Morgunblaðið - 14.06.1977, Síða 42

Morgunblaðið - 14.06.1977, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNl 1977 Englendingar héldu jöfnu gegn Argentínu ENGLKNDINGAR gerðu jafn- tefli, 1:1, I vináttulandsleik í knattspyrnu gegn Argentfnu í Buenos Aires á sunnudaginn. Stuart Pearson skoraði fyrir Eng- lendinga, en Bertoni fyrir Argentfnu að viðstöddum 60 þúsund áhörfendum. Mikill hiti var meðal áhorfenda og hrópuðu þeir stöðugt allan leikinn „Villidýr, villidýr" og vitnuðu þar í orð Alf Ramseys frá 1966, en þá kallaði hann leikmenn Argentínu hreinustu villidýr. Undir lok leiksins sauð upp úr og Trevor Cherry var vísað af velli fyrir að móðga linuvörð. Hafði Cherry verið sleginn i andlitið og streymdi blóð úr munni hans, en ekkert hafði verið dæmt. Rússneskur sigur í Ijaiveru Rúmena I FJARVERU rúmensku fim- leikastúlknanna sigraði Inna Mitrofanova í heimsmeistaramót- inu í fimleikum, sem fram fór í Erakklandi um helgina. Rú- menskar fimleikastúlkur munu ekki taka þátt í alþjóðamótum fyrr en reglum hefur verið breytt, en þa-r rúmensku stúlkurnar héldu sem kunnugt er heim frá Evrópumótinu í Prag á dögunum vegna óánægju með einkunn, sem Comaneci fékk. Inna Mitronfanova fékk saman- lagt 38.75 stig, en hún sigraði f æfingum á hesti, varð önnur á tvfslá og gólfi, en þriðja á slá. I 2. sæti varð heimsmeistarinn frá þvl í fyrra Lydia Gorbick með 38.55 og jöfn henni varð Stepfo Krakar frá A-Þýzkalandi. Bezt í kringlu- kastí og langstökki GULLHAFINN f langstökki frá Montreal sigraði I langstökki á bandarfska meistaramótinu f frjálsum Iróttum um helgina. Stökk hann 8.24 metra, sem er bezti árangur I langstökki f heim- inum f ár og eitt bezta langstökk allra tíma. Var þetta f þriðja skiptið í röð, sem Robinson sigrar í langstökki á meistaramótinu. Kringlukastarinn sterki, Mac Wilkins, sigraði í kringlukasti með 69,18 m og er það einnig bezti azrangurinn í greininni í ár. í 110 metra grindahlaupi var mikil keppni á milli James Owens og Charles F’oster og komu þeir hnif- TVÖFALT HJÁ FC BRUGGE LEIKMKNN FC Brugge bættu enn einum sætum sigrinum í safn sitt er þeir unnu Anderlecht 4:3 I úrslitum belgfsku bikarkeppn- innar. f'C Brugge vann þvf tvöfalt í Belgíu í ár, en hins vegar hefur Anderleeht sigrað f bikarkeppn- inni tvö sfðastliðin ár. í leikhléi var Anderlecht með 3:2 forystu. jafnir í mark á 13.49 sek. — jafn- vel myndavélin gat ekki skorið úr um að annar þeirra hefði verið á undan. Þriðji í greininni varð hinn 33ja ára Willie Davenport. í kvennagreinununum náðist beztur árangur í 200 m hlaupi, en þar sigraði Eveiyn Ashford á 22.62, sem er nýtt bandarískt met. Helztu úrslit á bandaríska meistaramótinu urðu þessi: 200 m hlaup karla — Gerald Harris 20.6 5000 m hlaup karla — Marty Liquri 13:416 110 m grindahlaup — James Owens og Charles Foster 13.49 Langstökk karla — Arnie Robinson 8,24 m Kringlukast karla — Mac Wilkins 69,18 Sleggjukast — Emit Berry 67,84 200 m hlauo kvenna — Evelyn Ashford 22,62 100 m grindahlaup kvenna — Patty Van Wolvelaere 13.15 Kúluvarp kvenna — Mareen Seidler 16,49 Kringlukast kvenna — Jaine Haist 59,98 Kúluvarp karla — Terry Albritton 20.50. Molenbeck hefur áhuga á Inga Birni ÚTSENDARAR belgíska liðsins Racing White Molenbeck voru viðstaddir lands- leik íslendinga og Norður-íra á laugar- daginn. Eftir leikinn settu þeir sig i samband við Pétur Sveinbjarnarson, for- mann knattspyrnudeildar Vals og kváð- ust hafa mikinn áhuga á Inga Birni Al- bertssyni. Þeir lögðu ekki fram neitt tilboð heldur sögðust ætla að hafa sam- band við Pétur og Inga um miðja þessa viku. Molenbeck er eitt frægasta félagið I 1. deildinni belgísku og það varð belgískur meistari árið 1974 og 1975. Ingi Björn Albertsson sagði I samtali við Mbl. I gær, að hann hefði mikinn hug á því að fara í