Morgunblaðið - 30.04.1977, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977
Adolfo Suarez, forsætisráðherra Spánar, er f opinberri heimsókn f Bandarfkjunum. í gær átti hann
fund með Carter forseta, Mondale varaforseta og Cyrus Vance utanrfkisráðherra. Búizt var við að á
fundinum yrði m.a. fjallað um aðild Spánar að Atlantshafsbandalaginu, viðskiptamál rfkjanna og
kjarnorkumál. Myndin var tekin er Carter bauð Suarez velkominn f Hvfta húsið f gær.
Stolið úraníum
sent til ísrael?
New York 29. apríl — NTB
BANDARÍSKA blaðið
New York Times skýrði frá
því í morgun að árið 1968
hefði 200 tonna skipsfarm-
ur af úraníum á leið frá
Hollandi til Ítalíu horfið
sporlaust, og athuganir
bandarísku leyniþjónust-
unnar benda til þess að
hann hafi hafnað í tsrael.
Skipið, sem sigldi undir vestur-
þýzkum fána, fór frá Rotterdam
samkvæmt áætlun, en kom aldrei
til Ítalíu. Mörgum vikum seinna
kom skipið fram, en þá með nýju
nafni og undir öðrum fána.
Uraníumfarmurinn var horfinn
og leyniþjónustur fjögurra landa
hófu eftirgrennslanir.
Engar sannanir hafa fengizt um
afdrif farmsins, en margt bendir
til þess að hann hafi verið sendur
til ísrael að sögn New York Ti-
mes. ísraelsmenn hafa síðan 1963
ráðið yfir tækni til að framleiða
kjarnorkusprengjur úr úraníum.
Borgarstjóri Vestur-
Berlínar segir af sér
Vestur Berlín 29. apríl — Reuter
SAMSTEYPUSTJÓRNIN í
Vestur Þýzkalandi, sem orðið
hefur fyrir hverju áfallinu á
fætur öðru vegna fjármála-
hneyksla og annara vandamála
varð fyrir nýju áfalli í dag, þegar
borgarstjóri Vestur-Berlinar,
Klaus Schiitz tilkynnti, að hann
hefði sagt af sér.
Egon Bahr, aðalritari
sósfaldemókrata, sem er sá stærri
af stjórnarflokkunum sagði
blaðamönnum að Schútz sem er
fimmtugur að aldri, hefði ákveðið
að vfkja úr embætti borgarstjóra,
sem hann hefur setið f sfðan 1967,
fyrir öldungadeildarmanninum
Dietrich Stobbe.
Tilkynningin kemur í kjölfar
afsagnar öldungadeildarmanns-
ins Kurt Naubauer á þriðjudag,
en hann fór með innanrikismál
Vestur Berlinar. Kristilegir
demókratar kröfðust strax nýrra
kosninga í borginni. Neubauer
sagði af sér þegar það hafði komið
i ljös, að hann hafði tekið trausta-
taki 2,8 milljónir króna, sem til-
heyrðu öldungadeildinni. Hann
er fjórði öldungadeildarmaður-
inn, sem neyðist til að segja af sér
síðan kosningarnar voru haldnar
1975.
Ákvörðun hans og tilnefning
Stobbe í borgarstjóraembættið,
koma einnig í kjölfar fjármála-
hneykslis í fylkinu Hessen, en
leiddi til þess, að forsætisráð-
herra þess, Albert Osswald, varð
að segja af sér.
Þar ríkir f ridur
á vinnumarkadi
Vlnarborg — 29. apríl — Reuter.
VINNUTAP vegna verkfalla í
Austurríki var á sfðasta ári aðeins
6.3 sekúndur á hvern vinnufæran
mann jafnframt því sem atvinnu-
leysi er f lágmarki, eða innan við
2%, og gjaldmiðill landsins er
einn hinn stöðugasti f Evrópu.
Almennt er talið, að óopinber
nefnd, sem sett var á stofn fyrir
20 árum, eigi mestan þátt í þess-
um stöðugleika í atvinnu- og efna-
hagsmálum. Aðild að henni eiga
fulltrúar ríkisstjórnarinnar, láun-
þega, vinnuveitenda og helztu at-
vinnuvega, en nefndin starfar
undir forsæti Bruno Kreiskys
kanslara. Nefndin hefur engan
formlegan ákvörðunarrétt, en
gerir ríkisstjórninni reglulega
grein fyrir áliti sínu, og er afar
sjaldgæft, að ákvarðanir i kjara-
og efnahagsmálum brjóti i bága
við það.
