Morgunblaðið - 30.03.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1977
15
Peter Finch
sjónvarpað um gervihnetti.
„Allir menn forsetans" hlaut
einnig verðlaun fyrir bezta
hljóðupptöku og listræna stjórn
og þar að auki fyrir bezta kvik-
myndahandritið. Verðlaun fyrir
beztu leikstjórn hlaut John
Avildsen fyrir Rocky. Verðlaun
fyrir bezta búninga hlaut
Casanova, mynd Fredricos
Fellinis, og Rocky hlaut verð-
laun fyrir beztu klippingu.
Barbra Streisand fékk Óskars-
verðlaun fyrir bezta sönglag,
Evergreen, sem hún samdi fyrir
kvikmynd sfna, A star is born.
Þetta var í 49. skipti, sem
Óskarsverðlaununum var út-
hlutað Mesta athygli við
athöfnina vakti, er Muhammed
Ali, heimsmeistarinn í hnefa-
leikum, sakaði höfunda Rockys
um að hafa stolið frá sér hug-
myndinni um kvikmynd úr
hnefaleikaheiminum.
Dunaway
og Finch
beztu
leikarar
ERLENT
Japanir undir-
búa útf ærslu
Tókló, 29. marz. Reuter.
STJÓRN Japans tilkynnti f dag,
að hún myndi á morgun leggja
fyrir þingið frumvarp um út-
færslu landhelgi Japans úr 3 mfl-
Grænlendingar
vilja 100 mílna
einkalögsögu
Godthaab, 29. marz. Reuter.
LANOSSTJÓRNIN á Grænlandi
tilkynnti ( dag, að Grænlendingar
sem fá heimastjórn innan 2ja ára,
myndu krefjast 100 mllna einka
fiskveiSilögsögu Var samþykkt á
vorfundi landsstjómarinnar a8
halda Grænlandi utan viS fisk-
veiSistefnu Efnahagsbandalags
Evrópu. þrátt fyrir aSild landsins,
sem hluti af Danmörku aS EBE.
um f 12 mflur og að frumvarp um
200 mflna efnahagslögsögu yrði
lagt fyrir þingið snemma á næsta
þingtfmabili, er ljóst væri orðið
hverjar niðurstöður yrðu á haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna sem hefst f maf nk.
Það var landbúnaðarráðherra
Japans, Zenko Zuzuki, sem skýrði
frá þessu eftir ríkisstjórnarfund í
dag. Aðgerðir Japansstjórnar
koma á tíma, er samningavið-
ræðurnar við Sovétríkin um gagn-
kvæm fiskveiðiréttindi eru komn-
ar í hnút. Sovétmenn sem færðu
sfna fiskveiðilögsögu út f 200 míl-
ur I. þessa mánaðar hafa krafist
þess af Japönum að sovézkir fiski-
menn fái að veiða upp að þriggja
milna landhelgi Japans gegn því
að japanskir fiskimenn fái að
veiða innan 200 mílna efnahags-
lögsögu Sovétríkjanna.
Amin bannar nýj
Ustu hártízkuna
. Nairóbí 29. marz NTB.
"JTVARPIÐ ' Uganda tilkynnti f
^ag, að Amin Ugandaforseti hefði
Sefið fyrirmæli um að þær konur
landinu, sem fléttuðu hár sitt
s^v. sfðustu tfzku, yrði teknar og
shoðaðar af herlögreglunni. Nýj-
®sta hártfzkan í A-Afríku er skv.
|réttum á þá leið, að konurnar
‘létta hárið f bylgjum yfir höfuðið
?8 margar nota svarta borða til að
aga áferðina.
Utvarpið segir, að Amin hafa
í Shpið til þessa ráðs eftir að hafa
fengið kvartanir frá nokkrum
eiginmönnum og eldri borgurum,
sem báru sig yfir verðinu á slfkri
hárgreiðslu, allt að 12000 fsl. kr.,
auk þess sem hárið væri eins og
sniglaþúfa, vond lykt fylgdi hár-
greiðslunni sem einnig gerði það
að verkum að konurnar misstu
kvenlega fegurð sína. í útvarpinu
sagði einnig, að konur f Úganda
væri kunnar af fegurð sinni um
allan heim og ættu ekki að láta
ánetjast af tízkufyrirbærum
heimsvaldasinna.
