Morgunblaðið - 03.03.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977
37
félk í
fréttum
Ödipus fœrður
í nútímabúning
+ Flestir kannast vid hina Irægu grísku goðsögn um Odipus, sem
gerðist ástmaður móður sinnar án þess að vita hver hún var. Það
hafa verið gerðar bæði kvikmyndir og leikrit um Ödipus og nú
hefur kvikmyndafélag I Kanada gert kvikmynd þar sem efnis-
þráðurinn er svipaður en aðeins færður í nútímabúning. Aðalhlut-
verkið leikur Sophia Loren. Myndin hefst er maður hennar kemur
heim úr fangelsi og kemst að því að kona hans hefur nýlega alið
barn. Hann veit að hann getur ekki verið faðir barnsins og f reiði
sinni snýr hann sér til húsbónda sfns, maffuforingjans, Guðföður-
ins og biður hann um hjálp. Hann lætur ræna drengnum og segja
Angelu að hann sé dáinn. t örvæntingu sinni segir Angela lögregl-
unni frá þvf að maður hennar sé í tygjum við mafíuforingjann og
hann er settur I fangelsi. 20 ár líða og þá hittir Angela unga
manninn Jean. Þau laðast hvort að öðru og komast brátt að raun um
að þau eru ástfangin. Og sagan endurtekur sig. Eiginmaðurinn
kemur heim úr fangelsinu. Það er maffuforinginn sem hefur leyst
hann út til að fullkomna hefndina fyrir að Angela sagði lögreglunni
frá sambandi hans við mafíuna. Það verða átök og bæði Angela og
maður hennar láta Iffið. En Jean heldur Iffi og fær aldrei að vita að
það var móðir hans sem hann lagði ást á.
+ IIANN heitir Kristian
Hvidt dr. phil. og er bóka- og
skjalavörður á bókasafni
danska þingsins. Hann ber
ábyrgð á hinum 120.000 bók-
um safnsins ásamt óteljandi
skjölum og á mörgum þeirra
stendur þessi málsgrein „má
ekki birta opinberlega fyrr en
eftir 50 ár“. Kristian Hvidt
segir að skjölum þeim er bera
þennan stimpil fari fækkandi.
Fjölmiðlarnir eru ágengir og
það verður æ erfiðara fyrir
hina 179 meðlimi þingsins að
geyma leyndarmálin innan
veggja þess. Eitt af leyndar-
málunum sem gerð verðaópin-
ber á þessu ári er öll hin
stjórnmálalega óvissa sem
rfkti í sambandi við hernám
Danmerkur 9. aprfl 1940. Allt-
af eru þó einhverjar undan-
þágur veittar á ári hverju og
eru það helst sagnfræðingar
sem þær undanþágur fá.
Hann gœtir
leyndarmála
Danmerkur
+ Italska lögreglan hefur
fengið nýtt vopn f hendur,
sem hún notar nú óspart f
baráttunni við ofbeldis-
menn þar f landi. Þetta nýja
vopn er borði alsettur nögl-
um og er hann notaður sem
vegartálmi f stað grinda og
annarra þungra og fvrir-
ferðamikilla hluta sem áður
tfðkuðust. — Þetta nýja
vopn lögreglunnar hefur
reynzt vel að sögn — aðal-
kostur þess er að lögreglan
getur nú haft þetta f öllum
bifreiðum sfnum og er það
þvf ávallt tiltækt þegar á
þarf að halda. Hér sjáum við
lögregluna að störfum með
nýja vopnið.
ÞAÐ SEM ÞÚ ÆTTIR AÐ VITA UM
COMBI-CAMP 2000:
£ Mest seldi tjaldvagn á norðurlöndum.
0 Tekur aðeins 15 sek. að tjalda. 2 nýjar
gerðir at tjöldum.
^ Svefnpláss fyrir 2 fullorðna og 3 börn.
% Möguleikará 1 1 ferm viðbótartjaldi
0 Sérstaklega styrktur undirvagn fyrir ísl. aðstæður.
0 Okkar landskunna varahluta- og viðgerðarþjónusta.
0 Combi-Camp er stórkostlegur ferðafélagi.
KOMIÐ! SKOÐIÐ! SANNFÆRIST!
BENCO,
Bolholti 4,
Reykjavik. Sími 91 — 21945.
SJÓN ERSÖGU RÍKARI.