Morgunblaðið - 14.06.1977, Page 30

Morgunblaðið - 14.06.1977, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNI 1977 radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar (D ÚTBOÐ Tilboð óskast í lögn safnæða í Mosfellsdal og Helgadal fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn 1 0.000.- kr skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 29. júní n.k. kl. 1 I.OOf.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkiuvegi á — Simi 25800 I HITAVEITA SUÐURNESJA ÚTBOÐ Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í lagningu dreifikerfis í Keflavík 3. áfanga. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja Vesturbraut 10 A Keflavík og á verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Álftamýri 9, Reykjavík, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða verður auglýst síðar. Tilboð óskast í Volvo 144 árgerð 1973 sem er skemmd eftir veltu. Og Escort station árgerð 1973 sem er skemmd eftir árekstur. Bifreiðarnar verða til sýnis við Réttingar- þjónustuna Auðbrekku 35 Kópavogi, miðvikudaginn 1 5. júní. Tilboðum sé skilað til Ábyrgðar h/f fyrir kl. 17. fimmtudaginn 1 6. júní. Ábyrgð h / f Skú/agötu 63 Rvk. Tilboð óskast í að byggja bílahús fyrir Flúðasel nr. 30—52. Út- boðsgögn verða afhent í Búlandi 5 R. gegn 10.000 kr. skilatryggingu frá og með miðvikudeginum 15. júní. Tilboðum skal skila í Flúðasel 40, 2. hæð B. fyrir kl. 1 1 þriðjudaginn 28. júní. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. þjónusta Stækka myndir eftir filmum frá Barnaljósmyndastofunni Borgartúni 7 síðar Gréttisgötu 2. Ath. aðeins þennan mánuð. Pantanir teknar I síma 42201. Góður jeppi óskast til leigu frá júnílokum — ágúst- loka. Símar 21296 og 42540. Laxveiði Örfáir stangveiðidagar lausir í góðri á, slðustu viku I júní. Þeir, sem kynnu að hafa áhuga, vinsam- lega leggi nöfn og símanúmer á afgr. Mbl. merkt: „Veiði — 21 55". Bátar — Skip Höfum til sölumeðferðar: Eik og fura: 2—4—5—6 — 9 — 10—1 1 —1 5---- 20—24—30—38—46 — 67 — 91 tn. Gott stálskip 228 tn. Höfum góða kaupendur að flestum stærð- um skipa. Aðalskipasalan Vesturgötu 1 7, Símar 26560, 28888, Heimasími 75511. húsnæöi i Til leigu 200 ferm. hæð við Ármúla. Léttur iðn- aður, skrifstofur, o.m.fl. kemur til greina. Tilboð sendist Mbl. fyrir 21. þ.m. merkt: „Ármúli — 2380". Bátar til sölu 9 — 12 — 15 — 17 — 24 — 25 — 30 — 40 — 42 — 45 — 50 — 53 — 57 — 60 — 65 — 66 — 71 — 72 tonn. Togveiðiskip, 300 tonn. Fas teignamiðstöðin Hafnarstræti 7 sími 14120. — Clausen sextugur Framhald af bls. 31 vellinum, þegar hann lék sér að því að setja handbenzínið í botn, eins og það var kallað I opnum gamla Ford. Þvílíkar endur- minningar glaumast ekki, sem sagt mikil reisn var yfir bernzku- heimili Olla. Og svo tók alvara lífsins við, að standa. á eigin fót- um. Það hefur Olla tekizt með prýði með sinni dugmiklu konu. Brautin hefur ekki alltaf verið blómum stráð, það hafa bæði komið erfiðir tímar og veikindi steðjað að, en með miklum dugn- aði og atorku á sviði kaupsýslu hefur tekizt að sigrast á öllum örðugleikum og hindrunum, og reka þau hjónin í dag ágætt fyrir- tæki og eiga eitt af fallegustu heimilum í borginni. Ég vil á þessum tímamótum þakka Olla fyrir órofa tryggð og vináttu i nærfellt fimm tugi ára og árna honum og fjölskyldu hans allra heilla og vona, að hann megi lengi setja svip