Morgunblaðið - 14.06.1977, Síða 2

Morgunblaðið - 14.06.1977, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNI 1977 1 I* ' ÍQÍi»B Bir #, « ' Herjólfur fastur á sandrifinu. Ljósm: Sigurgeir. Skipta þarf um leiðslur að og frá stjórntölvu Herjólfs SÉRFRÆÐINGUR sem hannaði tölvustýrisbúnaðinní Vestmanna- eyjaferjuna Herjólf, kom til Vest- mannaeyja síðdegis I gær, en ferj- an tók niðri í Vestmannaeyjahöfn á laugardag, þegar stjórntölvan í skipinu brann yfir. í gærmorgun, þegar nýtt stykki hafði verið sett í stað þess, sem brann yfir, og átti að reynsíusigla skipinu brann nýja stykkið yfir, þannig að Ijóst þykir að skipta verður um allar leiðslur að og frá stjórntölvunni. Hafði norski sérfræðingurinn með sér tæki til þess. Óhappið varð um fimmleytið á laugardag, þegar búið var að bakka ferjunni upp að bryggju, en þegar stykkið brann yfir, setti skipið á fulla Framhald á bls. 30 Lóðsinn kemur með farþega úr Herjólfi að ferjubryggjummi. Tilboð ASI á laugardag: 105 þúsund króna lágmarkslaun ALÞÝÐUSAMBAND íslands lagði fram nýtt tilboS til vinnuveitenda sfðla á laugardag. í þessu tilboði býður ASÍ að láglaun hækki á næsta samningstlmabili um 35 þúsund krónur. lágmarkslaun verði 100 þús- und krónur á mánuði, en a8 auki reiknist 5 þúsund krónur sem bætur fyrir þaS. a8 launaliSur bóndans f verSlagsgrundvelli landbúnaðarvara dregst frá vi8 útreikning verSbóta- vfsitölu og einnig til a8 mæta þeirri kjaraskerSingu. sem dráttur á samn- ingum frá 1. maf hefur haft f för me8 sér Þannig verSi lágmarkslaun 105 þúsund krónur á mánuSi og aSrir launastigar hækki um sömu krónu- tölu. Vinnuveítendur höfnuðu þessu til- Knattspymu- úrslitin FH sigraði KR á Kaplakrikavelli I gærkvöldi 5:4 (3—1). í Vest- mannaeyjum vann ÍBV — Þór; 2:1 (1—1). Víkingur vann Breiða- blik á Laugardalsvelli 2:0 (1—0). 1 Keflavfk unnu Akurnesingar heimamenn 3:0. boði þá þegar er það hafði verið lagt fram í tilboðinu var gert ráð fyrir því að samningstíminn yrði eitt ár. en upphafshækkun og áfangahækkanir voru ekki skilgreindar nánar I tilboð- inu Þá var tilboðið skilyrt að því leyti, að gert var ráð fyrir að rikisstjórnin stæði við þau vilyrði, sem hún hafði áður gefið I sambandi við samninga- málin i tilboði aðalsamninganefndar ASÍ var gert ráð fyrir því að væntanlegur kjarasamningur yrði uppsegjanlegur. ef veruleg breyting yrði á gengi islenzkrar krónu. opinberar aðgerðir skertu verðbótakerfið og ef umtalsverð- ir launahópar fengju meiri launahækk- un en samningurinn sjálfur segði til um. i fréttatilkynningu. sem Alþýðusam- bandið hefur sent frá sér um þetta tilboð, segír m.a.: Ástæða er til að vekja athygli á að hér er um verulega tilslökun að ræða af hálfu Alþýðusambandss. því að upphaflega krafan var um 1 1 7 þúsund króna lágmarkslaun Því er hér um 12 þúsund króna lækkun að ræða samkvæmt tilboði ASÍ, enda er það gert til að greiða fyrir samningum Þess vegna eru viðbrögð atvinnurekenda, þegar þeir neita að eiga frekari viðræður við fulltrúa ASI eftir þessa tillögu. nánast furðuleg. Vegna þeírrar yfirlýsingar atvinnurekenda I fjölmiðlum. að þetta tilboð sé ekki I námunda við tillögu sáttanefndarinnar, er rétt að það komi enn einu sinni fram. að aðalsamninganefnd ASÍ Htur ekki á þá tillögu sem samningsgrundvöll. heldur eingöngu sem umræðugrundvöll. sem hafður skal til viðmiðunar I viðræðum. Auk þess hefur afstaða ASÍ til umræðugrundvallarins verið sú frá upphafi, að hann væri allt of lágur Þessi afstaða er þvi löngu kunn bæði atvinnurekendum og sáttanefnd " Iðnkynning í Rvík 19. sept. til 2. okt. ÍSLENZK iSnkynning