en núverandi
forseti Einingarsamtaka Afríku-
ríkja, Ramgoolam, forsætisráð-
herra Máritfus, skýrði frá þvi f
dag, að hann hefði ráðlagt Amin
að leysa vandamál (Jganda með
hagsmuni Afríku í huga. Forseti
Einingarsamtakanna skýrði ekki
nánar í hverju ráðleggingar hans
hefðu verið fólgnar, en kvaðst
hins vegar vona, að þetta mál
fengi góðan endi.
Bandaríkjastjórn hefur fylgzt
náið með framvindu mála i
Oganda eftir að Amin sakaði
bandarisku leyniþjónustuna um
að hafa átt hlutdeild i misheppn-
aðri byltingartilraun i landinu
fyrir skömmu, um leið og hann
lýsti því yfir að Bandarikjamenn i
Oganda fengju ekki að yfirgefa
landið fyrr en hann hefði talað
við þá i eigin persónu.
í gærkvöldi hafði útvarpið i
Kampala eftir Amin, að hann
hefði tjáð Bandarikjamönnum að
gerðu þeir innrás f Oganda skyldi
þeim verða tortímt með sínum
eigin karnorkuvopnum. Om leið
var eftir honum haft, að sumir
þjóðarieiðtogar i Afríku hefðu
gerzt „símastúlkur" og séndi-
boðar fyrir Bandaríkin, en ekki
var nánar skýrt hvað forsetinn
var að fara.
19 fórust
í flugslysi
Aden 1. mars NTB.
19 manns fórust er flugvél af
gerðinni DC-3 hrapaði i hafið und-
an strönd S-Jemen í dag. Einn
farþegi komst lífs af og liggur
hann i sjúkrahúsi. Vélin var f
eigu flugfélags S-Jemen og voru
allir farþegarnir S-Jemenar.
OPNAR AFTUR EFTIR LAGFÆRINGAR — Jón Geir Árnason hár-
skurðarmeistari hefur opnað stofu slna á Vlðimel 35 aftur eftir
breytingar á innréttingum. Þá hefur Jón tekið nema á stofuna og
heitir hún Dlana Vera Jónsdóttir. Meðfylgjandi mynd var tekin af Jóni
og Dfönn að störfum á stofnmti: — * * * * *.... ...................
r _
Aætlunarferðir í Bláfjöll á vegum skiðaráðs
SKlÐARÁÐ Reykjavfkur efnir til
fastra áætlunarferða í Bláfjöll
eins og undanfarna vetur og hafa
þegar verið farnar nokkrar ferðir.
Hefur þátttaka verið vaxandi
miðað við fyrri ár og hefur nú
ferðunum verið fjölgað.
Guðmundur Jónasson h.f. sér um
aksturinn og eru farþegar sóttir á
nokkra staði i Reykjavík og
nágrenni og þeim hleypt út á
sömu stöðum á heimleið.
Áætlunin er sem hér segir:
Laugardaga og sunnudaga kl.
10:00 og 13.30 frá Umferðar-
miðstöðinni. Þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 13.30 og miðviku-
daga kl. 18:00. Ennfremur verða
ferðir á kvöldæfingar á
þriðjudags- og fimmtudagskvöld-
um kl. 18:00.
Fyrir brottför kl. 10:00 og fyrir
kvöldæfingaferðir verða farþegar
sóttir sem hér segir:
Vesturborgin
15. mfn fyrir Mýrarhúsaskóli
10 mfn. fyrir Melaskóli — Nesvegur
Kl. 10.00 frá Umferðarmióstöó
5. mfn. yfir Langahlfð
10 mfn. yfir Miklabraut (Shell)
Austurborgin:
15. mfn. fyrir Garðaflöt. Garðabæ
5 mfn. fyrir Pósthúsið, Kópavogi
5 mfn. yfir Breiðholtsskóli, Arnarbakka
10 mfn. yfir Réttarholtsskóli.