sinn á mannlífið i borg- inni, eins og margt af ættmennum hans hefur lengi gert. Björgvin Frederiksen. — Lýsa furðu Framhald af bls. 17 þeirri hættu, sem felst í því að eigendum, þ.e. ríkisvaldinu, líðst að halda að sér höndum og aðhaf- ast ekkert. Fundármenn lýsa furðu sinni og gremju á þeim vinnubrögðum, sem viðgengizt hafa hjá stjórn Þörungavinnsl- unnar h.f. og þá um leið hjá að- standendum fyrirtækisins í sam- bandi við launatengd gjöld o.fl. Aðstandendur fundarins full- yrða, að forsendur séu fyrir frek- ari rekstri með þvi að grund- vallarbreytingar verði gerðar á rekstrarformi og að það þurfi ekki að kosta frekari skuldabyrði þ.e. að eyðslan verði ekki meiri en framleiðsluverðmæti. í trausti þess, að eigendur Þörungavinnsl- unnar h.f. sjái sóma sinn i þvi að gera upp allar lausar skuldir fyrirtækisins strax og koma verk- smiðjunni í starfhæft form, þá skora fundarmenn á nefndar hreppsnefndir að taka af skarið og krefjast svara, eða að öðrum kosti að nota þann siðferðilega stuðning, sem fundur þessi veitir þeim, til að ganga til róttækra aðgerða. — Enn um rússnesku Framhald af bls. 27 móðurmáli þeirra og þjóðlegri menningu, er ég hræddur um að þau myndu einfaldlega springa af hlátri. í raun og veru er þessu einmitt farið á allt annan veg. Aldrei áður í sögu þeirra sovétþjóða sem ekki eru rússar hafa tungur þeirra og menning þróast svo hratt og glæsilega sem á tímum sovéskra yfirvalda. Nú eiga þær leikhús og timarit, skóla og stofnanir, bóka- forlög og dagblöð — allt á sínu móðurmáli. Frá morgni til kvölds er útvarpað og sjónvarpað á tungumálum langflestra sovét- þjóða. Á sérhverju þjóðarsvæði, jafnvel þeim allra smæstu, eru reknar sjónvarpsstöðvar sem senda út mikinn hluta efnis sins á máli viðkomandi þjóðar eða þjóðarbrots. Af 70 skrifuðum tungumálum í Sovétríkjunum fengu 50 ekki skriflegt form fyrr en eftir Októberbyltinguna. Stofnandi rikis okkar, Vladimir Lenin, sagði að menningarleg ein- ing hinna einstöku þjóða og þjóð- erna myndi ekki verða fyrr en einhverntíma í framtfðinni, eftir að hver um sig hefði þróast og blómgast. Þetta hefur verið haft f huga í landi mlnu í 60 ár. Þús- undir málvísindamanna vinna að málefnum málþróunar í hinum víðáttumiklu Sovétrikjum og sovésk yfirvöld láta sér ekki nægja að borga þeim laun fyrir vinnu sina, heldur veita þau þeim hverskyns aðstoð við framkvæmd á vísindalegum meðmælum þeirra sem stuðla eiga að þróun og eflingu hinna ýmsu tungu- mála. Málþróun, þ.á m. útbreiðsla rússneskunnar sem aðalmáls er og getur aóeins verið eðlilegt ferli og sjálfviljugt. Um þetta skrifaði Lenin: „Sérhverjum íbúa Rúss- lands væri hollt að læra rúss- nesku, en við viljum ekki beita neinum þvingunum, við viljum ekki reka fólk með kylfum inni paradis, því hversu mörg falleg orð sem sögð eru um menninguna er viss þvingun fólgin I því aö lýsa eitt mál opinbert, þarmeð væri verið að beita kylfu.