Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 44
AUGLYSINGASIMINN ER: 22480 AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JBor0xm6ln&ií> LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977 Mennirnir urðu úti 10 og 12 km frá slysstað Flak TF-AGN norðan Mýrdals jökuls í700mhœð yfirsjó Þyrlan TF-AGN fórst norðan Mýrdalsjökuls ÁSGEIR Höskuldsson tæknifræðingur og Jón Andrason Heiðbcrg flugmaður urðu úti við Mælifell, Jón 10 km og Asgeir 12 km frá þeim stað norðan Mýrdalsjökuls, sem þyrla þeirra brotlenti á s.l. mánudag f 700 metra hæð yfir sjó á jafnsléttu við Bláf jöll. Björgunarsveitarmenn úr slysavarnasveitinni Vfkverjum f Vfk óku á vélsleðum fram á slóð þcirra Asgeirs og Jóns laust eftir hádegi f gær, og skömmu sfðar fundu þeir Ifk þeirra á snævi þöktum berangri. Lá slóð þeirra félaga saman þar til Jón hefur gefizt upp og tveimur km austar fannst Ásgeir. Samkvæmt upplýsingum Þóris Kjartanssonar f Vfkverjum, en hann var einn þeirra sem fór á vettvang, var á þessu svæði kafaldsófærð til göngu og snjór um 1,5 metra djúpur. Kvað Þórir þó sýnt, að þeir félagar hefðu haldið vei strikið austur með jöklum til þess að komast þar suður til byggða. Þyrla frá Varnarliðinu fór með rannsóknarmenn á slysstaðinn f gær, og flutti þyrlan Ifk mannanna til Reykjavfkur. Þyrlan mun hafa verið f flugstefnu austur til Mælifells þegar hún brotlenti, en rannsókn flugslyssins stendur yfir. Samkvæmt upplýsingum Skúla Jóns Sigurðssonar deildarstjóra, rannsóknarmanns flugslysa, hef- ur þyrlan rekizt á nokkuð flatt snævi þakið land í um 700 m hæð yfir sjó. Er vélin gjörónýt, en mennirnir hafa báðir komizt lífs af úr flugslysinu og reynt að ganga til byggða til norðausturs, Framhald á bls. 25 w. Ásgeir Höskuldsson tæknifræðingur Jón Andrason Heiðberg flugmaður Lífeyrismálin sem næst komin í höfn ENGAR eiginlegar samninga- viðræður áttu sér stað milli aðila vinnumarkaðarins á Loftleiða- hótelinu í gærdag, en þess í stað komu tii fundar við viðræðunefndirnar sérfræðingar í lífeyrismálum og fluttu fyrirlestra og útskýrðu lífeyris- máf fyrir nefndunum hvorri í sfnu lagi. Að sögn Björns Jóns- sonar eru lífeyrismálin nú tekin að skýrast og komast brátt á ákvörðunarstig. Kvaðst hann vera frekar vongóður um, að nást mundi árangur, sem væri ein- hvers virði. Verða einstök atriði málsins könnuð fram yfir helgi. Nefndin, sem í fyrradag var fengin til þess að kanna ákveðin atriði vísitölumálsins, skilaði skýrslu um stöðu málsins. Sér- staklega fjallaði hún um ákveðin atriði, sem eftir er að taka fyrir á viðræðufundum aðila og verður það væntanlega gert á samninga- fundum sem boðaðir hafa verið í dag klukkan 14 í Tollstöðinni, húsakynnum sáttasemjara ríkis- ins. Starfsmenn frá sitt hvorum aðila munu í gær hafa rætt vísi- tölumálið og reyndu að samræma þau sjónarmið, sem hægt var að samræma. Má segja að helzt hafi út úr því komið, að þeir urðu ásáttir að hafa verðlagsbótatíma- bilið þrjá mánuði, bæði hið venjulega og eins timabilið fyrir biðtímann. Líkur benda þvl til, að það verði sami tími og að sam- komulag náist um það. Hins vegar er ekki samkomulag um það, hvenær vísitalan á að fara í gang — hvort það eigi að verða 1. júní og verðlagsbótin þá látin