Morgunblaðið - 15.04.1977, Síða 22

Morgunblaðið - 15.04.1977, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. APRlL 19T7 STAÐAN Þannig var staðan þegar skákin fðr í bið eftir 41. leik. Ilvftt: Helgi Ólafsson. Svart: Jón L. Árnason. Hvítur lék biðleik. — Skákþingið Framhald af bls. 40 vinna til að öðlast titilinn. Þriðji er Ásgeir Þ. Árnason með 8 vinninga og fjórði Mar- geir Pétursson, sem hlaut 7 vinninga, en hann sigraði í bið- skákinni við Júlíus Friðjóns- son, en hún var tefld áfram í gærkvöldi. Þessir fjórir piltar, sem allir eru undir tvítugu, skipa landslið íslands í skák. — Spassky, Hort Framhald af bls. 40 á sama stað og tima eða klukk- an 17 siðdegis á Hótel Loft- leiðum.“ Eins og áður hefur komið fram, hafa báðir keppendur fullnýtt þá þrjá veikindadaga, sem þeir höfðu í einvíginu, og notaði Hort einn sinna daga til þess að hjálpa Spassky, þannig að hann næði sér vel eftir botniangauppskurðinn. Er það mál manna að Spassky sé þarna að launa greiðann með þvi að tilkynna sig veikan, því að öðrum kosti hefði Spassky verið lýstur sigurvegari i skák- inni ef Hort hefði ekki mætt til leiks i dag. — Björn Jónsson Framhald af bls. 40 kröfu um breytingu á útreikningi kaupgreiðsluvísitölunnar á þá lund, að liðurinn áfengi og tóbak yrði gjörsamlega tekinn þar út. Hann væri inni i K-visitölunni, en væri dreginn frá áður en útreikn- ingur verðlagsbóta færi fram, en nú vildu þeir alveg losna við hann. Gildandi kerfi raskar vægi verðhækkananna í vísitölunni. Þá kvað hann einnig ASÍ gera kröfu um að launaliður bóndans reikn- aðist með við útreikning verðlags- bóta. ,,Með þessu viljum við forð- ast að gap myndist milli kaup- greiðsluvísitölu og framfærslu- vísitölu, sem orðið hefur við gild- andi kerfi," sagði Björn Jónsson. Er Björn var spurður um undir- tektir vinnuveitenda við þessum kröfum Alþýðusambandsins sagði hann að þær hefðu verið litlar. Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Verkamannasambands ís- lands, sem var nærstaddur er við- talið við Björn fór fram, skaut hér inn i: ,,Þú ýkir ekki með því að segja þetta.“ Jón H. Bergs, formaður Vinnu- veitendasambands íslands, kvað ASÍ hafa lagt fram sameiginlegar sérkröfur sínar í 5 liðum. Hann kvað málin í raun hafa skýrzt við það, þar sem Wnnuveitendur gætu nú betur gert sér grein fyrir því, hvað samninganefndarmenn ASÍ teldu aðalatriði og hvað auka- atriði. Ætti þetta því að auðvelda að unnt verði að ræða aðaikaup- kröfuna — sagði Jón og bætfi því við að til þessa hefði stefna ASÍT þessum kjarasamningum verið heldur óljós og hann kvað þvi miður hinar óhemju háu sérkröf- ur aðildarfélaga ASÍ bera keim af þvi að félögin ætli sér með sér- kröfum að halda eða auka þann tekjumismun, sem verið hefur innan félaganna. Jón II. Bergs kvað kröfuna um vísitöluna og breytingar á út- reikningi verðlagsbóta í sterku samhengi við kaupbréytingar og því kvað hann óhægt um vik að ræða tilhögun verðlagsbóta áður en ljóst væri bver kauphækkun yrði. íír ASÍ kynnti sérkröfurnar 5, sem það gerir að sínum, gerðu vinnuveitendur kröfu um að fjall- að yrði einnig á breiðum grund- velli um málefni, er fram kæmu í sérkröfum allflestra aðildarfél- aga ASÍ og eru það kröfur um dagvinnutíma, tilhögun á greiðsl- um fyrir neyzlutima (kaffi- og matartima) og yfirvinnu. Enn- fremur