Morgunblaðið - 30.04.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRlL 1T977
7
„Vegir liggja
til allra átta...”
Það er stundum
gaman að glugga I ýmis
pólitfsk sértrúarrit
vinstra megin við Þjóð-
viijann, sem nú dundar
við pðlitiskar húg-
leiðingar undir sam-
heitinu: „Vegir liggja
til allra átta, enginn
ræður för...“ Eitt af
þessum sérritum heitir
„Stéttabaráttan", gefið
út af „Kommúnista-
flokki tslands m.l.“ Þar
er nýlega fjallað um
svokallaða „Miðnefnd
herstöðvaandstæðinga"
og fyrirhugaðan „labbi-
túr“ milli tveggja vfka,
kennda við kefli og
reyk, sem virðist eilfft
deiluefni á „vizku-
þingum“ vinstri manna.
Þar segir m.a.:
„Miðnefnd Samtaka
herstöð var andstæð i nga
hélt fund fyrir
skömmu, þar sem
fulltrúar Alþýðubanda-
lagsins lýstu sig and-
vfga nýrri Keflavfkur-
göngu. Töldu þeir nægi-
Iegt að ganga frá
Hafnarfirði eða
Straumsvfk f ár og álitu
að ný Keflavfkurganga
myndi misheppnast.
Hvflfk forysta! Allt frá
stofnþingi Samtakanna
hefur Miðnefnd setið á
höndum sér..
„Ráðleysi og
þröngsýni
Enn segir f biaði
þessu: „Vinnubrögð
miðnefndarinnar ein-
kennast af ráðleysi og
þröngsýni fundastarf-
semi. Og fundarefni
þjónar venjulega
kosningahagsmunum
AB-forustunnar (út-
leggst Alþýðubanda-
lagsforystunnar) — f
stað þess að efla bar-
áttuna er haldin
ráðstefna um erlenda
stóriðju, þar sem
forystumenn AB tala
alla fundarmenn af sér
með langmælgi og
leiðinlegum ræðum.
Háskóla-bfó-fundurinn
var ekki baráttufundur,
heldur samkoma, þar
sem AB-forystan opin-
beraði slappleika sinn
og þá staðreynd að hún
skokkar f kjölfar
fjöldans f stað þess að
leiða baráttu hans...“
Já, illt er að heyra.
Alþýðubandalagið
einokar miðnefndar-
starfsemina f þágu
flokksins — og nennir
ekki að fá sér þessa ár-
legu heilsubótargöngu
eftir Reykjanesskagan-
um, sem allt andlegt
heilbrigði liðsaflans er
undir komið!
Fræg er orðin för
formanns Alþýðu-
bandalagsins, Ragnars
Arnalds, til Rómar, þar
sem setzt var við fótskör
formanns ftalska
kommúnistaflokksins,
og numin ný lexfa um
Nato. Vestræn rfki
skyldu vera innan
Atlantshafsbanda-
lagsins, sem væri for-
senda jafnvægis og
friðar f okkar heims-
hluta, hér eftir sem
hingað til. Svo langt
gengu ftalskir
kommúnistar að
fullyrða að fremur væri
hægt að framfylgja
frjálsum sósfalisma
innan Atlantshafs-
bandalagsins en utan.
Heimkominn skrifaði
formaðurinn lærdóms-
rfka grein f
Þjóðviljann, þar sem
þessi nýju viðhorf voru
viðruð. Og vissulega
hlutu þau nokkurn
hljómgrunn f röðum
hinna almennu flokks-
manna.
En þá gripu harðlfnu-
menn í taumana. Og
flokksformaðurinn var
barinn inn f hinn eldri
hugmyndaheim. And-
spænis sterku Varsjár-
bandalagi skyldi standa
veikt Atlantshafsbanda-
lag. ísland, eyja á
alfaraleið, f miðju
Atlantshafi, mátti vera
óvarinn valkostur
vaxandi hernaðarum-
svifa á hafsvæðinu.
Gamla Moskvulfnan
varð ofan á. i— Eða var
kannske meiningin að
hafa tvö andlit í þessu
máli (eins og flestum
öðrum) með og móti
eftir veiðilfkum valda
og kjósendafylgis?
Og nú vill Alþýðu-
bandalsgið „Kefla-
víkurgöngu" frí
Straumsvfk, segii
„Stéttabaráttan".
Væntanlega verða kjör-
orðin á gönguborðana
sótt f bónorðsbréf ráð-
herra Alþýðubandalags-
ins til Union Carbide,
til heimilis í Banda-
rfkjunum, dagsett
fagran mafdag árið
1974. Þar gæti staðið
„Járnblendið viðunandi
f öllum meginatriðum".
Eða „Ágæti stóriðju-
áformsins óbreytt“. Inn
á milli mætti setjaj
gagnstæð slagorð, sem
einnig eru Alþýðu-
bandalagsmönnum til-
tæk, einkum f stjornar-
andstöðu, þvf vegir
liggja til allra átta — og
enginn ræður för f
„sameiningarflokki“
hinna gagnstæðu
sjónarmiða, sósfalisma,
þjóðernisstefnu og
alþjóðahyggju.
Suðurgöng-
ur flokks-
formanns
Sameining-
arflokkur
gagnstæðra
sjónarmiða
% PÁ GUÐSPJALL DAGSINS:
m ifHeðður Ég mun sjá yður aftur.
1 1 Wk , if a morgun (■y LITUR DAGSINS: Hvítt. Litur gleðinnar. i
DÓMKIRKJAN Messa kl. 11
árd. Séra Þórir Stephensen.