og Reykjavtk- urborg hafa ákveSiS a8 standa a8 iSnkynningu f Reykjavtk f september n.k. og verSur þa8 sfSasta verkefni íslenzkrar iSnkynningar, sem hófst f september á sfSasta ári. Sérstök nefnd á vegum Reykjavfkurborgar og Íslenzkrar iSnkynningar stendur a8 framkvæmd og skipulagningu i8n- kynningarinnar og ver8ur hún dag- ana 1 9. september til 2. október. í undirbúningsnefnd iðnkynningar I Reykjavlk eiga sæti: Albert Guðmunds- son, formaður, Sigurjón „ Pétursson, varaformaður, Markús Örn Antonsson. borgarfulltrúi. Björn Guðmundsson, Fél ísl iðnrekenda, Guðmundur Guðni Guðmundsson, Iðju, og Gunnar Guðmundsson hjá Landssambandi iðn- aðarmanna. Vinnur nefndin i nánu samstarfi við verkefnisráð og fram- kvæmdastjóra íslenzkrar iðnkynningar auk þess sem fulltrúi Kaupmannasam- takanna. Guðni Þorkelsson. er einnig ráðgefandi Iðnkynning I Reykjavlk i haust er margþætt og er þegar búið að ákveða 12 dagskráratriði. Ber fyrst að nefna sýningu I Laugardalshöll dagana 23. september til 2. október og ber hún yfirskriftina Iðnkynning I Reykjavlk Sagði Gunnar Guðmundsson. formaður Landssambands iðnaðar- manna. sem á sæti I sýningarnefnd, á fundi með fréttamönnum I gær, að bæði einstök fyrirtæki og samtök iðn- aðarmanna myndu sýna þar, alls 90—100 aðilar Sérdeildir verða nokkrar, húsgagna- og innréttinga- deild, fataiðnaðar-, matvæla- og bygg- ingariðnaðardeildir auk sérstakrar sýningardeildar iðnverkafólks. Þá verð- ur afmarkað útisvæði og ef það dugir ekki verður komið fyrir sýningar- munum á Lækjartorgi og Austurstræti. Einnig er gert ráð fyrir sérdeild þar sem kynntar verða iðngreinar, en eitt af dagskráratriðum iðnkynningarinnar er þátttaka skólafólks og verður það gert m a með heimsóknum I iðnfyrirtæki og starfsemi Iðnskólans verður kynnt sérstaklega þessa daga Iðnminjasýning að Árbæ er I undir- búningi og hefur Iðnaðarmannafélag Reykjavlkur tekið að sér undirbúning Framhald á bls. 26 „Reykjavíkurboðorð” um framtíð mannkyns — samþykkt á umhverfisráðstefnu „The Reykjavlk Imperative" eða Reykjavlkur boðorðin um umhverfis- mál og framtlS mannkyns er heitiS á yfirlýsingu þeirri, sem alþjóSlega umhverfismálaráSstefnan sendi frá sér I lok vikulangrar ráðstefnu um hagvöxt án vistkreppu. Kæmi ekki á óvart þó a8 oft yrSi I framtlðinni I hana vitnað, bæSi vegna þeirra mörgu heimsþekktu vlsindamanna er að henni stóSu og af þvl a8 innan árs verður komin út bók beggja vegna Atlantshafs undir ritstjórn Pollunins með erindum ráSstefnunn- ar og a.m.k. hluta af umræðum um þau. Slík bók kom út eftir fyrri ráðstefn- una af þessu tagi i Finnlandi 1971 sem ætluð var til upplýsingar og leið- beiningar fyrir Stokkhólmsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna ári siðar. og vakti mikla athygli. En með þessari ráð- stefnu vilja vlsindamennirnir leggja sitt fram til leiðbeiningar stjórnmálamönn- um og öðrum sem taka ákvarðanir er varða framtið jarðarinnar og mann- kyns. Þátttakendur lýstu I fundarlok á laugardag mikilli ánægju með fundar- stað og þökkuðu m a forsætisráð- herra, Geir Hallgrlmssyni, framlag ís- lendinga til að ráðstefnan næði árangri Siðustu daga ráðstefnunnar var einkum fjallað um lagalega. sið- fræðilega. félagslega og stórnmálalega þætti hagvaxtar og vistkreppu. Og i lokin voru samþykktar niðurstöður I Reykjavíkurboðorðunum svonefndu og einnig I sérstökum, stuttum samþykkt- um. En upphafið hljóðar svo: „Á fimm ára afmæli Sameinuðu þjóða ráðstefnunnar um umhverfi mannsins, sem haldin var I Stokk- hólmi, lýsum við, 1 30 vísindamenn og sérfræðingar um umhverfismál frá 20 löndum, er þátt tóku I „annarri alþjóða- ráðstefnunni um framtíð umhverfisins" I Reykjavík á íslandi 5.