Morgunblaðið - 03.03.1977, Page 33
Atvinnuástand
gott á Bíldudal
Bfldudal, 1. marz —
TlÐARFAR hér hefur verid með
þeim eindæmum, að elztu menn
muna ekki annað eins, logn og
blfða alla daga. Sama er að segja
um afla. Rækjuaflinn varð
148.926 kg af 8 bðtum, sem rða
hér f fjörðinn. Aflahæsti bátur-
inn var Pilot með 21.326 kg og
næstur Helgi Magnússon með
21.126 kg og Vfsir 21.125.
Síðan höfum við fengið rækju
frá Patreksfirði frá tveimur bát-
um 26.617 kg, sem unnin hafa
verið hér á Bildudal. Hefur verið
unnið alla daga 20 klukkustundir
á dag á tveimur vöktum, nema á
sönnudögum hefur verið gert hlé
frá því klukkan 06 til 20. Er það
einsdæmi hér, að i siðustu viku
fengu allir leyfilegan hámarks-
afla, 5 tonn á 5 dögum.
Heildaraflinn, sem leyfður er
upp úr firðinum, er 400 tonn, en i
land er komið 28. febrúar 372
tonn. Má telja öruggt, að veidd
verði upp undir 500 tonn og að
leyfi verði veitt til þess.
Héðan eru gerðir út tveir bátar
á línu og var afli þeirra i febrúar:
Hafrún 170 tonn og Steinanes 184
tonn. Hafrún fékk aflann í 22
sjóferðum og Steinanes i 20 sjó-
íerðum. Vinna Ifrystihúsinu hef-
ur verið alla daga nema sunnu-
daga. Unnið hefur verið hvern
dag fram til klukkan 19 og stund-
um lengur.
Hér er snjólaust um allt og allir
vegir færir innan sveitar og á
Patreksfjörð. Heilsufar má kall-
ast gott. — Páll.
„Þingmúli”,
nýtt blað á
Austurlandi
SJALFSTÆÐISFÉLAG Fljóts-
dalshéraðs hefur hafið útgáfu á
blaði, sem kemur út mánaðar-
lega. Nefnist það Þingmúli.
Fyrsta blaðið kom út f nóvember
s.I. og það fjórða í febrúar.
í grein frá ritnefnd I fyrsta
blaðinu segir m.a.: „Það er von
okkar sem að blaðinu stöndum að
það verði styrkur hugsjónum
sjálfstæðismanna og framfara-
málum þessa landshluta. Það er
sannfæring okkar að aukin blaða-
útgáfa á Austurlandi sé brýn
nauðsyn i baráttunni fyrir hags-
munum Austfirðinga og vonum
við að þetta blað verði hlutgengur
aðili í þeirri baráttu. — Þótt eitt
félag, en ekki viðtækari samtök,
standi , að útgáfu þessa blaðs,
væntum við góðs samstarfs við
sem flesta Austfirðinga."
Ritnefnd blaðsins skipa:
Gunnar Vignisson, Páll Halldórs-
son, Helgi Halldórsson og Helga
Aðalsteinsdóttir. — Blaðið er
prentað i Héraðsprenti h.f. á
Egilsstöðum.
Jafnréttis-
ráðið með
nýja skrifstofu
JAFNRÉTTISRÁÐ hefur flutt
skrifstofu sina að Skólavörðustig'
12 I Reykjavík. Bergþóra Sig-
mundsdóttir framkvæmdastjóri
hefur verið ráðin í fullt starf þar
frá 1. jan. 1977. Viðtalstími hjá
Jafnréttisráði er kl. 10—12 alla
virka daga og simi er 27420.
Hús Almennra
Trygginga
ekki til sölu
1 TILEFNI af frétt í blaðinu í gær
þess efnis, að Reykjavíkurborg
kunni að taka húsnæði Almennra
Trygginga h.f. undir starfsemi
sína óskar fyrirtækið að það komi
fram, að húsnæði þess sé ekki til
sölu og aðeins lauslega hafi komið
til tals, að borgin leigi hluta húss-
ins, en ekkert hafi verið ákveðið i
þeim efnum.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977
33
UMFERÐARKORTID
farseðill fyrir 3 til Kaiiaríevia ?
Svaraðu neðanskráðum spurningum. Sendu
okkur svarið -og sértu heppinn, þá hlýtur þú
vinninginn: Kanaríeyjaferð fyrir þrjá með
Samvinnuferðum hf.
UMFERÐARKORTIÐ fœrð þú í nœstu
afgreiðslu Samvinnutrygginga. í Reykjavík og á
Akureyri fæst það einnig á öllum bensínstöðvum
Esso.
