Morgunblaðið - 14.06.1977, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNI 1977
5
Bandarískt
ljóðskáld með
ljóðakvöld
MIÐVIKUDAGINN 15.
júní kl. 20.30 mun banda-
ríska ljóðskáldið Daniel
Halpern lesa úr eigin verk-
um og öðrum amerískum
samtíða ljóðum í ameríska
bókasafninu
Halpern kennir við
Columbia háskólann og er
þar ritstjóri ljóðablaðsins
Antaeus, þar að auki rit-
stýrir hann American
Poetry Series og er rit-
stjóri Ecco Press. Halpern
hefur hlotiö fjölda verð-
launa og styrkja fyrir verk
sín. Af nýrri bókum hans
má nefna „American
Poetry Anthology" (1976);
„The Lady Knife-
Thrower“ (1975), og
„Street Fire“ (1975).
Ljósmyndaþjónusta Mats Wibe Lund:
Nýjung í rekstri
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN s.f.
— Mats Wibe Lund opnaði nvlega
nýtízkulega ljósmyndaverzlun og
um leið nýtt litmyndastúdfó og
myndasafn að Laugavegi 178.
í ljósmyndaverzluninni verður
lögð höfuðáherzla á faglegar leið-
beiningar. Helzta nýjungin, sem
fyrirtækið hefur tekið upp er sala
á kæligeymdum filmum, sem eiga
að endast lengur en filmur
geymdar í venjulegum lofthita.
Lögð er áherzla á vandaðar ljós-
myndavörur og boðin er að vanda
úrvinnsla, þ.e. framköllun og
kópíeringar, svo og stórstækkan-
ir.
Með tilkomu nýja húsnæðisins
hefur fyrirtækið fengið mjög
rúmgott stúdíó, þar sem boðin er
öll venjuleg stofumyndataka.
Ljósmyndastofa Mats Wibe Lund
er sú eina hér á landi, sem er
alþjóðlegur samstarfshringur á
sviði litljósmyndunar.
Aðrir þættir starfseminnar ná
til iðnaðar- og auglýsingaljós-
myndunar.'ljósmyndunar úr lofti
og hvers konar tækifærisljós-
-myndunar. Þá rekur Ljósmynda-
þjónustan eina opna ljósmynda-
safnið hér á landi, þar sem ljós-
. myndarar geta lagt myndir sinar i
umboðssölu.
Hjá Ljósmyndaþjónustunni
starfa nú: Mats Wibe Lund, Ingi-
mundur Magnússon og Sigurður
Þorgeirsson ljósmyndarar, Valur
R. Jóhannsson verzlunarstjóri og
Arndis Ellertsdóttir.
Uppfærslu innréttinga í hinu
nýja húsnæði og útlit allt annaðist
Ásgerður Höskuldsdóttir, en inn-
réttingar eru frá Kristjáni Sig-
geirssyni.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
hluta fyrirtækisins.
Ananda Marga
í Reykjavík
t DAG kemur hingað til lands
einn af mörgum yogakennurum 1
hinni andlegu og þjóðfélagslegu
hreyfingu Ananda Marga. Hann
heitir Karunananda og er ind-
verskur að ætt og uppruna, en
hefu dvalist f Evrópu undanfarin
fjögur ár og kennt yoga og hug-
lciðslu. Karunananda mun velj-
ast hér fram til 22. júní og halda
fyrirlestra, sem nánar verða aug-
lýstir I dagblöðum.
Einkunnarorð Ananda Marga
eru sjálfsþekking og þjónusta við
mannkynið, svo og að stuðla að
þroska og þróun alls þjóðfélags-
ins. Á íslandi rekur félagsskapur-
inn „Kornmarkaðinn“, sem er
verzlun á Skólavörðustíg 21a og
eru þar seldar heilnæmar fæðu-
tegundir. Þá er í bigerð að koma
upp matstofu með jurtafæði og
setja á stofn sveitaheimili fyrir
unglinga, sem eiga við vandamál
að stríða. Um allan allan heim
rekur Ananda Marga sjúkrahús
og alls konar starfsemi.
Fröltatilkynning.