Morgunblaðið - 14.06.1977, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNÍ 1977
35
Magnús Magntísson
—Hinzta kveðja
F. 30. aprfl 1909.
D. 6. júní 1977.
Óneitanlega er erfitt að festa á
blað nokkur kveðjuorð, þegar
fóstri minn, seinni maður móður
minnar, er kvaddur hinztu
kveðju.
Árið 1935 urðu þungbær þátta-
skil í lífi okkar, þá lézt faðir okkar
og móðir min stóð ein uppi með 8
börn, það yngsta nýfætt, ég elztur
þá 12 ára gamall. Þannig liðu
nokkur ár og eru mér í minni
margvislegir -erfiðleikar, sem
móðir mín hafði þá við að glima,
þótt sjálfur væri ég I fóstri hjá
móðurömmu minni.
En öll él birtir upp um siðir.
Dag einn kvaddi gæfan dyra hjá
móður minni og eftir giftingu
hennar og Magnúsar létti og birti
yfir fjölskyldunni. Magnús varð
ekki eingöngu fósturfaðir okkar,
heldur ávann hann sér traust ov
vináttu okkar systkinanna með
einstaklega ljúfmannlegri fram-
komu, reglusamur, hógvær og
trúr í hverju starfi.
Móður okkar, Indíönu Bjarna-
dóttur, reyndist hann frábær
eiginmaður og sambúð þeirra
einn samfelldur sólskinsdagur.
Fósturdóttur þeirra, Ingu, var
Magnús ástríkasti faðir, og hún
þeim sem bezta dóttir og yndis-
auki. Inga er nú gift Karli Ás-
geirssyni og eiga þau 2 börn,
Magnús og Fanneyju, sem ásamt
öllum barnabörnunum sakna góðs
afa.
Magnús var hverjum manni
glaðari á gleðistund, en mann-
gæzka hans birtist þá bezt, er
erfiðleikar og áhyggjur knúðu
dyra. Hann studdi okkur og
styrkti og með honum áttum við
margar gleðistundir.
Við syrgjum vin okkar og
fó'stra, Magnús Magnússon, en
efst í huga er þakklætið til hans
fyrir þá einstöku ást og um-
hyggju, er hann veitti móður okk-
ar, sú endurminning mun orna
henni fram á ævikvöld.
Blessuð sé minning Magnúsar
Magnússonar.
Albert Guðmundsson.
Það ríkir sorg i ranni, hljóðlát,
hógvær eins og sá, er við syrgjum.
Ég var ung að áriim, er leiðir
okkar Magnúsar lágu fyrst saman,
fávís unglingurinn greindi ekki
strax einstaka mannkosti hans, en
góðlátleg glettnin fór ekki fram
hjá neinum.
Lífið var gjöfult og gaf mér
þennan öðling fyrir tengdaföður.
í allri sinni hlýju hógværð fékk
hann ekki falið, hve fágætlega vel
hann var af guði gerður. Hann
deildi gleði og sorg með konu
sinni, Indíönu, eldkulegri tengda-
móður minni, börnum hennar,
barna- og barnabörnum og fóstur-
dóttur þeirra hjóna, Ingu.
öllum var hann það bjarg, sem
byggja mátti á, hann var traustur,
mildur, hjálpfús, hann var
„Maggi afi.“
Frá heimili okkar lagði hann í
hinztu ferðina, jafn hljóðlátlega
og hann hafði gengið götu.
Tíminn mildar sorg og söknuð,
sjálfur gaf Magnús okkur dýrustu
perluna: Minningu um góðan
dreng.
Brynhildur.
Deyr fé
deyja frændur
deyr sjálfur ið sama
en orðstfr deyr altregi
hveim er sér góðan getur
Þessi gömlu og góðu hendingar úr
Hávamálum komu mér í huga
þegar mér barst sú sorgarfrétt að
minn góði vinur og mágur Magn-
ús Magnússon bifreiðastjóri, Ljós-
heimum 4 hér i borg, væri látinn
eftir mjög skamma legu. Hann
lézt í Landspitalanum aðfaranótt
mánudagsins 6. júni.
Magnús var fæddur á Kárastöð-
um f Borgarhreppi 30. aprfl 1909
og var þvi rúmlega 68 ára er hann
lézt. Hann ólst upp f Borgarnesi á
heimili foreldra sinna' Mariu
Ólafsdóttur frá Lækjarkoti í
Borgarhreppi og Magnúsar
Jóhannessonar frá Garðabrekku í
Staðarsveit, sem lengi bjuggu í
Borgarnesi. Systkini Magnúsar
voru 6 og eru þau öll lifandi nema
Guðmundur sem lézt i febrúar
núna í ár, svo það varð harla
skammt milli bræðra og mikil og
stór skörð höggvin í systkina- og
vinahópinn sem erfitt verður að
fylla. Magnús var mjög traustur
og skapfastur persónuleiki og
mun hafa verið mikill skapmaður
þótt hann kynni vel að gæta þess.