Umhorf;
Leiðrétting
Á UMHORFSSlÐU I gær fél)
niður kafli úr viðtalinu sem birt-
ist á sfðunni. Fer þessi lokakafli
hér á eftir:
Sú staðreynd blasir við okkur
að ríkiskerfið hefur sffellt verið
að aukast, þrátt fyrir, að almenn-
ingur stynji undan skattbyrðinni
sem hlýst af bákninu. Er einhvers
árangurs að vænta af þessu starfi
ungra sjálfstæðismanna, Friðrik?
„Ég tel að „Báknið burt“, sé eitt
besta framlag ungra manna I
viðleitni þeirra til að benda á leið-
ir f þvf skyni að draga saman
ríkisbúskapinn. Áhrifin koma
berlega I ljós f leiðaraskrifum
Morgunblaðsins og Tfmans og
skrifum eins frambjóðanda Al-
þýðuflokksins f Vfsi fyrir
skömmu. En f öllum þessum
greinum var fjallað um sam-
dráttarmálin. Þjóðviljinn hefur
að mestu leyti þagað um málið
enda kæra kommúnistar sig ekki
um að vekja athygli á frumkvæði
okkar í þessu máli.
Að baki hugmyndum okkar
liggur mikil vinna margra manna
sem hafa skoðað málið vandlega.
Þetta eru þvf ekki aðeins slagorð
og sleggjudómar.
Að undanförnu hefur skilning-
ur manna aukist á mikilvægi þess
að draga úr ríkisumsvifunum.
Foringjar vinstri flokkanna eru
meira að segja farnir að taka sér
slfkt f munn. Samdrátturinn f
ríkisbúskapnum snertir að sjálf-
sögðu kjarnann f sjálfstæðisstefn-
unni, sem leggur áherlsu á frelsi
og framtak einstaklingsins í stað
ríkisforsjár.
Ég er þvf sannfærður um að
þessi mál verða tekin til sérstakr-
ar umræðu á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins, sem haldinn
verður f maí næst komandi. Enn-
fremur vænti ég þess að ríkis-
stjórn og Alþingi hefjist handa
um raunhæfar aðgerðir í þessum
efnum.
Ekkert sam-
komulag um
Barentshaf
Moskvu 29. marz. NTB.
VIÐRÆÐUM Jens Evensens,
hafréttarmálaráðherra Nor-
egs, og Alexander Ishkovs,
sjávarútvegsráðherra Sovét-
rfkjanna, lauk f dag f Moskvu
án þess að samkomulag næðist
f deilum landanna um miðlinu
á Barentshafi. Talið er hugsan-
legt að nýjar viðræður hefjist f
næsta mánuði. Talsmenn
norsku sendinefndarinnar
hafa látið að þvf liggja að við-
ræðurnar hafi í gær og dag
verið nokkuð þvingaðar og
leiða getum að þvf að njósna-
málið á dögunum hafi haft sfn
áhrif svo og einnig úthlutun
friðarverðlauna Nóbels til
andófsmannsins Andrei
Sakarhovs 1975. Engu að siður
telja Norðmenn að viðræð-
urnar hafi verið gagnlegar og
að báðir aðilar hafi látið í ljós
vilja til að komast að sam-
komulagi.
áIa Timburverzlunin
Völundur hf.
KLAPPARSTIG 1, SIMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Völundar gluggar
vandaöir gluggar
Vandaðir gluggar eru eitt aðalatriðið í hverju
húsi og auka verðmæti þess og ánægju þeirra,
sem í húsinu búa. Timburverzlunin Völundur
hefur 70 ára reynslu í smíði glugga. I dag
leggjum við megináherslu á smíði Carda-
hverfiglugga svo og venjulegra glugga samkv.
hinum nýja íslenska staðli. Cardagluggar hafa
marga kosti umfram aðra. Auðvelt er að opna
þá og loka. Hægt er að snúa þeim við, ef hreinsa
þarf þá eða mála. öryggislæsingar geta fylgt.
Hljóðeinangrun uppfyllir ströngustu reglur.
Bæðí vatns- og vindþéttir í lokaðri stöðu. Þá er
einnig hægt að fá smíðaðar veggjaeiningar með
Cardagluggum í, sem síðan má raða saman. Þar
sem Cardagluggum verður ekki viðkomið mælum
við með gluggum smíðuðum samkv. hinum
nýja íslenska staðli, með falsi 20x58 mm. Alla
glugga er hægt að fá grunnaða eða tvímálaða.
Einnig getum við smíðað þá úr gagnvarinni
furu eða oregonfuru.
í sérstökum tilfellum smíðum við einnig glugga
eftir sérteikningum.