Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 43
Æ
Atta mánaða törn
mótanefndar lokið
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977
Islandsmótið f borðtennis fer fram I Laugardalshöll um helgina og eru
þátttakendur nokkuð á annað hundrað. Meðfylgjandi mynd er þð ekki
af fslenzkum borðtennisleikara heldur v-þýzkum, og heitir hann
Wilfried Lick. Fékk hann „fair-play“ viðurkenningu á heimsmeistara-
mðtinu í borðtennis fyrir nokkru. 1 leik gegn Svfanum Stellan Bengts-
son fyrrum heimsmeistara, var Svfinn yfir 20:18 er Lieck vann boltann
samkvæmt úrskurði dðmara og áhorfendur sáu ekki annað. Tilkynnti
Lieck þá að boltinn hefði snert borðbrúnina og voru úrslit leiksins þá
ráðin. Svfinn vann 21:18. Fögnuðu áhorfendur drenglyndi Þjóðverjans
ákaft og fékk hann sérstök verðlaun f lok mðtsins.
Rýr vertíðhjá
Lundúnaliðum
KNATTSPYRNUVERTÍÐIN hefur verið heldur rýr hjá flestum stór-
liðum Lundúna f ár. Þegar aðeins nokkrir leikir eru eftir eiga þrjú
þeirra á hættu að falla niður f 2. deild og það lið, sem stendur sig bezt
af liðum ensku höfuðborgarinnar, er Arsenal, sem er f 8. sæti f 1.
deildinni ensku.
0 West Ham var í úrslitum í
Evrópukeppni bikarhafa á síðasta
ári og er talið af mörgum eitt
skemmtilegasta liðið i ensku
knattspyrnunni.
munum halda áfram, segir Lyall.
En ætli framkvæmdastjórar
hinna liðanna séu ekki álíka
bjartsýnir?
731 leik er nú lokiö í handknattleikso >tum sem fram
hafa farið á vegum HSÍ í vetur. Aðeins tveimur
leikjum er ólokið og fara þeir fram nú um helgina. Að
þeim leikjum loknum er eflaust þungu fargi létt af
Mótanefnd HSl, sem skipulagt hefur landsmót og
bikarkeppni vetrarins. Starf þeirra fimm sem sitja í
mótanefndinni hófst í byrjun ágúst á síðasta ári og
lýkur f rauninni ekki fyrr én í lok maí mánaðar þegar
skýrslugerð um mótahaldið verður lokið. En hvað
skyldi formanni Mótanefndar vera efst í huga að
þessari átta mánaða törn lokinni?
— Mér er efst í huga góð
samvinna við flesta þá, sem við
höfum þurft að starfa með eða
leita til, sagði Ölafur A. Jóns-
son, formaður Mótanefndar, i
viðtali við Morgunblaðið í gær.
— Þetta hefur verið erfitt
keppnistímabil að mörgu leyti
og þá aðallega vegna leikja
landsliðsins, keppnisferða og
undirbúnings fyrir Heims-
meistarakeppnina. Fresta
þurfti leikjum eftir að búið var
að ákveða þeim leikdag, gera
hlé á móti og ýmsar aðrar
hliðarnir til að landsliðið gæti
fengið sem mestan tima.
— Vegna þessa hefur fram-
kvæmdin á margan hátt verið
erfið, en góð samvinna við
Janus Cerwinsky, stjórn HSÍ og
félögin hefur get þetta starf
mun léttara en ella. Mer finnst
það athyglisvert hve forráða-
menn félaganna hafa verið
tilbúnir til að fórna miklu fyrir
landsliðið og vonandi verður
V__________________
svo einnig fram yfir HM í Dan-
mörku, þó svo að það bitni jafn-
vel á félögunum um tíma. Ég
held það sé einsdæmi í vetur
hve forystumenn félaganna
hafa verið fúsir til að fórna
miklu til að gera veg lands-
liðsins sem mestan.
— Erfiðasti dagurinn i starfi
Mótanefndarinnar í vetur var
þegar úrslitakeppnin i yngri
flokkunum átti að fara fram
hér í Reykjavík og byrja á
föstudegi. 80 ungmenni að
norðan voru þá veðurteppt á
Akureyri og komust ekki suður.
