Morgunblaðið - 30.04.1977, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977
Allt ad 4ra sm gliðnun í
veggjum Kísiliðjunnar
Vatnsyfirborð Mývatns lækkaði
um 20 sm á einum sólarhring
Á skrifstofubyggingu Kfsiliðjunnar má sjá glögg merki gliðnunarinn-
ar, sem á sér stað f Bjarnarflagi. önnur myndin er tekin á þaki
byggingarinnar, en hin inni f húsinu, þar sem sést hvernig koma má
fyrir eldspýtustokki f glufuna.
Ljósm. Mbl. Fr. H.
Reykjahlfð, 29.. apríl. — Frá
hlaðamanni Mbl., Þórleifi Ólafssyni.
ENN virðist lítið sem ekkert lát á
jarðskjálftunum hér í Mývatns-
sveit og koma að meðaltali 4—5
skjálftar á mfnútu, sem er mjög
svipað og var í gær. Sprungu-
myndunin hefur haldið áfram og
er talið að heildar gliðnun á svæð-
inu sé nú orðin um það bil tveir
metrar, og landsig er orðið tölu-
vert á annan metra að þvf er talið
er. Hins vegar virðist landið lyft-
ast f Reykjahlíðarhverfi, þar sem
vatnsborð Mývatns mældist um
20 sm lægra f dag en í gær.
Sprungumyndun er víða mjög
mikil, og breiðasta sprungan
mældist i dag um 35 sm. Glögg-
lega má sjá á skrifstofuhúsnæði
Kísiliðjnar hve sprungumyndun-
in hefur verið ör, og sums staðar
hefur orðið allt að fjögurra senti-
metra gliðnun í veggjum hússins.
í morgun varð vart við fimm litla
hveri austan vegarins yfir Náma-
skarð, skammt frá Krumma-
skarði, og um hádegið myndaðist
lítill hver rétt vestan við þjóðveg-
inn.
Kaldavatnsæð Kísiliðjunnar
komst í lag í dag, en var þá oft-
sinnis búin að fara í sundur, og'
var ætlunin að gangsetja vélar
Kísiliðjunnar í kvöld. Það reynd-
Viðgerð hafin á raf-
strengnum til Eyja
UNDIRBUNINGUR að
viðgerð rafstrengsins, sem
bilaði við Vestmannaeyjar,
var í fullum gangi í gærdag
að sögn Kristjáns Jóns-
sonar, forstjóra Rafmagns-
veitna ríkisins, og var
vonazt til að dönsku
viðgerðamennirnir gætu
hafið viðgerðina í gær-
kvöldi eða I nótt.
Bilunin í rafstrengnum er í um
tveggja km fjarlægð frá Vest-
mannaeyjum, eða skammt frá
þeim stað, þar sem varðskipið Týr
olli skemmdum á strengnum fyrir
nokkru. Áformað er að skipta um
streng á um 170 metra kafla.
Telexlands-
keppni í skák
hefst í dag
TELEXLANDSKEPPNI í
skák milli islendinga og
Englendinga hefst í dag og
af íslands hálfu fer keppn-
in fram í sal Útvegsbanka
íslands. Hefst keppnin kl.
12.30.
Bæði löndin tefla fram
sínum sterkustu skák-
mönnum. Fyrir ísland
keppir Friörik Ólafsson á
1. borði, Guðmundur Sig-
urjónsson á 2. borði, Ingi
R. Jóhannsson á 3. borði,
Jón L. Árnason, nýbakaður
íslandsmeistari, á 4. borði,
Helgi Ölafsson á 5. borði og
Ásgeir Þ. Ásgeirsson á 6.
borði, Guðlaug Þorsteins-
dóttir keppir á eina
kvennaborðinu og Margeir
Pétursson á unglingaborð-
inu.
Kristján sagði, að við beztu
hugsanlegar aðstæður yrði unnt
að ljúka verkinu á 2—3 dögum,
en það gæti dregizt töluvert ef illa
viðraði. Meðan á viðgerðinni
stendur eru keyrðar díselvélar,
sem rafmagnsveitan i Eyjum
hefur yfir að ráða, og einnig gas-
túrbína frá Rafmagnsveitu ríis-
ins, sem framleitt getur um 1
MW. Hefur því enn sem komið er
ekki þurft að grípa til
skömmtunar í bænum, en hins
vegar sagði Kristján að mikil
notkun vélanna vegna tíðra
bilana á rafstrengnum hefði eðli-
lega í för með sér stóraukinn
rekstrarkostnað fyrir rafveituna.
ist hins vegar ekki unnt, þar sem
rafmagnsvírar milli staura
skammt frá verksmiðjunni voru
orðnir svo þandir, að hætta var á
að þeir slitnuðu. Starfsmenn raf-
magnsveitnanna unnu að því i
kvöld að bæta við vírana og munu
hafa lokið því verki á ellefta tim-
anum. Er jafnvel búizt við, að
unnt verði að gangsetja vélar
verksmiðjunnar í nótt eða fyrra-
málið.