Forseti austurriska verkalýðs-
sambandsins, Anton Benya, er af
mörgum talinn næstvaldamesti
Tékkóslóvakía:
Nýtt mann-
réttindaskjal
Prag — 29. apríl. — Reuter.
BARÁTTUMENN f Tékkó-
slóvakfu hafa birt nýja áskorun,
sem þeir nefna „Mannréttindi 77
— nr. níu“. Þar er kommúnista-
stjórnin f landinu sökuð um of-
sóknir á hendur þeim sem vilja
sækja kirkju, og sagt að hún
krefjist þess af embættismönn-
um, að þeir lýsi þvf yfir, að þeir
séu trúlausir, en slfkt brjóti í
bága við mannréttindayfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna.
1 skjalinu er bent á að það sé
viðtækin venja í Tékkóslóvakiu,
að öllum umsækjendum um trún-
aðarstöður sé bafit á að láta af
trúariðkunum og þess krafizt að
mönnum með mismunandi skoð-
anir séu gefin sömu tækifæri til
skipunar í embætti á vegum hins
opinbera.
maður landsins, enda er hann
einn þriggja aðila, sem mest áhrif
hafa í nefndinni. Hinir eru Bruno
Kreisky og forseti vinnuveitenda-
sambandsins, Rudolf Shallin.
Þetta þriggja manna æðsta ráð
hinnar óopinberru nefndar er
venjulega kallað „skuggaráðu-
neytið“.
Gagnrýnendur þess skipulags,
sem verið hefur á atvinnu- og
efnahagsmálum í Austurríki,
telja að „skuggaráðuneytið" hafi
óeðlilega mikil áhrif. Enda þótt
nefndin hafi engan lagalegan
ákvörðunarrétt er skylt að leita
álits hennar á öllum tillögum um
breytingar á kaupgjaldi og verð-
lagi.
1 síðasta mánuði áttu náma-
verkamenn og málmiðnaðarmenn
í kjaradeilu, og var verkfall yfir-
vofandi. Á tímabili virtist sem
langvarandi friður á vinnumark-
aðnum væri úti. Á síðustu stundu
var deilan þó útkljáð án þess að
verkfall skylli á. Benya, sem jafn-
framt þvi að vera forseti alþýðu-
sambandsins er formaður sam-
bands náma- og málmiðnaðar-
manna og forseti þingsins, segir
að kjarabaráttan hafi í ár verið
mun harðari en áður og þótt nú-
verandi skipulag hafi gefizt vel,
sé full ástæða til að ætla að brugð-
ið geti til beggja vona.
Kröfur stjórnarandstöðunnar um að Bhutto segi af sér hafa verið
háværar og leitt til óeirða í Pakistan undanfarnar vikur.
Lima — 29. apríl — AP
Sjávarútvegsráðuneytið f Perú
gerir ráð fyrir þvf að heildar-
framleiðsla ansjósumjöls á þessu
ári verði 978 þúsund lestir, sem
er 11% aukning frá þvi i fyrra.
Utlit er fyrir að lýsismagnið verði
álíka mikið og í fyrra, eða 100
þúsund lestir.
Ansjósuvertiðin hófst 14. apríl,
en aflatölur liggja enn ekki fyrir.
I ár voru sardinur í fyrsta sinn
veiddar í bræðslu, og á vertíðinni,
sem stóð tæpa tvo mánuði, var
aflinn 190 þúsund lestir.
Perúmenn selja um 80% sjávar-
afurða sinna erlendis, og fiski-
mjölið er einn helzti keppinautur
sojabauna sem fóðurbætir.
í árslok 1976 seldi stjórnin
einkaaðilum hinn ríkisrekna fisk-
veiðiflota, sem taldi um 530 báta.
Ástæðan var gífurlegur halli á
rekstrinum, sem var þjóðnýttur
árið 1973. Hefur stjórnin lýst því
yfir að þegar megi sjá þess stað,
að hagnaður af útgerð hafi aukizt
og aflinn nýtist betur, enda hafa
engin verkföll orðið á báta-
flotanum eftir áramótK i fyrsta
skipti í fimm ár.
Á miðvikudag voru tólf verk-
lýðsleiðtogar reknir úr landssam-
tökum sjómanna í Perú fyrir
meint tengsl við vinstrisinnaða
óróaseggi.
Bandarík jamenn hafna
fullyrdingum Bhuttos
Islamabad 29. apríl — Reuter.
