Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977
3
Ætlun þeirra frá
upphafi var að
r júf a samstöð-
una um 1. maí
- segir Hilmar Guðlaugsson um
klofninginn í 1. maí-nefndinni
og stjórn f ulltrúaráðs verka-
lýðsf élaganna í Reyk ja vík
KLOFNINGUR varð í 1. maf
nefndinni og stjórn fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna f Reykjavfk
vegna hátfðahaldanna 1. maf.
Mbl. leitaði til Hilmars Guðlaugs-
sonar og spurði hann hvers vegna
til þessa klofnings hefði komið.
„Byrjunin er þannig," sagði
Hilmar, „að stjórn fulltrúaráðsins
nefndi til menn f 1. maf-nefndina.
Meðal þeirra var Pétur Sigurðs-
son, alþingismaður, ritari Sjó-
mannafélags Reykjavfkur, og fól
1. maf-nefndin honum og Jóni
Snorra Þorleifssyni að semja
ávarp dagsins. Þeir höfðu þau
vinnubrögð að gera fyrst uppkast
hvor fyrir sig, en sfðan hugðust
þeir reyna að jafna ágreining, sem
upp kæmi, og semja eitt ávarp til
að leggja fyrir 1. maf-nefndina. En
áður en til þess kom, þurfti Pétur
Hilmar Guðlaugsson
að fara erlendis f embættiserind-
um og tók ég þá við hans störfum.
Fljótlega kom I Ijós djúpstæður
ágreiningur, þar sem Jón Snorri og
meirihluti nefndarinnar vildu setja
einhliða pólitísk sjónarmið ofar fag-
legri og stéttarlegri baráttu. í ávarpi
dagsins vildi meirihlutinn ráðast að
löglega kjörnum stjórnvöldum og
krefjast þess að ríkisstjórnin færi frá.
Þá átti að ítreka, að ríkistjórnin væri
óbilgjörn og fjandsamleg verkalýðn-
um og um utanríkismál átti meðal
annars að krefjast úrsagnar úr
Atlantshafsbandalaginu
Það liggur I augum uppi, að þetta
var sett fram fyrst og fremst til að
rjúfa samstöðuna, þar sem þeir
vissu að ég gæti ekki skrifað undir
slíkt, jafnvel ekki með fyrirvara Ég
setti fram mínar hugmyndir og lagði
þær fram fyrir hönd minnihlutans
og með tillögu um það, að Björn
Þórhallsson. formaður L ÍV.. yrði
annar ræðumaður dagsins, en þessu
var hafnað
Ég átti þá ekki annars úrskosta en
vísa málinu til stjórnar fulltrúaráðs-
ins, en reglur mæla fyrir um. að
stjórnin skeri úr ágreiningi. sem upp
kemur í 1 maí-nefndinni Stjórnin
hélt fund á miðvikudag Á þessum
fundi lögðum við Magnús L. Sveins-
son fram tillögu um að Björn Þór-
hallsson yrði annar af ræðumönnum
dagsins, en hún var felld með at-
kvæðum Jóns Snorra Þorleifssonar,
Sigfúsar Bjarnasonar og Guðjóns
Jónssonar gegn okkar. Fjarverandi
þennan stjórnarfund voru Guð-
mundur J. Guðmundsson og Jóna
Guðjónsdóttir Þar með hafði meiri-
hluti stjórnar fulltrúaráðsins hafnað
öllu samstarfi við okkur.
Eftir á þá sé ég að ætlun
meirihlutans frá upphafi var að rjúfa
samstöðuna um 1 maí og þeir bera
alla ábyrgð á því að ekki náðist
samstaða um hátíðahöldin,'' sagði
Hilmar Guðlaugsson.
Á framangreindum stjórnarfundi í
fulltrúaráði verkalýðsfélaganna I
Reykjavík óskuðu þeir Hilmar Guð-
laugsson og Magnús L Sveinsson
eftirfarandi bókunar:
„Við undirritaðir stjórnarmenn I
Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna ?
Reykjavík, hörmum að ekki skuli
hafa náðst samkomulag um 1 maí
ávarpið.
Við erum þeirrar skoðunar, að
árangur kjarabaráttu launþega verði
bezt tryggður með faglegri, lýð-
ræðislegri og sameiginlegri baráttu
Er það í samræmi við þá stefnu, sem
lögð hefur verið áherzla á í yfirstand-
andi kjaradeilu, um faglega sam-
stöðu allrar verkalýðshreyfingarinn-
ar.
Meirihluti 1 maí-nefndarinnar
hefur hafnað þessum grundvallar-
atriðum og lagt fram ávarp, þar sem
einhliða pólitísk sjónarmið eru sett
ofar faglegri og stéttarlegri baráttu.
við getum því ekki orðið aðilar að
því og munum leggja fram annað
ávarp.