um vaktafyrirkomulag og orlofsmálin í heild. Þá lögðu vinnuveitendur áherzlu á það í viðræðunum i gær að æskilegt væri að nefnd yfirfæri fram- komnar tillögur og geri úttekt á innbyrðis vægi þeirra í samvinnu við kjararannsóknanefnd og hver áhrif sérkröfur hefðu á launa- hlutföll. Samningafundurinn í gær var hinn 4., og hinn 3. undir stjórn sáttasemjara og sáttanefndar. Hann stóð í hálfa fimmtu klukku- stund og nýr fundur hefur verið boðaður klukkan 16 í dag. í sam- tölum, sem blaðamaður Morgun- blaðsins átti við nokkra samninganefndarmenn á Hótel Loftleiðum í gær kom fram að menn teldu þennan fund hinn fyrsta, þar sem viðræður hefðu verið málefnalegar. — Eftirlitsmenn Framhald af bls. 19 Varðandi það mál ræddu þeir saman í gær Carter Bandaríkja- forseti og Dobrynin, sendiherra Sovétrikjanna í Bandarikjunum, eins og sagt var frá i Mbl. í frétt Reuters um samtal þeirra segir að auk þess að ræða landhelgismál hafi þeir einnig fjallað um öryggismál og varnarmálaráð- herrann, Harold Brown, sagði að sovézki fulltrúinn hefði meðal annars lagt áherzlu á mikilvægi þess að hleypa lífi í SALT- viðræðurnar um takmörkun kjarnorkuvopnabúnaðar og væri til þess fullur vilji af beggja hálfu. — Stóraukið launabil Framhald af bls. 40 sveins 304.994 krónur og hækk- unarkrafan þá orðin 134.4%. í þessum útreikningum er ekki tekið tillit til krafna um fjölgun greiddra helgidaga, lengingu or- lofs og hækkun annarra álaga o.fl. Kjararannsóknanefnd hefur einnig reiknað út kröfur Verka- mannasambands íslands. Þar segir um almennu kröfuna: „VMSÍ er aðili að þeirri kröfu kjaramálaráðst. ASÍ að lægstu laun verði kr. 100.000 sem við bætist fullar vísitölubætur fyrir tímabilið 1. nóv. 1976 — 1. apríl 1977. Vísitala framfærslukostn- aðar var 1. nóv. 645,12, og hér er vfsitala framfærslukostnaðar 1. apríl áætluð 715, samkvæmt þvi hljóðar krafan um lágmarkslaun nú upp á hækkun úr kr. 70.043 í kr. 110.832 eða58,2%. Síðan birtir kjararannsókna- nefnd bæði núverandi taxta VMSÍ og hinn nýja taxta, sem reiknaður er út eftir kröfunum. Allir taxtarnir hækka um kr. 235,30 og er þvi prósentuhækk- unin hæst á neðsta taxtann en lægst á hinn hæsta. Hækkunin er á bilinu 58,2% til 49,2%, en meðaltalshækkunin er áætluð 54%. Ef svo almenna krafan er reiknuð út með sérkröfum Verka- mannasambandsins, en þær eru um fækkun taxta, breikkað taxta- bil, auknar aldurshækkanir og nokkrar tilfærslúr á störfum, er kominn stigandi i prósentuna frá lægsta taxta til hins haestá.;, Hækkun á lægsta taxta er þá 58,2% en á hinum hæsta 85,4%. Meðaltalshækkunin er 71 %. Heildaráhrif krafna V«rka- mannasambandsins eru þvi þau, að mismunur á íægsta og hæsta taxta minnkar við almennu kröf- una, en sé sérkrafan talin með eykst launamismunurinn innan Verkamannasambandsins. í nú- verandi taxta er þessi launa- mismunur 18,3%. Almenna krafan minnkar þennan mun niður i 11,5%, en séu sér- kröfurnar meðtaldar eykst launa- mismunurinn í 38,6%. Þá tekur kjararannsóknanefnd kröfur Iðju, félags verksmiðju- fólks i Reykjavík, tii umfjöllunar og kemur þar í ljós að Iðja hefur haft i heiðri láglaunastefnu ASÍ, sem mörkuð var á ASÍ-þingi fyrr áþessu ári. Kjararannsóknanefnd segir um Iðju-kröfurnar: „Iðja í Reykjavík gerir ólikt öðrum félögum engar kröfur um taxtabreytingar, starfsaldurs- breytingar