BANDARlSKA sendiráðið I
Islamabad hafnaði i dag sem til-
hæfulausum fullyrðingum Ali
Bhutto forsætisráðherra um að
Bandarfkin fjármagni baráttu
stjórnarandstöðunnar fyrir því
hann láti af völdum. Talsmaður
sendiráðsins sagði að Pakistan-
stjórn hefði ekki fylgt fullyrðing-
um Bhuttos eftir með formlegum
mótmælum.
Hann sagði að embættismaður
sendiráðsins hefði farið til utan-
rikisráðuneytisins til að lýsa þvi
yfir að Bandaríkin létu sig slíkar
fullyrðingar verða. Bhutto, sem á
i stríði við víðtæka andstöðu, lét
þau orð falla í ræðu í þinginu í
gær, að gert hefði verið alþjóðlegt
samsæri gegn sér. Hann ásakaði
ekki Bandaríkin beint, en lét það
umbúðalítið í ljós að Bandarikja-
menn stæðu á bak við þetta
meinta samsæri.
Án þess að nefna Bandaríkja-
menn sagði hann að þeir vildu ná
sér niðri á honum vegna þess að
hann hefði ekki viljað hætta við
samkomulag við Frakka um að
þeir seldu honum endurvinnslu-
ver fyrir kjarnorkueldsneyti.
Slíkt ver gæfi Pakistan möguleika
á að gera eigin kjarnorkusprengj-
ur.
Talsmaður sendiráðsins sagði,
að fullyrðingar Bhuttos hefðu
engin áhrif á efnahagsaðstoð
Bandaríkjanna við Pakistan.
Fréttamenn telja hins vegar, að
þær geti komið í veg fyrir að
Bandaríkjamenn selji pakist-
anska flughernum 100 A-7 orr-
ustu-sprengjuþotur, en kaupin
eiga eftir að fá samþykki Carters
forseta.
Perú:
11% meira an-
sjósumjöl í ár
Frank Judd hef ur mikla
reynslu í utanríkismálum
BREZKI aðstoðarutan-
ríkisráðherrann Frank
Judd, sem ákveðið hef-
ur verið að komi til ís-
lands með Finn OIov
Gundelach til viðræðna
við fslenzku stjórnina,
hefur gegnt starfi sfnu
sfðan 21. febrúar þegar
brezka stjórniii var end-
urskipulögð, en hann
hefur lengi haft af-
skipti af utanrfkismál-
um, bæði málefnum
Evrópu og fjarlægari
heimshluta.
Judd er 31 árs að
aldri og tók við starfi
annars æðsta manns
brezka utanríkisráðu-
neytisins þegar David
Owen tók við starfi ut-
anríkisráðherra eftir
andlát Anthony Cros-
lands í embætti 19. febr-
úar. Judd hafði áður
fjallað um málefni
þróunarríkja sem að-
stoðarráðherra og hann
var þekktur fyrir áhuga
á málefnum brezka
samveldisins, einkurn í
„þriðja heiminun.“
Fyrr á ferli sínum átti
hann sæti í sendinefnd-
um brezka Verka-
mannaflokksins hjá
helztu stofnunum
Evrópuríkja. Hann átti
sæti I brezku þing-
mannanefndinni i
Evrópuráðinu og hjá
Vestur-
Evrópusambandinu
(WEU) á árunum 1970
til 1973. Hann var einn-
ig um tima formaður ut-
anríkis- og samveldis-
deildar Fabian-
félagsins, samtaka
kunnra menntamanna
sem berjast fyrir efl-
ingu sósíalisma.
Judd hlaut menntun
sína i London School of
Economics „vöggu“
margra leiðtoga sósial-
ista úr röðum mennta-
manna, og var um nokk-
urra ára skeið foringi í
brezka flughernum.
Hann var fyrst kjörinn
á þing 1966. Á árunum
1967 til 1970 var hann
aðstoðarráðherra í hús-
næðis og sveitarstjórn-
arráðuneytinu.
Þegar Verkamanna-
flokkurinn beið ósigur
fyrir Ihaldsflokknum
1970 varð Judd aðstoð-
armaður Harold Wil-
sons, þáverandi leiðtoga
flokksins i Neðri mál-
stofunni. Þegar Verka-
mannaflokkurinn kom
aftur til valda 1974 og
Wilson varð aftur for-
sætisráðherra var Judd
skipaður flotamálaráð-
herra. Hann hóf störf í
utanríkis- og samveldis-
ráðuneytinu 1976. Hann
er kvæntur og á tvær
dætur.