atvinnumennsku ef hann fengi gott til- boð. Hann sagðist hafa fengið tilboð frá sænsku 2. deildarfélagi, en hann hefði engan áhuga haft á því. Páll sá um sig- ur Þróttaranna ÞRÓTTUR R. sigraði Selfoss 2:1, er liðin áttust við á Laugardalsvellinum á föstudagskvöld. Leikurinn var nokkuð jafn, en þð voru Þróttarar heldur betri og verðskulduðu sigurinn. Þróttarar byrjuðu leikinn af miklum krafti og það leið ekki á löngu þar til þeir skoruðu fyrsta markið. Þar var Páll Ólafsson að verki, skallaði knöttinn í netið frá vítateigslínu, eftir misheppnað úthlaup markmanns Selfyssinga. Eftir markið sóttu Selfyssingar í sig veðrið og voru sterkari aðil- inn, en ekki vildi knötturinn í mark Þróttar þrátt fyrir ágæt marktækifæri Selfyssinga. I síðari hálfleik tóku Þróttarar völdin og voru mun sterkari en Selfyssingar. Og það leið ekki á löngu að Þróttarar bættu við öðru marki, þar var Páll Ólafsson aftur að ferðinni, skoraði af stuttu færi eftir að markvörður Selfoss sló knöttinn fyrir fætur hans. Skömmu siðar átti Páll tvö góð marktækifæri, en skot hans höfn- uðu bæði í fangi markmannsins. Þremur mínútum fyrir leikslok skoruð Selfyssingar mark. Sig- urður Óttarsson skaut föstu skoti að marki Þróttar. Boltinn fór í Guðjón Arngrímsson, breytti stefnu og hafnaði örugglega í net- inu. í lok leiksins munaði minnstu að Selfyssingum tækist að jafna metin, en varnarmenn Þróttar náðu að hreinsa frá eftir mikinn darradans f markteignum. Leiknum lauk því með sigri Þrótt- ar 2:1. í liði Þróttar var Haukur And- résson mjög góður, besti maður vallarins, en þetta var fyrsti leikur Hauks á þessu sumri. í liði Selfoss skar sig enginn sérstak- lega úr, en það var greinilegt að einstakir leikmenn í liðinu hafa ekki nægilegt úthald. Dómari leiksins var Ólafur Valgeirsson og sýndi hann tveim leikmönnum Þróttar gula spjaldið. -HVH islandsmötlð 2. delld Algeng sjón f leiknum á Húsavfk á laugardaginn, Völsungar sækja að marki Reynis frá Sandgerði. (Ljósm. Börkur). Heppnissigur Sand- geröinga á Húsavík LEIKMENN Reynis Sandgerði máttu svo sannarlega hrósa happi yfir sigri sfnum yfir Völsungi 0:1, á laugar- daginn. 1 fyrri hálfleik sóttu heima- menn án afláts og tókst að skapa sér nokkur dauðafæri, en fyrir einstaka óheppni tókst þeim ekki að skora. í síðari hálfleik var það sama upp á teningnum. Völsung- ar sóttu stöðugt. En á 16. mín. fengu þeir dæmda á sig óbeina aukaspyrnu sem Ómar Björnsson tók og gaf hann boltann til Júlíus- ar Jónssonar sem skaut föstu skoti á markið. Boltinn fór í varnarmann og breytti um stefnu svo markmaður Völsunga, Rúnar Arason kom engum vörnum við. Eftir þetta mark þyngdu Völs- ungar enn sóknina, en Reynis- menn ,,pökkuðu“ í vörn. Þrátt fyrir það fengu Völsungar nokkur góð færi sem þeim tókst ekki að nýta. Völsungar voru til muna betri aðilinn f þessum leik, og hefði sigur þeirra i þessum leik ekki verið ósanngjörn úrslit. Kristján Olgeirsson Völsungi var besti maður þessa leiks, en hann varð að yíirgefa völlinn f síðari hálfleik vegna meðsla. Einnig áttu þeir Gísli Haraldsson, Helgi Helgason og Hermann Jónasson (vm) mjög góðan leik. í liði Reynis voru þeir Guðjón Ólafsson og Þórður Marelsson bestir. Einar Hjartarson dæmdi leikinn og stóð hann sig vel, en hleypti leiknum of mikið upp. —B.A. Nýju búningarnir ÍSFIRÐINGAR unnu sanngjarnan lrOsigurgegn Reyni Árskógsströnd á Isafirði á laugardaginn. Skoraði Haraldur Leifsson eina mark leiks- ins á 12. mínútu úr þvögu, eftir að Ómar Torfason hafði átt gott skot í stöng og út. Talsverður sunnanvindur var meðan leikurinn fór fram. Sóttu Ísfirðingar nær látlaust í fyrri hálfleiknum, en i þeim seinni snerist dæmið við og nú voru það Reynismenn, sem sóttu mun meira, en án árangurs. Beztur í liði Reynismanna var í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.