Þrátt fyrir að ekki náðist sam-
komulag um ávarpið vildum við
freista þess að ná samstöðu um
framkvæmt hátíðarhaldanna og
gerðum tillögu um að Björn Þór-
hallsson, formaður L.ÍV., yrði annar
af ræðumönnum dagsins. en því var
einnig hafnað, og okkur enginn
kostur gefinn á að hafa áhrif á val
ræðumanna.
Meirihluti stjórnar Fulltrúaráðsins
hefur því hafnað öllu samstarfi við
okkur og ber því alla ábyrgð á að
ekki náðist samstaða um fram-
kvæmd hátíðarhaldanna.
Hilmar Guðlaugsson, (sign)
Magnús L. Sveinsson, (sign)."
Þeir Hilmar og Magnús hafa nú
ásamt Pétri Sigurðsyni lagt fram sitt
1 maí ávarp og meirihlutinn annað
Alg jör ördeyða
h já Ey jabátum
Netabátarnir farnir að taka upp net
ALGJÖR ördeySa hefur veriS I netin
hjá Vestmannaeyjabátum þennan
mánuð, sem nú er að Itða, og er svo
komið að flestir netabátanna munu
vera farnir eða eru að búa sig undir
að taka netin upp úr sjó, að þvt er
Þorsteinn Ingólfsson á sameiginlegri
skrifstofu f iskiðjuveranna t Eyjum
tjáði Morgunblaðinu I gær. Er þó
tæplega hálfur mánuður til hins
hefðbundna lokadags á vertfðinni
suSvestanlands.
Að sögn Þorsteins hefur afli netabát-
anna verið sáralítill nú um töluvert
skeið og bátarnir jafnvel komið til lönd-
unar með innan við eina lest I róðri
þrátt fyrir allan þann fjölda neta, sem
er i sjó Lttið hráefni hefur því borizt til
fiskiðjuveranna I Eyjum undanfarið, og
kvaðst Þorsteinn ekki minnast þess
áður að vinna félli niður i fiski helgi
eftir helgi í aprilmánuði og einnig
mörg kvöld eins og gerzt hefði undan-
farnar vikur
argus
Rétt svar
á reióum höndum
þar sem þörfin er.
Lítil tölva — betri nýting
IBM System /34, nýjasta tölvusamstæðan frá IBM,
gerir meðalstórum fyrirtækjum hérlendis kleift að
hagnýta tiltölulega ódýra tölvu á sama hátt og stórar
og dýrar tölvusamstæður eru notaðar af
Jtórfyrirtækjum og fyrirtækjasamsteypum.
Fljótvirk og fyrirferðarlítil
IBM System /34 er fljótvirkt og fyrirferöarlítið
tölvukerfi, sem því næst hver sem er getur stjórnað
eftir fárra tíma þjálfun. System /34 er gert í
framhaldi af System /32, og hefur IBM á íslandi
tilbúin forrit sérhðnnuð tyrir ísler\zk tyrirtæki fyrir
hvers konar verkefni á viðskiptasviðinu.
Vinnuskermur í hverri deild
IBM System /34 býður þannig tilbúin forrit og
vinnslukerfi, sem nýta má þegar í stað til
uþþlýsingadreifingar á sérstaka sjónvarpsskerma
með tilheyrandi lykilborði.
Þannig getur tölvan sjálf til dæmis verið í
kjallaraherbergi og unnið að útskrift yfirlitsreikninga
á meðan starfsfólk í vöruafgreiðslum, söludeild,
bókhaldi og aðalskrifstofu fær umbeðnar
upplýsingar um sölu- og birgðamál — hver deild á
sínum eigin vinnuskermi.
Afgreiðsla á augabragði
IBM System /34 býður ódýra fjölvinnslu með
möguleikum á 8 vinnuskermum eða prenturum. Hver
skermur getur verið í allt að 1.5 km. fjarlægð frá
sjálfri tölvunni. Sendingahraði milli skerms og tölvu
er um 100 000 stafir á sekúndu.
Hvað er meðalstórt fyrirtæki lítið?
Ef þér efist um að fyrirtæki yðar sé nógu stórt til að
geta hagnast á IBM System /34 með þvi að nýta
möguleika starfsfólksins til fulls með öruggu
uþplýsingastreymi jafnhliða margskonar
færslumöguleikum — hafið samband við söludeild
IBM á íslardi og.fáið nánari upplýsingar um hæfni
IBM System /34 fyrir starfsemi yðar.
~ 7 — Á ÍSLANDI
KLAPPARSTÍG 27, REYKJAVÍK, SÍMI 27700