Morgunblaðið - 03.03.1977, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTÚDAGUR 3. MARZ 1977
41
rs
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
^UIdMHSLMMJLiLl
umimarviiiMvi-
Ég er hreint ekki frá því að
bjórinn gæti bætt um betur og
borað gat á núverandi vinmenn-
ingu. Nú þykir mér bjór ekki
góður, hitt veit ég, að mörgu ágæt-
isfólki finnst hann hreinasta sæl-
gæti.
Rithöfundar og skáld, sem bera
þann hæfileika eða kvöð að vilja
yfirskyggja fleira enn sinn eigin
skjólstæðing eru almennt víðsýnt
og jákvætt fólk, opið fyrir öllu,
líkt og þeir stjórnmálamenn og
aðrir leiðtogar sem eiga sér hug-
sjónir. — Og fátt er það í mörgum
tilviljunarglæpum mannanna,
sem ekki er hægt að finna orsök
eða afsökun fyrir, sé grannt skoð-
að. Eitt er það samt, sem ég á
mjög erfitt með að finna afsökun
fyrir og það er skoðanaglæpurinn
— Að varna öðrum þess, sem
mann langar ekki sjálfan í, eða
þvinga skoðunum sínum upp á
aðra — enda finnst mér fátt leið-
inlegra í útvarpinu en saga eða
erindi eftir sjálfskipaða frelsara.
Þú átt lað trúa á Guð — eða —
þú átt ekki að drekka brennivín.
Svona illa innpakkaður boð-
skapur, sem í sjálfu sér er ágætur,
gerir það að verkum, að hlustand-
inn verður aftur krakki, sem sleg-
ið er á fingurnar á — USS, ekki
snerta! Eða þvílík lífsreynsla er
það ekki einum sómakærum lág-
launamanni að safnast eins og
rolla í rétt við áfengisútsölu ríkis-
ins þetta einu sinni eða tvisvar í
mánuði, þegar hann hefur loksins
dregið saman fyrir flösku af léttu
vini eða pela af sterkara, til tíma-
bundinnar huggunar í leiðinlegu
umhverfi eða einkalífi — og
þakka samt máttarvöldunum fyr-
ir að hafa þó náð í tæka tíð fyrir
eina af 15 prósent hækkununum
sem skella á ársfjórðungslega,
meðan kaupgjaldið eða trygging-
arnar hækka ekki nema einu
sinni á ári, og þá um 8—10
prósent!
Arið 1975 fóru leikarar og söng-
kór Þjóðleikhússins í leikför til
Kanada, og allt til Seattle Banda-
ríkjamegin. A allri þessari vega-
lengd borg úr borg sá maður
hvorki fulla foreldra eða ung-
iinga. Þó var vínbar á flestum
heimilum og vínkjörbúðir á götu-
hornum. Maður gekk bara að
hillunum, eftir að hafa verið
boðið góðan daginn af kurteisu
afgreiðslufólki, og þeir sem það
vildu völdu sér í kokkteilinn eins
og aðrir efni i plokkfisk hér
heima.
En það er fleira en pukrið með
vín og bjór, sem kallar á lögbrot á
Islandi. Reykjavík er líka eina
borgin, sem selur allt til handa
búrfuglinum frá vöggu til grafar
— nema fuglinn sjálfur fæst ekki
innfluttur. Þessi gleðigjafi, söng-
fuglinn, sem sezt frjáls og
hamingjusamur að matborðinu
eins og mannfólkið á heimilinu,
ku að áliti yfirvalda vera eins
hættulegur og bjórinn. Það er nú
meira hvað landsfeðurnir bera
velferð okkar fyrir brjósti — sem
alla daga öndum að okkur fýlunni
úr bílrössunum, eða þökkum
okkar sæla fyrir að komast lifandi
heim af bingó eða félagsvist, eftir
keðjureykingar tillitslauss lýðs í
loftræstingalausum samkomuhús-
um — Hoj bara!
£ Skemmtana-
skortur
Þá langar mig að fara nokkrum
orðum um annars konar lögbann
á valfrelsi fólks, og það er
skemmtanaskortur þeirra sem
eru á aldursskeiðinu 16 ára til
tvítugs — á því skeiði lífsins, sem
umbrotin eru mest í líffærum og
sálarlífi unglingsins, og hann er
einna ómóttækilegastur fyrir
ruggustólinn eftir allan skyldu-
lesturinn i skólunum. Hann getur
ekkert farið til að dansa — Hann
er of gamall fyrir Tónabæ og of
ungur til að komast inn í hin
danshúsin — og hér er ekkert
Tivolí á trukkum, sem fer borg úr
bæ til skemmtunar ungum og
gömlum, nema til komi eitt happ-
drættið í viðbót við þau þrjú sem
fyrir eru — Háskólans, S.Í.B.S. og
Das-æskulýðshappdrættið.
Mikil afturför er þetta frá eftir-
stríðsárunum, þegar við, þetta 13,
14, 15 eða 16 ára i jitterbug-
grúppunum með Pétur rakara í
broddi fylkingar, dönsuðum i
Gúttó, Iðnó, Listamanna-
skálanum, Hótel Borg, Tjarnar-
kaffi, Breiðfirðingabúð eða
Alþýðuhúskjallaranum, á
balltimanum, sem tíðkaðist þá —
frá klukkan 10 að kvöldi til 3 um
nóttina. Við fengum að dansa og
dansa nægju okkar. Eftir þá útrás
hefði það verið skrýtinn gaur,
sem haft hefði getu eða löngun til
að kasta grjóti í rúðu eða sveigja
niður símastaura.
