Morgunblaðið - 15.04.1977, Side 12

Morgunblaðið - 15.04.1977, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRlL 1977 Kaflar úr bók þingmanns- ins Nigel Fishers í FEBRÚARMÁNUÐI fyrir tveimur árum varð Margaret Thatcher formaður brezka íhaldsflokksins og þar með fyrsta konan, sem getur orðið forsætisráðherra Bret- lands. Útskúfun Edwards Heaths var að mörgu leyti þjáningarfull gjörð fyrir flokkinn. Smáatriði þess máls hafa aldrei verið skýrð að marki fyrr en nú. Þekktur þingmaður brezka íhaldsflokksins, Sir Nigel Fishers, sem hefur setið á þingi síðan 1950 og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í- þágu flokksins, hefur nú ritað bókina „Their Struggle for Power", sem kemur út síðar á þessu ári. Þar rekur hann stig af stigi aðdraganda þess, að Heath féll. Brezka blaðið The Sunday Tele- graph hefur birt útdrátt úr bókinni og verða þeir birtir í tveimur endursögðum og lauslega þýddum greinum. „í KOSNINGUNUM í október hafa neitt ráð til aðgerða gegn henni. 1974", segir Sir Nigel. ..varð lýðum Ijóst að leiðtoginn bar stóra ábyrgð á útreið flokksins Viðbrögð kjósenda hvarvetna voru þau hin sömu og ekki aðeins meðal íhaldamanna og þessi afstaða varð ekki hvað sízt til að hleypa af stað þessu leiðindamáli " í kjölfar þessa fylgdi tímabil samninga. bak- tjaldamakks. misskilnings. aðvarana til Heaths frá þeim sem nutu trausts hans og það sem höfundurinn kallar berum orðum „óþverrabrögð", sem voru höfð í frammi gagnvart Heath. Sir Niegel dregur ekkert undan og segir að „sum- ir stuðningsmenn Heaths hafi staðið ömurlega I stykkinu í máli hans". Þó að víða væri andúð í garð Heaths gætti þó þess einnig að í mörgum kjördæm- anna naut hann enn trausts og stuðn- ings Þó svo að íháldsflokkurinn hefði einnig beðið ósigur I kosningunum í febrúar árið 1974 hafði það ekki orðið til að koma neinni hreyfingu á stað í þá átt að skipt yrði um forystumann í flokknum ..Innan skuggaráðuneytisins var ekki jafn mikill einhugur". Sir Keith Joseph og Margaret Thatcher voru mjög gröm vegna vaxandi verðbólgu og sakir þess að þeim fannst íhaldsflokkurinn ekki Upphófust þvl alls konar viðræður. Hugmyndir voru settar fram er miðuðu að því að ráða bót á þessu Sir Nigel segir að Heath sameini I sér gáfnahroka og vantraust á sjálfum sér til að vinna hylli almennra kjós- enda. enda eigi hann erfitt með að blanda geði við ókunnuga og þyki lítt alþýðlegur I framkomu. Það stafi þó meira af því að hann finni þar til vanmáttar síns að geðjast fólki og hugnast því en að það stafi af gikks- hætti einum saman. Hann segir að þeir menn sem hafi kynnzt Heath og unnið með honum sé hann „langtum við- feldnari og hlýlegri manneskja en hann virðist á ytra borði". En hann bætir við: „Nánast allir sem ég átti tal við þá og fyrr, hafa lagt áherzlu á að hann sé og hafi alltaf verið gríðarlega metnaðar- gjarn " Þegar Heath var forsætisráðherra þótti stjórnun hans hörð og öllu haldið í föstum skorðum. Heath kunni sitt fag og hann vænti þess sama af öðrum. Sir Nigel segir hann mikinn og eldheit- an ættjarðarvin, ákveðinn mann og hugdjarfan." Þannig var staða foringjans í em- bætti sínu í október 1974 Sú stað- reynd blsir við að hann varð að hverfa Edward Heath Aðdragandinn að falli Fyrri