VERKEFNIÐ: Katrín ekur um bœinn.
Atriði eru hverju sinni talin upp í þeirri röð
sem þau koma fyrir á leið Katrínar.
Á leið frá 1 til la.
Já Nei
Á leið frá 5 til 5a.
Já Nei
1, 1 Ber Katrlnu að gefa stefnumerki?
1, 2 Má hún aka hiklaust inn á umferðargötuna?
1, 3 Ber henni að víkja fyrir akandi umferð
frá báðum hliðum?
1, 4 Má hún aka yfir varúðarlínuna?
1, 5 Heitir breiða, brotna línan á móts við biðskyldu-
merkið:
a) Varúðarlina?
b) Markalina?
BB
BB
BB
Á leið frá 2 til 2a.
Já Nei
2, 1 Er gangandi vegfaranda skylt að taka tillit til
akandi umferðar sem nálgast, sé hann á merktri
gangbraut?
2, 2 Er bláa gangbrautarmerkið leiðbeiningar-
merki?
2, 3 Sé gangandi vegfarandi á gangbrautinni, eða í
þann veginn að fara út á hana, hvort er þá
öruggara að Katrín stöðvi bílinn:
a) Við gangbrautina?
b) 10 metra frá henni?
□ □
□ □
BB
5, 1 Hvað af eftirfarandi þarf Katrin að hafa í huga
áður en hún ekur af stað aftur frá akbrautar-
brún:
a) Gá að umferðinni?
b) Gefa stefnumerki til hægri?
c) Gefa stefnumerki til vinstri?
5, 2 Hvar á bíllinn að vera þegar hún kemur að
gatnamótunum:
a) Hægra megin í götunni? □ □
b) Vinstra megin í götunni? □ □
5, 3 Hvar á hún að stöðva bílinn: __ __
a) Framendi bíls við stöðvunarlínuna? I_11_I
b) Framan við línuna, svo að hún sjáú betur inn _ _
á aðalbrautina? □ □
Á leið frá 6 til 6a.
6, 1 Hvort er réttara að Katrin gefi stefnumerki:
a) Einni billengd áður en hún ekur til vinstri?
b) 5-6 bíllengdum áður en hún ekur til vinstri?
Já Nei
BB
Á leiÖ frá 3 til 3a.
Á leið frá 7 til 7a.
Já Nei
Já Nei
3, 1 Má Katrin aka hiklaust inn á hringtorgið? □ □
3, 2 Ber henni að víkja fyrir X bilnum sem nálgast ____ __
frá vinstri? I—11—1
3, 3 Er rétt, miðað við ökuleið hennar, að hún velji m ___
vinstri akrein á hringtorginu? I_11_I
Á leiÖ frá 4 til 4a.
Já Nei
4, 1 Hefur bUl Katrínar forgang fyrir Y bUnum?
4, 2 Nú komum við að gildru á kortinu. Framundan
er merki, sem ekki má vera þama, miðað við
aðrar merkingar. Er það:
a) Aðalbrautarmerkið?
b) Timatakmarkað stöðuleyfi?
4, 3 MáKatrínleggjaökutækifyrirframanháhý8Íð?
4, 4 Hvor á forgang:
a) Gangandi maðurinn sem stigið hefur út á
gangbrautina?
b) Katrín sem er að beygja til hægri?
4, 5 Á Katrín að stöðva bUinn:
a) Vinstra megin í einstefnugötunni?
b) Hægra megin í einstefnugötunni?
□ □
BB
7, 1 Er biðskyldumerkið:
a) Aðvörunarmerki?
b) Bannmerki?
7, 2 Hvora akreinina ætti Katrín að velja, miðað við
leið hennar um hringtorgið:
a) Hægri akrein?
b) Vinstri akrein?
7, 3 Hvaða greinar umferðarlaga væri gott að hafa í
huga þegar ekið er út úr hringtorgi og Z bíllinn
er á hægri akrein:
a) 26. gr. og 37. gr.?
b) 4. gr. og 28. gr.?
BB
BB
Athugiö að svara ávallt öllum liöum spurninganna.
NAFN t'ATTTAKANDA
SlMI
SVÖRIN ÁTTUAÐ SENDA Samvinnu-
tryggingum fyrir 15. mars n.k. í umslagi árituðu:
Samvinnutryggingar g.t. Ármúla 3, Reykjavík
(æfing í umferðarreglum)
Verðlaunasamkeppnin: Fyigjum reglum, forðumst slys.
Z SV\1 VI\\lTKY(iGI\(iAR GT
ÁRMÚLA3 SlMI 38500
.1 i.