Morgunblaðið - 14.06.1977, Side 1
129. tbl. 64. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNÍ 1977.
Prentsmidja Morgunbladsins.
Skotárás í miðri
J óhannesarborg
Jóhannesarborg, 13. júní. Reuter. AP.
ÞRÍR blökkumenn vopnaðir sovézkum handsprengjum
og vélbyssum myrtu tvo hvfta menn og særðu þann
þriðja f miðri Jóhannesarborg f dag. Öttazt er, að þar
með sé hafinn borgaraskæruhernaður f Suður-Afrfku
og yfirvöld segja að hermdarverkamenn hafi verið að
verki.
Nokkrum klukkustundum eftir
árásina skoraði James Kruger
dómsmálaráðherra á almenning
að sýna rósemi og Gert Prinsloo
hershöfðingi, yfirmaður lögregl-
unnar, sagði að sovézku vopnin,
sem voru notuð, hefðu verið af
sömu gerð og vopn sem hafa fund-
izt í blökkumannabænum Soweto.
Vitni segja að árásarmennirnir
hafi stigið út úr bíl, gengið vopn-
aðir þremur vélbyssum og tveim-
ur handsprengjum að bílaverk-
stæði sem stórverzlun rekur,
hleypt af nokkrum skotum niður
eftir götunni og skotið siðan á
fjóra hvita viðgerðarmenn sem
voru i tehléi.
Einn hvítu mannanna hneig
niður dauður, annar lézt skömmu
siðar i sjúkrahúsi, sá þriðji er
lifshættulega særður. Fjórði við-
gerðarmaðurinn þreif i einn
Framhald á bls. 26
50 togarar mótmæla
við brezka þinghúsið
Lundúnum — 13. júnf
— Reuter.
Hulltogarinn Junella verður í
fylkingarbrjósti 50 fiskiskipa,
sem á morgun safnast saman á
Thamesá fyrir framan brezka
þinghúsið til að leggja áherzlu á
kröfuna um 50 mílna einkalög-
sögu við strendur Bretlands. Er
ætlunin að skipin þeyti þoku-
lúðra i eina klukkustund, en sigli
að þvi búnu aftur niður ána.
Junella er frystitogari, sem er
nýkominn af Nýfundnalandsmið-
um. Vélarbilun hafði orðið í
togaranum, sem upphaflega átti
að vera i forystu, og er það mál
manna að aldrei hafi verið höfð
jafnsnör handtök við að koma
fiskiskipi úr höfn i Hull og þegar
Junella fékk fyrst fyrirmæli um
að hraða sér til hafnar þar sem
skipt var.um áhöfn og haldið til
Lundúna innan hálftíma.
James Earl Ray færður aftur f
fangelsið.
Blóðhundar
fundu Ray
Brushy Mountain, Tenn-
essee,
13. júní — AP-Reuter.
JAMES Earl Ray, morðingi
blökkumannaleiðtogans
Martin Luther Kings, var
handtekinn í morgur, 54 1/2
klukkutfma eftir að hann flúði
ásamt sex öðrum föngum úr
rfkisfangelsinu í Brushy
Mountain.
Blöðhundarnir Little Red og
Sandy fundu Ray í felum í
Framhald á bls. 26
úr landi
Vinarborg, 13. júní — AP.
EINN helzti forvfgismaður mann-
réttindabaráttu f Tékkóslóvakfu,
Zdenek Mlynar, sem í tfð Dubzeks
var ritari miðstjórnar kommún-
istaflokksins f Tékkóslóvakfu, er
farinn í útlegð. Hann kom til
Austurrfkis f dag ásamt eigin-
konu sinni. Áður hafði hann
hafnað s tilmælum tékkneskra
yfirvalda um að fara úr landi.
Mlynar hefur verið vísindamað-
ur við þjóðminjasafnið i Prag, en
var rekinn úr starfi i janúarmán-
uði s.l. Hann sagði við komuna til
Austurríkis í dag, að hann hefði
ákveðið að fara úr landi þar eð
hann hefði ekki getað orðið sér
úti um vinnu og af þvi að athafna-
frelsi hans.hefði verið skert til
muna.
Brottför Mlynars er talið sýna
svart á hvítu að óðum dragi úr
styrk tékknesku mannréttinda-
hreyfingarinnar Hafi hreyfingin
nýlega misst tvo af þremur for-
svarsmönnum sínum, þá Jan
Patocka sem er látinn, og Vaclav
Havel, sem lýsti þvi yfir er honum
var sleppt úr fangelsi um daginn
að hann mundi ekki koma fram
fyrir hönd hreyfingarinnar fram-
ar. Þá er ótalinn Jiri Hajek, fyrr-
um utanríkisráðherra, en hann er
i stofufangelsi á heimili sinu í
Prag.
