Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977 /p* BÍLALEIGAN V&IEYSIR LAUGAVEGI 66 CAR RENTAL 24460 28810 Hótel- og flugvallaþjónusta. LOFTLEIDIR ■n 2 11 90 2 n 8BJ OKI NX-5 Ratsjá Oki NX-5 er 24 sjómílna ratsjá með 12” rétthyrndum mynd- skerm sem gefur bjarta og skýra mynd 28 sjómílur fram og aftur, 5 Kw sendiorka og er sérstaklega byggður fyrir mikinn hristing. Skrifið, hringið eða komið, sendum allar upplýsingar um hæl. Viðgerða- og varahlutaþjónusta. Friðrik A. Jónsson h.f. Bræðraborgarstíg 1, Símar 14135 - 14340. Lækninga- tæki til Hellisands LIONSKLUBBUR Nesþinga á Hellissandi afhenti fyrir nokkru lækningatæki til Læknisstofunn- ar á Hellissandi. Eftirfarandi tæki voru afhent: Sjúkravog ásamt hæðarmæli, hjartalínuritstæki af nýjustu gerð, öndunartæki vegna asma- sjúkra, ristilskoðunartæki, augn- og eyrnaskoðunartæki og ýmis smátæki. Kristinn Kristjánsson formaður verkefnanefndar Klúbbsins afhenti tækin, að viðstöddum stjórnarmönnum og nokkrum félögum úr Lionsklúbbi Nesþinga ásamt aðstoðarkonu læknisins og Kristófer Þorleifssyni héraðs- lækni, sem veitti tækjunum viðtöku, lýsti þeim nokkuð þakkaði fyrir og kvað þau koma að góðum notum. Sama kvöld færði Lions- klúbburinn Tónlistarskóla Hellis- sands kasettutæki ásamt tveim hátölurum. Auður Alexanders- dóttir formaður- Tónlistar- félagsins þakkaði gjöfina og árn- aði Klúbbnum allra heilla í fram- tíðinni. Á sjöunda starfsári Lions- klúbbs Nesþinga er starfið þróttmikið sem fyrr, fundir fjölmennir og fjörugir, enda félagsstarfið mikil lyftistöng fyrir félagslífið á Hellissandi og nágrenni. — R.Ó. Útvarp Reykjavfk L4UG4RD4GUR 30. aprfl MORGUNNINN 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 8.50 Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50 Morgunstund barnanna kl. 8.00: Sigurður Gunnarsson les söguna „Sumar á fjöllum" eftir Knut Hauge (6). Tilkynningar kl. 9.00. Létt lög milli atriða. Óskalög sjúklinga kl. 9.15: Kristfn Sveinbjörnsdöttir kynnir. Barnatfmi kl. 11.10: a. Spurningakeppni skólabarna f Reykjavfk um umferðar- mál. Hlfðaskóli og Melaskóli keppa til úrslita. Umsjónar- maður Baldvin Ottósson varðstjóri. / b. Utvarpssaga barnanna: „Stóri Björn og litli Björn“ eftir Halvor Floden. Freysteinn Gunnars- son fslenzkaði. Gunnar Stefánsson les (11). 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Á seyði Einar Örn Stefánsson stjórnar þættinum. SIÐDEGIÐ 15.00 1 tónsmiðjunni Atli Heimir Sveinsson sér um þáttinn (24). 16.00 Fréttir 16.15 Veðurfregnir tslenzkt mál Dr. Jakob Benediktsson talar. 16.35 Létt tónlist 17.30 Utvarpsleikrit barna og unglinga: „Heyrirðu það, Palli?" eftir Kaare Zakariassen Þýðandi Hulda Valtýsdóttir. Leikstjóri: Helga Bachmann. Persónur og leikendur: Palli / Stefán Jónsson, móðir hans / Jóhanna Norðfjörð, kennarinn / Randver Þor- láksson, heyrnarsér- fræðingurinn / Karl Guðmundsson, Stfna / Jóhanna Kn Jónsdóttir, Pétur / Árni Benediktsson, Lárus / Skúli Helgason, Friðrik / Eyþór Arnalds. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVOLDIO 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Gerningar Hannes Gissurarson flytur erindi. 20.10 „Saga“, hljóm- sveitarverk op. 9 eftir Jean Sibelius Filharmónfusveit Lundúna leikur; Sir Thomas Beecham stj. 20.30 Á förnum vegi Jón R. Hjáimarsson fræðslu- stjóri talar við Brand Stefánsson bifreiðastjóra f Vfk f Mýrdal. 