Morgunblaðið - 03.03.1977, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977
JANUSZ VERÐUR
Gengið frá ráðninguhans í gær
1 GÆR var endanlega gengið frá
þvf I Austurrfki að Janusz
Cerwinski mun búa fslenzka
handknattleikslandsliðið undir
A-heimsmeistarakeppnina I Dan-
mörku næsta vetur, svo fremi sem
liðið kemst f þá keppni, en úr þvf
verður skorið f kvöld er tslend-
ingar mæta Hollendingum f Linz
I Austurrfki. Íþróttayfirvöld f
Póllandi munu hafa gefið sam-
þykki sitt fyrir þvf að Janusz
héldi áfram starfi sfnu með
fslenzka landsliðið, og búið er að
ganga frá þvf að hann fær leyfi
frá háskólanum er hann kennir
við.
Gerð hefur verið lausleg áætlun
um undirbúning íslenzka liðsins
fyrir keppnina í Danmörku 1978.
Mun Janusz koma til islands í maf
og verða hér i nokkra daga við að
skipuleggja starfið. Siðan er
ætlunin að Janusz komi í ágúst og
verði í þrjár vikur eða mánuð og
Ármenningarnir Hörður Harðarson og Pétur Ingólfsson sækja að vörn
Keflavfkur f leiknum f fyrrakvöld.
Ármenningar settu markamet
ÁRMANN vann stórsigur, 46—14,
yfir afar slöku liði ÍBK f 2. deild
íslandsmótsins í handknattleik á
þriðjudagskvöldið og má mikið
vera ef það er ekki markamet.
Þrátt fyrir þennan mikia mun er
alls ekki hægt að segja að leikur-
inn hafi verið skemmtilegur, eða
vel leikinn af hálfu Ármenninga,
sem gerðu sig seka um margar
slæmar villur og oft á tiðum virt-
ist sem þeir ætluðu að gera mörg
mörk í hverri sókn. Hraðaupp-
hlaup liðsins mistókust æði oft,
þrátt fyrir að fátt væri um varnir
hjá Keflvikingunum, en Ármenn-
Evrópuleikir
t GÆRKVÖLDI fóru fram nokkr-
ir leikir f Evrópubikarkeppni
félagsliða i knattspyrnu og urðu
úrslit þeirra þessi:
Evrópubikarkeppni meistaraliða:
Bayern MUnchen (V-Þýzkaland)
— Dynamo Kiev (Sovétrikin)
1— 0 Borussia Mönehangl. (V.-
Þýzkal.) — Brugge (Belgíu)
2— 2.
Evrópubikarkeppni bikarhafa:
Anderlecht (Belgiu) —
Southampton (Englandi) 2—0
MTK Budapest (Ungverjalandi)
— Hamburger SV (V.-Þýzkal.)
1—1 Slask (Póllandi) — Napoli
(Ítalíu 0—0 Levski Spartak
(Búlgariu) — Atletico Madrid
(Spáni 2—1
UEFA-bikarkeppnin:
FC Magdeburg (A-Þýzkalandi) —
Juventus (Italíu) 1—3 Athletico
Bilbao (Spáni) — Barcelona
(Spáni) 2—1.
ingar fengu líklega um 30 hraða-
upphlaup i leiknum, það er því
næst f hvert skipti sem Keflvík-
ingarnir töpuðu knettinum og það
var æði oft og hefur sóknarnýting
þeirra líklega verið eitthvað f
kringum 20%.
Þegar litið er á gang leiksins má
sjá tölur eins og 6—0, 14—2 og
18—4 í leikhléi. í seinni hálfleik
skánaði svo leikur Keflvfkinga
nokkuð, enda varla annað mögu-
legt og tókst þeim að skora 10
mörk gegn 28 mörkum Ármanns.
Það er erfitt að leggja mat á
Ármannsliðið í þessum leik, til
þess var mótstaða Keflvíkinga
alltof lítil. Ármenningarnir gátu
gert það sem þeir vildu og hefðu
þeir leikið skynsamlegar er ekki
vafi á þvi að þeir hefðu náð að
skora 50 mörk ef ekki fleiri.
Af leikmönnum Ármanns bar
mest á þeim Herði Harðarsyni,
sem gerði 13 mörk, og Þráni Ás-
mundssyni, sem gerði 10. Allir
leikmenn liðsins gerðu mörk, og
dreifðust þau þannig: Pétur Ing-
ólfsson 6, Björn Jóhannsson 4,
Haukur Marteinsson og Jón Viðar
Sigurðsson 3 hvor, Öskar Ás-
mundsson og Friðrik Jóhannsson
2 hvor, Einar Þórhallsson 1.
