Morgunblaðið - 24.06.1977, Síða 1

Morgunblaðið - 24.06.1977, Síða 1
32 SIÐUR 136. tbl. 64. árg. FOSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Amin sagður sprelllifandi Nairobi 23. júnl — Reuter. IDI DADA Amin, forseti Uganda, „er sprelllif- andi og við hestaheilsu“, sagði varaforseti Uganda, Mustafa Adrisi, hershöfðingi, I kvöld. Hafði Ugandaútvarpið þetta eftir varaforsetan- um, en sending þess heyrðist í Nairobi. Ðtvarpið skýrði einnig frá því, að Amin hefði veitt fjár málaráðherra sínum, Moses Ali, móttöku við heimkomu hans frá Kairó, en þaðan bar hann skilaboð frá Anwar Sa- dat, forseta Egyptalands. Þetta er í fyrsta sinn siðan um helgina, sem útvarpið flyt- ur fréttir af störfum Amins þessa viku. Áður hafði löng yfirlýsing frá talsmanni hers- ins verið lesin upp, en þar gagnrýndi hann orðróm um Framhald ábls. 18 Böm og ungling- ur féllu í Soweto Jóhannesarbors; 23. júnf — AP. EINN UNGLINGUR og tvö börn týndu lífi í kynþátta- óeirðum f blökkumannahverfinu Soweto fyrir utan Jó- hannesarborg í dag. Samtals handtók lögreglan 147 svarta unglinga en lögregiulið í Soweto var eflt til muna eftir því sem óeirðirnar urðu víðtækari. Þúsundir manna fóru í mótmæiagöngur til að krefjast þess að unglingaleiðtogar, sem sitja í fangelsi, verði látnir lausir. 16 ára piltur beið bana og annar særðist þegar lögreglan hóf að skjóta að kröfugöngu. Börnin tvö fórust þegar vörubíll ók inn í húsið þar sem þau bjuggu. Bílstjór- inn missti stjórn á bílnum eftir að hann hafði orðið fyrir grjótkasti unglinga. Fjölmennar vopnaðar lögreglusveitir eru nú um alla Soweto og sagði yfir- maður þeirra, Jan Visser, sem er hvítur, að þær hefðu náð tökum á mót- mælendum. Tugir þúsunda unglinga fóru ekki í skóla í morgun og settu ungling- arnir upp götuvígi, kveiktu í byggingum og köstuðu grjóti á bíla og lögreglu. Sfmamynd AP: Lögreglumenn vopnaðir vélbyssum, rifflum og táragas- sprengjum ganga til atlögu við andófsmenn f Soweto f gær. SOVET- RÍKIN: Engin öryggisráðstefna nema með okkar skilyrðum Belgrad 23. júní — AP, Reuter. öryggisráðstefna Evrópu mun leysast upp og verða að engu ef hún verð- ur ekki haldin samkvæmt dagskrártillögum Sovét- ríkjanna varðandi endur- skoðun Helsingfors- yfirlýsingarinnar, sagði aðalfulltrúi Sovétmanna í dag. Ræða Yuri Vorontsovs, sem hann hélt á allsherjar- fundi til undirbúnings Bel- gradráðstefnunni, kom vestrænum fulltrúum Begin: Höfnum tillögum um ríki Palestínumanna Tcl Aviv 2:í. júní — AP. MENACHEM Begin, for- sætisráðherra ísraels, hvatti í dag þjóð sína til ,,að verja líf sitt“ með því að hafna tillögum um að hún léti að fullu af hendi hertekin arabísk landsvæði og að stofnað yrði ríki Palestínumanna. Sagði Begin í fyrstu ræð- unni, sem hann heldur síð- an hann tók við embætti forsætisráðherra á mánu- dag, að þessar tvær tillög- ur, sem nú eru ofarlega á baugi í heiminum, væru ógnun við tilveru ríkis Gyðinga. Hann flutti ræðuna á heims- þingi zíonista, sem haldið er i Jerúsalem og kvað hann ísraels- menn hafa góða möguleika á að gera ut af við þessar tillögur, sem njóta stuðnings Bandarikja- manna. „Okkur verður að takast það þvi hættan er mikil." Begin fékk mikið lófatak þegar hann sagði: „ísrael getur ekki undir nokkrum kringumstæðum fallizt á landamæri eins og þau voru 4. júni 1967 og mun ekki gera það.