koma strax inn í grunnkaupið, eða hvort einhver annar háttur Framhaid á bls. 24. Þrær Kísiliðjunnar ekki tryggðar gegn náttúruhamförunum ÞRÆR Kísiliðjunnar við Mývatn eru ekki tryggðar gegn tjónum af völdum náttúruhamfara. Þor- steinn Ólafsson viðskiptalegur forstjóri Kfsiliðjunnar, staðfesti þetta f samtali við Mbl. f gær. En aðspurður um hráefnið, um 6000 tonn, sem er í þeirri þró, sem enn stendur, sagðist Þorsteinn ekki vita, hvort það væri tryggt eða ekki. Tvær þrær eru nú ónýtar og fttúrjjimhlnhit* Frá og með 1. maí hækkar verðlag dagblaðanna og verður sem hér segir: Áskriftarverð kr. 1300,- per mán. Lausasöluverð kr. 70.- pr. eintak og grunnverð aug- lýsinga kr. 780.- pr. dálksentimetra. sú þriðja stendur tæpt eins og er. Verksmiðjuhúsið með tækjabún- aði og vörubirgðum eru hins veg- ar f viðlagatryggingu, sem var hækkuð um áramótin, og taldi Þorsteinn að tryggingaupphæðin væri nú um 1600 milljónir króna. Þá eru aðrar húseignir Kísiliðj- unnar einnig í viðlagatryggingu, skrifstofuhús og sextán íbúðir í Reykjahlíðarhverfi, en fjórar starfsmannaíbúðir eru I bygg- ingu. Lögum samkvæmt er eigin áhætta gagnvart viðlagatryggingu 5% af hverju tjóni og hefur trygg- ing fyrir því ekki verið tekin varðandi Kísiliðjuna. Vátryggingaskylt i viðlaga- tryggingu eru allar húseignir og lausafé, þar með taldar vörubirgð- ir, vélar og tæki, sem bruna- tryggðar eru hjá Vátryggingafé- lagi, og eru vátryggingafjárhæðir hinar sömu ög brunatrygginga- fjárhæðir á hverjum tíma. Árleg iðgjöld viðlagatrygginga eru 0,25 prómill af vátryggingarupphæð- inni. Viðlagatrygging íslands end- urtryggir svo í Engiandi, en ber Framhald á bls. 24. Afbragðsafli fyrir Norðurlandi Sjómenn verða varir við mikla loðnu Siglufirði —29. apríl SIGLUVÍKIN kom hér inn f dag með 170 tonn eða afbragðsafla. Erindið var þó ekki að landa held- ur taka fs, og ætlaði Sigluvfkin að halda áfram veiðum um helgina, en landa á mánudag. Mjög góð veiði er nú fyrir Norðurlandi, og munu um 30 togarar vera djúpt út af Siglufirði og fæst stór og fallegur fiskur. Þá munu netabát- ar frá Dalvfk vera að fá uppgripa- afla eða allt upp í 10—11 tonn. Annað sem athygli vekur er að sjómenn verða nú varir við tölu- vert mikla loðnu út af Norður- landi og um talstöðvar hafa skip- stjórnarmenn á togurunum til- kynnt um verulegar lóðningar eða stóra loðnubletti. Þá er einnig all- ur fiskur, em hingað berst úr grá- sleppunetunum, úttroðinn af stórri og fallegri loðnu. Einnig hefur heyrzt, að sjómenn fyrir Norðausturlandi eða í Axarfirði verði nokkuð varir við síld þar. Velta menn því fyrir sér hvort þar sé hin langþráða vorgotssíld komin, en það gæti hæglega kom- ið heim á þessum árstfma. —mj. Novosti heitir bót og betrun UtanríkisráÓuneytið hefur sent forráða- mönnum Novosti- fréttastofunnar sovézku á íslandi óformlegt erindi, þar sem vakin er athygli á því að ekki samrýmist íslenzkum prentlögum að fréttastofan standi að útgáfu í'rétta frá Sovétríkjunum án þess að þar sé tilgreindur íslenzkur ábyrgða- maður ritsins. Utanríkisráðuneytinu hafa borizt munnieg svör um að þessu verði kippt í lag og í næsta tölublaði verði skráður íslenzkur ábyrgða- maður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.