eða lengingu bils milli flokka. Helztu sérkröfur eru, að iðnverkafólk, sem vinnur ein- göngu á kvöld- og næturvöktum, eigi að fá 40% vaktaálag í stað 30%, iðnverkafólk, sem vinnur í tengslum við ákvæðisvinnu, fái 25% umfram kauptaxta og að fastir starfsmenn fái tveggja vikna laun, þegar þeir fara í orlof. Prósentutölur í kröfum Iðju lækka, þeim mun hærri sem laun- in eru. Samkvæmt kröfunum hækkar 1. flokkur um 58,3%, 2. flokkur um 56,2% og 3. flokkur um 54,6%. Sé hins vegar miðað við laun, sem miðast við fullan starfsaldur eru prósenturnar heldur Iægri eða í 1. flokki 54,6%, i 2. flokki 53,0% og í 3. flokki 52,0%. í kröfum Landssambands islenzkra verzlunarmanna er jafn- framt fylgt láglaunastefnu ASt. Um þær segir kjararannsóknar- nefnd: „Samkvæmt núverandi kjarasamningi verzlunar- og skrifstofufólks koma aldurs- hækkanir eftir 1, 3, 5 og 7 ár. Kröfur LÍV gera ráð fyrir starfs- aldurshækkunum eftir 1, 2, 3 og 5 ár og að bil milli byrjunarlauna og eftir 5 ára verði 17,5% i hverj- um flokki. Ekki er tekið fram hverjar hækkanir skulu koma á önnur þrep“. Síðan ber nefndin saman taxta eftir 1 ár og 7 ár samkvæmt núgildandi samníngi og 1 ár og 5 ár samkvæmt sérkröL um. Prósenturnar á byrjunarlaun- um eru hæstar á lægsta flokkinn, sem ber töluna 1 eða 58,3%. Flokkarnir eru 10 og lækkar pró- sentan stöðugt, en í 10 flokki er hún orðin 38,1%. Ef tekið er mið af launum meó fullum starfsaldri er hækkun á 2. flokk, sem þar er lægstur, 52,5%, en á 10. flokk er hækkunar krafan 33,4%. Ef sér- kröfur eru hins vegar taldar með er hækkun á 2. flokk 69,7%, en á 10. flokk 42,3%. Þá tekur kjararannsóknanefnd til umfjöllunar kröfur Raf- iðnaðarsambandsins og dæmi um rafvirkja með 3ja ára starfsaldur. Samkvæmt almennu kröfunni er hækkunin 43,3%, en með sérkröf- unni er hún 55,5%. Rafvirki með 3ja ára starfsaldur og 10% námskeiðsálag myndi hækka sam- kvæmt almennu kröfunum um 40,6%, en ef sérkröfur eru taldar með um 59,4%. Síðan segir nefnd- in: „Taxtar rafvirkja geta tekið á sig allmörg álög. Augljóst er, að eftir því sem fleiri álög væru tek- in inn í dæmið, þeim mun meiri yrði hækkunin, enda eru þessi álög nú verulega skert. Þær sér- kröfur, sem hér koma inn i dæm- ið, eru krafan um 5% bil milli taxta og krafan um að álög verði rétt af.“ Loks tekur nefndin til umfjöll- unar kröfur Sambands bygginga- manna. Þar fylgja litlir sem engir útreikningar, en telur hún fram þessa sérkröfu: „Kauptaxtar félaga innan SBM verði sam- ræmdir og bil milli taxta aukið. Reikningstölur ákvæðisvinnu verði endurskoðaðar." Síðan seg- ir: „Af kröfum SBM sem bein áhrif hafa á laun má nefna kröfu 15% álag á útivinnu að vetrarlagi, Þessu til vióbótar hefur Morgun- blaðið frégnað að samkvæmt gróf- legum reikningum sé munur á núgildandi 1. og 3. taxta Sam- þands byggingamanna 3,85%. Ef reiknað er með hinni almennu kröfu ASÍ minnkar þetta bil i 2,51%, en ef reiknað er með ASÍ- kröfunni og sérkröfum sambands- ins sjálfs er mundurinn á 1. og 3. taxta orðinn 10,25%. — Mobutu Framhald af bls 1 Fulltrúi Zaire-stjórnar fór í dag frá höfuðborg Zambíu, Lusaka, þar sem hann afhenti Kenneth Kaunda forseta orðsendingu sem hefur ekki verið birt. Talsmenn Zambiustjórnar vilja litið gera úr loftárásunum og segja: „Við höf- um ekkert á móti Zaire.