Leikur Keflvíkinga var afar
slakur og varla heil brú i honum,
enda er liðið á hraðri leið niður i
3. deild, þar sem það á greinilega
heima. Skásti maður þeirra var
Magnús Garðarsson, en mörkin
skoruðu: Sævar Halldórsson 4,
Magnús Garðarsson og Einar
Leifsson 3 hvor, Rúnar Georgsson
ogBjarni Sigurðsson 1 hvor.
Maður leiksins: Hörður Harðar-
son.
Ungmennafélag Grindavíkur
óskar að ráða knattspyrnuþjálfara n.k. sumar.
Upplýsingar í síma 92-8390 og 8090, milli kl.
1 og 5 e.h.
ÁFRAM
sfðan leggur hann til að fyrri
hluti tslandsmótsins verði leikinn
í september og byrjun október.
Stefnt mun sfðan að því að fara
í tvö stór mót fyrir áramót.
Annars vegar keppni á Spáni sem
hefst um miðjan október. 1
keppni þessari munu taka þátt
Spánn, Sovétríkin, Rúmenía,.
Júgóslavar og þá íslendingar, ef
af verður. Hin keppnin er
Norðurlandamótið sem fram fer f
Reykjavfk f október. Ennfremur
verður reynt að komast i Tiblisi-
keppnina f Sovétrikjunum i
byrjun desember og leika þá jafn-
framt tvo landsleiki við Vestur-
Þjóðverja ytra. Þá er og ætlunin
að fá landsleiki i Reykjavik f
janúar. SS.
Böðvar Bjarnason frá Húsavfk. Sigurvegari í alpatví-
keppni karla á punktamótinu á Húsavfk. Ljósm. Björn
St. Haraldsson.
Jórunn þrefaldur sigurvegari
á punktamótinu á Húsavík
UM SÍÐUSTU helgi fór fram
punktamót fullorðinna á Húsavfk
og var mót þetta glað 50 ára af-
mæli tþrótafélagsins Völsungs.
Veður var mjög hagstætt til
keppni báða keppnisdagana, hæg-
viðri og hiti um frostmark. Færi
var hins vegar nokkuð hart, en
mýktist þegar leið á keppnina
báða dagana.
Um skemmtilega keppni var að
ræða, einkum í karlagreinunum.
Haukur Jóhannsson frá Akureyri
bar sigur úr býtum í svigkeppn-
inni, en í stórsviginu varð Hafþór
Júlíusson frá ísafirði sigurvegari.
Það var þó hvorugur þeirra félaga
sem hreppti sigurinn í tvíkeppn-
inni, heldur ungur Húsvíkingur,
Böðvar Bjarnason að nafni.
í kvennakeppninni varð Jórunn
Viggósdóttir úr Reykjavík örugg-
ur sigurvegari bæði f svigi og stór-
svigi, en sú stúlka sem harðast
hefur barist við Jórunni og oft
haft betur, Steinunn Sæmunds-
dóttir, var ekki meðal keppenda.
Dvelur Steinunn nú ytra og mun
taka þátt i mörgum skfðamótum í
Evrópu á næstunni.
Helztu úrslit í mótinu á Húsa-
vík urðu þessi:
Svig karla:
Haukur Jóhannsson, A 94.00
Tómas Leifsson A 96,81
Böðvar Bjarnason, H 97,22
Fyrri braut var 800 metra löng,
fallhæð 180 metrar og hlið 56.
Seinni braut var 850 metrar, fall-
hæð 180 metrar og hlið 57.
Svig kvenna:
Jórunn Viggósdóttir, R 94,02
Nína Helgadóttir R 97,41
Kristin Ulfsdóttir, í 97,73
Báðar brautir voru 750 metrar,
fallhæð 170 metrar og hlið 46.
Stórsvig karla:
Hafþór Júlfusson, i 168,58
Árni Óðinsson, A 169,87
Bjarni Þórðarson, R 174,87
Fyrri braut var 1250 metrar,
fallhæð 320 metrar og hlið 60.
Seinni braut var 1250 metrar, fall-
hæð 320 metrar og hlið 57.
Stórsvig kvenna:
Jórunn Viggósdóttir, R 99,30
Sigurlaug Vilhelmsd. A 102,41
Kristin Ulfsdóttir, í 103,94
Braut var 1100 metrar, fallhæð
300 metrar og hlið 54.