— 11. júní 1 977, yfir eftirfarandi: Þúsundir kynslóða manna hafa lifað á jörðinni Nú er mannkynið I fyrsta sinn orðið svo fjölmennt og hefur náð svo miklu valdi yfir náttúrunni, að eyðilagt getur veröld okkar. Stjórnum og þjóðum hættir til að einbllna á vandamál llðandi stundar. Það er óvenjulegt að þjóð geri sér 10 ára áætlun og alveg óheyrt að hún hafi 100 ára áætlun. Nú er mjög llklegt. næstum alveg vlst, að innan 50 ára muni, umfram liðnar vistkreppur. yfir dynja mesta hrun I allri heimssögunni Það gæti orðið alheims hungursneyð eða styrjöld. sem gæti eyðilagt alla menningu, eða slíkt gæti orðið fyrir Framhald á bls. 30 Starfsgreinaverkföllin: Iðnaður lamast 1 dag ÖLL vinna Ið niSri I vélsmiðjum. bflaverkstæSum og öðrum smiðjum f málmi8naði f gær vegna verkfalls Málm- og skipasmiðasambands ís- lands og þeirra starlsmanna innan Verkamannasambandsins, sem vinna ! MálmiSnaði. Þetta verkfall f gær var fyrsta starfsgreinaverkfallið af fimm, sem boðuð hafa verið og lýkur meS allsherjarverkfalli f einn dag hinn 21. júnf eða eftir rétta viku. Framhald þessara starfsgreinaverk- falla verður svo I dag, er Landssam- band iðnverkafólks, Samband bygg- ingamanna og þeir verkamenn innan Verkamannasambands íslands, sem starfa í byggingaiðnaði, leggja niður vinnu. Þvl má búast við þvi, að allur iðnaður leggist niður I dag svo og byggingaiðnaður. Á morgun er siðan i ráði að bókagerðarmenn. rafiðnaður og félög i veitingahúsa- og hótelrekstri leggi niður vinnu. Þessi starfsgreina- verkföll ná til alls landsins. en þó hefur Alþýðusambandið samþykkt undan- þágu til litilla staða úti á landi Þar er heimilt að hafa ekki starfsgreinaverk- föll. en i þess stað eiga félögin að hafa einn allsherjarverkfallsdag, sem þau geta valið sjálf „Alltaf gaman að leika med Pólýf ónkórnum” „Jú, þetta ar f fyrsta skipti sem vi8 Rut spilum þetta verk og eigin- lega f fyrsta skipti sem viS syst- urnar spilum saman sfSar vi8 vor- um smástelpur heima, svo a8 þetta er töluvert spennandi," sag8i Unnur Marfa Ingólfsdóttir, fiSluleikari, f samtali vi8 Morgun- blaSiS, en hún er nýkomin vestan um haf frá Boston, þar sem hún var vi8 nám og verkiS sem hún nefndi er FiSlukonsert fyrir 2 fiSl- ur eftir Bach, og er ekki vitaS til þess a8 fslenzkir fiSluleikarar hafi flutt þa8 hér heima á5ur. Systurn- ar flytja hins vegar þetta verk á styrktartónleikum Pólýfónkórsins 17. júnf nk. me8 kammerhljóm- sveit, þar sem kórinn mun auk þess flytja Glorfu Vivaldis og Magnificat Bachs, og leika einnig f hljómsveitinni sem leikur undir hjá kórnum, er hann flytur hi8 annálaSa kórverk Hándels — Messlas — á miSvikudaginn f næstu viku. Unnur MarEa hefur þegar lokið burtfararprófi frá Julliardtónlistarhá- skólanum I Bandaríkjunum en hefur ekki látið sér það lynda heldur verið I einkanámi hjá þekktum kennara, George Weikrug. I Boston i vetur þar sem hún hefur auk þess komið fram með ýmsum kammersveitum og nú hefur hún sett stefnuna á London með enn frekara nám I huga Unni Marlu stóð til boðá að sækja og leika á ýmsum tónlistarhátlðum I sumar en hún kaus heldur að koma heim, taka svo til strax við æfingar með Pólýfónkórnum og fara með honum til (talíu, þar sem kórinn mun syngja 8 sinnum I 7 borgum á norðanverðri ítaliu Kannski hefur það haft sitt að segja að það er faðir Framhald á bls. 26 Rabbad vid Unni Maríu Ingólfsdótt- ur, fidluleikara, sem leikur einleik á tónleikum Pólýfónkórsins 17. júní

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.