21.05 Hljómskálamúsfk frá útvarpinu f Köln Guðmundur Gilsson kynnir. 21.35 „Tjaldað á eyðibýlinu", smásaga eftir Birgi Stefáns- son Höfundur les. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. 1KB LAUGARDAGUR 30. apríl 1977 17.00 Iþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.35 Litli lávarðurinn (L) Breskur framhaldsmynda- flokkur. 2. þattur. Cedric er kominn til Eng- lands, ásamt móður sinni, til að kynnast afa sfnum, jari- inum af Dorincourt, sem hann á að erfa. Þýðandi Jón O. Edwald. 19.00 Iþrótt ...........:..é 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Við hættum að reykja Lokaþáttur námskeiðs fyrir fólk sem er að hætta að reykja. Umsjónarmaður Sigrún Stefánsdóttir. Bein útsending. Stjórn útsendingar Rúnar Gunnarsson. 20.45 Læknir á ferð og flugi (L) Brezkur gamanmyndaflokk- ur. Þýðandi Stefán Jökulsson. 21.10 Ur e.inu f annað Umsjónarmenn Bergiind Ásgeirsdóttir og Björn Vign- ir Sigurpálsson. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 22.10 Fólkið við fljótið (Wild River) Bandarfsk bfómynd frá árinu 1960 Leikstjóri Elia Kazan. Aðalhlutverk Montgomery Clift, Lee Remick og Jo Van Fleet. Myndin gerist f Tenesse- fylki árið 1933. Chuck Glover fer þangað i umboði bandarfkjastjórnar til að kaupa allt land meðfram Tennessee-ánni, þvf þar á að reisa stfflugarða. Carol, ung ekkja, býr með áttræðri ömmu sinni á eyju f ánni, en gamla konan neitar að flytja. Þýðandi Jón O. Edwald. 23.35 Dagskrárlok. Brezki gamanmyndaflokkurinn Læknir'á ferð og flugi er að vanda á dagskrá sjónvarpsins klukkan 20.45 í kvöld. Þættir þessir eru í lit. Þýðandi er Stefán Jökulsson. Heyrirðu það Palli r Utvarpsleikrit barna og unglinga Helga Bachmann. Hulda Valtýsdóttir. Heyrirðu það Palli er eftir norska rithöfundinn Kaare Á dagskrá útvarpsins í dag er fimmta barnaleikritið og jafn- framt það síðasta af þeim sem útvarpsstöðvarnar á Norður- löndum höfðu samvinnu um að yrðu samin. Leikrit þetta, sem heytir Heyrirðu það Palli, er frá Noregi. S.l. laugardag var flutt sænskt barnaleikrit, þar áður frá Danmörku og Finnlandi en leikrit eftir Odd Björnsson var það fyrsta f röðinni. Zakariassen. Leikstjóri þess í íslenzka útvarpinu er Helga Bachmann en leikritið þýddi Hulda Valtýsdóttir á íslenzku. Kaare Zakariassen hefur gert nokkur leikrit fyrir barna- og unglingadeild norska sjón- varpsins. Hann hefur einnig unnið við þýðingar á leikritum og gerð framhaldsleikrita. Bandarísk bíómynd frá 1960 klukkan 22.10: Klukkan 17,30: Fólkið vid fljótið Dagskrá sjónvarpsins í kvöld lýkur með bandarískri biómynd frá árinu 1960, sem heitir á frummálinu Wild River, en hef- ur í íslenzkri þýðingu Jóns O. Edwalds hlotið nafnið Fóikið við fljótið. Leikstjóri er Elia Kazan og í aðalhlutverkum eru Montgomery Clift, Jo Van Fleet og Lee Remick, sem ætti að vera sjónvarpsáhorfendum að góðu kunn fyrir leík sinn í hlut- verki Jennyar, móður Winstons Churchills, en framhalds- myndaflokkur um hana var á skjánum hér í vetur. Myndin, sem við sjáum í kvöld, gerist I Tennessee-fylki árið 1933. Þar segir frá Chuck Glover, sem kemur þangað í umboði Bandaríkjastjórnar til að kaupa allt land meðfram Tenessee-ánni, því þar á að reisa stíflugarða. Carol, ung ekkja, býr með áttræðri ömmu sinni á eyju í ánni, en gamla konan neitar að flytja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.