Umbrot á gosstöðvunum norður
af Leirhnúk hættu með öllu um
kl. 6 í morgun. Starfsmenn, sem
voru þá við vinnu í Kröflu-
virkjun, heyrðu skyndilega mik-
inn dynk og sáu siðan gufubólstra
stíga hátt til himins. Síðan hefur
ekki orðið vart við umbrot, að
öðru leyti en þvi, að gufu stendur
upp úr gígunum.
Dr. Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur sagði í samtali við Mbl.
i kvöld að hraunið, sem komið
hefði úr nyrzta gígnum, væri
sennilega um einn hektari að
stærð og á að gizka væri hraun-
massinn, sem upp hefði komið,
um það bil 50 þúsund lestir, sem
er álíka og fyrirhuguð ársfram-
leiðsla Grundartangaverk-
smiðjunnar.
„Því miður finnst mér þessi um-
brot líkjast alltof mikið Mývatns-
eldum 1724—29,“ sagði Sigurður,
en bætti við áð vonandi færi þess-
ari að ljúka. Sigurður sagði, að
seinna drægi úr jarðskjálftunum
Framhald á bls. 24.
Suðurveggur
síðustu þróar-
innar styrktur
- en þróin stendur ákaf lega
tæpt, segir Þorsteinn Ólafs-
son, frkvst. Kísiliðjunnar
Unnió að viógerð rafstrengsins við Vestmannaeyjar.
„VIÐ höfum ákveðið að styrkja
suðurvegg þeirrar þróar, sem enn
er eftir, en hún stendur ákaflega
tæpt eins og nú er,“ sagði Þor-
steinn Ólafsson, viðskiptalegur
framkvæmdastjóri Klsiliðjunnar
1 samtali við Mbl. í gærkvöldi.
Var byrjað á því verki skömmu
eftir kvöldverðarleytið I gær, og
ryðja jarðýtur upp fyllingu f
vegginn, en sfðan aka bifreiðar f
hann bundnu efni. Að sögn Þor-
steins eru f þessari þró um sex
þúsund tonn af hráefni, sem duga
Ólafur Jóhannesson:
Bæta skal láglaunin með
breyttri tekjuskiptingu
ATHYGLI hefur vakið
að Ólafur Jóhannesson dóms-
málaráðherra sagði við útvarps-
umræðurnar í fyrrakvöld, að
við gerð kjarasamninga nú ætti
að tryggja þau lágmarkslaun,
sem kröfur Alþýðusambands-
ins hljóðuðu upp á, eða á
núgildandi verðlagi um 111
þúsund krónur. í viðtali við
Morgunblaðið sagði dómsmála-
ráðherra í gær, að þessa
hækkun láglauna ætti að fá
fram með breyttri tekju-
skiptingu innan þess ramma.
sem aukning þjóðartekna
segði, eða 5%.
Ólafur Jóhannesson sagði, að
ljóst væri að slík hækkun, sem
af þessu leiddi á láglaun, gæti
ekki farið i gegnum allt launa-
kerfi landsmanna. Hann sagðist
hafa trú á því að samningur
sem þessi hefði ekki verðbólgu-
áhrif, þar sem hahn hefði sér-
staklega tekið fram, að heildar-
launahækkunin mætti ekki
fara yfir 5%, sem gert væri ráð
fyrir að yrði heildaraukning
þjóðartekna á þessu ári. Sú
aukning sagði ráðherrann að
væri ramminn, en innan hans
sagði hann að óhjákvæmilega
þyrfti að fara fram launa-
jöfnun.
Ólafur Jóhannesson var
spurður um það, hvort hann
áliti, að vinnuveitendur ættu að
undirrita samning um þessa
hækkun á láglaun. Hann
svaraði „Já, ég tel það, en
auðvitað ekki, fyrr en sapiið er
um önnur atriði kjara-
samninganna."
ætti Kfsiiiðjunni að öllu eðlilegu
f hálfan annan mánuð.
Kísiliðjan getur aðeins aflað
hráefnis frá maí og fram í október
eða nóvember, ef tíð leyfir, og
dælir þá sérstakur prammi hrá-
Framhald á bls. 24.
Mikið vetrar-
ríki nyrðra
HIÐ mesta vetrarrfki er nú á öllu
norðanverðu landinu og þar er
unnið að snjómokstri eins og um
hávetur væri. Norðurleiðin var þó
orðin vel fær f gær, allt til Rauf-
arhafnar, en þar fyrir austan er
mikil ófærð og allt til Vopna-
fjarðar.
í gær var verið að ryðja Fagra-
dal og einnig byrjað að mokstri f
Oddskarði, en taka mun marga
daga að opna leiðina. Mikill snjór
er einnig á Héraði, og skortur á
ýmsum nauðsynjum, eins og fóð-
urvöru, er farinn að gera vart við
sig f Jökuldal, þannig að kapp er
nú lagt á að ryðja þangað leiðina,
sem verið hefur meira og minna
teppt marga undanfarna mánuði.
Frá Reykjavfk og til Austfjarða
hefur verið ein hindrun, Lóns-
heiði, en hún mun vera opin nú
sem stendur, og er þannig fært
um Suðurfirði norður til Eski-
fjarðar og þaðan áfram til Egils-
staða, nú eftir að Fagridalur hef-
ur verið mokaður.