Ef meira væri gert af því en nú
er að virða þarfir þeirra heil-
brigðu sem flestar ef ekki allar
eru tímabundnar, eins og farið er
að virða þarfir þroskaheftra, væri
Reykjavík hin snotrasta borg með
litríkt mannlíf.
Guðrún Jakobsen."
Þessir hringdu . . .
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
% Á hann að vera
ókeypis?
Guðrún Jóhannsdóttir:
— Ég vil koma á framfæri
þakklæti til Hrafns Gunnlaugs-
sonar fyrir skeleggan málflutning
með bjórnum i sjónvarpsþættin-
um. Þetta var góður
málflutningur hjá honum og ég er
ánægð með hann. Annað langar
mig til að nefna í leiðinni en það
er að ég er hissa á þessum
spurningum um að allt verði hér
fullt af börnum, sem gera ekki
annað en þamba bjór og verði
blindfull. Heldur það fólk sem
þetta segir að bjórinn verði
gefins? Eða hafa börnin kannski
nóg af peningum? En ef hann
verður gefins þá skal ég verða
fyrsta manneskja tii að bera mig
eftir honum — ég vil bara fá að
vita hvar það verður. —
Og önnur hringing um bjór-
málið:
0 Enginn sóða-
skapur af
bjórkrám.
Örn Hermannsson:
— Ég vil bara mötmæla þessu
með bjórkrárnar, það fylgir þeim
enginn sóðaskapur. Svo er
kannski með hafnarbjórkrár
erlendis þar sem koma sjómenn
frá öllum heimshornum og ganga
ekki alltaf um eins og ætti að
gera, en flestum bjórkrám
erlendis fylgir enginn sóða-
skapur. Mér finnst ekki ná
nokkurri átt að það eigi að skipa
manni fyrir um hvað eigi að borða
og hverju skuli klæðast, maður
verður að fá að ráða einhverju
sjálfur. Ég styð Sólnes, bæði í
Kröflu- og bjórmálinu.
Á alþjóðlega skákmótinu í Hast-
ings um síðustu áramót kom þessi
staða upp í skák Smyslovs, sem
reyndar er nú staddur hér á landi
sem aðstoðarmaður Spasskys, ogr
Kraidmans, tsrael. Smyslov, sem
hefur svart og á leik, hafði átt f
vök að verjast framan af skákinni
en fann nú snjalla leið til að gera
út um taflið:
30.. . Dxf3! (Auðvitað ekki 30...
Dxa5 31. Rh6+! og hvítur vinnur)
31. exf3 Hxa5 32. Rd4 b2 33. Kg2
Hal 34. Df5 Rd6 35. Dd3 Hxbl +
og hvítur gafst upp þvf að eftir 36.
Dxbl Rc4 á hann enga vörn við
37.. . Ra3. Hinn ungi Sovétmaður
Oleg Romanishin sigraði með yfir-
burðum I Hastings, hann hlaut
11M vinning af 15 mögulegum.
HÖGNI HREKKVÍSI
rir alla
Úrvals kálfakjöt:
Kálfalæri ........ 540 kr. kg.
Kálfahryggir ......430 kr. kg.
Kálfakótilettur .. 545 kr. kg.
Folaldakjöt:
Saltað folaldakjöt .... 395 kr. kg
Reykt folaldakjöt 495 kr. kg
Folaldabuff 1350 kr. kg
Folaldagullasch 1230 kr. kg
1/1 reyktir folaldafra mpartar 390 kr. kg
Vi folaldaskrokkur
í frystikistuna 450 kr. kg
Nautakjöt:
Nautafillet mörbrá ..... 1850 kr. kg.
Nautagullasch .......... 1330 kr. kg.
Nautasnitchel ........ 1450 kr. kg.
Nauta roastbeef ........ 1380 kr. kg.
Nauta grill og bógsteik . 730 kr. kg.
Nautahamborgari ..... 50 kr. stk.
Nautahakk ............... 770 kr. kg.
Nautahakk 10 kg. pakka .. 690 kr. kg.
V2 naut í frystikistuna . 657 kr. kg.
Hakkaðkjöt:
Kindahakk ............... 685 kr. kg.
Kálfahakk ............... 640 kr. kg.
Saltkjötshakk ........... 685 kr. kg.
Nautahakk ............... 770 kr. kg.
Nautahamborgari ......50 kr. stk.
Úrvalssúrmatur:
Allt árið seljum við okkar Ijúffenga súrmat:
Sviðasulta — Svfnasulta — Hrútspungar —
Lundabaggi — Hvalur — Bringur — Hákarl
— Slátur — Lifrapylsa — Blóðmör.
Sér-tilboð:
Útb. hangilæri 1590 kr. kg.
Útb. hangiframpartur 1390 kr. kg.
Saltaðar rúllupylsur 700 kr. kg.
Reyktar rúllupylsur 700 kr. kg.
Bacon síður 1/2, 1400 kr. kg.
Ath.:
Opið til kl. 7 föstudaga og til hádegis
laugardaga og svo er Mjólkurmiðstöðin í
sama húsi og þar er opið á laugardögum
líka. Þar hefur stóraukist úrval af kökum
og brauðum, enda frá einum bezta
bakara borgarinnar.
DSD^TTD^QiDSTrfSXDaRÍ]
Laugalæk 2. REVKJAVIK, simi 3 5o 2o