Svo fór þó ekki að við þyrftum
að fresta úrslitakeppninni
heldur var hægt að byrja að
leika á laugardegi og síðan eld-
snemma á sunnudegi. Þetta
hefði ekki verið hægt nema
með lipurð og sérstakri velvild
þeirra sem ráða íþróttahús-
unum. Án hjálpar þessa ágæta
fólks hefði ekki verið hægt að
ljúka þessari keppni á tilsettum
Ólafur Aðalsteinn Jðnsson,
formaður Mótanefndar HSf
tíma og þetta á ekki aðeins við
um Reykjavík og Hafnarfjörð
heldur einnig alla aðra staði
þar sem mót á vegum HSÍ hafa
farið fram.
Þetta sagði Ólafur A. Jóns-
s'on, formaður Mótanefndar
HSÍ, að lokum, en með honum í
nefndinni, sem gjarnan hefur
verið kölluð „óvinsælasta
nefndin á vegum HSÍ“, voru
þeir Jón Kr. Óskarsson, Hafnar-
firði, Jón L. Hilmarsson,
Reykjavík, Helgi Guðmunds-
son, Víkingi, og Þorvarður Áka-
son, HK i Kópavogi.
• Tottenham Hotspur átti á að
skipa einu hugmyndarikasta lið-
inu á sjöunda áratugnum og hafði
þá í sinum röðum Ieikmenn eins
og Jimmy Greeves, Danny
Blacnhflower og Dave MacKay.
0 Queen’s Park Rangers var í 2.
sæti i 1. deildinni í fyrra og fyrir-
liði iiðsins er jafnframt fyrirliði
enska landsliðsins, Gerry Francis.
Keppnin í 1. deildinni lýkur
innan tveggja vikna og svo gæti
farið að öll þessi „stórlið” féllu
niður í 2. deild, þó heldur sé það
reyndar ótrúiegt. Staðan á botnin-
um er nú þessi: (Fyrst leikja-
fjöldi, þá stig):
QPR35 —31
Derby 37 — 30
Coventry 36 — 30
Sunderland 38 — 29
Tottenham 39 — 29
West Ham37 — 29
Bristol City 36 — 28
Eins og sést á þessari töflu eiga
liðin eftir mismunandi marga
leiki og einnig er misjafnt hvað
liðin eiga eftir marga heimaleiki.
Framkvæmdastjóri West Ham,
John Lyall, er öruggur með sig og
sína menn og segir að fall niður í
2. deild komi ekki til greina. —
Við höfum fengið stig i fjórum af
síðustu fimm leikjum okkar og
/---------------------'S
Sumarleikir
hjá atvinnu-
mönnum
STANDARD Liege mun á
tlmabilinu 25. júní til 30. júlf
taka þátt í svonefndri TOTO-
keppni í knattspvrnu. Lið Ás-
geirs Sigurvinssonar leikur í
riðli með Twente Entschede
frá Hollandi, Duisburg, Vest-
ur-Þýzkalandi, og Maccabi frá
ísrael. Meðan mótið stendur
yfir leika íslendingar lands-
leiki gegn Svfum og Norð-
mönnum á Laugardalsvelli og
er óvíst hvort Ásgeir Sigur-
vinsson getur leikið báða þessa
leiki.
Þá hefur Jock Stein. fram-
kvæmdastjóri Celtic, lýst þvf
yfir að hann sé mótfallinn þvf
að Jóhannes Eðvaldsson leiki
landsleikinn gegn Svíum hér á
landi 20. júlí. Verður lið Celtic
þá á æfingaferð f Ástralíu.
VEGNÁ mistaka f blaðinu ( gær féll út mynd af c-liði KR f badminton,
sem tryggði sér rétt til að leika í 1. deild f badminton á næsta ári. Eiga
KR-ingar nú þrjú lið 11. deild og birtist hér mynd af c-liðinu.
Verð ca. kr. 1.150 þús.
Útborgun kr. 500 þús.
Nú geta allireignast
GÓÐAN
bíl fyrirsumarið
Bílasöludeildin verðuropin ídagfrá kl.2—6
KAí
y
LADA
12QÚ^m