LAUGARNESKIRKJA
Fjölskylduguðþjonusta kl. 11
árd. Hrefna Tynes segir sögu.
Helgistund, orgelandakt kl. 5
síðd.: Ritningarlestur, orgel-
leikur og bænarsund. Sóknar-
prestur
NESKIRKJA Messa kl. 2 síðd.
Altarisganga. Séra Frank M.
Halldórsson.
FlLADELFlUKIRKJAN Safn-
aðarguðþjónusta kl. 2 síðd.
Almenn guðþjónusta kl. 8 siðd.
Einar J. Gíslason.
HALLGRÍMSKIRKJA Messa
kl.ll árd. Séra Karl Sigur-
björnsson. Messa kl. 2 siðd. Páll
Hallbjörnsson flytur stólræðu.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson.
LANDSPlTALINN Messa kl.
«0.30 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson.
HATEIGSKIRKJA Messakl. 11
árd. (Ath. brettan messutíma)
Séra Arngrímur Jónsson. Ensk
messa verður kl. 12 á hádegi í
Kapellu háskólans.
FRlKIRJAN Reykjavfk. Messa
kl. 2 síðd. Séra Þorsteinn
Björnsson.
ELLI- OG HJUKRUNARHEIM-
ILIÐ Grund. Messa kl. 10 árd.
Séra Lárus Halldórsson.
GRENSÁSKIRKJA
Guðþjónusta kl. 11 árd. Athug-
ið breyttan messutíma. Séra
Halldór S. Gröndal.
HJÁLPRÆÐISHERINN
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóii kl. 2. siðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
siðd. Hermannavigsla. Briga-
dier Ingibjörg og Óskar Jóns-
son tala. Kafteinn Daniel
Óskarsson.
FELLA- OG HÓLASÓKN
Fermingarguðþjónustur i
Bústaðakirkju kl. 10.30 árd. og
klukkan 1.30 siðdegis. Séra
Heinn Hjartarson.
Arbæjarprestakall
Barnasamkoma í Árbæjarskóla
kl. 10.30 árd. (sióasta barna-
samkoman á vorinu)
Guðþjónusta i skólanum kl. 2
síðd. Fermingarmyndir af-
hentar. Séra Guómundur Þor-
steinsson.
ÁSPRESTAKALL Messa kl. 2
síðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grímur Grimsson
LANGHOLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Séra Árelíus Nielsson
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti, Lágmessa kl. 8.30
árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 síðd. Alla virka
daga er lágmessa kl. 6 siðd.,
nema á laugardögum þá kl. 2
síðd.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastig kl.
11 árd. Guðþónusta I Kópavogs-
kirkju kl.ll árd. Séra Þor-
bergur Kristjánsson
KAftSNESPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 11 árd. i
Kársnesskóla séra Árni Pálsson
MOSFELLSPRESTAKALL
Messað að Mosfelli kl. 2 siðd.
Sóknarprestur.
GARÐASÓKN Barnasamkoma
i skólasalnum kl. 11 árd.
KAPELLA St. Jósepssystra,
Garðabæ. Hámessa kl. 2 siðd.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
Messa kl. 2 siðd. Séra Bragi
Friðriksson.
FRlKIRJAN I Hafnarfirði.
Guðþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Magnús Guðjónsson.
KEFLAVlKURKIRKJA
Sunnudagaskóli ki. 11 árd.
Sóknarprestur.
NJARÐVÍKURPRESTAKALL
Guðþjónusta í Stapa kl. 2 siód.
Séra Gylfi Jónsson prédikar og
Kirkjukór Bjarnanes- og
Hafnarsóknar syngur. Söng-
stjóri Guðlaug Hestnes. Séra
Páll Þórðarson.
IIVALSNESKIRKJA
Fermingarguðþjónustur kl.
10.30 og kl. 2 síðdegis. Sóknar-
prestur.
EYRARBAKKAKIRKJA
Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd.
Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA Guð-
þjónusta kl. 2 siðd. Sóknar-
prestur.
ODDAKIRKJA Fermingar-
guðsþjónusta kl. 2 siðd. Séra
Stefán Lárusson.
Garðrósir
Rósastilkar í úrvali
Gróðurstöðin Birkihlíð,
Nýbýlavegi 7, Kópavogi.
ICc HJÓLHÚSAKLÚBBURÍSLANDS
VORFUNDUR
verður haldinn sunnudaginn 1. maí kl. 1 5.00 í
Leifsbúð, Hótel Loftleiðum.
Dagskrá:
1. Sýning á tækjum og áhöldum fyrir hjólhús
2. Sameiginleg kaffidrykkja.
Athygli er vakin á að misritun er í fundarboði,
fundurinn er sunnudaginn 1. maí.
Fjölmennið og mætið stundvíslega. STJÓRNIN.
e DOOO•» DOOD e e □OOD e
núlíd og rroml
umfrom ollt: ÖRVGGI!
WESMAR
S0NAR-SS160
Fyrir nótaveiðiskip:
Gefur nákvæmar upplýsingar um stöðu torfunnar
og á hvaða dýpi hún liggur með Ijósatöluaflestri.
Læsir geislanum á torfuna og fylgir henni sjálfvirkt.
Varar i tíma við ströndum og flökum.
Fyrir togskip og dragnótaskip:
Gefur botnherslu til kynna, með það löngum
fyrirvara, að auðvelt er að beygja frá í tíma.
Auðveldar einnig að toga, og leggja með
hraunbrúnum, og i þröngum rennum
LÍTIÐ VIÐ OG LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA.
Umbodsmenn:
SKRISTJÁNÓ.
SKAGFJÖRÐ HF
3QOP*•ÐOOP••ÐOOt