Okkur sem kynntumst honum
náið mun hann verða mjög
minnisstæður. Hann var glaður á
góðum stundum, glettinn og
spaugsamur þegar þvf var að
skipta og smástrlðinn er mér sagt
að hann hafi verið í gamla daga,
en allt var það græskulaust gam-
an.
Hann fluttist til Reykjavíkur
um tvitugsaldur og hefur búið
hér alla tfð sfðan.
Árið 1951 hinn 31. des. giftist
Magnús eftirlifandi konu sinni
Indiönu Katrinu Bjarnadóttur
ættaðri frá Neskaupstað, mikilli
höfðings- og sæmdarkonu. Var '
þeirra samband og samstarf mjög
til fyrirmýhdar, hjúskap þeirra
tel ég hafa verið með afbrigðum
ánægjulegan. Hún skapaði þeim
mjög fallegt og ánægjulegt heim-
ili sem gott var að heimsækja. Þar
réð rausn og myndarskapur hús-
um og minnist ég þar margra
glaðra stunda, sem ég þakka inni-
lega. Magnús var starfsmaður
mikill svo sem hann átti ættir til
og samviskusamur I besta lagi.
Bifreiðaakstur varð hans aðal-
starf á lifsleiðinni þótt liklega
hafi hugur hans ungur beinst að
trésmiðanámi, því hann var mjög
hagur og um tíma starfaði hann
að trésmiði. En á þeim tíma sem
hann hugði á nám í þeirri iðn var
mjög erfitt að komast að sem
nemandi og varð þvi að taka þá
vinnu sem bauðst og ekki um
margar valgreinar að ræða. Bif-
reiðaöldin var að ganga í garð
með fullum þunga og mun
Magnús hafa byrjað að aka bif-
reið i Borgarnesi og þegar til
Reykjavíkur kom stundaði hann
bæði akstur vörubifreiða og fólks-
bifreiða eftir aðstæðum, nú sið-
ustu árin ók hann bifreið hjá
Rey kj avíkurborg.
Að enduðum þessum fátæklegu
orðum þakka ég og mín fjölskylda
Magnúsi fyrir hans órofa tryggð
og drengskap sem við mættum
hjá honum alla tfð. Börnin þakka
sérstaklega fyrir alla hluti þvi
hann var mikill barnavinur og
barnagæla. Við vottum dóttur og
stjúpbörnum og börnum þeirra
innilegustu samúð og Indiönu
minni þökkum við alla tíð og von-
um að hún finni huggun f minn-
ingunni um góðan dreng.
Lifi minning Magnúsar
Magnússonar.
H.Kr.
HAFA
baðherbergisskápar
Sérlegafalleg og vönduð
smíði einkennirsænsku
HAFA baðskápana.
Margar gerðir eru fyrir
liggjandi. Hagstætt verð.
FáanlegirúrTEAK, ASK
og hvítlökkuðum ASKI.
VALD. POULSEN HF.,
Suðulandsbraut 10
símar38520 — 31142.
Fiat 125 P ti!afgreióslu strax
| | Hámarksbraði 155 km, Q Bensíneyðsla
um 10 lítrar per 100 km — Kraftbremsur
með diskum á öllum hjólum ~ Radial —
dekk Tvöföld framljós með stillingu ~
Læst benzínlok L Bakkljós ~ Rautt Ijós i
öllum hurðum (_ Teppalagður Lý Loftræsti-
kerfi ~ Öryggisglér ~ 2ja hraða miðstöð .
2ja hraða rúðuþurrkur ~ Rafmagnsrúðu-
sprauta ~ Hanzkahólf og hilla ~ Kveikjari
~ Litaður baksýmsspegill ~' Verkfærataska
l_ Gljábrennt lakk Ljós i farangurs-
geymslu 2ja hólfa karborator Syn-
kromeseraður gírkassi , Hituð afturrúða
Hallanleg sætisbök , Höfuðpúðar
1fgg5°ok-
til öry'kja w. o
Lehið upptýsinga
sem fyrst.
FIAT EINKAUMBOO A ISLANDI
Davíð Sigurðsson lií’,
SIÐUMULA 35. simi 85855