Morgunblaðið - 14.06.1977, Side 41

Morgunblaðið - 14.06.1977, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977 41 ið á síðum Morgunblaðsins, ef einn úr hópi róttækra manna upp- hæfi erindaflutning í Ríkisút- varpinu um pólitisk efni frá sjónarhóli félagssinna. Aður en ég lýk þessum pistli mínum langar mig að fara fáein- um orðum um trúmáladeilur þær, sem undanfarið hafa sett svip sinn á blað yðar. Þér teljið lesend- um yðar trú um, að Morgunblað- inu og þeim pólitísku öflum, sem að baki því standa, sé annt um kristna trú og kirkju. Jafnvel er látið í það skína, að Morgunblaðið sé nokkurs konar „útvörður“ Guðs heilagrar kristni. Hvilik firra! Þessi sjálfsmynd yðar hlýt- ur að vera á misskilningi byggð, nema um sé að ræða hreina hræsni. Fátt er jafn ósamrýman- legt og auð- og einstaklingshyggja borgarastéttar og kristin trú, sem skírskotar til samvinnu i heimi þessum og bróðurhugar. Það er trú mín, að Antí- Kristur gangi ljósum logum meðal vor í búningi hins glórulausa kapitalisma. Herskár kommúnismi og yfirlýst guðleysisstefna hans eru ekki höfuðógnvaldur Heilagrar kirkju. Austrænir kommúnistar hafa allavega þann heiðarleika til að bera að segja kristnum mönnum strið á hendur tæpitungulaust! Sá óvinur er á hinn bóginn válegast- ur sem af lævísi kappkostar að villa mönnum sýn innan herbúða kristninnar og læst vera hollvin- ur. Sá er í sannleika vargur í véum. Læt ég þessum pistli lokið i von um, að þér birtið hann í lesenda- dálki yðar og sýnið það enn sem fyrr, að þér þolið gagnrýni and- stæðings. Skirskota ég til elsku yðar á málfrelsi og skoðanafrelsi. Seraphin." Þessir hringdu . . . # Ekki spurt um afköstin Ein forvitin: — Mig hefur lengi langað til að forvitnast um það af hverju ekki er spurt nú í þessum samningum öllum hvernig sé háttað afköstum fólks hjá hinum ýmsu fyrirtækjum. Það er alltaf verið að gera kröfur, en ég hef ekki heyrt nokkurn mann minn- ast á það hversu illa tíminn er oft nýttur hjá þessum fyrirtækjum. Við getum t.d. tekið svolítið dæmi. Hjá fyrirtæki vinna 36 manns. 24 koma 5 mínútum of seint til vinnu á morgnana, sem þýðir að tvær klukkustundir tap- ast á degi hverjum hjá þessu fyrirtæki i ónotaðar vinnustund- ir, sem þó er jafnvel borgað fyrir. Þannig er, að því er ég held, alltof oft hjá sumum fyrirtækjum, og það er sjalfsagt að einhverju leyti vegna þess að þeim er illa stjórn- að. En líka má segja, að þetta sé hreinn stuldur, þvi fólkið hlýtur að vera ráðið til að mæta á ein- hverjum ákveðnum tima í sina vinnu og það á varla að þurfa að hafa mjög strangt eftirlit með því rétt eins og smábörnum. Það hefur líka komið i ljós i þessu yfirvinnubanni að mörg fyrirtæki SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á SKÁKMÓTI í Austurriki í fyrra kom þessi staða upp i skák þeirra Herzogs,, sem hafði hvitt og áttí leik, og YValters. • b c d • f g 21. Rd5! — Bxal, 22. f6 — De8, (Eftir 22. .. Bxf6, 23. Rxf6+ — gxf6, 24. Dh6!, er svartur varnar- laus og sama er uppi á teningnum eftir 22. Re5, 23. Bh3) 23. Bh3 — g6, 24. Dh6 og svartur gafst upp, þvi að eftir 24.. . Df8. 25. Hxg6+ — fxg6, 26. Be6+ — Df7, 27. Dg7 er hann mát. geta komizt af með að láta vinna aðeins i dagvinnu, með þvi að nýta timann betur og gæta hag- kvæmni, en þá kemur líka spurningin: Má ekki líka greiða hærri laun fyrir þessi auknu af- köst og þessa betri nýtingu á vinnukrafti? Hvers vegna er ekki komið inn á þessa hluti f samningaviðræðum? Þeir til- heyra kannski ekki beint hrein- um kauphækkunarviðræðum, en þó — eru að minnsta kosti skyld atriði. Ég held að það sé alltof oft viðbára að menn þurfi á eftir- vinnu að halda, fremur en að fyrirtækið þurfi að láta vinna eftirvinnu. Þá sögu hef ég t.d. heyrt úr fiskverkuninni að menn hangsi og slóri við vinnuna lengi fram eftir degi, en taki siðan til höndunum þegar greinilegt er að um eftirvinnu verður að ræða, méð öðrum orðum, að þegar búið er að slóra allan daginn þá er það nokkurn veginn öruggt að mann- skapurinn fær eftirvinnuna. Er þetta ekki dálítið öfugt farið að hlutunum? Enn annað má nefna. Oft eru borin saman vinnulaun hérlendis og erlendis og menn tala mikið um hversu miklu betra sé að vinna úti en hér heima, þar sé hærra kaupið. En hafa menn það í huga að þar er vinnuharkan meiri en hér. Ég get nefnt aðra sögu. Kona, sem ég þekki, hefur unnið i banka í Danmörku og hér heima. Hún segir mér, að menn séu hreinlega keyrðir áfram, ef þeir liti upp frá vinnu séu þeir bara spurðir: hvað ert þú eiginleg að gera? Það þætti meiri en lítil vinnuharka ef slikt viðgengist hér. Þá yrði afgreiðslufólkið í það minnsta að hætta að tala saman rétt :' meðan fólk biður eftir afgreiðslu. HÖGNI HREKKVÍSI Hvers konar hundakúnstir katta verða að fara fram utan þessa svæðis! Prjónakonur Vil kaupa vel prjónaðar dömupeysur. Verð til viðtals á Þórsgötu 21 A, frá kl. 10 til hádegis næstu daga. Helga Egilsson. ÍLJDSPRENTUM I0II flFRIT af skjölum, bókum o.s.frv. GUERUR fyrir myndvarpa <.r SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hverfisgötu 33 sími 20560 ■ jft- *á*^us$íÉL|i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.