“ — Danmörk Framhald af bls 1 mundu lama mikilvægar greinar atvinnulífsins og þjóðlífið á mörg- um sviðum. Hann sagði að flug- samgöngur, ferjusamgöngur og járnbrautarflutningar mundu stöðvast þar sem bílstjórar olíu- flutningabíla hefðu boðað verk- fall. Stjórnin vonar að þingið ljúki afgreiðslu frumvarpsins á morg- un, en I dag var ekki vitað um afstöðu hinna 11 þingflokka til frumvarpsins. Margir þingmenn borgaraflokkanna eru tregir til að styðja frumvarpið. — Spánn Framhald af bls 1 ekki flokk kommúnista, en stjórn- in er ekki bundin af ákvörðunum þingsins og getur virt að vettugi kröfuna um að þingið verði kallað saman. Kommúnistaleiðtoginn Santiago Carrillo sagði í dag að Spánverjar hefðu komizt gegnum alvarlega örðugleik? síðustu daga og bað kommúnista að sýna still- ingu og sporna við tilraunum sem voru gerðar til að einangra þá fyrir kosningarnar. — Fiskiviðræður Framhald af bls 1 fyrr en í fyrsta lagi i maíbyrjun þar sem Ishkov verður fjarver- andi þangað til. Vegna útfrærslu sovézku lög- sögunnar verða 7.000 japönsk skip að hætta veiðum á hefð- bundnum miðum. Samkomulag hefur tekizt um veiðar Rússa í fyrirhugaðri 200 mílna lögsögu Japana og nýrri 12 mílna lögsögu þeirra þótt litið hafi miðað i sam- komulagsátt i deilunni um mörk- in umhverfis Kúrileyjar. — Réðust Framhald af bls 1 mennina, Andrei Kelchinsky, sem er fertugur listamaður, og Henry Toruntchik, sem er 34 ára gamall starfsmaður í veitingahúsi. Þeir sögðust skyndilega hafa fengið hugmyndina þegar þeir genfu fram hjá sendiráðinu þar sem Is- raelsmenn helga 14. apríl minn- ingu þeirra sex milljóna Gyðinga sem nazistar myrtu í heims- styrjödinni. Strangar öryggisráðstafanir eru i sendiráðinu, en talsmaður þess sagði að mennirnir hefðu komið inn í bygginguna undir þvf yfir- skini að þeir vildu haldalistverka- sýningu i Vestur-Þýzkalandi. Hann sagði að atburðurinn hefði «kki vakið ótta 50 starfsmanna sendiráðsins. — Járnblendi Framhald af bls. 2. kl. tvö miðdegis á morgun, og væri þess vænzt, að Sigurði Magnússyni hefði gefizt timi til að skila nefndaráltii og gæti mælt fyrir því. Sætti hann enn hörðum ádeilum þingmanna Álþýðu- bandalags fyrir að fresta ekki málinu umyrðalaust. Matthías Bjarnason, heil- brigðisráðherra, sagði i umræð- unni, að skýrsla Heilbrigðiseftir- lits ríkissins hefði verið afhent iðnaðarnefndum þingsins sem trúnaðarmál. Úr því sem nú væri komið sæi hann ekki ástæðu til annars en skýrslan yrði rædd um- búðalaust með öðrum gögnum málsins. Hann sagði starfsleyfi ráðuneytis og umsögn heilbrigðis- eftirlits ríkisins fara saman í öll- um meginatriðum. í sama streng tóku þingmennirnir Ingólfur Jónsson, sem vitnaði til símtals við Hrafn Friðriksson hjá Heil- brigðiseftirlitinu, sem talið hefði starfsleyfið viðunandi, frá sjónar- miði eftirlitsins, — og Benedikt Gröndal, sem sagðist sannfærður um, að leyfið væri í samræmi við sjónarmið Heilbrigðiseftirlitsins, og hefði heilbrigðisráðuneytið haldið vel á málum, að sinu mati, fyrir eftirlitsins hönd, varðandi ákvæði starfsleyfisins. Eftir að umræðu utan dagskrár lauk var málið tekið á dagskrá og mælt fyrir nefndarálitum. Ræða Ingólfs Jónssonar, formanns iðnaðarnefndar, er hann mælti fyrir munn meirihluta nefndar- innar, verður birt hér i blaðinu síðar. — Loðna Framhald af bls. 2. Gísli Árni RE með 9,369 