“ i Sovét- ríkjunum er ekkert opinbert mál, rússneska hefur aldrei verið lýst opinbert mál. Allt sem ég sagði i grein minni er árangur sjálf- viljugrar vióleitni allra þjóða Sovétríkjanna í þá átt að læra rússnesku auk móðurmáls sins, nota rússnesku í samskiptum milli þjóða. Viðræðunautur minn þarf t.d. alls ekki að kenna svo mjög í brjósti um eistlendinga. Ég kem til Eistlands á hverju sumri og veit um hvað ég er að tala. Öll kennsla í skólum þar fer fram á eistnesku. í hinum heimsfræga háskóla i Tartu er líka kennt á eistnesku — i öllum deildum nema eðlisfræðideild og íþrótta- læknisfræðideild, sem er sú eina sinnar tegundar í Sovétríkjunum og þangað koma til náms stúd- entar frá öllum hinum sovétlýð- veldunum. Til hvers er að veita lesendum svo villandi upplýs- ingar, viðræðunautur góður? Þess ber reyndar að geta að mjög margt fólk af rússnesku þjóðerni, búsett f hinum ýmsu sovétlýðveldum, telur móðurmál sitt ekki vera rússnesku, heldur mál þess lýðveldis sem það býr i. Sama gildir um Eystrasaltslöndin, en en þangað flytur inn fólk af ýmsum þjóðernum, ekki bara ■ rússar, einsog nafnlaus andstæð- ingur minn heldur. Mér er kunnugt um að sagna- þulir til forna töldu það alltaf vera sannleika sem þeir voru að segja frá. Nú er öldin önnur og menn geta ekki lengur gefið það út sem sannleika sem þeim sýnist, þegar það er í mótsögn við stað- reyndir. Þ.e.a.s. ef þeim er kunn- ugt um staðreyndir. Og ef þeir bera virðingu fyrir lesendum sin- um. — Minning Höskuldur Framhald af bls. 34 Jú, pabbi, ég svarði grátklökk, ef ekki hér, þá er búinn oss staður. Á himnum hjá Drottni föður vorum, og þar við mætumst ef veljum rétt bæði. Það rættist er sagðir þú pabbi, en f hjarta mér fullvissa Mr. Að heima einn dag, á himnanna hæðum við aftur hittumst við hásæti Guðs. IVIeð þessum orðum ég kveð þig elsku pabbi, og þakka af hjarta öll liðnu árin. Guð þekkir alla og alla hann elskar, og þeir sem það velja hjá honum fá dvelja um elffð. Þin dóttir í Afríku. — „Reykjavíkur- boðorð” Framhald af bls. 2 sambland af ýmiss konar áhrifum, sem óskynsamlegar gerðir okkar orsaka En það er líka mögulegt að hægt sé að koma I veg fyrir slíkt hrun, ef réttar ákvarðanir eru nú teknar um framtíð umhverfisins. Ákvarðanir sem teknar eru núna og á næstu 30 árum munu ákvarða fram- tíð mannkynsins og heimsins Þær ákvarðanir geta vel orðið mikilvægustu ákvarðanir, sem nokkru sinni verða gerðar — Steiktu kjúklinga Framhald af bls. 44 mastrinu ákváðu að sleppa því þann daginn að fara til jarðar í hádegismat þar sem þeir voru komnir svo hátt upp og I staðinn tóku þeir með sér nokkra væna kjúklinga. viðarkol og tilheyrandi til þess að steikja hangandi I mastrinu sem ávallt er nokkuð á hreyfingu. Þykir flestum nóg um að menn treysti sér til að vinna við sllkar aðstæður, hvað þá að þeir hefji matseld á flöktinu. En kjúklingana náðu þeir að steikja áður en pannan féll um koll með kolin og á meðan slökkviliðsmenn slökktu I sinu og mosa á 400—500 metra löngu svæði, nokkurra metra breiðu, þá gæddu málararnir I mastrinu sér á Ijúffengum kjúklingum áður en þeir héldu áfram málningarstörfum — Herjólfur Framhald af bls. 2 ferð áfram og stefndi þvert yfir höfn- ina á Eiðið Var tafarlaust drepið á vélum og akkeri látin falla út, en ferjan náði ekki að stöðvast I tæka tið, heldur tók niðri á sandeyri. Lóðsinn sótti svo farþega og farang- ur um borð I ferjuna, sem tókst að losa með eigin vélarafli um eitt- leytið aðfararnótt sunnudagsins. Var skipinu bakkað aftur að bryggju með neyðarkerfi. en ekki þótti fært að sigla á þvi til Þorlákshafnar og var Gullbergið fengið til að halda uppi ferðum til Þorlákshafnar með farþega Að sögn Ólafs Runólfssonar, framkvæmdastjóra Herjólfs, urðu engar skemmdir á ferjunni við strandið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.