grein úr forystuliðinu en menn hafa ekki vitað gjörla hvernig það bar að hönd- um. Sir Nigel segir að framkvæmda- nefndin hafi komið saman til fundar fjórum dögum eftir októberkosningarn- ar. Hafi verið formlegur tilgangur hennar að undirbúa þingflokkinn fyrir næsta þing Fundurinn hafði verið ákveðinn með mánaðar fyrirvara, eða löngu áður en nokkrar raddir komu upp um breytingar á forystu flokksins í kosningunum hafði Verkamanna- flokkurinn fengið 319 þingsæti, íhaldsflokkurinn 276, Frjálslyndi flokkurinn 13 Skozki þjóðernissinna- flokkurinn fékk 1 2 þingsæti I Skotlandi og tvö I Wales og Sambandsflokkur Ulsters vann 10 af 12 sætum Norður- írlands. Enda þótt formlegur meirihluti stjórnarinnar væri naumur var hann I framkvæmd venjulega milli 20 og 40 þingmenn. Heath hafði tekizt að koma I veg fyrir mikið fylgishrun, en spár I kosninga- baráttunni höfðu bent til að slíkt kynni að vera yfirvofandi Aftur á móti vakti það ugg I brjósti hjá mörgum. hvernig þingmenn skiptust eftir landshlutum og fannst íhaldsmönnum sem þeir væru að missa tökin á ýmsum svæðum sem áður höfðu verið hlynnt Ihalds- flokknum. Að kosningunum loknum fóru fljót- lega að heyrast raddir um að leiðtogi flokksins væri ábyrgur fyrir ósigrinum Enda hafði Heath aldrei tekizt, eins og ýmsum fyrirrennurum hans svo sem Churchill, Eden og Machmillan að öðl- ast persónulega hylli kjósenda Þó svo að þetta væri vitað og blasti auðvitað við hafði hann ekki orðið fyrir umtals- verðum árásum vegna þessa fyrr en Tveir eigenda 1 hinni nýju búð leiðbeina viðskiptamönnum daginn sem hún var opnuð. Kristján Sigurðsson t.v. og Heiðar Sigurðsson t.h. Nýjung í verzlunar- háttum á ísafirði FYRIR skömmu var opnuð á ísafirði ný verzlun, Ljónið. Eig- endur hennar gru fjórir, Kristján, Heiðar og Guðmundur Sigurðs- synir og faðir þeirra Sigurður Guðmundsson. Kristján Sigurðs- son sagði að verzlunin myndi kappkosta að hafa á boðstólum fjölbreyttar vörur, matvörur unn- ar kjötvörur og hreinlætisvörur, á sem lægstu verði og leggja áherzlu á afslátt ef verzlað væri í stærri einingum, en það héfur ekki tíðkast áður. Verzlunin verður opin daglega frá kl. 14 — 18 og til kl. 22 á föstudögum. Matvöruverzlunum hefur fækkað nokkuð á Isafirði á undanförnum árum og eru þær nú þrjár með tilkomu Ljónsins, en fyrir fáum árum milli 5 og sjö. íslenzk réttarnefnd efnir til happdrættis ÍSLENZK réttarvernd hefur hleypt af stokkunum happdrætti til a8 standa undir kostnaði vi8 starfsemi sfna, einkum rekstur lögfræSiþjónustu, sem félagiS veitir ókeypis é skrif- stofu sinni I MiSbæjarskólanum. Skrifstofan er opin é þriBjudögum og föstudögum kl. 16—19 og verSa þar seldir happdrættismi8ar, en dregiB verSur I þvf hinn 18. júnf n.k. í frétt frá félaginu segir, a8 fjöldi manna hafi notiS þeirrar lögfræSilegu þjón- ustu senrf veitt er é skrifstofunni en markmiS Réttarvemdar er a8 berjast fyrir mannréttindum einstaklinga og auknu réttlæti f framkvæmd stjóm- kerfis og réttarkerfis hér é landi, eins og segir f fréttinni. MeBal vinninga f happdrætti Réttarverndar er utanlandsferS eftir vali fyrir tvo a8 verSmæti 200 þús- und krónur og vöruúttektir fyrir aam- tals 200 þúsund krónur. System/34

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.