Símamynd AP
Konur gráta við útför Suður-Mólúkka sem féllu f árás hollenzku
landgönguliðanna á járnbrautarlestina við Assen f Norður-Hollandi.
Lík S-Mólúkka
borin um götur
Sprengjuherferð
vekuruggá
□
□
Sjá grein á bls. 14
SJágrein bls. 25
■ □
■ n
□ —
□ —
Assen, llollandi, 13. Júnf — Reuter — AP.
AÐSTANDENDUR Suður-
Mólúkkanna, sem féllu f árásinni
á lestina á laugardagsmorgun,
fengu lík þeirra afhent í dag.
Voru kistur þeirra bornar um
götur fbúðarhverfa Suður-
Mólúkka f Assen og Bovensmilde
f dag að viðstöddum mannfjölda,
en útförin fer fram á morgun.
Gfslunum fyrrverandi ber ekki
saman um með hvaða hætti þeir
tveir úr þcirra húpi, sem féllu í
árásinni, hafi látið lifið. Eru eink-
um uppi tvær kenningar —
annars vegar að þeir hafi ekki
orðið við fyrirmælum hermann-
anna um að liggja kyrrir og hafi
þvi orðið fyrir skotum, en hins
vegar að einn hermdarverka-
mannanna hafi skotið þá viljandi.
Suður-Mólúkkarnir koma allir
fyrir rétt á morgun, að einum
undanskildum, en hann liggur í
sjúkrahúsi.
Heimildamenn úr hópi gísla
Suður-Mólúkkanna í Hollandi
Framhald á bls. 26
Madrid, 13. júni — Reuter.
MIKIL sprengjualda gekk yfir
Spán f dag aðeins tveimur dögum
fyrir fyrstu frjálsu kosningarnar
í landinu sfðan 1936, og vakti ugg
um allsherjarherferð öfgamanna
til að spilla fyrir kosningunum.
Sprengjur sprungu um landið
allt, frá Baskahéruðunum f
norðri til Valencia á strönd Mið-
jarðarhafsins og hermenn voru á
verði við orkuver og mikilvægar
samgöngumiðstöðvar.
Nýjar flotaæfingar
Rússa við N-Noreg
Ósló, 13. júnf. NTB.
RÍJSSAR hafa hafið meiriháttar flotaæfingar úti fyrir Finn-
mörku og Troms f Noregi og á hafinu milli Noregs og tslands
undanfarna daga.
Jafnframt hafa átt sér stað
veruleg umsvif sovézkra flug-
véla yfir alþjóðlegum siglinga-
leiðum á Barentshafi að undan-
förnu að sögn norsku herstjórn-
arinnar.
tsovézka æfingaflotanum eru
flugvélaskipið Kiev, beitiskip,
eldflaugaskip, kafbátar, tund-
urðuflaslæðarar, olíuskip og
önnur hjálparskip.
Deild beitiskipa og eldflauga-
skip hefur jafnframt siglt frá
Eystrasalti til að taka þátt i
æfingunum.
Siðustu meiriháttar flotaæf-
ingar Rússa við Noreg fóru
fram í april. Övenjulegt er að
Rússar haldi svona miklar æf-
ingar með svona stuttu milli-
bili.
Framhald á bls. 26
Tuttugu og tveggja ára gamall
stúdent beið bana þegar sprengja
sprakk í lögreglubíl sem hann
stóð hjá i einu úthverfi Bilbao.
Tveimur handsprengjum var
fleygt að bilastæði þjóðvarðliða í
Pamplona og þær ollu skemmdum
á nokkrum bílum. Kona hringdi i
lögregluna og sagði að ETA,
skæruliðasamtök Baska, bæru
ábyrgðina.
Aðaljárnbrautin milli Frakk-
lands og Spánar lokaðist i nokkra
tima þar sem sprengja olli
skemmdum á járnbrautarlinunni
nálægt bænum Renteria í Baska-
héruðunum. Rafmagnslaust varð i
Baskabæjunum Berango og
Guecho vegna sprengingar i orku-
-veri. Tvær sjónvarpsendurvarps-
stöðvar skemmdust í sprenging-
um i héruðunum Guipuzcoa og
Vizcaya.
Sprengingar ollu einnig
Framhald á bls. 26