“ Hann sagði að israelsmenn gætu alls ekki fallizt á að Pal- estínuríki risi i Júdeu og Samaríu (vesturbakka Jórdanár) né á Gazasvæðinu. „Með því að fjar- lægja slikar tillögur af alþjóða- vettvangi verjum við líf okkar i orðsins fyllstu merkingu." mjög á óvart og leggja þeir þann skilning f hana, að Sovétmenn taki ekki þátt í ráðstefnunni nema hún verði haldin samkvæmt þeirra skilyrðum. Verið var að ræða dagskrá aðal- ráðstefnunnar, þegar Vorontsov bað um orðið og sagði að tillögur, sem EBE-ríkin hefðu lagt fram með stuðningi Bandaríkjanna, og málamiðlunartillögur niu hlut- lausra rikja gætu valdið miklum óþægindum og jafnvel orðið til þess að ráðstefnan leystist upp. Sakaði hann Vesturlönd um létt- úðuga afstöðu til ráðstefnunnar. Vesturlönd hafa lagt til að bæði verði tekin afstaða til nýrra til- lagna á aðalráðstefnunni og metið hvernig tekizt hefur að fram- kvæma yfirlýsingu öryggisráð- stefnunnar í Helsingfors. Það fel- ur meðal annars í sér mat á fram- kvæmd Sovétmanna á þeim hluta yfirlýsingarinnar, sem fjallar um mannréttindamál. Við þessá tilhögun vilja Sovét- menn ekki sætta sig og óska þeir eftir þvi að nýjar tillögur Verði eini liðurinn á dagskránni en ekki verði farið nánar út i mat á fram- kvæmd Helsingforsyfirlýsingar- innar. Talsmenn vestrænna sendi- nefnda segja að búast megi við mjög erfiðum samningaviðræðum fyrir aðalráðstefnuna breyti So- vétmenn ekki afstöðu sinni. Arabar vilja Grænlandsfálka Danir íhuga af viðskiptaástæðum : áéHf' " Kaupmarmahöfn 23. júnt — AP ARABÍSKIR furstar hafa lagt beiðni fyrir dönsk stjórnvöld um aS þeir fái að kaupa veiðifálka frá Grænlandi til heimflutnings og hefur GrænlandsmálaráðuneytiS og danskir dýrafræðingar hafnað þeirri beiðni. UtanrlkisráSuneytiS segir hins vegar, að beiðnin verði IhuguS nánar. TalsmaSur utanrlkisráSuneytis- ins sagði I dag, að þess hefði verið fariS á leit við Grænlandsmála ráSuneytiS aS þaS endurskoSaSi afstöSu slna og aS sjö hvltir fálkar yrðu veiddir I snöru og seldir til Dubai og Bahrain, samkvæmt opinberri beiðni frá Sameinaða arablska furstadæminu. Grænlandsmálaráðuneytið heldur þvi fram, að þessi viðskipti væru ekki aðeins brot á 20 ára gamalli friðlýsingu þessara sjaldgæfu fugla, heldur væri hér um að ræða áhættu- sama tilraun, sem jaðraði við ómannúðlega meðferð á fuglum Talið er að aðeins séu um 200 hvitir fálkar á Grænlandi Birgitte Poulsen, sem nú gegnir störfum ráðuneytisstjóra í utanrikis- ráðuneytinu, sagði að beiðni fursta- dæmanna yrði tekin til jákvæðrar athugunar af viðskiptaástæðum og af almennri löngun Dana til að þókn- ast oliuútflutningsrikjum i Mið- austurlöndum. Hún bætti þvl við. að beiðnin frá Dubai hefði verið rök- studd með þvi að vilji væri fyrir þvl að hefja ræktun veiðifálka i landinu Forystumað- ur kolanámu- manna hand- tekinn í gær London 23. júní—AP. LÖGREGLAN handtók í dag leiðtoga brezkra kola- námumanna, Arthur Scargill, og 30 aðra her- skáa verkalýðsleiðtoga eft- ir átök við verkfallsverði, sem lagt höfðu undir sig mundaframköliunarverk- smiðju, samkvæmt upplýs- inguni Scotland Yard. James Callaghan, forsætisráð- herra, kallaði vinnudeiluna, sent er sú lengsta í sögu Bretlands, mjög alvarlega við heitar umræð- ur í þinginu og hvatti hann menn til að beita ekki ofbeldi. Ásakaði hann ákveðna aðila um að reyna að breyta vinnudeilunni i stjórn- máladeilu. Handtaka Scargills kom á stað reiðiöldu meðal námumanna, sem eru um 230.000 i Bretlandi, og verkalýðsfélaga og jók á ótta manna um að i odda skærist með verkalýðsfélögum og ríkisstjórn- inni, en ágreiningur ríkir þegar á milli þessara aðila um tekju- stefnu stjórnarinnar. Scargill, sem er leiðtogi námu- manna i Yorkshire, var tekini fastur eftir að hann hefði leitt 200 Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.