Morgunblaðið - 30.03.1977, Blaðsíða 11
Þorskinum skipað
upp úr Júlfusi
Geirmundssyni
REYTINGS-
AFLI EN VON
UM GÓÐA VER-
TÍÐ NÚ LÍTIL
Ólafsvfk 28. marz.
REYTINGSAFLI hefur verið í
net hér að undanförnu, en nú
hefur tregðazt aftur. Enn eru
menn ekki úrkula vonar um að
afli glæðist svo að um muni en
llkurnar á þvi minnka þó með
hverjum degi sem líður því
blómi vertíðanna hér við
Breiðafjörð hefur venjulega
verið síðari hluti marzmánaðar
og fyrstu dagar I aprfl. Gæftir
hafa verið góðar og sá fiskur
sem á land berst er því góður til
vinnslu. — Heigí.
VANTAR FÓLK
í FISKVINNU
Siglufirði, 28. marz.
STÁLVlK landaði í dag 185
tonnum af þorski eftir 10 daga
veiðiferð. Aflann fékk togarinn
á Halanum og einungis i botn-
vörpu. Óhemju mikil vinna er
nú I Siglufirði og vantar nauð-
synlega fleira fólk í fiskvinnu.
Er þetta ánægjuleg breyting,
þvi ekki eru mörg ár sfðan hér
var mikið atvinnuleysi. Blind-
bylur er hér I dag. — m-i-
MJÖGTREGUR
AFLI í NET
Akranes 25. marz.
Skuttogararnir Haraldur
Böðvarsson og Krossvik voru
hér f höfn í gær og í fyrradag.
Haraldur með 80 tonn og Kross-
vfk með 130 lestir af blönd-
uðum. Eru togararnir báðir
farnir ^ veiðar aftur. Afli I
þorskanet hefur verið mjög
tregur að undanförnu. Loðnu-
aflinn er nú orðinn 23.354 lestir
og af því voru 935 lestir frystar
fyrir Japansmarkað. —iúiius
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1977
11
Hér er fermingargjöfin
Wfehron útvarpsklukkan
Svissnesk völundarsmíð
Hér er fermingargjöfin, sem uppfyllir
kröfur gefandans og óskir þiggjandans.
Sambyggt útvarpstæki og vekjaraklukka,
sem alltaf gengur hárrétt.
Útvarpstækiö nær þremur bylgjum,
langbylgju, miöbylgju og FM-bylgju, og
viö þaö er hægt aö tengja hlustunartæki.
Klukkan sjálf er mikil völundarsmíö, ná-
kvæm í gangi meö stórum, lýsandi tölum
og sýnir jafnvel sekúndur.
Vekjarann má stilla á tvo vegu, annaö
hvort fer útvarpiö sjálfkrafa í gang eöa
venjulegur sónn. Fyrir þá, sem eiga erfitt
meö að vakna má stilla tækið þannig, aö
sónninn endurtaki sig aftur og aftur.
Þeir, sem vilja sofna út frá músík,
geta stillt tækiö þannig, aö útvarpiö slökk-
vi sjálfkrafa á sér innan klukkutíma (0-60
mín.) og fari siöan í gang morguninn eftir
á tilsettum tíma.
Ef rafmagnslaust verður, er vararaf-
hlaöa í tækinu, sem tekur sjálfkrafa við
og tryggir vakningu á réttum tíma.
Weltron útvarpsklukkan fæst í hvítu
og grænu og kostar kr. 36.500. Auk þess er
hægt aö fá hana meö greiðsluskilmálum.
eltror?
ÚTVARPSKLUKKAN
fermingargjöfin sem vekur ánægju.
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150.
LAMYpenni
er vel valin íermingargjöf