lestir, aflaverðmæti rúmar 88 milljónir. — Borgarráð Framhald af bls. 20 gera tillögur til borgarráðs um úrbætur, ef ástæóa þykir til. Tillagan hlaut 1 atkv. og því ekki stuðning. Auk skýrslu brunamálastjóra Bárðar Danielssonar, lá fyrir fundinum skýrsla slökkviliðs- stjórans í Reykjavík, Rúnars Bjarnasonar, og bréf trúnaðar- manna brunavarða. — Bændur Framhald af bls. 20 starfrækt til þjónustu fyrir al- menning og ekki rekin til arð- söfnunar. Meðal annarra atriða, sem nefndin leggur til að breytt verði, er að framlög samkvæmt jarðræktarlögum verði undan- þegin tekjuskatti, svo sem ver- ið hafi. Tún verði áfram fyrnd af fasteignamati en að öðrum kosti verði kostnaður við rækt- un talinn til gjalda. Einnig verði skattmat búpenings óbreytt. i nefndinni áttu sæti Egill Bjarnason, Búnaðarsam- bandi Skagafjarðar, Júlíus Jónsson, Búnaðarsambandi Suðurlands, og Stefán Hall- dórsson, Búnaðarsambandi Eyjafj arðar. — Sovétskip Framhald af bls 1 flaugum og er úr Eystrasalts- flotanum. Meðal herskipanna vestur af Noregi eru Sverdlov-beitiskip og freigátur af gerðunum Kanin, Kashin og Krivak. Þar við bætast orrustuskip, kafbátar, bæði venjulegir og kjarnorkuknúnir, fylgdarskip af Petja-gerð, njósna- skip, hjálparskip og olíuskip. Flugvélaskipið Kiev, sem hefur verið með sovézka noðurflotanum á Kola síðan haustið 1976, tekur ekki þátt í flotaæfingunum að sögn norskra hernaðaryfirvalda. Aðvarar Rússa Knut Frydenlund utanríkisráð- herra sagði í dag í veizlu hjá Rúss- um á Svalbarða að Norðmenn hefðu alger yfirráð yfir eyjaklas- anum, að öll 40' aðildarlönd samningsins um Svalbarða hefðu jafnan rétt til hagnýtingar náttúruauðlegða þar og að Sval- barða mætti ekki nota í hernaðar- tilgangi. Rolf Hansen landvarnarráð- herra fer á þriðjudag í stutta kynnisferð til Jan Mayen að þvi er tilkynnt var í dag. — Hægt að Framhald af bls. 17. hefði tekið miklum breytingum frá þvi er hann kom fyrst til Evrópu? „Breytingar hafa ekki orðið miklar Hann er áfram þessi hestur, sem fólk notar til útreiða I fristundum sinum en þó hafa sýningar og keppni á islenzk- um hestum farið í vöxt. Þessar sýning- ar hafa líka orðið til að auka vinsældir islenzka hestsins. Áður keypti aðallega óvant fólk og fólk, sem enga reynslu hafði 1 hesta- mennsku, Islenzka hesta en nú kaupa reyndir knapar hann ekki siður og þar með fær islenzki hesturinn aukinn og hærri sess meðal hestamanna al- mennt Eitt vandamál er farið að segja töluvert til sin i Evrópu en það er hversu mörgum fjölskyldum þykir erfitt að láta þessa vini sina, islenzku hest- ana, falla, þegar þeir taka að eldast. Þetta er ekki vegna þess að þessir hestar séu nokkuð farnir að gefa sig, sem ég segi þetta, heldur vegna þess að þetta fólk þarfnast yngri hesta og hefur hvorki fjárráð til kaupa á þeim eða landrými fyrir hestana þegar þeim fjölgar En fyrst við erum að tala um breyt- ingar má minnast að það, að hér hefur orðið breyting á hestamennskunni frá þvi ég sá fyrst stórmót á Hólum 1 966 Hér hefur þróazt upp glæsileg reið- mennska sem ekki hvað sizt hefur komið fram á sýningunum siðustu ár Islendingar hafa séð, að reiðmennskan er ekki bara guðsgjöf og það er hægt að fága hana og bæta með ástundun og fræðslu", sagði dr. Isenbúgel að lokum. —t.g.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.