Alpatvíkeppni karla:
Böðvar Bjarnason, H 50,76
Guðjón I. Sverriss. R 74,40
Árni Jónsson, H 174,41
Alpatvfkeppni kvenna:
Jórunn Viggósdóttir, R 0,0
Kristin Ulfsdóttir, í 49,02
Nína Helgadóttir, R 65,22
MANCHESTER CITY
ER ENN Á TOPPNUM
Á þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld fóru fram nokkrir leikir í
ensku knattspyrnunni, og bar þar
helzt til tíðinda, að Manchester
City sigraði Norwich á heimavelli
sfnum og heldur því stöðu sinni
við toppinn f 1. deildar keppninni.
Sigur þennan vann Manchester
City þó ekki fyrirhafnarlaust, þar
sem Norwich átti allgóða sóknar-
spretti og skapaði hættu við mark
Manchesterliðsins.
Manchester skoraði bæði mörk
sfn úr vftaspyrnum og var þar
Dennis Tueart sem tók þær. Varð
hann að þrítaka fyrri vítaspyrn-
una, þar sem dómarinn var ekki
ánægður með hvernig að henni
var staðið.
Þá sigraði Everton i leik sinum
við Arsenal 2—1, og komi þau
úrslit nokkuð á óvart. Stigin tvö
koma sér afskaplega vel fyrir Ev-
erton í hinni hörðu botnbaráttu
liðsins. Mörkin f leik þessum skor-
uðu þeir Bob Latchford og David
Jones fyrir Everton en Malcolm
MaxDonald fyrir Arsenal.
Þá léku einnig West Bromwich
Albion og Birmingham City og
lauk þeim leik með sigri W.B.A
2—1. Önnur úrslit urðu sem hér
segir:
Framhald á bls. 24
ÞOLUM 6 MARKA TAP
SVO fremi sem Austur-
Þjóðverjar vinna Spán f leik
liðanna I B-
heimsmeistarakeppninni f
handknattleik I Austurríki f
kvöld, nægir fsiendingum jafn-
tefli f leik sfnum við Hollend-
inga til þess að hreppa annað
sætið f riðlinum, og þar með
rétt til þess að hreppa þriðja
sætið f keppninni. Vinni Spán-
verjar hins vegar Austur-
Þjóðverja, sem telja verður
ólfklegt, myndu þeir hljóta
annað sætið f riðlinum, en
tslendingar væntanlega þriðja,
og vinni fslendingar Hollend-
inga f leiknum annað kvöld og
Austur-Þjóðverjar Spánverja
hafa fslendingar örugglega
tryggt sér annað sætið f riðlin-
um.
Það eru þvf enn ýmsir mögu-
leikar fyrir hendi, en alla vega
ætti að vera óhætt að bóka að
íslendingar hafa tryggt sér eitt
af sex efstu sætum keppninnar.
Þurfa HoIIendinar að vinna
leikinn i kvöld með 6 marka
mun til þess að skjóta íslend-
ingum niður í neðsta sætið í
riðlinum.
Sem kunnugt er gilda úrslit
úr undankeppninni f milli-
riðlinum, með þeirri undan-
tekningu að leikur við það land
sem neðst var í undankeppn-
inni er ekki talinn með. Því er
staðan í milliriðlinum í Linz
þessi:
A-Þýzkaland 2 2 0 0 48—33 4
Spánn 2 1 0 1 42—37 2
ísland 2 1 0 2 41—44 2
Holland 2 0 0 2 29—46 0
f Vfn
Urslit leikja f milliriðlinum í
Vfn í fyrrakvöld urðu þau að
Tékkóslóvakía sigraði Frakk-
land 16—12 f tiltölulega jöfnun
leik, og Svfar sigruðu svo
Búlgari næsta auðveldlega
25—17. I kvöld leika i Vin Svíar
og Tékkar og Búlgarar og
Frakkar. Það lið sem sigrar f
fyrrnefnda leiknum verður
sigurvegari f riðlinum, en hin
tvö liðin keppa um þriðja sætið.
Staðan f riðlinam i Vfn er þessi:
Svíþjóð 2 2 0 0 50—34 4
Tékkó.slv. 2 2 0 0 36—26 4
Frakkland 2 0 0 2 29—41 0
Búlgaría 2 0 0 2 31—45 0
Mörkin
Markhæstur íslendinganna f
keppninni í Austurriki er Axel
Axelsson sem skorað hefur
samtals 15 mörk. Viðar Sfmon-
arson hefur skorað 13 mörk,
þeir Geir Hallsteinsson, Jón H.
Karlsson og Ólafur H. Jónsson
10 mörk hver, Björgvin Björg-
vinsson hefur skorað 4, Þor-
björn Guðmundsson 3 og þeir
Ágúst Svavarsson og Viggó Sig-
urðsson 1 mark hvor.